KR spilar ekki í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í deildinni nú í vor.
Félagið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að KR muni ekki senda lið til þátttöku í meistaraflokki karla á mótum á vegum HSÍ á næsta tímabili.
Í yfirlýsingunni segir að aðstaða félagsins sé ekki nógu góð og það geti ekki boðið handknattleiksdeildinni upp á þá aðstöðu sem lið í fremstu röð þarfnast.
KR mun þó halda uppbyggingu í yngri flokkum áfram.
Yfirlýsing KR í heild sinni:
Aðalstjórn KR og stjórn handknattleiksdeildar KR hafa komist að niðurstöðu þess efnis að KR mun ekki senda lið til þátttöku í meistaraflokki karla í mótum á vegum HSÍ á komandi keppnistímabili.
Vegna stöðu félagsins í húsnæðismálum er ljóst að félagið getur ekki boðið handknattleiksdeildinni þá aðstöðu sem deildin þarfnast til þess að vera með lið í fremstu röð.
Sem fyrr mun KR leggja áherslu á uppbyggingu yngri flokka í handknattleik.
KR leggur handboltaliðið niður

Tengdar fréttir

KR á ekki hús fyrir handboltaliðið sitt og gefur líklega eftir sæti sitt í efstu deild
KR er búið að tryggja sér sæti í efstu deild karla í handbolta í fyrsta sinn í langan tíma en nú lítur út fyrir að liðið muni þurfa að afsala sér sæti sínu vegna aðstöðuleysis í Vesturbænum.