
Innlent

Kjörsókn betri fyrir austan en menn þorðu að vona
Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og Austurlandi fyrir klukkan átta í morgun vegna norðaustan og norðan hríðar með snjókomu og skafrenningi. Veður versnar á norðanverðu landinu með deginum en þar taka viðvaranir gildi klukkan þrjú.

Tekist að opna alla kjörstaði í Norðausturkjördæmi
Framkvæmd alþingiskosninganna í Norðausturkjördæmi hefur gengið betur en menn þorðu að vona þrátt fyrir að færð hafi spillst af völdum veðurs, að sögn varaformanns yfirkjörstjórnar kjördæmisins. Tekist hefur að opna alla kjörstaði í kjördæminu.

„Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“
Kara Rós Kristinsdóttir var sex ára gömul þegar eldri strákur lokkaði hana og vinkonu hennar inn í bílakjallara og braut á þeim kynferðislega með grófum hætti. Sökum ungs aldurs piltsins hlaut hann ekki refsingu og Kara kveðst ekki vita til að hann hafi fengið nokkurs konar aðstoð eða meðferð. Hann hélt áfram að ganga í sama skóla og Kara þrátt fyrir að skólayfirvöld hafi verið látin vita af málinu.

Heyrir fleiri segja þörf á VG á þingi
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist bjartsýn fyrir daginn, þó flokkurinn hafi ekki verið að koma vel út úr könnunum en hann hefur þó bætt við sig í síðustu könnunum. Hún segist finna fyrir því að fólk sé að snúa aftur til VG.

Heldur aftur af sér svo hún gangi ekki um syngjandi
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist þurfa að halda aftur af sér, svo hún gangi ekki syngjandi um því það liggi svo vel á henni í dag. Hún segist vonast til þess að marka megi skoðanakannanir.

Ölfusá orðin bakkafull af ís
Vatnsyfirborð Ölfusár heldur áfram að hækka vegna klakastíflunnar sem hefur myndast í henni. Farvegurinn er nú sagður bakkafullur af ís og vatn komið yfir gróður nærri Hótel Selfossi.

Á sér langa sögu eldfimra ummæla
Oddviti Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi, sem kærður hefur verið fyrir ummæli gagnvart trans fólki á sér langa sögu slíkra ummæla. Þá hafa mótframbjóðendur hans orðið fyrir barðinu á ummælum hans.

Auðvelt val þótt hann geti ekki kosið sjálfan sig
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir valið hafa verið auðvelt á kjörstað í morgun, þó hann sé í þeirri skrítnu stöðu að geta ekki kosið sjálfan sig.

„Við verðum að fá öflugan vinstri flokk“
Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalistaflokksins í Alþingiskosningunum, greiddi atkvæði í Vesturbæjarskóla á slaginu níu í morgun, þar sem hún var fyrst til að kjósa. Í samtali við fréttastofu sagðist Sanna vongóð fyrir daginn. Hún sagðist ánægð með alla þá sem hafa komið að framboði Sósíalistaflokksins undanfarin misseri.

Gekk berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði
Maður var handtekinn og vistaður í fangageymslu lögreglu eftir að tilkynnt var um að hann hefði gengið berserksgang í verslunarmiðstöð í Hafnarfirði í gær. Hann er sagður grunaður um húsbrot, eignaspjöll og vörslu ávana- og fíkniefna.

Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki
Eftir snarpa baráttu eru sögulegar Alþingiskosningar að baki. Sjálfstæðisflokkur fékk sína verstu kosningu frá upphafi og Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í annað sinn í sögunni. Þá eru bæði Vinstri græn og Píratar dottin af þingi á meðan Viðreisn og Flokkur fólksins uppskáru ríkulega.

Mestu flokkaflakkararnir
Minnkandi flokkshollusta í íslenskri pólitík og lítill munur á stefnumálum hefur gert það að verkum að stjórnmálamenn eru farnir að flakka í meiri mæli á milli flokka. En spurningin er hver er mesti flokkaflakkarinn?

Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst
Sjálfstæðisflokkurinn stekkur upp um 3,1 prósentustig og tekur fram úr Viðreisn í nýjustu könnun Maskínu. Samfylkingin bætir lítillega við sig og mælist áfram stærst en Viðreisn dalar um tvö prósentustig. Botnbaráttan herðist en litlar breytingar er að sjá þess utan.

„Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“
Yfirkjörstjórnir landsins vinna nú að því að gera allt klárt fyrir kosningar á morgun en veður gæti sett strik í reikninginn. Vegagerðin hefur ráðið fleiri verktaka og fjölgað tækjum. Ef ekki tekst að opna alla kjörstað þarf að fresta talningu.

„Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“
Sagnfræðingur segir fjölda flokka mögulega leiða til stjórnarkreppu en snarpri kosningabaráttunni lýkur formlega á morgun þegar Íslendingar ganga til kosninga.

Ísstífla hrannast upp í Ölfusá
Ís er farinn að hrannast upp aftur í farvegi Ölfusár neðan og við Selfoss. Vegna stíflunnar er vatnshæð árinnar komin upp í fjóra metra og hefur ekki verið hærri síðan árið 2020.

