Golf

McIlroy segist ekki hafa ráðið við vindinn
Bið Rorys McIlroy eftir sigri á risamóti lengist enn en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna breska meistaramótinu sem nú stendur yfir. Norður-Írinn segir að vindurinn í Skotlandi hafi sett stórt strik í reikning hans.

Lowry leiðir eftir annan hring á meðan Woods og McIlroy eru úr leik
Hinn írski Shane Lowry leiðir á Opna meistaramótinu í golfi. Bæði hann og Daniel Brown frá Englandi héldu uppi góðri spilamennsku í dag þegar annar hringur mótsins fór fram. Bæði Tiger Woods og Rory McIlroy komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Böðvar Bragi sló vallarmetið á Hólmsvelli
Böðvar Bragi Pálsson átti hreint út sagt magnaðan dag þegar annar hringur á Íslandsmótinu í golfi var spilaður. Að þessu sinni fer mótið fram á Hólmsvelli í Leiru og gerði Böðvar Bragi sér lítið fyrir og sló vallarmetið.

Ríkjandi Íslandsmeistari komin í forystu
Ragnhildur Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er komin í forystu eftir dag tvö á Íslandsmótinu í gólfi sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru.

Lýsandi harðlega gagnrýndur fyrir ósmekkleg ummæli um Tiger
Ummæli lýsara á Opna breska meistaramótinu um verkjalyfjafíkn Tigers Woods mæltust afar illa fyrir.

Brown leiðir eftir fyrsta hring
Daniel Brown frá Englandi trónir á toppnum þegar fyrsta hring á Opna meistaramótinu í golfi er lokið. Hann lék fyrsta hringinn á sex höggum undir pari.

Sigurður Arnar og Aron Snær jafnir eftir dag eitt
Aron Snær Júlíusson og Sigurður Arnar Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, GKG, leiða eftir fyrsta dag Íslandsmótsins í golfi. Mótið fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Sá er örlítið breyttur en hann er par 71 í dag í stað 72.

Eva í forystu eftir fyrsta hring
Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar er með þriggja högga forystu í kvennaflokki þegar fyrsta degi Íslandsmótsins í golfi er lokið. Mótið hófst í morgun á Hólmsvelli í Leiru.

Aron Snær og Sigurður Arnar á sex undir
Aron Snær Júlíusson varð Íslandsmeistari í golfi fyrir þremur árum og hann byrjar Íslandsmótið í ár vel. Mótið fer fram að þessu sinni á Hólmsvelli í Leiru.

Fór holu í höggi á Íslandsmótinu í golfi
Einar Bjarni Helgason úr Golfklúbbnum Setbergi, náði sannkölluðu draumahöggi á fyrsta hringnum á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Hólmsvelli í Leiru. Keppni á Íslandsmótinu hófst í morgun.

Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump
Morðtilræðið gegn Donald Trump um helgina fékk mikið á kylfinginn Tiger Woods.

Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska
Bandaríski kylfingurinn John Daly er mættur á Opna breska meistaramótið í golfi en Daly er enn einn lítríkasti kylfingurinn í golfheiminum.

Ótrúleg hola í höggi: Meira en hálfa mínútu að fara niður
Tævanski kylfingurinn Chien Peiyun fór holu í höggi á The Amundi Evian meistaramótinu í dag sem er eitt af risamótunum í kvennagolfinu.

Íslenska karlalandsliðið í golfi í deild þeirra bestu
Karlalið Íslands tryggði sér sæti í efstu deild Evrópumótsins í golfi með glæsilegum sigri gegn Belgíu.

Sturluðust allir úr gleði þegar myndband náðist af Ágústi fara holu í höggi
„Þetta var hreinlega mögnuð tilfinning, ég verð að viðurkenna það. Þetta sló mann alveg og það var lítið sagt í golfbílnum eftir þessa holu, það er smá spennufall sem fylgir þessu,“ segir kylfingurinn Ágúst Freyr Hallsson sem náði því merkilega afreki að fara holu í höggi seint á síðasta ári á 17. holunni á Campoamor á Spáni.

Keegan Bradley útnefndur fyrirliði eftir að Tiger Woods sagði nei takk
Hinn 38 ára gamli Keegan Bradley hefur verið útnefndur sem fyrirliði bandaríska Ryder liðsins í golfi á næsta ári.

Missir af milljónum af því að hann er ekki atvinnumaður
Áhugakylfingurinn Luke Clanton hefur spilað frábærlega undanfarnar vikur. Það þarf að fara heil 66 ár aftur í tímann til að finna áhugamann sem náði sama árangri og hann.

Tiger sagður hafa afþakkað fyrirliðastöðuna
Tiger Woods vildi ekki vera fyrirliði bandaríska Ryder liðsins í golfi á næsta ári en hann hafði lengi verið orðaður við stöðuna.

Sú besta í heimi bitin af hundi
Nelly Korda er efst á heimslistanum í golfi en hún verður ekki með á næsta móti á evrópsku mótaröðinni. Ástæðan er þó af furðulegri gerðinni.

Fór holu í höggi á tveimur holum í röð
Frank Bensel yngri er kannski ekki frægasti kylfingur heims en hann er algjörlega sér á báti í golfsögunni eftir frammistöðu sína í dag.

Rahm brjálaður: „Djöfulsins drónar“
Jon Rahm hefur ekki mikla þolinmæði fyrir drónunum sem er flogið yfir keppnisstöðum á LIV-mótaröðinni í golfi.

Tiger Woods fær lífstíðarpassa fyrir afrek sín
PGA-mótaröðin hefur ákveðið að veita Tiger Woods, einum besta kylfingi allra tíma, lífstíðarpassa á mörg af stærstu mótum mótaraðarinnar fyrir afrek sín á golfvellinum.

Nýkrýndur meistari á Opna bandaríska: „Pirraður og vonsvikinn“
Bryson DeChambeau var maður helgarinnar í golfinu þegar hann tryggði sér sigur á Opna bandaríska meistaramótinu á Pinehurst vellinum. Hann fékk aftur á móti ekki góðar fréttir í kjölfarið.

McIlroy tekur sér í frí frá golfi eftir „erfiðasta daginn“ á ferlinum
Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy klúðraði dauðafæri að vinna langþráðan risatitil á Opna bandaríska meistaramótinu í golfi um helgina.

Anna Júlía Íslandsmeistari í holukeppni
Anna Júlía Ólafsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar tryggði sér sigur á Íslandsmótinu í holukeppni í ár. Mótið fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar og lauk í gær.

DeChambeau hljóp um og leyfði áhorfendum að snerta bikarinn
Bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau var í miklu stuði eftir sigur sinn á opna bandaríska meistaramótinu í golfi í gær.

DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn
Bryson DeChambeau er með þriggja högga forystu fyrir lokadag Opna bandaríska meistaramótsins í golfi sem fram fer á Pinehurst-vellinum í Norður Karólínu. Rory McIlroy, Patrick Cantley og Matthieu Pavon eru jafnir í öðru sæti.

Åberg með eins höggs forskot
Hinn sænski Ludvig Åberg leiðir US Open mótið þegar tveimur umferðum er lokið. Hann lék hring gærdagsins á 69 höggum líkt og heimamaðurinn Bryson DeChambeau en er alls á 135 höggum, höggi minna en næstu þrír kylfingar.

Fór fyrst í stöngina en síðan holu í höggi
Það gengur á ýmsu hjá Austurríkismanninum Sepp Straka á US Open í dag.

Rory og Cantlay leiða á US Open
Norður-Írinn Rory McIlroy og Bandaríkjamaðurinn Patrick Cantlay deila efsta sætinu á US Open en fyrsti hringurinn var spilaður í gær.