Fréttir
29 30 31 32 33 34 35 36 37 … 334 ›
Samfylkingin langstærst í kjördæmi Kristrúnar Samfylkingin er langstærsti flokkurinn í Reykjavíkurkjördæmi norður með 28 prósent fylgi. Viðreisn tvöfaldar fylgi sitt. Innlent 1.12.2024 00:58
Stefnir í að VG þurrkist út af þingi Vinstri grænir eru með talsvert minna fylgi en í síðustu kosningum 2021 og stefnir í að flokkurinn þurkkist út af þingi. Innlent 1.12.2024 00:58
Gríðarlega mikið fylgi sem dettur niður dautt Samfylkingin bætir við sig tíu prósentum í Reykjavík suður, samkvæmt fyrstu tölum og mælist með rúmlega 23 prósent í kjördæminu. Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi og mælist aðeins með tvo menn inni. Framsókn missir sína þingmenn í kjördæminu og mælist með 4,7 prósent. Innlent 1.12.2024 00:45
Ljóst að þetta yrði brekka fyrir Framsókn Ásmundur Einar Daðason og Willum Þór Þórsson, ráðherrar Framsóknar, segjast ekki vera stressaðir þó einungis annar þeirra, Willum, mælist inni þegar þetta er skrifað og þá mælist formaður flokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, heldur ekki inni. Ásmundur Einar segist stoltur af sínum verkum en segir ljóst að uppbyggingarstarf bíði félaga sinna í Framsókn. Innlent 1.12.2024 00:15
Sjálfstæðisflokkur og Samfylking ná bæði fjórum inn í Kraganum Sjálfstæðisflokkurinn tapar aðeins tveimur prósentum í Suðvesturkjördæmi samkvæmt fyrstu tölum þaðan og heldur sínum fjórum mönnum inni á þingi. Samfylkingin stóreykur fylgið og nær sömuleiðis fjórum mönnum inn. Rúmlega sex prósent atkvæða detta niður dauð. Innlent 1.12.2024 00:00
„Ég veit ekki hvort ég er að koma eða fara“ Inga Sæland formaður Flokks fólkins og Ásta Lóa Þórhallsdóttir oddviti Flokks fólksins í Suðurkjördæmi voru himinlifandi þegar Bjarki Sigurðsson fréttamaður Stöðvar 2 ræddi við þær á kosningavöku Flokks fólksins. Innlent 30.11.2024 23:56
Merkir hægribylgju en ekki vonbrigði Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir fyrstu tölur alls engin vonbrigði, þrátt fyrir að Samfylkingin sé að mælast með meira fylgi en hans flokkur á þessari stundu. Hann segist fyrst og fremst vera raunsær og segir tölurnar gefa til kynna hægribylgju. Innlent 30.11.2024 23:39
Glaður maður en býst við batnandi tölum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur sem hafa birst í kvöld en Kristín Ólafsdóttir fréttakona tók hann tali á kosningavöku Miðflokksins Hann segist þó geta búist við batnandi tölum þegar menn nái að ryðjast í gegnum snjóskaflana í Norðausturkjördæmi. Innlent 30.11.2024 23:29
Samfylkingin og Flokkur fólksins bæta miklu við sig Samfylkingin mælist með 23 prósent atkvæði samkvæmt fyrstu tölum kvöldsins sem komu úr Norðausturkjördæmi. Flokkur fólksins er næststærsti flokkurinn í Suðurkjördæmi og fengi 19,7 prósent. Innlent 30.11.2024 23:17
Sagði sínu fólki að tala ekki illa um aðra flokka Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar var í banastuði þegar Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona náði af henni tali á kosningavöku Viðreisnar á Hótel Borg í kvöld. Hún sagði Viðreisn klára í ríkisstjórn og kom fram að hún hefði skipað sínu fólki að tala ekki um aðra flokka á lokametrum kosningabaráttunnar. Innlent 30.11.2024 23:01
Trúir því að fólk sé að detta VG megin í kjörklefanum Svandís Svavarsdóttir formaður Vinstri grænna segist löngu hætt að vera stressuð fyrir kvöldinu. Hún segist finna það hjá kjósendum að margir hafi ákveðið að kjósa flokkinn, jafnvel á allra síðustu stundu í kjörklefanum. Innlent 30.11.2024 22:40
Vegabréfið fór með atkvæðinu í kjörkassann Kjósandi sem kaus á Kjarvalsstöðum í dag setti óvart vegabréfið sitt með kjörseðlinum ofan í kjörkassann. Viðkomandi getur ekki sótt vegabréfið fyrr en búið er að telja atkvæðin. Innlent 30.11.2024 22:24
„Ég trúi því að þjóðin sé að opna augun“ Þorgerður Katrín segir þjóðina vilja sjá myndun samhentrar ríkisstjórnar. Ásmundi Einari er létt að kosningabaráttunni sé lokið en segist þó bjartsýnn. Frambjóðendur Lýðræðisflokksins trúa því að þjóðin sé búin að opna augun. Innlent 30.11.2024 20:31
Viðbúið að talning tefjist í einhverjum kjördæmum Kjörsókn fór hægar af stað í morgun en í síðustu kosningum en tók við sér þegar líða tók á daginn. Formaður yfirkjörstjórnar segir engar meiriháttar uppákomur hafa komið upp. Ekki þurfti að fresta neinum kjörfundi en talning gæti tekið meiri tíma á landsbyggðinni í ljósi færðar. Innlent 30.11.2024 19:17
