Handbolti

Spila á Dalvík vegna árshátíðar
Karlalið Þórs í handbolta bregður nú á sama ráð og karlalið KA í fótbolta þurfti að gera á síðustu misserum, með því að spila heimaleik á Dalvík vegna aðstöðuleysis á Akureyri.

„Þeir þurftu að hafa fyrir sínum mörkum“
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, var sáttur með sigur sinna manna er þeir tóku á móti Fram í 16. umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn var jafn framan af en Valsmenn tóku yfir í seinni hálfleik og unnu leikinn með sjö mörkum, 34-27.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Fram 34-27| Valsmenn halda áfram sigurgöngunni
Valsmenn fengu Fram í heimsókn í 16. umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 16-15 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Í seinni hálfleik tóku Valsmenn leikinn yfir og unnu með sjö mörkum 34-27.

Einar biðst afsökunar á ummælum sínum
Einar Jónsson, þjálfari Fram, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum eftir jafnteflið við FH í Olís-deild karla á föstudaginn.

„Egill Magnússon er týndur og tröllum gefinn“
Sérfræðingarnir í Seinni bylgjunni ræddu í síðasta þætti um vandræði FH-inga og sérstaklega framlag Egils Magnússonar sem skoraði ekki mark, úr sjö skotum, í 25-25 jafnteflinu við Fram í Olís-deildinni í handbolta.

Ulrik Wilbek að missa heyrnina
Ulrik Wilbek, fyrrverandi landsliðsþjálfari Danmerkur í handbolta og borgarstjóri í Viborg, þjáist af heyrnarkvilla.

Samherji Viggós kom út úr skápnum
Lucas Krzikalla, leikmaður Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, greindi frá því um helgina að hann væri samkynhneigður.

Segir Ísfirðinga hafa reynt að fá Hauk Þrastarson
Hörður frá Ísafirði er nýliði í Olís deildinni í handbolta og eru enn stigalausir eftir fyrstu þrjá leiki sína en það verður ekki annað sagt en að forráðamenn liðsins séu metnaðarfullir.

Aron öflugur þegar Álaborg tyllti sér á toppinn
Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson átti góðan leik fyrir Álaborg þegar liðið heimsótti GOG í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Lærisveinar Guðjóns Vals köstuðu frá sér sigrinum
Íslendingalið Gummersbach, undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar, þurfti að sætta sig við eins marks tap er liðið heimsótti Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 29-28.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Hörður 43-25 | Greinilegir yfirburðir Eyjamanna
ÍBV og Hörður mættust í Vestmannaeyjum í Olís-deild karla í handbolta í dag. Aldrei í sögu deildarinnar hefur verið eins langt á milli heimabæja liðanna sem mætast. Það voru Eyjamenn sem unnu þægilegan átján marka sigur.

Leggst illa í handboltafólk að taka út harpixið: „Það bara er ekki handbolti“
Harpix hefur verið nauðsynjabúnaður handboltafólks í áranna raðir, klístrið sem vekur oft upp spurningar þeirra sem þekkja minna til íþróttarinnar. En síðustu ár hefur það verið í umræðunni að hætta notkun harpix og var það meðal annars prófað á HM kvenna undir 18 ára í sumar.

Haukur og félagar hafa unnið 75 deildarleiki í röð
Haukur Þrastarson og félagar hans í pólska stórliðinu Kielce hafa ekki lagt í vana sinn að tapa mörgum deildarleikjum undanfarin ár. Liðið hefur nú unnið 75 leiki í röð í pólsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir 21 marks stórsigur gegn Gwardia Opole, 42-21.

Kristján Örn skoraði þrjú mörk í öruggum sigri
Kristján Örn Kristjánsson og félagar í Pays d'Aix unnu nokkuð öruggan sigur í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Ómar Ingi og Gísli Þorgeir atkvæðamiklir í dramatísku tapi
Þýsku meistararnir í Magdeburg biðu lægri hlut fyrir Flensburg í stórleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Haukar 29-29 | Garðbæingar köstuðu sigrinum frá sér
Stjarnan og Haukar skiptu stigunum á milli sín er liðin gerði 29-29 jafntefli í lokaleik 4. umferðar Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Heimamenn voru með þetta hendi sér þegar skammt var eftir af leiknum, en köstuðu sigrinum frá sér.

