
Handbolti

Hafnaði Íslandi til að taka við Flensburg
Danski handknattleiksþjálfarinn Nicolej Krickau verður næsti þjálfari þýska stórliðsins Flensburg eftir hafa stýrt dönsku meisturunum í GOG síðustu ár.

„Við eigum samt fullt inni“
Brynjar Vignir Sigurjónsson var óvænt í byrjunarliði Aftureldingar gegn Haukum í fjórða leik æsispennandi einvígis liðanna í Olís-deild karla í handbolta, og stóð sig með prýði í marki Mosfellinga.

Þorgils til Svíþjóðar og fær sendingar frá Ólafi
Línumaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur ákveðið að fara frá Val út í atvinnumennsku og hefur hann samið til tveggja ára við sænska handknattleiksfélagið Karlskrona.

Guðmundur vakti björn sem hafði verið sofandi í 43 ár
Mikil gleði ríkir nú í herbúðum danska handboltafélagsins Federicia sem hefur, undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar, tryggt sér sæti í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar.

Íslenska mamban með aðsetur í Mosfellsbænum
Blær Hinriksson er með hugarfar Kobe Bryant að mati eins reyndasta leikmannsins í liði Aftureldingar og það hefur Blær sýnt og sannað með frábærri endurkomu sinni í úrslitakeppninni.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Haukar – Afturelding 30-31 | Mosfellingar tryggðu sér oddaleik
Afturelding vann eins nauman sigur og hægt var á Haukum í fjórða leik undanúrslita Olís-deildar karla í handbolta. Það þýðir einfaldlega að veislan heldur áfram þar sem það er oddaleikur framundan.

Aron frábær og Álaborg komið í undanúrslit
Aron Pálmarsson fór mikinn í átta marka sigri Álaborgar á Skjern í dönsku úrvalsdeildinni. Bæði lið eru komin í undanúrslit.

Gunnar: Eigum að njóta þess að fylgjast með öllum þessum framtíðar atvinnumönnum
Afturelding vann eins marks sigur gegn Haukum á Ásvöllum 30-31. Gunnar Magnússon, þjálfari Aftureldingar, var afar ánægður með sigurinn.

Arnór og félagar settu strik í reikninginn í toppbaráttu Füchse Berlin
Arnór Þór Gunnarsson og félagar hans í Bergischer unnu óvæntan fjögurra marka sigur er liðið tók á móti toppbaráttuliði Füchse Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, 34-30.

Sjöunda tapið í röð hjá Ými og félögum
Ýmir Örn Gíslason og félagar hans í Rhein-Neckar Löwen máttu þola tveggja marka tap er liðið tók á móti Íslendingalausu Íslendingaliði Magdeburg í dag. Lokatölur 35-37, og Ýmir og félagar hafa nú tapað sjö deildarleikjum í röð.

„Afdrifarík og stór mistök sem eru að gerast í annars ágætlega dæmdum leikjum“
Mikið hefur verið rætt og ritað um dómgæslu í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta undanfarna daga og vikur. Stórir dómar hafa fallið í lok leikja í undanúrslitaeinvígum keppninnar og í einhverjum tilvikum hafa þeir ráðið úrslitum leikja. Sigfús Sigurðsson, fyrrum landsliðsmaður Íslands í handbolta, var á línunni í síðasta hlaðvarpsþætti Handkastsins og ræddi þessi mál.

Björgvini Páli leiðist í sumarfríi: „Maður stoppar aldrei á þessum aldri“
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Vals og íslenska landsliðsins í handbolta, fór heldur fyrr í sumarfrí í ár en hann er vanur. Hann kveðst ekki njóta þess neitt sérstaklega.

Díana Dögg markahæst þegar Eyjakonurnar mættust í Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og stöllur í Metzingen höfðu betur gegn Sachen Zwickau í efstu deild kvenna í handbolta í Þýskalandi. Díana Dögg Magnúsdóttir leikur með Zwickau og var markahæsti leikmaður liðsins.

Stórleikur Bjarka í góðum sigri
Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson skoraði 8 mörk í flottum sjö marka sigri Veszprém á Komló í ungversku úrvalsdeildinni í handbolta, lokatölur 39-32.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV – Valur 23-30 | Valskonur taka forystuna
Valur vann gríðarlega mikilvægan sjö marka sigur er liðið heimsótti ÍBV í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Olís-deildar kvenna í handbolta í kvöld, 23-30.

Handboltahjónin á Selfossi aftur til heimalandsins
Hjónin Karolis Stropus og Roberta Stropé hafa ákveðið að flytja heim til Litáen og munu því ekki leika með Selfossi á næstu leiktíð eftir tvö ár hjá félaginu. Raunar ætla þau bæði að leggja skóna á hilluna.