Þriggja bíla árekstur og mikil umferðarteppa Þrír bílar lentu saman í árekstri á Hafnarfjarðvegi við Arnarnesbrú upp úr fimm síðdegis. Fjórir voru fluttir á bráðamóttöku til skoðunar en meiðsli virðast vera lítilháttar. Umferðarteppa hefur myndast niður að Hamraborg. Innlent 30.11.2024 18:34
Kjördagur að kveldi kominn en nóttin rétt að byrja Kjördagurinn hefur gengið fram úr öllum vonum í Norðausturkjördæmi þrátt fyrir veðurviðvaranir að sögn varaformanns yfirkjörstjórnar. Kjörfundir haldast opnir og svo virðist sem engin töf verði á talningu. Innlent 30.11.2024 18:02
Tveir fluttir með þyrlu vegna rútuslyssins og einn fluttur vegna veikinda Rúta valt út af veginum á Fróðárheiði á Snæfellsnesi og voru tveir farþegar fluttir með þyrlu á Landspítalann en restin fóru með rútu inn í Ólafsvík þar sem búið er að opna fjöldahjálparmiðstöð. Á sama tíma var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda við Seljalandsfoss. Innlent 30.11.2024 17:53
Þyrlan kölluð út vegna rútuslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna rútuslyss á Fróðárheiði á Snæfellsnesi. Lögregla, sjúkralið og björgunarsveitir hafa verið kallaðar á vettvang. Innlent 30.11.2024 16:02
Um þriðjungur hefur kosið í flestum kjördæmum Kjörsókn í Alþingiskosningunum mældist mest í Norðvesturkjördæmi klukkan þrjú en minnst í Reykjavíkurkjördæmi norður. Innlent 30.11.2024 15:41
„Nú þarf maður bara að treysta þjóðinni“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist jákvæð fyrir deginum og að stemningin innan Samfylkingarinnar sé gríðarleg. Innlent 30.11.2024 15:32
„Förum ekki að stefna öryggi fólks í hættu“ Formaður landskjörstjórnar telur ólíklegt að fresta þurfi kjörfundi vegna veðurviðvarana í kvöld. Líklega gangi allt upp samkvæmt áætlun. Innlent 30.11.2024 15:27
Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir kosningabaráttuna hafa verið snarpa, fjörlega og skemmtilega. Það hafi verið gott að kjósa í dag, í loka hnykknum í baráttunni. Innlent 30.11.2024 15:07
Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Tvennt er sært eftir að átján ára piltur hóf skothríð í þorpinu Tiniteqilaaq á suðaustanverðu Grænlandi í dag. Annar þeirra særðu er sagður í lífshættu en pilturinn er í haldi lögreglu. Erlent 30.11.2024 14:56
„En ég heyri alveg gríðarlegan stuðning víða“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir það skemmtilega hátíðartilfinningu að mæta á kjörstað. Hann segist vongóður með daginn. Innlent 30.11.2024 14:18
Hröð barátta og skortur á dýpt Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir alltaf frábært að setja x við P. Það gerði hún í morgun. Hún sagðist þá ætla að verja deginum í kosningamiðstöð þar sem hún stefnir á að hringja í nokkra óákveðna kjósendur. Innlent 30.11.2024 13:33
Samtöl við kjósendur standa upp úr Jóhannes Loftsson, stofnandi Ábyrgrar framtíðar segir það sérstakt að kjósa en geta ekki veitt sjálfum sér atkvæði, þar sem hann býr í Reykjavík suður en flokkurinn býður fram í Reykjavík norður. Innlent 30.11.2024 12:58
Sigurður beðinn um að fjarlægja Framsóknarnælu Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var beðinn um að fjarlægja barmmerki merkt flokknum er hann mætti á kjörstað á Flúðum í dag. Innlent 30.11.2024 12:12
Kjörsókn betri fyrir austan en menn þorðu að vona Gular veðurviðvaranir tóku gildi á Suðausturlandi og Austurlandi fyrir klukkan átta í morgun vegna norðaustan og norðan hríðar með snjókomu og skafrenningi. Veður versnar á norðanverðu landinu með deginum en þar taka viðvaranir gildi klukkan þrjú. Innlent 30.11.2024 11:46
Tekist að opna alla kjörstaði í Norðausturkjördæmi Framkvæmd alþingiskosninganna í Norðausturkjördæmi hefur gengið betur en menn þorðu að vona þrátt fyrir að færð hafi spillst af völdum veðurs, að sögn varaformanns yfirkjörstjórnar kjördæmisins. Tekist hefur að opna alla kjörstaði í kjördæminu. Innlent 30.11.2024 11:44
„Ég get ekki hugsað mér að fleiri börn lendi í honum“ Kara Rós Kristinsdóttir var sex ára gömul þegar eldri strákur lokkaði hana og vinkonu hennar inn í bílakjallara og braut á þeim kynferðislega með grófum hætti. Sökum ungs aldurs piltsins hlaut hann ekki refsingu og Kara kveðst ekki vita til að hann hafi fengið nokkurs konar aðstoð eða meðferð. Hann hélt áfram að ganga í sama skóla og Kara þrátt fyrir að skólayfirvöld hafi verið látin vita af málinu. Innlent 30.11.2024 11:41