Enski boltinn

Segir Man Utd hafa bætt sig ár frá ári en verði að byrja betur í ár
Ole Gunnar Solskjær segir að lið sitt Manchester United þurfi að byrja betur í ár en á síðustu leiktíð ætli það sér að berjast um enska meistaratitilinn allt til enda.

Lukaku er genginn aftur í raðir Chelsea
Belgíski framherjinn Romelu Lukaku er genginn í raðir enska knattspyrnufélagsins Chelsea frá Ítalíumeisturum Inter Milan. Chelsea staðfestir þetta á heimasíðu sinni.

Danski turninn ekki lengur dýrlingur heldur refur
Daninn Jannik Vestergaard hefur ákveðið að söðla um og færa sig um set í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur leikið með Southampton undanfarin ár en er nú á leið til Leicester City.

Mest spennandi nýliðar ensku úrvalsdeildarinnar: Sancho, Bailey, Konate og fleiri
Vefmiðillinn Football365 tók saman tíu áhugaverðustu nýliða ensku úrvalsdeildarinnar en tímabilið hefst á morgun með leik Brentford og Arsenal. Bæði lið eiga einn leikmann á listanum.

Enginn af sérfræðingum BBC spáir Man. Utd titlinum en sjö hafa trú á Chelsea
Manchester United hefur bætt við sig einum besta miðverði heims og eytt einnig miklum pening í einn efnilegasta leikmann Englendinga. Það dugar þó ekki til að færa félaginu fyrsta Englandsmeistaratitilinn í níu ár ef marka má þá sem lifa og hrærast í umfjöllun um enska boltann í Englandi.

Miðjumaðurinn efnilegi ekki með Liverpool um helgina
Curtis Jones verður ekki í leikmannahóp Liverpool er enska úrvalsdeildin fer af stað um helgina. Hann fékk höfuðhögg í leik á dögunum og þarf því að hvíla næstu daga.

Aðgerðin heppnast vel og Rashford ætti því að snúa aftur í október
Enski landsliðsmaðurinn Marcus Rashford lét loksins verða af því að fara í aðgerð á öxl en leikmaðurinn hefur spilað sárþjáður undanfarna mánuði. Eftir að Evrópumótinu lauk á eins svekkjandi hátt og mögulegt er ákvað Rashford að fara undir hnífinn.

Segir Burnley þurfa á Jóhanni Berg að halda
Enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi og stefnir í langt og strembið tímabil hjá Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum hjá Burnley. Liðið þarf á því að halda að bestu menn þess séu allir í toppstandi því ef svo er ekki blasið fallir við.

Kominn í nýtt félag eftir að hafa sigrast á krabbameini
Fílabeinsstrendingurinn Sol Bamba er genginn í raðir Middlesbrough í ensku B-deildinni frá Cardiff. Snemma árs greindist Bamba með Non-Hodkin's eitilfrumukrabbamein, en hefur nú náð fullri heilsu.

Næst markahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar tekur við keflinu af Ings
Enska knattspyrnufélagið Southampton gekk í dag frá kaupum á sóknarmanninum Adam Armstrong frá Blackburn Rovers. Armstrong skrifaði undir fjögurra ára samning í dag.

Jökull Andrésson stóð vaktina þegar Morecambe sló Blackburn út í enska deildarbikarnum
Jökull Andrésson stóð vaktina í marki C-deildarliðsins Morecambe sem heimsótti Championship liðið Blackburn í enska deildarbikarnum í dag. Morecambe snéri taflinu við og er komið áfram eftir 2-1 sigur.

John Stones framlengir við Englandsmeistarana
John Stones, varnarmaður Manchester City, framlengdi í dag samningi sínum við Englandsmeistarana. Nýji samningurinn er til fimm ára og Stones er því skuldbundinn City út sumarið 2026.

Bætti á sig vöðvum til að bjarga ferlinum á Old Trafford
Hollenski miðjumaðurinn Donny van de Beek hefur verið orðaður frá Old Trafford nánast frá því að félagið keypti hann frá Ajax. Leikmaðurinn nýtti það litla sumarfrí sem hann fékk til að bæta á sig vöðvum og virðist ætla að láta til sín taka í vetur eftir að hafa eytt nær öllu síðasta tímabili á varamannabekknum.

Segir það hlutverk lífs síns að vera eigandi Wrexham og mun alls ekki nota hugtakið „soccer“
Hollywood-stjarnan Ryan Reynolds hefur leikið nokkur stór hlutverk til þessa á lífsleiðinni. Að hans mati er þó ekkert stærra en að vera eigandi knattspyrnufélagsins Wrexham sem spilar í ensku E-deildinni um þessar mundir.

