

Lið Mailwaukee Bucks hefur heldur betur farið vel af stað í NBA-deildinn í körfubolta, en liðið hefur unnið alla fimm leiki sína í upphafi tímabils. Liðið hafði betur gegn Atlanta Hawks í nótt, 123-115, þar sem Jrue Holiday og Giannis Antetokounmpo fóru fyrir liði Bucks.
Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Vilnius Rytas unnu nauman tveggja stiga sigur er liðið heimsótti BC Wolves í litháísku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag, 89-91. Liðið hafði tapað þremur deildarleikjum í röð og sigurinn var því langþráður. Á Spáni hefur Zaragoza tapað öllum fimm leikjum sínum til þessa.
Caris LeVert og Donovan Mitchell skoruðu báðir 41 stig fyrir Cleveland Cavaliers er liðið vann níu stiga sigur gegn Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta í framlengdum leik í nótt, 132-123.
Íslandsmeistarar Vals urðu í kvöld fyrsta liðið á tímabilinu til að vinna nýliða Hauka. Lokatölur 77-87, en Valur leiddi frá fyrstu mínútu og var sigurinn verðskuldaður.
Þjálfari Hauka Maté Dalmay var mjög svekktur með sína menn í kvöld og sagði að það þurfti framlag frá mikið fleiri mönnum ef þeir eiga að eiga séns í stóru liðin í deildinni. Haukar töpuðu fyrir Val 77-87 í fjórðu umferð Subway deildar karla í körfuknattleik. Þetta var fyrsta tap Hauka í deildinni.
KR vann sinn fyrsta leik í Subway deildinni í kvöld gegn Þór Þorlákshöfn 118-121. Eftir að hafa verið að elta allan leikinn náðu heimamenn að kreista út framlengingu en KR gerði betur í framlengingunni og vann þriggja stiga sigur 118-121.
Ummæli Huga Halldórssonar um körfuboltamanninn Srdan Stojanovic voru dæmd dauð og ómerk í Héraðsdómi Reykjaness. Þá þarf Hugi að greiða Srdan 150 þúsund krónur í miskabætur.
Njarðvík vann öruggan 21 stigs sigur er liðið heimsótti Stjörnuna í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 67-88 í leik þar sem Njarðvíkingar höfðu mikla yfirburði.
Njarðvíkingar tóku Stjörnumenn í kennslustund í Garðabænum í Subway-deild karla í kvöld, í leik sem endaði 67-88 og sigur gestanna í raun aldrei í neinni hættu. Benedikt Guðmundsson þjálfari Njarðvíkinga sagði að varnarleikur hans manna hefði lagt grunninn að sigrinum, í bland við vont kvöld Stjörnumanna.
Breiðablik vann í kvöld nokkuð öruggan 15 stiga sigur er liðið heimsótti Keflvíkinga í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 97-82, en fyrir leikinn var Keflvaík eitt af tveimur taplausum liðum deildarinnar.
Höttur vann fjögurra stiga sigur á Tindastól 73-69. Þetta var annar sigur Hattar í röð í Subway deildinni. Leikurinn var jafn nánast allan leikinn en Höttur steig upp í fjórða leikhluta á meðan gestirnir misstu dampinn.
Grindvíkingar unnu sinn annan sigur á tímabilinu þegar þeir lögðu ÍR-inga í hörkuleik suður með sjó í Subway-deildinni kvöld. Lokatölur 84-79 í leik þar sem þjálfari og einn leikmaður ÍR voru reknir út úr húsi.
Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur var ánægður með stigin tvö sem hans menn náðu í gegn ÍR í kvöld. Hann sagði að breytingar á hópi liðsins væru framundan.
Viðar Örn Hafsteinsson fær ekki að stýra Hetti í leiknum við Tindastól í kvöld vegna þeirra orða sem hann lét falla eftir tapið gegn Njarðvík, í Subway-deild karla í körfubolta fyrir tveimur vikum.
Alls fóru tíu leikir fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Los Angeles Lakers er enn án sigurs en liðið hefur tapað fyrstu fjórum leikjum sínum á leiktíðinni. Philadelphia 76ers máttu einnig þola tap sem og Brooklyn Nets sem mætti Milwaukee Bucks.
Ásta Júlía Grímsdóttir skoraði 18 stig þegar Valur lagði Njarðvík að velli, 69-80, í sjöundu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Þar að auki tók hún 12 fráköst og spilaði fantagóða vörn.
Valur fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti Njarðvík heim í sjöundu umferð Subway-deildar kvenna í körfubolta í Ljónagryfjunni í kvöld. Lokatölur eftir jafnan og spennandi leik urðu 69-80 Val í vil.
Keflavík og Haukar, toppliðin í Subway deild kvenna í körfubolta unnu góða útisigra í kvöld. Haukar gerðu góða ferð í Kópavog og unnu Breiðablik 74-54. Keflavík fór í Grafarvog og lagði Fjölni 91-72.
Grindavík vann nokkuð auðveldan sigur á ÍR er botnlið Subway deildar kvenna í körfubolta mættust í kvöld. Lið gestanna mætti þjálfaralaust þar sem Ari Gunnarsson sagði starfi sínu lausu í vikunni.
Hinn 32 ára gamli Klay Thompson var í nótt rekinn af velli þegar meistarar Golden State Warriors máttu þola stórt tap gegn Phoenix Suns í NBA deildinni í körfubolta. Fyrir leikinn hafði hann aldrei verið rekinn af velli.
Liðurinn Nei eða Já var á sínum stað í seinasta þætti af Lögmáli leiksins og eins og alltaf fóru strákarnir um víðan völl.
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar hefur komist að samkomulagi við Bandaríkjamanninn Vinnie Shahid um að leika með liðinu í Subway-deild karla í körfubolta.
Memphis Grizzlies og Brooklyn Nets buðu upp á sögulega frammistöðu stjörnuleikmanna liðanna í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Rússneskir dómstólar hafa hafnað áfrýjunarbeiðni körfuboltakonunnar Brittney Griner. Griner hlaut níu ára fangelsisdóm þar í landi fyrir vörslu eiturlyfja.
Nýtt tímabil í NBA-deildinni í körfubolta hófst í síðustu viku og í kvöld verður fyrsta vikan gerð upp í þættinum Lögmál leiksins á Stöð 2 Sport 2.
„Það var óviðeigandi að senda skilaboð en skilaboðin sem slík voru ekki klámfengin eða nokkuð slíkt,“ segir Árni Eggert Harðarson, körfuboltaþjálfari. Hann hefur verið rekinn úr starfi hjá körfuknattleiksdeild Hauka og mun ekki starfa meira fyrir KKÍ, vegna skilaboða til unglingsstúlkna.
Formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að félagið viðurkenni brot á reglu um fjölda erlendra leikmanna, í bikarsigrinum gegn Haukum í síðustu viku Strax hafi þó verið reynt að leiðrétta mistökin, og það gert án þess að ein sekúnda liði af leikklukku, og hann voni að aganefnd KKÍ komist ekki að þeirri niðurstöðu að dæma beri Haukum 20-0 sigur.
Haukar unnu magnaðan sigur á Njarðvík í stórleik helgarinnar í Subway deildinni í körfubolta.
Haukar unnu öflugan sigur á Íslandsmeisturum Njarðvíkur í stórleik helgarinnar í Subway deildinni í körfubolta.
Vandræði Los Angeles Lakers héldu áfram í NBA deildinni í kvöld þegar liðið fékk Portland Trail Blazers í heimsókn.