Stór þáttur í að fá Aron heim en orðið „stutt í snörunni“
Í nýjasta þætti Handkastsins veltu menn fyrir sér stöðu Sigursteins Arndal, þjálfara karlaliðs FH, eftir fjórða titlalausa tímabil liðsins undir hans stjórn. Ljóst sé að liðinu sé ætlað að vinna titla á næstu árum, með Aron Pálmarsson í broddi fylkingar.

Drógu rauða spjaldið til baka og segjast ekki hafa séð öll sjónarhorn
Aftureldingarmenn hafa verið afar svekktir vegna umdeildra ákvarðana dómara eftir síðustu tvo leiki gegn Haukum, og kætast varla nú þegar dómararnir hafa viðurkennt afdrifarík mistök í gærkvöld.

Sagan ekki með Eyjakonum: Sjaldgæft að vinna sama lið í báðum úrslitum
Úrslitaeinvígi ÍBV og Vals í Olís deild kvenna í handbolta hefst í kvöld þegar liðin mætast í fyrsta leik úrslitaeinvígisins úti í Vestmannaeyjum.

Svona braut Gísli ökklann
Gísli Þorgeir Kristjánsson og þýska liðið Magdeburg hafa orðið fyrir áfalli því nú er ljóst að 23 ára landsliðsmaður í handbolta ökklabrotnaði í leik í Meistaradeild Evrópu á miðvikudaginn.

Döhler sýndi miklar tilfinningar í leikslok: „Algjör gullmoli“
Phil Döhler lék líklegast sinn síðasta leik fyrir FH í fyrrakvöld þegar liðið datt út úr undanúrslitum Olís deildar karla í handbolta. Döhler hefur verið í FH frá árinu 2019 en er nú á leiðinni út.

Sjáðu umdeilda dóminn sem Seinni bylgjan var svo ósátt við
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru ekki sammála umdeildum dómi sem átti stóran þátt í sigri Hauka á Aftureldingu í Mosfellsbænum i gærkvöldi.

„Ótrúlegt að það séu þrjú ár síðan þetta lið átti ekki að vera til“
Kvennalið ÍR í handbolta kom flestum á óvart með því að vinna Selfoss í fimm leikja seríu og tryggja sér sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Lærimeyjar Sólveigar Láru Kjærnested verða þar með eina lið ÍR í efstu deild í boltaíþrótt.

Umfjöllun,viðtöl og myndir: Afturelding - Haukar 30-31 | Haukar taka forystuna eftir sigur í framlengingu
Haukar unnu ótrúlegan eins mark sigur í framlengdum leik er liðið heimsótti Aftureldingu í þriðja leik liðanna í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Lokatölur 30-31 og Haukar eru því komnir með forystu í einvíginu.

Teitur og félagar halda í við toppliðin eftir risasigur í Íslendingaslag
Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu afar sannfærandi 14 marka sigur er liðið heimsótti Svein Jóhannsson og félaga hans í Minden í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 27-41.

Bjarki og félagar björguðu jafntefli á seinustu stundu
Bjarki Már Elísson og félagar hans í ungverska stórliðinu Telekom Veszprém björguðu sér fyrir horn er liðið tók á móti pólska liðinu Kielce í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum í Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 29-29, en heimamenn í Veszprém jöfnuðu metin með seinasta skoti leiksins.

Íslendingaliðið hóf undanúrslitin á sigri
Íslendingalið Kadetten Schaffhausen, undir stjórn Aðalsteins Eyjólfssonar, vann góðan sex marka sigur er liðið tók á móti Pfadi Winterthur í fyrsta leik liðanna í undanúslitum svissnesku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag, 34-28.

Haukar fá sigursælan Stefán til starfa með Díönu
Stefán Arnarson, sigursælasti þjálfari úrvalsdeildar kvenna í handbolta á þessari öld, verður að öllum líkindum tilkynntur sem nýr þjálfari kvennaliðs Hauka á næstunni. Hann mun væntanlega stýra liðinu með Díönu Guðjónsdóttur, sem verið hefur aðalþjálfari síðustu tvo mánuði með farsælum hætti.

Leikmenn keyptu kokkahúfurnar og gabbið var vel æft
Eyjamaðurinn Dagur Arnarsson fór um víðan völl með sérfræðingum Seinni bylgjunnar strax eftir að hafa slegið út FH í undanúrslitum Olís-deildarinnar í handbolta í gærkvöld. Kokkahúfur bar á góma, sem og markið sem að Dagur skoraði eftir að Eyjamenn göbbuðu FH-inga upp úr skónum.

Færri komast að en vilja á stórleik kvöldsins: „Þetta er lykilleikur“
Það er von á hörkuleik í kvöld þegar að Afturelding tekur á móti Haukum í þriðja leik undanúrslitaeinvígis liðanna í Olís deild karla. Staðan er jöfn í einvíginu fyrir leik kvöldsins og ljóst að færri munu komast að en vilja í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.