Handahófskenndar athuganir í upphafi tímabils á Englandi
Enska úrvalsdeildin hefur tilkynnt að það verða gerðar handahófskenndar athuganir á leikvöllum deildarinnar í upphafi tímabils. Fólk sem ætlar sér að fara á leiki mun þurfa sýna fram á bólusetningu eða vera með neikvætt sýni sem er tekið innan við 48 tímum fyrir leik.

Newcastle að ganga á kaupunum á miðjumanninum efnilega frá Arsenal
Enska knattspyrnufélagið Newcastle United er við það að ganga frá kaupum á enska miðjumanninum Joseph George Willock sem sló í gegn í norðurhluta Englands á síðustu leiktíð. Talið er að kaupverðið sé í kringum 22 milljónir punda.

Meistarar Manchester City mæta laskaðir til leiks
Phil Foden verður frá í mánuð vegna meiðslanna sem héldu honum á hliðarlínunni er England tapaði fyrir Ítalíu í úrslitaleik Evrópumótsins í knattspyrnu í síðasta mánuði. Manchester City mætir með laskað til leiks er enska úrvalsdeildin fer af stað um næstu helgi.

Stuðningsfólk Tottenham klappaði Saka lof í lófa
Erkifjendurnir Tottenham Hotspur og Arsenal mættust í vináttuleik í gær. Stuðningsfólk beggja liða klappaði Bukayo Saka lof í lófa er hann kom inn af varamannabekk Arsenal eftir rúmlega klukkutíma leik.

Klopp útilokar ekki að sækja fleiri leikmenn: „Ánægður með hópinn“
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir ekki útilokað að liðið muni versla nýjan leikmann áður en lokað verður fyrir félagaskipti í haust.

Robertson meiddur af velli - Fimm dagar í fyrsta leik
Varnarmaðurinn öflugi, Andrew Robertson, fór meiddur af velli í æfingaleik Liverpool og Athletic Bilbao á Anfield í dag, sex dögum fyrir fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar.

Fofana frá út árið
Wesley Fofana, varnarmaður Leicester, mun ekki spila fótbolta meira á þessu ári eftr að hann fótbrotnaði í æfingaleik liðsins gegn Villareal í vikunni.

Romelu Lukaku verður dýrasti leikmaður Chelsea frá upphafi
Enska knattspyrnufélagið Chelsea hefur samþykkt að greiða Inter Milan 97,5 milljónir punda fyrir belgíska framherjann Romelu Lukaku.

Iheanacho tryggði Leicester Samfélagsskjöldinn af vítapunktinum
Englandsmeistarar Manchester City tóku á móti bikarmeisturum Leicester City í árlegu uppgjöri meistara síðasta árs i leiknum um Samfélagsskjöldinn. Það voru refirnir frá Leicester sem tryggðu sér 1-0 sigur með marki undir lok leiks.

Manchester City staðfestir komu Grealish
Manchester City hefur staðfest komu Jack Grealish frá Aston Villa. Þessi 25 ára Englendingur er því orðinn dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

Jack Grealish búinn í læknisskoðun hjá City
Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Jack Grealish lokið við læknisskoðun hjá Manchester City. Það er því bara tímaspursmál hvenær hann verður kynntur sem nýr leikmaður félagsins.

Varnarmaður Leicester fótbrotnaði eftir ljóta tæklingu í æfingaleik
Wesley Fofana, varnarmaður Leicester City, fótbrotnaði í æfingaleik liðsins gegn Villarreal í gær og verður líklega lengi frá keppni. Leicester vann leikinn, 3-2.

Grealish færist sífellt nær City
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Jack Grealish gangi í raðir Englandsmeistara Manchester City.

„Verkfall“ Harry Kane endist ekki út vikuna
Annan daginn í röð mætti Harry Kane ekki á æfingu hjá Tottenham nú þegar ein og hálf vika er í fyrsta leik á keppnistímabilinu.

Stjóri Chelsea gæti spilað einum framherja sínum meira í vörninni í vetur
Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að bandaríski framherjinn Christian Pulisic sé opinn fyrir því að færa sig mun aftar á völlinn á þessu tímabili.

Dómarar í ensku úrvalsdeildinni eiga að hætta að gefa svona mörg „veik“ víti
Það voru dæmd 125 víti í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en þeim mun væntanlega fækka talsvert á komandi leiktíð ef marka má fyrirmæli frá yfirmönnum dómaramála í Englandi.