Fréttir
167 168 169 170 171 172 173 174 175 … 334 ›
Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Undirbúningur fyrir Landsmót hestamanna sem mun standa yfir dagana 1. til 7. júlí er í fullum gangi. Búist er við þúsundum áhorfenda og keppendur eru á fullu að æfa sig. Í tilefni af mótinu var haldin miðbæjarreið í dag, þar sem 60 knapar riðu hestum sínum um miðbæ Reykjavíkur. Rætt var við mótsstjóra og knapa í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Innlent 29.6.2024 22:36
Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum Alvarlegum aukaverkunum hefur verið lýst í kjölfar notkunar á svokölluðum brúnku-nefspreyjum sem fullyrt er í auglýsingum að auki og viðhaldi sólbrúnku. Yfirlögfræðingur hjá Neytendastofu segir skýrt í lögum að auglýsingar megi ekki vera villandi gagnvart neytendum. Innlent 29.6.2024 21:03
Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Tuttugu og tveggja ára gamall maður var tekinn af lífi í Norður Kóreu á opinberum vettvangi, fyrir að hafa hlustað á 70 lög frá Suður-Kóreu, horft á þrjár myndir þaðan og að hafa dreift þeim. Þetta var árið 2022. Erlent 29.6.2024 20:07
„Hann á að vera hér á Íslandi“ Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum. Innlent 29.6.2024 19:24
Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Hjólhýsið brann til kaldra kola ásamt bíl þeirra sem áttu hýsið. Ekkert tjón varð á öðrum tækjum. Fréttastofu hafa borist myndir frá nóttinni. Innlent 29.6.2024 18:40
Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Fjölskylda palestínsks drengs með skæðan vöðvarýrnunarsjúkdóm segir heim hans hafa hrunið þegar honum var tilkynnt endanlega nýverið að fjölskyldunni yrði vísað úr landi. Hundruð sýndu samstöðu með fjölskyldunni á Austurvelli í dag en drengurinn dvelur nú á Barnaspítalanum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 29.6.2024 18:12
Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Tilkynnt var í dag um þjófnað í verslun í hverfi 101, þar sem fatnaði að verðmæti 92 þúsund krónum var stolið. Gerandi er ókunnur. Innlent 29.6.2024 17:50
Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Ferðalangur sem varð vitni að því þegar bíl spænskra ferðamanna var ekið á lamb í gær segir lausagöngu kinda nærri þjóðvegum rómantík sem fari ekki saman við nútímann. Innlent 29.6.2024 14:56
Séra Aldís Rut ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakall Séra Aldís Rut Gísladóttir, prestur í Hafnarfjarðarkirkju, hefur verið ráðin prestur við Grafarvogskirkjuprestakalls. Prestakallið þarnast nýs prests frá og með 1. júlí, þegar séra Guðrún Karls Helgudóttir verður vígð til embættis biskups Íslands. Innlent 29.6.2024 14:43
Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Borgarstjóri hefur ekki áhyggjur af því sem kallaður hefur verið lítill áhugi landsmanna á parísarhjólinu við Miðbakka í Reykjavík. Fimmtán prósent þjóðarinnar reiknar með að fara hring í hjólinu í sumar. Innlent 29.6.2024 13:51
Banninu verður ekki flýtt Ráðherra orkumála segir að banni við nýskráningum á bílum sem ganga á jarðefnaeldsneyti verði ekki flýtt. Það sé þó mikilvægt fyrir Íslendinga að átta sig á því að hagkvæmast sé að keyra um á rafbílum. Bílar 29.6.2024 13:19
Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Rabarabarahátíð fer fram í gamla bænum á Blönduósi í dag þar sem rabbabarinn verður í aðalhlutverk. Þá verður draugaganga líka í boði, sem endar við kirkjuna í kvöld, auk fuglaskoðunar svo eitthvað sé nefnt. Innlent 29.6.2024 12:15
Býst ekki við nýju eldgosi Eldfjallafræðingur telur meiri líkur en minni á að það hefjist ekki nýtt gos í Sundhnúksgígaröðinni á næstunni. Hægt hafi á flæði inn í dýpri kvikugeymsluna undir Svartsengi upp á síðkastið. Innlent 29.6.2024 11:55
Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Eldfjallafræðingur telur meiri líkur en minni á að ekki hefjist nýtt gos í Sundhnúksgígaröðinni á næstunni, þó að Veðurstofan mæli hraðara landris. Hægt hafi á flæði inn í dýpri kvikugeymsluna undir Svartsengi upp á síðkastið. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Innlent 29.6.2024 11:55
Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Tveir voru handteknir vegna gruns um að hafa stjórnað rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis í gærkvöldi. Leiða má líkur að því að þeir verði með þeim fyrstu sem þurfa að reiða fram sektagreiðslu vegna slíks athæfis. Innlent 29.6.2024 11:13
