Erlent

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Útlit fyrir harðari átök í suðri
Frá því Rússar lögðu undir sig síðustu borgir Luhansk-héraðs og lýstu yfir að hlé yrði lagt á frekari stórsóknir hefur lítil hreyfing orðið á víglínunum í Úkraínu. Sóknir Rússa eru þó byrjaðar á nýjan leik en Úkraínumenn segja varnir þeirra halda enn.

Met féllu í hrönnum þegar söguleg hitabylgja gekk yfir Bretland
Eldar loguðu í Lundúnum í dag í mestu hitabylgju sem gengið hefur yfir Bretland og fór hitinn þar í fyrsta sinn í sögu landsins yfir 40 gráður. Miklir skógareldar geisa enn víða í suðvestanverðri Evrópu. Framkvæmdastjóri hjá Alþjóðaveðurfræðistofnuninni vonar að hitabylgjan ýti við stjórnmálamönnum.

Óttast að Pútín refsi Evrópu með því að hefta flæði á gasi
Tímabundinni lokun Nord Stream 1 gasleiðslunnar vegna árlegs viðhalds mun ljúka nú í lok vikunnar en í kjölfarið gætu átök vegna leiðslunnar náð hámarki. Leiðslunni er stjórnað af rússneska fyrirtækinu Gazprom. Óttast er að Pútín noti lokunina til þess að refsa Evrópu.

Starfsfólkið farið annað og flugvellir haldi ekki í við flugfélögin
Yfirmaður hjá Alþjóðasamtökum flugvalla segir stuðning við flugfélög í Covid-faraldrinum hafa verið margfalt meiri en við flugvelli. Stór hluti starfsmanna flugvalla sem sagt var upp vilji ekki snúa aftur sem víða hafi skapað miklar tafir.

Þrír eftir í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins
Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands leiðir áfram að lokinni fjórðu umferð í leiðtogakjöri breska Íhaldsflokksins í dag.

Grunaður um að hafa reynt að smygla verki eftir Picasso til Ibiza
Farþegi sem kom til flugi frá Sviss til Ibiza snemma í júlí er sagður hafa reynt að smygla teikningu eftir heimsfræga listamanninn Picasso með sér inn í landið. Teikningin er metin á meira en 460 þúsund Bandaríkjadali.

Leiðtogar þriggja valdstjórnarríkja stinga saman nefjum
Leiðtogar Rússlands, Írans og Tyrklands, þriggja landa í hópi óvinsælustu ríkja heims, funduðu í Teheran í Íran í dag. Þeir ræddu meðal annars mögulegan útflutning á milljónum tonna af korni frá Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir hans sækja hægt og örugglega fram gegn Rússum og hafa unnið til baka töluvert landsvæði frá þeim.

Pítsasendill bjargaði fimm börnum úr eldsvoða
Pítsasendillinn Nicholas Bostic bjargaði í vikunni fimm börnum úr eldsvoða í bænum Lafayette í Indiana-ríki. Hann var inni í brennandi húsinu í fimmtán mínútur.

Berjast við fjölda elda í og við Lundúnir
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Lundúnum þar sem margir eldar hafa kviknað á sama tíma og mikil hitabylgja gengur yfir Bretland og hitamet hafa verið slegin. Hundruð slökkviliðsmanna vinna nú hörðum höndum við að berjast við elda í borginni og úthverfum hennar.

Geimjakki Buzz Aldrin frá tungllendingunni á leið á uppboð
Jakkinn sem geimfarinn Buzz Aldrin var klæddur í þegar hann var annar í sögunni til að stíga á tunglið er á leiðinni á uppboð. Talið er að jakkinn gæti selst á tvær milljónir dollara, rúmar 270 milljónir íslenskra króna.

„Heitasti tími dagsins enn eftir“
Hitamet Bretlands var slegið í morgun þegar hitinn mældist 40,2 gráður en síðar í dag er spáð um og yfir 40 stiga hita. Hitamet hafa sömuleiðis verið slegin annars staðar í Evrópu og geisa skógareldar víða. Veðurfræðingur telur ljóst að met muni halda áfram að falla hratt.

Daníel neitar að hafa myrt bekkjarsystur sína
Daníel Gunnarsson, 22 ára gamall Íslendingur, neitaði sök þegar mál hans var þingfest í Kern-sýslu í Kaliforníu í gær. Hann sætir ákæru fyrir að hafa myrt fyrrverandi bekkjarsystur sína og limlest lík hennar.

Úkraínuforseti sigurviss en Putin reynir að afla sér vina
Putin Rússlandsforseti fundar með leiðtogum Írans og forseta Tyrklands í Teheran í dag í tilraun sinni til að afla sér bandamanna. Zelenskyy forseti Úkraínu segir hersveitir Úkraínu hafa náð að valda Rússum miklum skaða að undanförnu og það væri bara spurning um tíma hvenær fáni landsins blakti í öllum borgum og bæjum Úkraínu.

Tíu ára heimsmeistari sigrar vegfarendur fyrir úkraínska herinn
Valeria Yezhova, heimsmeistari í dammi (e. checkers), hefur síðustu daga boðið fólki að spila gegn sér, gegn gjaldi. Yezhova, sem er einungis tíu ára gömul, hefur ekki tapað einum einasta leik síðan hún hóf söfnunina.

