

Þriðja risamót tímabilsins fer af stað í dag þegar Opna bandaríska, US Open, fer fram á The Los Angeles Country Club's North Course-vellinum í Los Angeles um helgina. Mótið er raunar nú þegar hafið, en það er ekki mótið sjálft sem hefur stolið fyrirsögnum golfheimsins undanfarna daga, heldur óvæntur samruni PGA- og LIV-mótaraðanna.
Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur ekkert viljað tjá sig um samrunann stóra í golfheiminum.
Jay Monahan, yfirmaður PGA-mótaraðarinnar í golfi, hefur látið daglegan rekstur mótaraðarinnar tímabundið í hendur sinna næstu undirmanna á meðan hann jafnar sig á veikindum.
Færustu kylfingar heims virðast kunna misvel við samruna PGA- og LIV-mótaraðarinnar í golfi. Sumir segjast ekki skilja hvað er í gangi, aðrir líkja þessu við að vera stunginn í bakið á meðan enn aðrir njóta ringulreiðarinnar í botn.
Kylfingurinn Matt Fitzpatrick stendur á gati eftir samruna LIV- og PGA-mótaraðanna í golfi.
Samruni PGA- og LIV-mótaraðanna í golfi kom eins og þruma úr heiðskýru lofti fyrir sléttri viku síðan og ráku margir upp stór augu þegar fréttir af samrunanum bárust. Nú hefur öldungadeild Bandaríkjaþings blandað sér í málið og ætlar sér að rannsaka samrunann.
Mikið gekk á eftir að Nick Taylor vann Opna kanadíska meistaramótið í golfi í gær. Vinur hans fékk fyrir ferðina.
„Þetta eru risastórar fréttir,“ segir Björn Berg Gunnarsson, um nýjustu vendingar í golfheiminum þar sem að fjárfestingasjóður Sádi-Arabíu er kominn saman í eina sæng með stærstu mótaröðum íþróttarinnar.
Golfvellir á höfuðborgarsvæðinu komu mjög illa undan vetri og opna þurfti seinna en vanalega. Framkvæmdarstjóri Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði, Ólafur Þór Ágústsson, segir að tæp tuttugu ár séu síðan ástandið hafi verið jafn slæmt á golfvöllum.
Ýmislegt gekk á þegar kylfingar á PGA-mótaröðinni komu saman eftir samrunann við LIV-mótaröðina. Lítt þekktur kylfingur sagði einum fremsta kylfingi heims meðal annars að fara til fjandans.
Eftir að tilkynnt var um samruna PGA- og LIV-mótaraðanna í golfi hafa margir af fremstu kylfingum heims látið óánægju sína í ljós. Kylfingar sem héldu tryggð við PGA-mótaröðina hittust í gær og margir þeirra kölluðu eftir afsögn Jay Monahan, yfirmanns PGA.
Rory McIlroy, efsti maður heimslistans í golfi, segir að samruni PGA- og LIV-mótaraðanna í golfi séu þegar allt kemur til alls góðar fréttir fyrir golfíþróttina. Hann segist þó enn hata LIV og vonar að sádiarabíska mótaröðin hverfi alfarið.
Bandaríska PGA-mótaröðin í golfi hefur samþykkt að sameinast sínum helsta keppinauti, sádiarabísku LIV-mótaröðinni. Sameining mótaraðanna þýðir að öll málaferli þeirra á milli verða felld niður.
Rose Zhang hrósaði sigri á Mizuho Americas Open, hennar fyrsta móti á atvinnumannaferlinum. Mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni í golfi.
Tiger Woods keppir ekki á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem fer fram í næsta mánuði.
Óvænt stjarna varð til á PGA-meistaramótinu í golfi um helgina. Það var Bandaríkjamaðurinn Michael Block sem fór holu í höggi á 15. braut, rakaði inn seðlum og tryggði sér þátttökurétt á PGA-meistaramótinu á næsta ári.
Brooks Koepka varð um helgina tuttugasti kylfingurinn í sögunni til að ná því að vinna fimm risamót á ferlinum. Þessi 33 ára Bandaríkjamaður er núna í sérflokki á meðal efstu kylfinga heimslistans í dag.
Brooks Koepka er með eins höggs forystu á Corey Conners og Viktor Hovland fyrir lokahringinn á PGA meistaramótinu í golfi en lokahringurinn verður leikinn í dag.
Þrír kylfingar eru efstir og jafnir á PGA meistaramótinu í golfi að loknum tveimur dögum. Jon Rahm, Justin Thomas og Jordan Spieth rétt sluppu við niðurskurðinn.
Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods lét lögfræðinginn sinn gera meira en flestir ætlast til þegar síðustu sambandsslit hans enduðu ekki vel.
Fyrrum kærasta Tiger Woods hefur höfðað mál gegn golfaranum. Fer hún fram á rúma fjóra milljarða í skaðabætur vegna meints brots á samningi um að hún fengi áfram að búa í húsi sem parið bjó áður í saman.
Tiger Woods gekkst í gær undir aðgerð vegna ökklameiðsla sem urðu til þess að hann þurfti að draga sig úr keppni á þriðja hring á Masters-mótinu fyrr í þessum mánuði.
Rory McIlroy á ekki sjö dagana sæla. Hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Masters mótinu í golfi um páskahelgina og skróp á RBC mótinu sem hófst á fimmtudag kostar hann stórar upphæðir.
Jon Rahm varð á sunnudag fjórði Spánverjinn til að landa sigri á hinu fornfræga Masters-móti í golfi. Fjörutíu ár eru síðan samlandi hans Seve Ballesteros vann mótið og vottaði Rahm honum virðingu sína að móti loknu.
Spænski kylfingurinn Jon Rahm reyndist hlutskarpastur á Masters mótinu í golfi um helgina.
Goðsögnin Tiger Woods mun ekki taka þátt á lokadegi Masters mótsins í golfi.
Keppni á Masters mótinu í golfi mun ljúka í dag eftir erilsama helgi.
Úrhellisrigning varð til þess að fresta varð leik á þriðja keppnisdegi á Masters-mótinu í golfi sem fram fer á Augusta National í Georgiu í Bandaríkjunum þessa dagana.
Gera þurfti hlé á öðrum keppnisdegi Masters mótsins í golfi vegna veðurs og munu þeir kylfingar sem náðu ekki að klára sinn hring hefja keppni á hádegi í dag.
Sterkir vindar blása víðar en á Íslandi í dag og hefur mikið hvassviðri sett strik í reikninginn á Masters mótinu í golfi sem fram fer á Augusta vellinum í Georgíufylki Bandaríkjanna um helgina.