Hjólhýsi brann í Húsafelli Slökkviliðið í Borgarnesi var kallað út á þriðja tímanum í nótt þegar eldur hafði kviknað í hjólhýsi á tjaldsvæðinu á Húsafelli. Innlent 29.6.2024 10:46
Boða til samstöðufundar með Yazan Landssamtökin Þroskahjálp, Duchenne Samtökin á Íslandi, Réttur barna á flótta og Einstök börn hafa boðað til samstöðufundar með Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskum dreng með hrörnunarsjúkdóm sem vísa á úr landi. Innlent 29.6.2024 10:25
Efna til allsherjarleitar að Slater Allsherjarleit að Bretanum Jay Slater, sem hefur verið týndur á Kanaríeyjunni Tenerife í tæpar tvær vikur, fer fram í dag. Sjálfboðaliðar víða af eyjunni hafa verið kallaðir út til að aðstoða við leitina. Erlent 29.6.2024 09:49
Tíu ára stúlku vísað úr strætó Tíu ára dóttir Ágústu Nielsen lenti í því leiðinlega atviki í síðustu viku að vera vísað úr strætisvagni á miðri leið að því er virðist tilefnislausu. Ágústa veltir því fyrir sér hvort atvikið hafi verið tengt kynþætti dóttur hennar en faðir stúlkunnar er af erlendu bergi brotinn. Innlent 29.6.2024 09:27
Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Allir 28 sakborningar í peningaþvættismáli sem tengist Panamaskjölunum hafa verið sýknaðir. Þeirra á meðal eru þeir Jurgen Mossack og Ramón Fonseca Mora, eigendur lögmannstofunnar alræmdu Mossack Fonseca. Fonseca lést í maí síðastliðnum. Erlent 29.6.2024 09:19
Allt að tuttugu stiga hiti sunnanlands Veðurstofa Íslands spáir rjómablíðu sunnanlands í dag en að rigna byrji sunnan- og vestanlands strax á morgun. Veður 29.6.2024 08:13
Kristján Loftsson skilur ekkert hvað hvalveiðar koma alls kyns samtökum við Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, kallaði eftir öllum gögnum sem Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hafði til grundvallar ákvörðun sinni sem var að leyfa hvalveiðar. Í öllum þeim bunka leyndist upplýsandi bréf frá Kristjáni Loftssyni hjá Hval ehf. Innlent 29.6.2024 07:14
Séra Sigfús Jón Árnason látinn Sr. Sigfús Jón Árnason, fyrrverandi prestur að Hofi í Vopnafirði og prófastur í Múlaprófastsdæmi lést þann 25.júní síðastliðinn 86 ára að aldri. Innlent 29.6.2024 07:01
Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag. Erlent 29.6.2024 00:04
Kolólöglegt og hættulegt brúnkulyf í tísku á samfélagsmiðlum Ragna Hlín Þorleifsdóttir, húðlæknir á húðlæknastöðinni, segir að ólöglegur brúnku-nefúði sem nú gengur kaupum og sölum á netinu og er mikið auglýstur á samfélagsmiðlum, sé hættulegur. Til að virkja lyfið þarf að fara í ljósabekk eða útsetja húðina fyrir sól. Ragna segir ljósabekki með eindæmum krabbameinsvaldandi og þykir miður að þeir séu nú í tísku. Innlent 28.6.2024 23:12
Verðlagning landsbyggðarstrætó „glórulaus“ Sindri Freyr Ásgeirsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl, segir að landsbyggðarstrætó sé ekki fýsilegur kostur fyrir fólk sem lifir bíllausum lífsstíl. Fólk nýti sér frekar önnur úrræði eins og deilibíla. Rætt var við Sindra í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kjölfar umfjöllunar um að strætóferð frá Reykjavík til Hafnar kosti 17 þúsund krónur. Innlent 28.6.2024 21:48
Landsvirkjun með hundraðasta frisbígolfvöll landsins Svo virðist sem frísbílgolfæði hafi runnið á landsmenn því nú var Landsvirkjun að opna hundraðasta völl landsins við Ljósafossstöð í Grímsnes og Grafningshreppi. Völlurinn er sagður vera sá allra flottasti í landinu. Innlent 28.6.2024 21:05
Stórir viðburðir í hættu þegar miðbærinn stækkar Viðburðarhaldari á Selfossi segir að fyrirhugaðar framkvæmdir við stækkun nýja miðbæjarins á Selfossi muni ógna árlegum hátíðum í bænum. Honum blöskrar hversu langt eigi að byggja inn á tún við miðbæinn. Innlent 28.6.2024 21:00
„Óframkvæmanlegt“ að flýta útfösun bensín- og dísilbíla Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir það óframkvæmanlegt að banna nýskráningu bíla sem ganga á jarðefnaeldsneyti eftir tæp fjögur ár. Vinsældir rafbíla hafa dvínað gríðarlega það sem af er árs. Bílar 28.6.2024 20:31
„Ég veit að ég er ekki ungur maður“ Joe Biden bandaríkjaforseti, hélt kraftmikla ræðu í dag, þar sem hann svaraði óbeint fyrir gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir slaka frammistöðu í kappræðum forsetaefnanna í nótt. Erlent 28.6.2024 20:22