Hitamet slegið og von á enn meiri hækkun
Svo virðist sem að hitamet hafi verið slegið í Bretlandi í morgun og er útlit fyrir að metið gæti verið slegið um allt að þrjár gráður. Hitamælar í Charlwood í Surrey sýndu í morgun 39,1 gráðu hita og verði sú mæling staðfest er það hæsta hitastig sem mælst hefur á Bretlandseyjum frá því mælingar hófust.

Hóta harkalegum viðbrögðum við heimsókn til Taívans
Ráðamenn í Kína vöruðu í morgun við harkalegum viðbrögðum við mögulegri ferð Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, til Taívans í næsta mánuði. Heimsókn Pelosi, sem hefur lengi verið gagnrýnin í garð Kína, muni hafa alvarlegar afleiðingar.

Myndhöggvarinn Claes Oldenburg er látinn
Claes Oldenburg, myndhöggvari þekktur fyrir að gera stóra skúlptúra af hversdagslegum hlutum, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu, 93 ára að aldri, eftir að hafa dottið illa nýlega.

SAS hefur flugið á ný
Flugfélagið SAS og stéttarfélög flugmanna þess hafa komist að samkomulagi um að flugmenn taki upp störf á ný en þeir hafa verið í verkfalli tvær vikur.

Pútín sækir Raisi heim og fundar með Erdogan
Vladimír Pútín Rússlandsforseti heimsækir Íran í dag í opinberri heimsókn sem ætlað er að dýpka tengslin við stjórnvöld í landinu en einnig stendur til að hitta Recep Tayyip Erdogan forseta Tyrklands í sömu ferð.

Enn einn molludagur í Evrópu
Vesturhluti Evrópu á von á enn einum molludeginum í dag en hitabylgjan í Evrópu færir sig nú norður á bóginn.

Samkomulag milli SAS og flugmanna í höfn en ekki undirritað
Flugfélagið SAS og stéttarfélög flugmanna þess hafa komist að samkomulagi um að flugmenn taki upp störf á ný en þeir hafa verið í verkfalli tvær vikur. Félagið gaf þó í kvöld út tilkynningu þess efnis að ekki væri búið að undirrita neina samninga.

Heimsbyggðin þurfi að velja: „Sameiginlegt átak eða sameiginlegt sjálfsmorð“
Hundruð skógarelda brenna víðs vegar um Evrópu í mikilli hitabylgju sem orðið hefur fjölda fólks að aldurtila og valdið gríðarlegu tjóni. Samgöngur lömuðust um stóran hluta Bretlandseyja í dag og Luton flugvelli var lokað. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina á krossgötum.

Tugendhat úr leik í baráttunni um leiðtogasætið
Tom Tugendhat fékk fæst atkvæði í þriðju umferð leiðtogakjörs Íhaldsflokksins í Bretlandi. Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra, leiðir enn.

Treysta sér ekki á leikinn vegna hitabylgjunnar
Íslendingur sem staddur er í Lundúnum segir hitann í borginni hreinlega óbærilegan. Hann á miða á mikilvægan landsleik í kvöld en treystir sér ekki á hann.

Gefa dýrunum frostpinna í hitabylgjunni
Það eru ekki bara mennirnir sem þjást vegna hitabylgjunnar sem ríður núna yfir Evrópu. Dýrum er ekki síður heitt og þess vegna hafa starfsmenn evrópskra dýragarða tekið upp á því að gefa dýrunum frostpinna til kæla þau niður.

Sagðist saklaus af hatursglæpum
Maðurinn sem sakaður er um að myrða tíu manns í skotárás í Buffalo í New York fyrr á árinu, segist saklaus af ákærum um hatursglæpi. Payton Gendron er hvítur og er sakaður um að hafa ferðast til Buffalo til að myrða þeldökkt fólk.

Bjóða kennurum fúlgur fjár til að fara til Úkraínu
Yfirvöld í Rússlandi hafa boðið rússneskum kennurum fúlgur fjár fyrir að fara til Úkraínu og undirbúa kennslu úkraínskra barna á yfirráðasvæði Rússa. Rússar leggja mikið kapp á að tryggja yfirráð sín á þessum svæðum.

Á sjöunda hundrað undir grun um landráð í Úkraínu
Forseti Úkraínu segir rúmlega 650 mál gegn starfsmönnum saksóknara, Öryggisþjónustunnar og annarra stofnana vegna landráðs hafa verið skráð. Forsetinn rak ríkissaksóknara og yfirmann leyniþjónustunnar í gær vegna gruns um samstarf þeirra við rússneska innrásarliðið. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda í dag um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum.

Heimsbyggðin standi frammi fyrir sameiginlegu sjálfsvígi
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að hálf heimsbyggðin búi á hættusvæði hvað ofsahita varðar. Heimsbyggðin standi þannig frammi fyrir sameiginlegu sjálfsvígi vegna hamfarahlýnunar.

Danskir framleiðendur semja við Viaplay og framleiðsla hefst að nýju
Danskir kvikmyndaframleiðendur hafa gert tímabundið samkomulag við Viaplay sem gerir að verkum að framleiðsluverkefni tengd streymisveitunni sem fóru í stopp í júní munu fara í gang að nýju.