Innlent
307 308 309 310 311 312 313 314 315 … 334 ›
Það skásta og það versta sem gæti gerst fari að gjósa Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði, skoðaði verstu og skástu sviðsmyndirnar kæmi til goss á Reykjanesskaga í kvöldfréttum Stöðvar 2. Í verstu sviðsmyndinni myndi hraun renna í Grindavíkurbæ. Innlent 11.11.2023 19:50
Eldgos geti brotist út á næstu klukkutímum Sviðsstjóri almannavarna segir að staðan í Grindavík sé alvarlegri en hún var fyrr í dag. Ljóst sé að það verði eldgos og að það gæti gerst hvenær sem er á næstu klukkustundum. Þá muni eldgosið ekki gera vart við sig áður en það brýst út. Innlent 11.11.2023 19:36
Búa heima hjá manni sem þau hafa aldrei hitt Heilt bæjarfélag þurfti að gista fjarri heimilum sínum í nótt. Einhverjir leituðu til ættingja og vina og aðrir til fjöldahjálparstöðva Rauða krossins. Þegar fréttastofu bar þar að garði á ellefta tímanum í morgun var ansi þungt yfir fólki sem virtist þó gera það besta úr stöðunni. Flestir voru af erlendu bergi brotnir, margir með börn. Innlent 11.11.2023 19:26
Kvika á 800 metra dýpi og auknar líkur á eldgosi Veðurstofan greinir frá því að samkvæmt nýjustu gögnum hafa líkur á eldgosi aukist frá því í morgun og gæti það hafist hvenær sem er á næstu dögum. Þá liggur kvika á 800 metra dýpi þar sem hún er grynnst. Einnig eru auknar líkur á eldgosi á hafsbotni og því þurfi að búa sig undir möguleika á sprengigosi. Innlent 11.11.2023 18:50
Mikið álag á bráðamóttökunni Mikið álag er á bráðamóttökunni í Fossvogi stundina. Þar bíða margir eftir þjónustu. Innlent 11.11.2023 18:28
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Jörð hefur haldið áfram að skjálfa á Reykjanesi í dag en virknin færst norður. Enn eru taldar miklar líkur á eldgosi. Við setjumst niður með Magnúsi Tuma Guðmundssyni prófessor í jarðeðlisfræði í myndveri í beinni útsendingu og förum yfir stöðuna. Innlent 11.11.2023 18:20
Varð fyrir voðaskoti á rjúpnaveiðum Landhelgisgæslan vinnur nú að því að sækja mann sem varð fyrir voðaskoti á rjúpnaveiðum við Leggjabrjót. Skotið hæfði manninn í fótinn. Innlent 11.11.2023 17:44
„Verður hægt að fara heim aftur?“ Grindvíkingarnir Ögn Þórarinsdóttir og Hildur Fjóla Bridde eru í nokkru áfalli eftir að hafa yfirgefið heimili sín í gær. Óvissan er algjör. Innlent 11.11.2023 16:39
Segir Landsrétt þagga niður í konum með því að dæma sér í óvil Sindri Þór Sigríðarson, hvers ummæli í garð Ingólfs Þórarinssonar voru dæmd dauð og ómerk í Landsrétti í gær, segir dómstólinn hafa með niðurstöðu sinni þaggað niður í konum. Innlent 11.11.2023 16:23
Harkalegur árekstur við Skeiðarvogsbrú Árekstur var við Skeiðarvogsbrú um þrjúleytið í dag. Sjónarvottur telur að tveir bílar hafi lent í árekstri og segir að hann valdi einhverri umferðarteppu. Innlent 11.11.2023 15:23
Neyðarsöfnun hafin vegna jarðhræringa við Grindavík Rauði krossinn á Íslandi hefur sett í gang neyðarsöfnun vegna jarðhræringanna við Grindavík. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 11.11.2023 15:16
Virkja viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar Í ljósi þróunar jarðhræringa á Reykjanesi hefur viðbragðsáætlun stjórnvalda og ferðaþjónustunnar verið virkjuð. Markmið hennar er að tryggja skipulögð og samhæfð viðbrögð allra aðila á neyðartímum. Innlent 11.11.2023 15:07
Ekki nógu margir Grindvíkingar búnir að tilkynna sig Ekki hafa nógu margir Grindvíkingar tilkynnt verustað sinn í síma 1717. Slíkt er forsenda þess að hægt sé að skipuleggja skólahald. Innlent 11.11.2023 14:58
„Hugur minn er allur hjá fólkinu mínu“ Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir að hugur sinn sé fyrst og fremst hjá fólkinu sínu í Grindavík vegna atburða gærkvöldsins. Hann segir um að ræða ofboðslegt áfall og er þakklátur fyrir aðstoðina. Innlent 11.11.2023 13:04
Grindvíkingar fá ekki að fara heim næstu daga Fram kom á upplýsingafundi almannavarna að miklar líkur væru á eldgosi. Líkur væru á stærra eldgosi en við höfum séð síðustu ár. Íbúar munu ekki fá að fara heim næstu daga. Unnið er að því að koma börnum í skóla og finna þeim húsnæði sem ekki geta verið hjá ættingjum, vinum eða vandamönnum. Innlent 11.11.2023 12:30
