Innlent
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 334 ›
Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Raforkukostnaður meðalstórs kúabús gæti lækkað um 480 þúsund krónur á ári eftir breytingar sem Alþingi hefur samþykkt á jöfnun dreifikostnaðar raforku. Innlent 8.7.2026 12:01
Spenna á ráðstefnu NATO, raforkukostnaður og biskup um regnbogafánann Donald Trump Bandaríkjaforseti hellti úr skálum reiði sinnar á blaðamannafundi með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins í morgun og sagði vopnahlé við Íran vera úr sögunni. Kristrún Frostadóttir sagði stefnu Íslands skýra hvað varðar Grænland, það tilheyri grænlensku þjóðinni. Innlent 8.7.2026 11:38
„Líkist meira fána Grænhöfðaeyja heldur en þeim íslenska“ Skemmdarverk á regnbogafánum við kirkjur eru orðin fastur og sorglegur árlegur liður í aðdraganda hinsegin daga. Þetta segir biskup Íslands sem segir sárt að sjá svo illa farið bæði með íslenska fánann og hinsegin fánann. Innlent 8.7.2026 11:10
Lokuð akrein á Suðurlandsvegi og kvikmyndatökur á Krýsuvíkurleið Akrein í austurátt frá Selfossi verður lokuð til klukkan sautján síðdegis í dag vegna framkvæmda. Vegfarendur eru beðnir um að keyra um með gát og virða allar merkingar. Innlent 8.7.2026 09:53
Ummæli Trump um Grænland þurfi ekki að koma á óvart Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir að ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um Grænland þurfi ekki að koma á óvart. Hún segist þó vongóð um að farsæl lausn náist þar sem formlegur vinnuhópur bandarískra, danskra og grænlenskra stjórnvalda sé starfandi. Innlent 8.7.2026 08:58
Skemmdarvargar máluðu yfir regnbogafánann Málað var yfir fána hinsegin fólks við tröppur Grafarvogskirkju í nótt með íslensku fánalitunum. Í samtali við fréttastofu staðfestir séra Arna Ýrr Sigurðardóttir að gjörningurinn hafi ekki verið á vegum kirkjunnar. Innlent 8.7.2026 08:47
Bjóða 250 þúsund krónur fyrir staðsetningu hvalveiðiskipanna Paul Watson býður nú peningaverðlaun, tvö hundruð og fimmtíu þúsund krónur, fyrir hvern þann sem vísað getur á staðsetningu hvalveiðiskipa Hvals ehf. Innlent 8.7.2026 08:06
Sníkjudýrsaðferðin komin til Íslands: Hvers vegna var efnunum komið fyrir í sjókistu? Svokölluð sníkjudýrsaðferð hefur verið að ryðja sér til rúms í fíkniefnasmygli á heimsvísu á undanförnum árum. Þá er fíkniefnum komið fyrir á skipum neðansjávar, oft í sjókistu, þannig að áhöfnin veit jafnvel ekki að óhreint mjöl sé í pokahorninu. Innlent 8.7.2026 08:00
Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G Byggðaráð Múlaþings lýsir þungum áhyggjum af skerðingu fjarskipta í sveitarfélaginu í kjölfar þess að slökkt var á 2G og 3G sendum. Sveitarfélagið er sérlega víðfeðmt og teygir sig frá Borgarfirði eystri suður á Djúpavog. Innlent 8.7.2026 07:33
„Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Óvissa ríkir um starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri á Kristnesspítala eftir að mygla greindist. Velunnari spítalans segir stöðuna sorglega og óttast að Kristnes verði að draugabæ. Innlent 8.7.2026 07:02
Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, vindur þrír til tíu metrar á sekúndu. Skýjað er yfir landinu en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti gæti náð allt að tuttugu og fimm stigum um helgina. Innlent 8.7.2026 06:51
Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á brunanum á Stuðlum þann 19. október 2024 og málið verið afhent ákærusviði til meðferðar. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings í málinu. Innlent 8.7.2026 06:33
Umferð eykst milli ára Umferð á Hringveginum eykst um eitt prósent milli ára samkvæmt mælingum Vegagerðarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins. Telst sú aukning lítil þar sem árleg aukning frá árinu 2022 til 2025 nam 4,8 prósentum. Innlent 8.7.2026 06:31
Handtekinn eftir röð innbrota Alls gistu þrír fangageymslur Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Hún hafði afskipti af fjölmörgum ökumönnum í nótt og maður var gripinn eftir röð innbrota. Innlent 8.7.2026 06:30
Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Ungum íslenskum ferðalöngum í Kirgistan brá illilega þegar þeir lentu í slysi á flugbraut í höfuðborginni Bishkek. Betur fór en á horfðist, en eftir atvikið segjast strákarnir ekkert sérlega spenntir fyrir því að stíga aftur um borð í flugvél. Innlent 7.7.2026 23:39
Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Flugvél sem lék lykilhlutverk í millilandaflugi og alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga í byrjun sjöunda áratugarins lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Þetta er svokölluð sexa, eða Douglas DC 6B. Innlent 7.7.2026 21:10
Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Áfengisauglýsingar á samfélagsmiðlum og í hlaðvörpum hjá áhrifavöldum og öðrum opinberum persónum hafa aukist til muna undanfarin ár. Forvarnarsérfræðingur segir stjórnvöld hafa brugðist og kallar eftir því að áhrifavaldar axli ábyrgð. Innlent 7.7.2026 20:32
„Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Lögregla segir að starfsemi vændismansals hér á landi sé að miklu leyti stýrt erlendis frá. Að undanskildu vændinu sjálfu fari starfsemin stundum öll fram í gegnum netið, en erlendir glæpahópar hafi þó útsendara hér á landi til að sinna eftirliti með þolendum vændismansals. Innlent 7.7.2026 19:41
Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Maður sem hlaut alvarleg brunasár eftir að rafbyssu var beitt í aðgerðum lögreglu í kirkjugarði í Reykjanesbæ í maí neitar því að hafa borið eld að sér. Hann hafi verið að fara með bæn fyrir látna ástvini þegar atburðarrásin hófst. Innlent 7.7.2026 19:32
Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Kastriot Pepaj og Sævar Hilmarsson hafa verið ákærðir í umfangsmiklu fíkniefnamáli vegna innflutnings á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaskipi Eimskips. Tveir skipverjar á Dettifossi eru einnig ákærðir í málinu. Innlent 7.7.2026 19:03
NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Utanríkisráðherra segir aðild Íslands að NATO mikilvæga og nýlegar árásir Rússa á Úkraínu dragi fram mikilvægi þess að sýna fram á samheldni bandalagsins. Ísland, meðal annarra aðildarríkja, ætli að auka stuðning við Úkraínu. Innlent 7.7.2026 18:33
Spurning með sálina „Þetta er mjög leiðinlegt mál. En aðalatriðið er náttúrulega að hann er ómeiddur maðurinn en svo er spurning með sálina. Mönnum hlýtur að bregða við þetta.“ Þetta segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar, en steypubíll í eigu fyrirtækisins lenti úti í Þjórsá í gærkvöldi. Lítið sé vitað um orsakir óhappsins að svo stöddu. Innlent 7.7.2026 18:22
Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi Evrópuþjóðir harðlega á blaðamannafundi með Tyrklandsforseta í Ankara í dag á fyrri degi leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins. Það hafi rekið fleyg í samstarfið þegar Danmörk vildi ekki gefa Bandaríkjunum yfirráð yfir Grænlandi og aðrar Evrópuþjóðir tóku sér stöðu með Danmörku og Grænlandi. Innlent 7.7.2026 17:53
Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Viðgerðir á mótor Herjólfs IV Vestmannaeyjaferju eru á áætlun og gert ráð fyrir að mótorinn verði sendur til Íslands með skipi frá Hollandi þann 13. júlí. Mótorinn verði settur í ferjuna þegar hann berst til landsins og ferjan Baldur í kjölfarið snúa aftur til siglinga á Breiðafirði þegar uppsetningu mótorsins er lokið. Þetta segir í tilkynningu Vegagerðarinnar. Innlent 7.7.2026 17:19
Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði. Innlent 7.7.2026 17:17
Yngstu fara flestar ferðir Nær helmingur landsmanna fer tvær til þrjár ferðir í umferðinni á dag. Ferðatíðnin minnkar almennt með hækkandi aldri en þeir yngstu fara að meðaltali 4,6 ferðir í umferðinni á dag. Innlent 7.7.2026 16:35
Steypubíllinn kominn úr ánni Steypubíll sem lenti í Þjórsá í gærkvöldi hefur verið fjarlægður úr ánni. Þetta segir upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar en ökumaður bílsins fór út af brú á Þjórsárdalsvegi nærri Sultartangavirkjun. Bíllinn er í eigu Steypustöðvarinnar samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu. Innlent 7.7.2026 16:15
„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum. Innlent 7.7.2026 15:21
Vill afnema sektir við vændiskaupum Dómsmálaráðherra hyggst afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað komi í staðinn. Innlent 7.7.2026 14:43
Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Netöryggisfyrirtækið Syndis rannsakar nú alvarlega netárás þar sem talið er að gervigreindarlíkani hafi verið beitt, en þau eiga að vera búin öryggishömlum sem eiga að koma í veg fyrir misnotkun af þessu tagi. Í tilkynningu segir að þetta sé ein flóknasta og þróaðasta netárás sem fyrirtækið hafi rannsakað til þessa. Innlent 7.7.2026 14:14