Önnin kláruð með eðlilegum hætti í MR
Rektor Menntaskólans í Reykjavík fagnar því að fá nemendur aftur í skólann á mánudaginn næstkomandi. Verkfall hefur staðið yfir í skólanum síðustu tvær vikur, en hefur nú verið slegið á frest. Önnin verður kláruð með eðlilegum hætti.

Tæplega helmingi líst vel á Samfylkingu og Viðreisn í ríkisstjórn
Tæplega helmingi kjósenda líst vel á að Samfylking og Viðreisn leiði næstu ríkisstjórn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Langflestir kjósendur Samfylkingarinnar vilja slíka ríkisstjórn. Óvinsælasta samsetningin sem spurt var um er ríkisstjórn Miðflokks og Samfylkingar, en aðeins um 9 prósent líst vel á slíka stjórn.

Kennaraverkföllum frestað og áhrif veðursins á kosningar
Verkföllum kennara hefur verið frestað frá og miðnætti eftir að tillaga frá ríkissáttasemjara var samþykkt. Ef ekki verður samið fyrir 1. febrúar hefjist verkfallsaðgerðir kennara á ný. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Kennarasambandsins, sem segir enn langt í land að kjarasamningar náist.

Dynjandisheiði boðin út „á allra næstu dögum“
Vegagerðin skýrði frá því í dag að hún undirbúi núna útboð vegna þriðja áfanga nýbyggingar Vestfjarðarvegar um Dynjandisheiði á um 7,3 kílómetra kafla og einnig á um eins kílómetra kafla á Dynjandisvegi. „Áætlað er að útboðið fari í loftið á allra næstu dögum,“ segir í frétt Vegagerðarinnar.

Miklar gleðifréttir og gott að fá nemendur og starfsfólk aftur í hús
Soffía Sveinsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla suðurlands, segir miklar gleðifréttir að verkfalli kennara hafi verið frestað. Verkfall hefur staðið yfir í skólanum síðan 29. október. Kennsla hefst á ný á þriðjudaginn og mun standa yfir til 20. desember.

Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins
Samtökin '78 hafa hafa lagt fram kæru gegn Eldi S. Kristinssyni, oddvita Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Meðal þess sem hann er kærður fyrir eru ásakanir um barnagirnd. Eldur segir um pólitískar ofsóknir að ræða en formaður Samtakanna '78 segir að svo sé ekki.

Kosningavaka Stöðvar 2 og Vísis
Kosningavaka Stöðvar 2 verður á dagskrá í kvöld í opinni dagskrá og beinni útsendingu.

Næststærsta gosið hingað til
Eldgosið sem nú stendur yfir er næststærsta eldgosið hingað til á Sundhnúksgígaröðinni. Gasmengun mælist óholl á gönguleiðum við gosstöðvarnar. Gosið heldur áfram með stöðugri virkni og hraunflæðið frá virka gígnum er nú mest til suðausturs að Fagradalsfjalli.

Kennaraverkfalli frestað
Verkfalli kennara hefur verið frestað um tvo mánuði. Innanhússtillaga Ríkissáttasemjara þess efnis var samþykkt um klukkan 15.

„Við setjum ekki líf og limi fólks í hættu til að flytja kjörgögn“
Veðrið getur haft áhrif á framkvæmd Alþingiskosninganna á morgun. Gular veðurviðarnarnir verða í gildi frá því í kvöld þar til á sunnudaginn á Austfjörðum. Formaður yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi segir að allt kapp verði lagt á að halda kjörfundi allstaðar. Ekki má telja atkvæði fyrr en öllum kjörfundum hefur verið lokað.

Tveir teknir með falin fíkniefni á leið til Ísafjarðar
Síðdegis á miðvikudaginn handtók lögreglan á Vestfjörðum tvo ferðalanga sem voru á leið frá höfuðborgarsvæðinu til Ísafjarðar. Grunur hafði vaknað um að þeir væru með fíkniefni í fórum sínum. Við leit í bílnum fundust vandlega falin fíkniefni í nokkru magni.

Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“
Formenn stjórnmálaflokkanna stóðu sig heilt yfir vel í leiðtogakappræðum í gær, en konurnar stóðu sig best að mati almannatengils. Formaður Miðflokksins kunni að hafa gert sér óleik með því að æsa aðra formenn upp á móti sér. Hann kallar eftir tíðari kappræðum í sjónvarpssal.

Engin kæra borist vegna upptakanna
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki borist nein kæra vegna leynilegra upptaka huldumanns á vegum ísraelsks njósnafyrirtækis á Edition-hótelinu. Á upptökunum sést og heyrist sonur Jóns Gunnarsson, fulltrúa ráðherra í matvælaráðuneytinu, lýsa því hvernig faðir hans muni veita leyfi til hvalveiða.

Svifryksmengun í borginni í dag og næstu daga
Styrkur svifryks sem kemur frá bílaumferð hefur mælst hár á nokkrum stöðum í Reykjavík í dag. Búast má við áframhaldandi loftmengun næstu daga vegna umferðar, kulda og þurrks og eru borgarbúar hvattir til að draga úr notkun einkabíla.