Enski boltinn

Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist
Stuðningsmaður Wimbledon hefur safnað vel rúmlega tuttugu milljónum íslenskra króna, 120 þúsund pundum, fyrir félagið sitt eftir að völlur liðsins skemmdist á dögunum.

Markvarslan Alisson í blóð borin
Alisson Becker, markvörður Liverpool og Brasilíu, segir titla ekki vera sína helstu hvatningu en segja má að markvarsla sé honum í blóð borin.

Efast um dugnað og hugarfar Rashford
Jimmy Floyd Hasselbaink, sem var í þjálfarateymi enska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að fótboltinn sé ekki forgangsatriði hjá Marcus Rashford, framherja Manchester United.

Tímabilið búið hjá Rodri
Englandsmeistarar Man. City urðu fyrir miklu áfalli í dag er það kom í ljós að miðjumaðurinn Rodri mun ekki spila meira með liðinu í vetur.

Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028
Manchester United stefnir á að verða Englandsmeistari árið 2028 en sama ár fagnar liðið 150 ára afmæli sínu. Þetta staðfesti Omar Berrada, nýráðinn framkvæmdastjóri félagsins, á fundi með starfsmönnum Man United nýverið.

Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Milutin Osmajić, framherja Preston North End, fyrir meint bit í leik gegn Blackburn Rovers á dögunum.

Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn
Litlu mátti muna að Toni Kroos gengi í raðir Manchester United frá Bayern München sumarið 2014. En vegna stjóraskipta hjá United varð ekkert af þeim vistaskiptum og hann fór þess í stað til Real Madrid þar sem hann lék þar til ferlinum lauk.

Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“
Fyrrverandi fyrirliði Manchester United, Roy Keane, segir að Arsenal sé með hugarfar smáliðs. Það hafi sýnt sig í leikjunum gegn Brighton og Manchester City.

Telur sig geta fyllt skarð Rodri
Ekki vantar sjálfstraustið í Matheus Nunes, leikmann Manchester City. Hann telur að hann geti fyllt skarð Rodris sem verður frá keppni næstu mánuðina vegna alvarlegra meiðsla.

Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum
Stjóratíð Julens Lopetegui hjá West Ham United hefur ekki farið vel af stað. Liðinu gengur illa inni á vellinum og til að bæta gráu ofan á svart meiddi Spánverjinn sig í leiknum gegn Liverpool.

Stefán fær Arsenal í heimsókn
Tottenham og Manchester City mætast í stórleik 16-liða úrslita enska deildabikarsins í fótbolta en dregið var í gærkvöld.

Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri?
Fyrr í dag staðfesti enska knattspyrnufélagið Manchester City að spænski miðjumaðurinn Rodri væri með slitið krossband í hné.

„Eina sem gerir mann betri er að vinna“
„Leikurinn var mun erfiðari en úrslitin gefa til kynna,“ sagði Diogo Jota eftir öruggan 5-1 sigur Liverpool á West Ham United í enska deildarbikar karla í knattspyrnu.

Bragðdauft á Old Trafford
Manchester United gerði 1-1 jafntefli við Twente frá Hollandi í 1. umferð Evrópudeildar karla í fótbolta. Leikur kvöldsins var gríðarlega bragðdaufur og heimamenn með bakið upp við vegg eftir slaka byrjun á tímabilinu.

Liverpool kom til baka eftir að lenda undir
Liverpool lenti undir á Anfield þegar West Ham United kom í heimsókn í enska deildarbikar karla í knattspyrnu. Heimamenn svöruðu hins vegar með fimm mörkum og eru komnir áfram.

Skytturnar skoruðu fimm
Arsenal átti ekki í teljandi vandræðum með C-deildarlið Bolton Wanderers í enska deildarbikar karla í knattspyrnu. Lokatölur á Emirates-leikvanginum 5-1.

Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, segir ekkert athugavert við það hvernig lið hans spilaði í 2-2 jafnteflinu við Manchester City í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

„Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“
Fyrrum markvörðurinn Tim Howard kennir Pep Guardiola, þjálfara Manchester City, um að hafa eyðilagt fótboltann. Of mikil áhersla sé lögð á knattspyrnu eftir höfði hans um allan heim.

Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu
Aston Villa er komið áfram í fjórðu umferð enska deildabikarsins eftir 2-1 sigur á C-deildarliði Wycombe Wanderers í Buckingham-skíri í kvöld.

Naumur sigur dugði City
Englandsmeistarar Manchester City komust í fjórðu umferð enska deildabikarsins í kvöld með naumum 2-1 sigri á B-deildarliði Watford á Etihad-vellinum í Manchester.

Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu
D-deildarlið Barrow var ekki mikil fyrirstaða fyrir Chelsea er liðin áttust við á Stamford Bridge í Lundúnum í kvöld. Chelsea vann 5-0 sigur og fer áfram í enska deildabikarnum.

Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann
Joe Tacopina, fyrrum lögmaður Donalds Trump, fyrrum Bandaríkjaforseta og frambjóðanda Repúblikana, hyggst kaupa enskt knattspyrnulið og líkja eftir árangri Wrexham. Kaup hans hafa ekki enn verið heimiluð vegna brota hans í ítalska fótboltanum.

Tímabilið búið hjá Rodri?
Rodri, miðjumaður Manchester City og spænska landsliðsins, er sagður alvarlega meiddur eftir að hafa vikið af velli í 2-2 jafntefli liðsins við Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í gær. Um mikla blóðtöku er að ræða fyrir Englandsmeistarana.

Bandaríkjamenn að eignast Everton
Bandaríska félagið The Friedkin Group hefur komist að samkoulagi við Farhad Moshiri, eiganda Everton, um kaup á 94% hlut í enska knattspyrnufélaginu.

Haaland ekki refsað
Erling Haaland verður ekki refsað fyrir það að kasta boltanum viljandi í höfuð Gabriels eftir jöfnunarmark Manchester City gegn Arsenal í gær, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst
Freyr Alexandersson gæti orðið næsti knattspyrnustjóri velska félagsins Cardiff, sem leikur í næstefstu deild Englands.

Keane segir Arteta að taka lyfin sín
Roy Keane, sparkspekingur og fyrrum leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United er allt annað en sáttur með Mikel Arteta, knattspyrnustjóra Arsenal, og ummæli hans um Michael Oliver og dómarateymið í stórleik Arsenal gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu
Þeir Kai Havertz og Jurriën Timber áttu sinn þátt í 2-2 jafntefli Arsenal gegn Manchester City í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær. Hvorugur þeirra átti þó eina einustu sendingu á samherja.

Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig
Arsenal og Manchester City, liðin sem höfnuðu í efstu tveimur sætum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, gerðu dramatískt 2-2 jafntefli er liðin mættust í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli
Brighton og Nottingham Forest skildu jöfn, 2-2, í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Bæði lið hafa byrjað tímabilið vel.