Fréttir
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 334 ›
Enn óljóst hvað verður um umsóknina Enn er óljóst hvað ríkisstjórnin hyggst fyrir með umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra segir eðlilegt að málið verði rætt áfram í utanríkismálanefnd og forsætisráðherra segir að skoða þurfi hvernig eðlilegast sé að loka ferlinu. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna boða þingsályktunartillögu um að draga umsóknina til baka. Innlent 31.8.2026 23:00
Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð 28 ára gamall Pólverji er sá sem íbúar Langanesbyggðar treysta best til forystu í sveitarfélaginu. Þar var persónukjör í kosningunum í vor og hlaut hann flest atkvæði. Innlent 31.8.2026 22:40
Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Svo að kjarasamningar geti haldið gildi sínu álykta VR og fagfélög að leiðrétta þurfi kjarasamningsbundin laun gagnvart verðbólgu, fjölga frídögum til að koma til móts við þjónustuskerðingar við leik- og grunnskólabörn og tryggja raunverulegt þak á verð- og gjaldskrárhækkanir. Innlent 31.8.2026 21:34
Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur heimilað Donald Trump Bandaríkjaforseta að halda áfram með framkvæmdir við nýjan veislusal í Hvíta húsinu. Framkvæmdirnar voru stöðvaðar af alríkisdómara í vor. Erlent 31.8.2026 20:41
Öll hin látnu um og undir tvítugu Ungmennin þrjú sem létust í umferðarslysi við Kýsuvíkurveg í nótt voru fædd árin 2005, 2007 og 2009. Innlent 31.8.2026 20:10
„Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofunnar þakkaði áhorfendum kvöldfrétta Sýnar fyrir að hafa kveikt á sjónvarpinu dag hvern í fjörutíu ár. Hann kvaddi hins vegar ekki þar sem fréttaflutningurinn heldur áfram. Innlent 31.8.2026 19:59
Íhuga fleiri árásir á Hormússund Donald Trump Bandaríkjaforseti og hans hæstsettu ráðgjafar vega nú og meta hvort Bandaríkjaher eigi að gera takmarkaðar árásir á Hormússundi í von um að koma í veg fyrir það að Íranir geti endurreist ratsjár- og eldflaugagetu sína á svæðinu. Erlent 31.8.2026 19:32
Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl segist harma það að Íslendingar hafi hafnað í atkvæðagreiðslu að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hann telur þetta til marks um að Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi. Erlent 31.8.2026 18:38
Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Síðasti kvöldfréttatími Sýnar hefst klukkan 18:30 í kvöld. Líkt og ávallt er um stútfullan fréttatíma að ræða. Við rifjum upp góð augnablik í tæplega fjörutíu ára sögu kvöldfrétta og verðum í beinni útsendingu um allan bæ. Innlent 31.8.2026 18:11
„Ríkið á stóra sök á þessu“ Fyrsti fréttastjóri Stöðvar 2 segir það að hluta til sök ríkisins að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, hafi verið lagðar niður. Staðan sé dapurleg. Innlent 31.8.2026 18:09
Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Fréttastjóri Ríkisútvarpsins segir það einnig slæm tíðindi fyrir Rúv að missa þá samkeppni og samanburð sem hverfur þegar Sýn hættir með sínar sjónvarpsfréttir. Frá og með morgundeginum verður ríkisrekni fjölmiðillinn sá eini sem sendir út fréttatíma í sjónvarpi. Innlent 31.8.2026 17:41
Á morgun mega hommar gefa blóð Á morgun mega allir óháð kyni eða kynhneigð gefa blóð þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi. Sérstök skimun var innleidd hjá Blóðbankanum sem hafði gefið góða raun. Innlent 31.8.2026 17:22
Tekjuáætlun verulega undir áætlun Tekjuáætlun Laugardalslaugar, Sundhallar Reykjavíkur og Vesturbæjarlaugar er tæpum fjörutíu milljónum króna undir áætlun. Afar mikil aðsókn er í eina laugina en illa gengur hjá hinum tveimur. Mögulega þarf að skerða enn meira aðgengi að Laugardalslaug. Innlent 31.8.2026 17:01
„Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Utanríkisráðherra þykir afleitt að síðasti kvöldfréttatími Sýnar verði sýndur í kvöld. Dapurlegt sé að fjölmiðlaumhverfi verði þrengra en áður þekktist. Formaður Miðflokksins hefur áhyggjur af því að vald Ríkisútvarpsins á fjölmiðlamarkaði aukist enn við breytingarnar. Innlent 31.8.2026 16:46
Metfjöldi kvartana Metfjöldi kvartana barst umboðsmanni Alþingis árið 2025 og fjölgaði þeim um 12,5 prósent á milli ára. Það stefnir allt í að annað met verði sett á þessu ári. Innlent 31.8.2026 16:42
Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Vísindamenn og verkfræðingar Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) skutu í nýjum sjónauka út í geim. Vonast er til þess að Nancy Grace Roman-geimsjónaukinn (NGRST) muni varpa ljósi á huldukraftana sem halda alheiminum saman. Erlent 31.8.2026 16:24
Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Utanríkisráðherra segir að ekkert hafi verið á ákveðið á fundi utanríkismálanefndar, sem boðað var til í morgun. Til umræðu var hvort draga ætti umsókn Íslands að Evrópusambandinu formlega til baka og bókun 35. Formaður Miðflokksins segir að það væri með ólíkindum ef bókunin yrði keyrð í gegnum þingið í kjölfar afgerandi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um helgina. Innlent 31.8.2026 15:49
Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni Herforingjastjórn Níger stóð um helgina af sér valdaránstilraun, sem virðist hafa verið nokkuð alvarleg. Rússneskir málaliðar eru sagðir hafa skipt sköpum fyrir herstjórnina og bundu þeir enda á um sólahringslangt umsátur um herstöð nærri Niamey, höfuðborg landsins. Erlent 31.8.2026 14:28
„Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Leah Stewart, 34 ára, kona frá Sydney sem lifði af hákarlaárás lýsti í sjónvarpsviðali því augnabliki þegar hún stóð augliti til auglitis við fjögurra metra langan hvíthákarl og kýldi hann þangað til hann hörfaði. Erlent 31.8.2026 14:14
Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Tvær stúlkur og einn piltur létust þegar bíll þeirra hafnaði utan vegar við Krýsuvíkurveg í nótt. Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins. Innlent 31.8.2026 14:08
Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Hugverkastofnun Evrópusambandsins hefur staðfest að borgin Rovaniemi í Lapplandi eigi vörumerkið „opinbert heimili jólasveinsins“. Hollenskur blaðamaður reyndi að fá vörumerkið afturkallað. Erlent 31.8.2026 13:45
Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Bæjarráð Fjallabyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja fasta starfsstöð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands á Akureyri. Innlent 31.8.2026 13:16
Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Viðbrögðin við ákvörðun stjórnar Sýnar að hætta útsendingum kvöldfrétta Sýnar og áður Stöðvar 2 hafa verið blendin. Flestir sem tjá sig lýsa yfir dapurleika vegna þessarar niðurstöðu og óttast að ríkið sé nú eitt um að flytja fólki sjónvarpsfréttir – teljist ekki góðar tvíbökur. Innlent 31.8.2026 12:43
Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins. Innlent 31.8.2026 12:42
Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Logi Einarsson menningar- og nýsköpunarráðherra segir áfall að heyra að kvöldfréttir Sýnar verði lagðar niður en síðasti sjónvarpsfréttatíminn fer í loftið í kvöld, eftir tæplega fjörutíu ára sögu. Innlent 31.8.2026 12:03
Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Í hádegisfréttum verður rætt við Loga Einarsson menntamálaráðherra sem segir það áfall að stjórn Sýnar hafi ákveðið að leggja niður kvöldfréttir. Síðasti kvöldfréttatími Sýnar verður lesinn í kvöld eftir tæplega fjörtíu ára sögu. Innlent 31.8.2026 11:50
„Þeir munu hengja mig“ Vladimír Pútín óttast það að binda enda á stríðið gegn Úkraínu án þess að ná fullum tökum á Donbas-svæðinu svokallaða. Hann er sagður telja að hann yrði ráðinn af dögum ef hann gerði það og þess í stað ætlar hann að leggja enn meira í stríðsreksturinn. Erlent 31.8.2026 11:30
Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Ríkisútvarpið réðist í hagræðingaraðgerðir fyrir helgi sem hafa áhrif á sem nemur tíu til fimmtán stöðugildum. Bæði verður gripið til uppsagna og ekki ráðið í störf sem losna. Innlent 31.8.2026 11:18
„Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Andstæðingar Evrópusambandsaðildar í Noregi fagna niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi um helgina. Norskur prófessor með tengsl við Ísland segist telja að hægri- og forréttindakreðsur hafi sannfært þá sem minna mega sín um að kjósa gegn aðildarviðræðum. Erlent 31.8.2026 11:09
Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Trausti Örn Þórðarson er nýr starfsmaður þingflokks hjá Miðflokknum. Hann kemur til flokksins frá Útlendingastofnun þar sem hann hefur starfað síðustu þrjú ár. Í tilkynningu kemur fram að hann muni sinna daglegum störfum þingflokks. Innlent 31.8.2026 11:02