„Ég var ekki sáttur með þetta rauða spjald “
„Ég er ánægðastur með það, úr því sem komið var, að við náum að snúa þessu við með því að fara í framliggjandi vörn og vorum agaðir og með smá trikki frá Binna í horninu að ná að jafna leikinn,“ sagði Rúnar Sigtryggsson, þjálfari Hauka, eftir jafntefli á móti Stjörnunni í kvöld. Haukar voru tveimur mörkum undir þegar tæplega fimm mínútur voru til leiksloka en tókst, með klókinum að jafna leikinn, 29-29.

Grétar Ari og félagar enn án stiga í Frakklandi
Grétar Ari Guðjónsson og félagar hans í Selestat eru enn án stiga í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta eftir sex marka tap gegn Ivry í kvöld, 38-32.

Sveinn hafði betur í Íslendingaslag
Sveinn Jóhannsson og félagar hans í Skjern unnu góðan tveggja marka sigur, 30-28, er liðið tók á móti Íslendingaliði Ribe-Esbjerg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtal: FH - Fram 25-25 | Jafnt eftir mikla dramatík í Kaplakrika
FH og Fram gerðu 25-25 jafntefli í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld. Fram leiddi lengst af en FH hélt gestunum í seilingarfjarlægð og náðu nokkrum sinnum að jafna. Bæði lið fengu tækifæri til að taka sigurinn í lokin en lokasóknir liðanna fóru forgörðum.

Gunni Magg kveikti í Brynjari með því að láta hann heyra það
Brynjar Vignir Sigurjónsson, markmaður Aftureldingar, var frábær í sigri þeirra á Gróttu í leik liðanna í Olís deild karla í handbolta sem fram fór í Höllinni að Varmá í kvöld.

„Þeir voru betri en við og ég óska ÍR til hamingju“
„Mér líður ekki vel. Ég held að við og ég segi það sama og ég sagði eftir síðasta leik, við verðum að vera betri. Frá byrjun vorum við að elta þá og það er svo erfitt að byrja leikinn á elta og það er erfitt í sextíu mínútur. Þeir voru betri en við og ég óska ÍR til hamingju, góður leikur hjá þeim,“ sagði Carlos Martin Santos, eftir tap á ÍR í kvöld. Lokatölur 35-34.

Einar: Fínt að hafa læti og eitthvað að tala um
„Auðvitað hefði ég viljað vinna þennan leik, við leiðum allan leikinn og vorum klaufar að hleypa þeim inn í þetta. Við fórum illa með stöðuna einum fleiri og þetta verður svolítil taugaveiklun síðustu tíu mínúturnar,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir jafntefli gegn FH í Olís-deild karla í handknattleik í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 31-31 | Jafnt í háspennuleik í Suðurlandsslagnum
Selfoss og ÍBV gerðu 31-31 jafntefli er liðin mættust í háspennuleik í fjórðu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Umfjöllun: Afturelding - Grótta 29-25 | Mosfellingar náðu loksins að brjóta ísinn
Afturelding vann Gróttu þegar líðin áttust við í hörkuleik í fjórðu umferð Olís deildar kara í handbolta að Varmá í Mosfellsbæ í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 29 - 25 Aftureldingu í vil.

„Tvær lélegar sóknir hjá sitthvoru liðinu sem skilaði jafntefli“
Einar Sverrisson, leikmaður Selfoss, átti stórleik þegar liðið gerði jafntefli gegn ÍBV í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 31-31. Einar skoraði tíu mörk fyrir Selfyssinga og hans fjórða mark í leiknum var hans þúsundasta fyrir félagið í opinberum keppnisleikjum.

„Fannst halla mjög mikið á okkur“
Jónatan Magnússon, þjálfari KA, var svekktur með lokamínútur fyrri hálfleiks í tapinu fyrir Val í kvöld, 26-18. Honum fannst Valsmenn fá að ganga full hart fram í vörninni.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 26-18 | Öruggt í auðgleymdum leik
Valur vann sinn fjórða sigur í jafn mörgum leikjum í Olís-deild karla þegar liðið lagði KA örugglega að velli, 26-18, í fyrstu viðureign 4. umferðar í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: ÍR - Hörður 35-34 | ÍR-ingar sjóðheitir á nýjum heimavelli
ÍR tók á móti Herði í fjórðu umferð Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Leikurinn fór hratt af stað og bæði lið ákveðin að sækja stig. ÍR hafði betur og sigraði með einu marki 35-34.

Karen á von á páskaunga
Landsliðskonan Karen Knútsdóttir, leikstjórnandi og lykilmaður Fram í handbolta, verður ekki með Íslandsmeisturunum í vetur þar sem hún er ólétt að sínu öðru barni.