Fréttir

Vonir bundnar við uppgötvun nýrrar virkni ónæmiskerfisins
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta virkni ónæmiskerfisins, sem sérfræðingar segja mögulega „gullnámu“ nýrra sýklalyfja.

30 milljarðar safnast upp á reikningum Menntasjóðs
Fjörutíu milljarðar af endurgreiddu lánsfé Lánasjóðs námsmanna, sem lagður var niður árið 2020, hafa farið í útlán Menntasjóðs námsmanna, sem tók við af LÍN. Á sama tíma hafa þrjátíu milljarðar safnast upp á reikningum MSNM. Háskólaráðherra kannaðist ekki við það þegar fréttastofa spurði hann út í málið föstudaginn 28. febrúar.

Árekstur á Vesturlandsvegi
Fjögurra bíla árekstur varð á Vesturlandsvegi til móts við Össur á álagstíma skömmu fyrir klukkan níu í morgun.

„Algjörlega brjálæðislegt að sjá“
Formaður Eflingar segir borgarstjóra vera með sexföld laun láglaunakvenna hjá borginni. Opinber yfirstétt virðist hafa meiri áhuga á að greiða sér „brjálæðislega há laun“ en að vinna að stöðugleika. Hið opinbera hafi tekið upp nýja launastefnu með kjarasamningi við kennara sem Efling ætli sér að miða við í viðræðum.

Sorglegt að ekki verði af vinnustaðaleikskólum
Einar Þorsteinsson fyrrverandi borgarstjóri segist hafa gengið inn í samning sem hafði sambærileg ákvæði og í samningi Dags B. Eggertssonar forvera hans og annarra bæjarstjóra á höfuðborgarsvæðinu þegar hann tók við embætti borgarstjóra. Launin séu auðvitað há en ábyrgðin og vinnan sé mikil.

Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump
Phil Goff, sendiherra Nýja-Sjálands á Bretlandi, hefur verið látinn taka pokann sinn eftir að hann gerði lítið úr sögukunnáttu Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Ömmur og afar Bryndísar Klöru: „Tími aðgerða þegar liðinn“
Saga Bryndísar Klöru þarf að verða vendipunktur í baráttunni gegn ofbeldi, segja ömmur og afar hennar sem kalla eftir hertri löggjöf um ábyrgð foreldra, auknum forvörnum, sterkari úrræðum í skólakerfinu og bættum stuðningi fyrir þolendur og börn í vanda.

Breytileg átt og einhver él á sveimi
Hæð yfir Grænlandi og kraftlitlar smálægðir stjórna veðrinu á landinu þessa dagana. Gera má ráð fyrir að áttin verði breytileg í dag, yfirleitt fremur hægur vindur og einhver él á sveimi, en það létti til suðaustanlands.

Læknir ekki séð aðra eins áverka á þrjátíu ára starfsferli
Bráðalæknir sem tók á móti konu sem Kristján Markús Sívarsson er sakaður um að hafa beitt margvíslegu ofbeldi segist varla hafa séð annað eins dæmi um áverka í starfi sínu sem læknir. Áverkarnir sem konan var með voru að sögn læknisins óteljandi og mjög umfangsmiklir.

Segir Kínverja munu „berjast til hins síðasta“ í stríði við Bandaríkin
Stjórnvöld í Kína segjast munu „berjast til hins síðasta“ við Bandaríkin, hvort sem er í tollastríði eða öðru stríði. Þau segja stjórnvöld vestanhafs hafa misreiknað sig þegar þau ákváðu að hækka tolla á vörur frá Kína.

Langflest börn brjóti ekki aftur á öðrum börnum eftir meðferð
Meirihluti þeirra barna sem vísað er í meðferð vegna óviðeigandi eða skaðlegrar kynhegðunar hjá Barna- og fjölskyldustofu brýtur ekki á öðrum börnum eftir meðferð. Flest börnin upplifi mikla skömm þegar málin koma upp. Hátt hlutfall barnanna er með greiningar og í meðferðinni samhliða annarri meðferð.

Átta ungmenni handtekin í Seljahverfi
Átta ungmenni voru handtekinn í Seljahverfi í gærkvöldi eða nótt í tveimur aðskildum málum.

„Sleppið föngunum núna eða ykkar mun bíða helvíti“
Donald Trump Bandaríkjaforseti setur íbúum Gaza-svæðisins og Hamas-liðum afarkosti í nýrri færslu á hans eigin samfélagsmiðli Truth Social. Hann vill að ísraelskum gíslum, sem eru í haldi Hamas, verði sleppt og það strax, annars bíði þeirra dauðinn.

Hugvíkkandi efni geti verið óheppileg fyrir fólk í bata
Notkun á hugvíkkandi efnum gæti verið varasöm fyrir þá sem glíma við fíknivanda og eru í bata frá honum Þetta kom fram í máli Valgerðar Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra lækninga á Vogi, í Reykjavík síðdegis í dag.

Vel tókst að slökkva eld við Nýbýlaveg
Eldur kom upp í húsnæði Fylgifiska við Nýbýlaveg í Kópavogi í kvöld. Vel tókst að slökkva eldinn, sem var minni háttar.

Íhugar að bjóða fram fælingarmátt kjarnorkuvopnabúrsins
Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir þjóð sína verða að átta sig á sérstakri stöðu sinni þar sem hún búi bæði yfir kjarnorkuvopnum og skilvirkasta og best vígbúna her Evrópu.

Íslendingar eigi eitt tromp gegn Trump
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir tollastríð hafið og horfur á að verðbólga geti orðið nokkru meiri fyrir vikið. Óvíst sé hvort tollahækkunum verði beitt gegn Íslandi en í öllu falli gæti tollastríðið leitt til óbeins verðþrýstings hér á landi.

Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin
Leikkonan Anna Kristín Arngrímsdóttir er látin 76 ára að aldri. Anna Kristín fæddist þann 16. júlí 1948 á Böggvistöðum í Svarfaðardal og var hún dóttir Kristjönu Margrétar Sigurpálsdóttur og Arngríms Stefánssonar.

Þurfti þrjár tilraunir til að lenda í Keflavík
Flugvél frá Play þurfti tvívegis í gær að hætta við lendingu í Keflavík á síðustu stundu í hvassri suðvestanátt og neyddust fjórar aðrar farþegaþotur til að fara í biðflug á meðan verstu hryðjurnar gengu yfir. Vandræðin hefðu ekki orðið ef þriðja flugbraut vallarins væri opin.

Sérstakt að túlka tillögur almennings sem stríðsyfirlýsingu
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist stoltur af almenningi vegna þess hve umhugað honum sé um rekstur ríkissjóðs. Hann segir tal um að í tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri felist stríðsyfirlýsing til opinberra starfsmanna innistæðulaust.

Silfurlitaða VÆB byltingin tók yfir öskudaginn: „Þetta er geggjað! Þetta er galið! Þetta er geðveikt!“
VÆB æði hefur gripið yngri kynslóðina og öskudagsbúningar barnanna báru þess sannarlega merki í dag þar víða mátti sjá glitta í speglagleraugu og silfurklæði. Einnig sást til íkorna, Squid Game persóna og Donalds Trump í öskudagsfjöri.

Vanvirðing við Hæstarétt og áhrif tollahækkana Trumps
Forseti Hæstaréttar segir hugmyndir um að fækka hæstaréttardómurum úr sjö í fimm vanvirðingu við réttinn. Opinberir starfsmenn eru einnig mjög ósáttir við tillögur starfshóps ríkisstjórnarinnar, sem auðvelda uppsagnir. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra bregst við gagnrýninni í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Forseti Hæstaréttar: „Mér er alveg sama þótt þetta séu tillögur frá einhverjum hópi“
Forseti Hæstaréttar segir af og frá að fækka dómurum við réttinn úr sjö í fimm, líkt og lagt er til í einni sextíu hagræðingartillagna sem lagðar voru fram í gær. Með tillögunni sé æðsta dómstigi þjóðarinnar sýnd vanvirðing.

„Þetta er reiðarslag fyrir okkar litla samfélag“
Sveitarstjórn Húnabyggðar segir uppsögn Kjarnafæðis Norðlenska á 23 starfsmönnum í starfsstöð sinni á Blönduósi vera reiðarslag fyrir samfélagið. Sveitarfélagið ætlar sér að reyna að finna lausnir til að hjálpa þeim sem misstu vinnuna.

Bílarnir dregnir upp úr sjónum
Búið er að draga á land bílana tvo sem fóru í sjóinn við Akraneshöfn í óveðrinu á mánudagsmorgun þegar stærðarinnar alda gekk yfir höfnina. Tveir menn fóru einnig í sjóinn og liggur annar þeirra þungt haldinn á gjörgæslu.

Fimm þúsund starfsmenn borgarinnar fengu of mikið greitt
Reykjavíkurborg þurfti um áramótin að leiðrétta greiðslur til starfsmanna upp á samanlagt 34 milljónir króna vegna kerfisvillu við útreikning desemberuppbótar. Um 4900 starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu of mikið greitt.

„Ríkismiðillinn eins og púkinn á fjósbitanum“
Snorri Másson þingmaður Miðflokksins kvaddi sér hljóðs á Alþingi í dag, í dagskrárliðnum Störf þingsins, og fór yfir það sem hann kallaði brenglað rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi.

Tillaga um að leggja af áminningarskyldu sé vanvirðing í garð starfsfólks
Forsvarsfólk BSRB, BHM og Kennarasambands Íslands, KÍ, gagnrýna í sameiginlegri yfirlýsingu að í tillögum hagræðingarhóps stjórnvalda sé fjallað um að leggja af áminningarskyldu í lögum um starfsmenn hins opinbera. Þau segja tillöguna vanvirðingu í garð opinberra starfsmanna.

Grátandi foreldrar einhverfra ungmenna án úrræða
Janus endurhæfing mun loka geðendurhæfingarúrræði sínu þann 1. júní og hefur öllu starfsfólki verið sagt upp. Framkvæmdastjóri Einhverfusamtakanna segir að grátandi foreldrar hringi ráðalausir þar sem engin önnur lausn er í sjónmáli í stað þeirrar þjónustu sem Janus endurhæfing hefur veitt börnum þeirra, fullorðnum ungmennum með fjölþættan vanda. Skjólstæðingar hafa sjálfir hafið undirskriftasöfnun.

Tillagan greinilega frá „hagsmunahópum í atvinnulífinu“
Formaður BHM telur ljóst að hagræðingartillaga til ríkisstjórnar, sem snýst um réttindi opinberra starfsmanna, komi greinilega frá hagsmunahópum í atvinnulífinu. Alvarlegt sé að engir útreikningar til stuðnings tillögunni liggi fyrir.