Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Andri Broddason skrifar 18. júní 2026 09:31 Gunnlaugur Árni mun spila á Opna bandaríska risamótinu í dag. Mótið fer fram á Sinnecock-velliinum en hann hefur sögulega verið mjög erfiður. Tanner Pearson/NCAA Photos via Getty Images Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag og er Íslendingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal kylfinga á mótinu. Keppt verður á Shinnecock Hills-vellinum í New York-fylki en völlurinn hefur að margra mati verið of erfiður á síðustu tveim risamótum sem hafa verið leikin á vellinum.
Opna bandaríska mótið er oftast keppt á krefjandi völlum og er völlurinn gerður erfiðari fyrir keppni mótsins. Það var einnig gert þegar Opna bandaríska risamótið var haldið í síðustu tvö skipti á Shinnecock-vellinum. Árið 2004 var mótið haldið á vellinum og kvartaði Tiger Woods mikið um að flatirnar væru einfaldlega of erfiðar. Fyrir síðustu tvo daga mótsins voru flatirnar ekki vökvaðar sem gerði þær hraðari og erfiðari. Mikill vindur var einnig á síðasta degi mótsins og náði enginn kylfingur að fara lokahring mótsins undir pari. Fjórtán árum seinna var mótið aftur haldið á Shinnecock en þar var völlurinn aftur of erfiður. Flatirnar voru aftur hraðar en þær þurrkuðust upp í mikilli sól. Justin Rose sagðist aldrei hafa orðið vitni að golfvelli breytast jafn hratt og þá. Brooks Koepka vann mótið það ár á einum yfir pari. Stærsta áskorun vallarstarfsmanna er að halda flötum vallarins í góðu standi. Veðrið gerir þeim ekki auðvelt fyrir en spáð er miklum vindi um helgina. Planið er að auka hraðann á flötunum eftir sem líður á helgina en passa þarf að flatirnar verði ekki of erfiðar. Vindurinn gerir leikmönnum nógu erfitt fyrir og passa þarf að það verði ekki ómögulegt að spila völlinn. Gunnlaugur Árni á rás klukkan 18:20 á íslenskum tíma og verður sýnt frá mótinu í beinni útsendingu á Sýn sport.
Opna bandaríska Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Kaup Messi á spænsku félagi staðfest Fótbolti Dagskráin í dag: Hvaða lið fellur úr Bestu deildinni? Sport Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Handbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Íslenski boltinn Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Fótbolti Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira