Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi. Menning 6.7.2026 10:02
Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Ísak Elí Sæmundsson gaf út sína fyrstu bók, Ævintýri Dalla Dollu, á dögunum en hann er ellefu ára og búsettur á Tálknafirði. Hann segir krökkum sem langi að skrifa bók að láta bara vaða og ekki gefast upp. Menning 5.7.2026 20:00
Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir var að skruna á Íslendingabók þegar hún rakst á formóður sína í þrettánda ættlið, Skólastiku Gamalíelsdóttur, sem var uppi á sextándu öld. Una vakti athygli á nafninu á Fésbókinni og opnaði þar ormagryfju fyrir grínara landsins. Nafnið á langa sögu þó aðeins einn Íslendingur hafi borið það. Menning 2.7.2026 15:09
Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Arkitektinn Arnhildur Pálmadóttir var útnefnd borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2026 við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Arnhildur hefur vakið athygli fyrir framsæknar hugmyndir, hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr ári síðar. Menning 17.6.2026 14:47
Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Það er úr mörgu að velja í miðborg Reykjavíkur í dag, þjóðhátíðardag Íslendinga, en í Marshall-húsinu úti á Granda verður opnuð sýningin „Hæhóogjibbíjei” klukkan fimm. Að baki sýningunni standa listakonan Elísa Þóreyjardóttir, tvíeykið í Gallerí Kichin og eigendur gallerísins Kling & Bang en nammitískubylgjur á íslenskum markaði voru meðal þess sem Elísa dró innblástur af við undirbúning sýningarinnar. Menning 17.6.2026 10:11
Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak Íbúar Lögmannshlíðar, annars tveggja hjúkrunarheimila sem Heilsuvernd rekur á Akureyri, fengu óvenjulega og að sögn forstöðumanns einstaklega ánægulega heimsókn þegar komið var með hestana Baug og Hörpu í húsgarðinn. Þrír íbúanna skelltu sér á bak, aðrir klöppuðu hestunum og gáfu þeim brauð en heimsóknin vakti mikla lukku. Menning 17.6.2026 09:04
David Hockney er látinn Myndlistarmaðurinn David Hockney, risi breskrar samtímalistar og einn áhrifamesti listamaður bæði 20. og 21. aldarinnar, er látinn, 88 ára að aldri. Meðal þekktustu verka hans eru poppmálverkin The Splash og Pool with Two Figures af sólsleiktum sundlaugum Kaliforníu. Menning 12.6.2026 11:01
Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Danski barnabókahöfundurinn Ole Lund Kirkegaard lést langt fyrir aldur fram árið 1979 eftir að hafa gefið út níu barnabækur á tólf ára ferli. Nú tæpri hálfri öld síðar er von á nýrri bók eftir höfundinn: Kalli og Kapteinn Skipper. Óklárað handrit bókarinnar fannst fyrir 35 árum síðan og ákvað Nana Bang Kirkegaard, dóttir höfundarins, svo að ljúka við það. Menning 10.6.2026 10:55
Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag „Ég hélt bara að árið 2026 væri fólk búið að sjá meira og minna allt og að þetta myndi kannski ekki alveg kveikja á þessum viðbrögðum,“ segir listakonan og dansarinn Lísandra Týra Jónsdóttir sem setti upp gjörninginn „The Urinal“ í sýningarrými á Ingólfsstræti síðastliðna helgi. Gjörningurinn var óhefðbundinn eins og gengur og gerist í slíku listformi en hann snerist um að pissa í klósett í sjö klukkustundir á dag í sex daga í röð. Menning 9.6.2026 20:02
Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Myndlistarkonan Kristín Morthens opnaði nýverið sýninguna Að teygja tvílýsið í Þulu gallerý í Marshall-húsinu. Sýningin fjallar um það að staldra við í óvissu og stendur yfir til 28. júní. Fjöldi góðra gesta mætti á sýningaropnunina, þar með talið verkalýðsleiðtogi og utanríkisráðherra. Menning 9.6.2026 12:26
Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Breski glæpasagnahöfundurinn Ann Cleeves birtist fyrirvaralaust í bókaverslun Pennans Eymundssonar á Ísafirði og bauðst til að árita bækur. Cleeves, sem hefur verið þýdd 21 sinni á íslensku, var á ferðalagi með skemmtiferðaskipi sem stoppaði í bænum. Menning 5.6.2026 13:41
Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Íransk-franski teiknimyndasöguhöfundurinn og Óskarsverðlaunatilnefndi leikstjórinn Marjane Satrapi er látin, 56 ára að aldri. Fjölskylda hennar segir Satrapi hafi dáið „úr sorg“ eftir að hafa misst eiginmann sinn, Mattias Ripa, rúmu ári fyrr. Menning 4.6.2026 11:41
Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Natasha S. hlýtur Maístjörnuna, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasamband Íslands og Landsbókasafns Íslands, fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Verðlaunin voru veitt í tíunda skiptið í dag við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni. Menning 3.6.2026 16:40
Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry eru framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar í Reykjavík en þær hafa strax vakið umræðu. Listamaðurinn Snorri Ásmundsson segir sýningu Bjarkar „asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ og finnst honum sem sýningarstjórarnir hafi talið að nafn Bjarkar væri nógu stórt til að hylja hvað hugmyndafræðilegi grunnur sýningarinnar er veikburða. Menning 1.6.2026 15:15
Samfélag í bleyti framlag Íslands á Feneyjartvíæringnum í arkitektúr Sýningin Samfélag í bleyti hefur verið valin sem framlag Íslands á 20. alþjóðlega Feneyjatvíæringinn í arkitektúr sem fer fram árið 2027. Sýningin setur íslenska baðmenningu fram sem mótvægi við aukinn einmanaleika og sundrung samtímans. Menning 29.5.2026 14:32
Aðalsteinn Bergdal er látinn Aðalsteinn Bergdal, leikari og leikstjóri, er látinn, 76 ára gamall, eftir baráttu við krabbamein. Leikferill Aðalsteins spannaði ríflega fimmtíu ár og á annað hundrað sýninga í atvinnuleikhúsunum þremur. Hann var einna þekktastur fyrir leik sinn sem trúðurinn Skralli sem skemmti Íslendingum í hálfa öld. Menning 29.5.2026 10:53
Jónmundur bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 Jónmundur Grétarsson leikari var útnefndur bæjarlistamaður Garðabæjar við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi í gær. Menning 29.5.2026 09:57
Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Leikhúsgagnrýnandi Vísis segir stóra skandalinn á Grímunni vera að Benedict Andrews hafi ekki verið valinn leikstjóri ársins þegar Óresteia var valin bæði sýning og leikrit ársins. Ótvíræðu tapliðin í ár séu aðstandendur Ormstungu og Borgarleikhúsið meðan óvæntur sigurvegari sé óperan Sæmundur fróði. Menning 27.5.2026 12:06
Óresteia og Lína sigursælust á Grímunni Harmleikurinn Óresteia og barnasýningin Lína langsokkur hlutu flest verðlaun á Grímunni í ár eða fjögur verðlaun hvor. Óresteia var valin sýning og leikrit ársins og Agnes Wild var valin leikstjóri ársins fyrir Línu Langsokk. Söngleikurinn Ormstunga sem var tilnefndur til tólf verðlauna hlaut engin. Menning 26.5.2026 22:19
Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður í leikstjórn Cristian Mungiu hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Þá fékk Minotaur eftir Andreï Zviaguintsev Grand Prix-verðlaunin. Þetta er í 79. skipti sem hátíðin fer fram. Menning 24.5.2026 18:25
„Þetta parísarhjól sökkar“ Fréttir af því að parísarhjól á Miðbakka muni líklega rísa á ný hafa fallið í grýttan jarðveg. Margir undra sig á ákvörðun borgarinnar um að ganga til viðræðna við rekstraraðila hjólsins og syrgja körfuboltavöllinn og hjólabrettasvæðið sem var þar áður. Formaður borgarráðs segir að ekki hafi fundist tími til að finna eitthvað annað fyrir svæðið og að tilvonandi meirihluti hafi ekki sett sig upp á móti framlengingunni. Menning 22.5.2026 16:31
Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Bubbi Morthens syngur á nýrri plötu um nándarleysi sem hann burðaðist með lengi síðan hann varð fyrir misnotkun. Þá þurfti hann að horfast í augu við eigin dauðleika fyrir nokkrum árum þegar slagæð rifnaði í hálsi hans. Bubbi mætti í Menningarvaktina til Símonar Birgissonar leikhúsgagnrýnanda til að ræða plötuna og grófu þeir í leiðinni stríðsöxina. Menning 20.5.2026 07:03
Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Eftir um þrjátíu ára ljósmyndaferil neyddist ljósmyndarinn Geir Ólafsson til að leggja myndavélina á hilluna í kjölfar Parkinson-greiningar. Ástríðan fyrir ljósmyndun var þó enn til staðar og í fyrra tók hann myndavélina upp á ný. Á morgun sýnir Geir afrakstur síðasta árs með ljósmyndasýningunni Skjálfta í húsnæði Parkinsonsamtakanna í Sankti Jósefsspítala. Menning 15.5.2026 13:24
Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Hjólabrettakappar eru æfir yfir áformum Reykjavíkurborgar um að leggja Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Torgið hefur verið allra helgasti reitur hjólabrettaiðkenda á Íslandi síðustu ár en fregnirnar koma þeim í galopna skjöldu. Menning 14.5.2026 13:53