Hádegisfréttir Bylgjunnar Upplýsingafundur almannavarna vegna eldhræringa á Reykjanesi og rýmingar í Grindavík verður fyrirferðarmikill í hádegisfréttum Bylgjunnar sem hefjast kl. 12:00. Innlent 11.11.2023 11:50
Veðurstofan: Kvikuflæðið margfalt á við það sem áður hefur mælst Hraði aflögunarinnar sem mælst hefur í GPS gögnum í umbrotunum á Reykjanesskaga nú er margfaldur á við það sem mældist í fyrri jarðhræringum á Reykjanesskaga. Kvikuflæðið er sömuleiðis margfalt meira. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Ólíklegt er talið að kvika komi upp á hafsbotni en líkur á eldgosi á næstunni verða að teljast verulegar. Innlent 11.11.2023 11:36
Svona var upplýsingafundur almannavarna Upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og rýmingar í Grindavíkurbæ var haldinn klukkan 12:00 í dag. Innlent 11.11.2023 11:21
Atburðir gærkvöldsins óvæntir: Töluvert gjóskufall myndi fylgja gosi í sjó Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur, segir að atburðir gærkvöldsins hafi verið óvæntir. Kvika hafi hlaupið suður og líkurnar á gosi, mögulega úti í sjó hafi aukist. Innlent 11.11.2023 11:03
Grindvíkingar enn að jafna sig á skjálftariðunni í morgunsárið Fjöldahjálparstjóri hjá Rauða krossinum segir að 75 manns hafi gist í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Kórnum í Kópavogi sem opnuð var vegna rýmingar í Grindavík. Innlent 11.11.2023 10:23
Heppilegt að fáir bátar hafi verið í höfn í Grindavík Hafnarstjóri Grindavíkurhafnar segir það heppilegt að nú sé sá tími árs þar sem fáir bátar eru við höfn í Grindavík. Hann telur um 20 til 30 báta enn vera við höfn. Innlent 11.11.2023 10:07
Upplýsingafundur almannavarna í hádeginu Upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og rýmingar í Grindavíkurbæ verður haldinn klukkan 12:00 í dag. Innlent 11.11.2023 09:50
Kvikugangurinn gæti verið allt að tólf kílómetrar Land virðist hafa gliðnað um allt að 120 sentímetra. Jarðskjálftavirknin hefur færst nær hafi og kvikugangurinn lengst. Innlent 11.11.2023 09:37
Um 800 skjálftar frá miðnætti Enn er stöðug skjálftavirkni þótt hún hafi róast eitthvað. Kvikugangurinn virðist enn undir Grindavík. Innlent 11.11.2023 09:14
Vaktin: Ekki víst að gosórói sjáist á mælum áður en gos hefst Vísindamenn telja miklar líkur á eldgosi á Reykjanesskaga eftir atburði gærkvöldsins. Grindvíkingar munu ekki fá að fara heim næstu daga eftir farsæla rýmingu í gærkvöldi. Ástandið er stöðugt endurmetið. Innlent 11.11.2023 08:36
Það sem gerðist í nótt Hér er að finna samantekt á því sem gerðist í nótt. Kvikugangur virðist nú liggja undir Grindavík. Nokkuð mikil kvika virðist vera að safna saman og atburðurinn stærri en áður var búist við. Búið er að rýma Grindavík, kalla flesta viðbragðsaðila af svæðinu og varðskipið Þór fær fjær bænum. Innlent 11.11.2023 07:34
Þriggja ára dómur fyrir brot gegn stjúpdóttur Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað og reglulega beitt stjúpdóttur sína kynferðisofbeldi á þriggja ára tímabili. Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Innlent 11.11.2023 06:45
Fjórir millistjórnendur fá ekki krónu eftir uppsögn Landsréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af því að hafa staðið ólöglega að uppsögnum fjögurra fyrrverandi millistjórnenda spítalans í tengslum við skipulagsbreytingar. Starfsmennirnir kröfðust tuttugu til þrjátíu milljóna króna hver í bætur. Innlent 11.11.2023 06:33
Kvikugangur færir sig í átt til sjávar sem gæti þýtt sprengigos Miklar breytingar hafa orðið á skjálftavirkninni sem mælst hefur við Sundhnjúkagíga og aflögun sem mælst hefur á Reykjanesskaga. Náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands tjáði fréttastofu í nótt að kvikugangurinn virtist vera að teygja sig í suðvestur. Innlent 11.11.2023 05:34
Kvikugangurinn töluvert stærri en talið var Jarðvísindamenn funduðu með almannavörnum um þrjúleytið í nótt. Bæði GPS gögn og gervitunglamyndir staðfesta að síðan í gærkvöldi hefur myndarlegur kvikugangur myndast og er hann töluvert stærri en talið var. Stór sprunga gæti opnast á svæðinu frá Sundhjúkagígum og áfram í gegnum Grindavík. Innlent 11.11.2023 03:50