Strákarnir byrja á sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2016 19:30 Íslenska U-20 ára liðið sem tekur þátt á EM. vísir/stefán
Íslenska handboltalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann eins marks sigur, 32-31, á Rússum í fyrsta leik sínum í B-riðli á EM í Danmörku í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en undir lokin. Þegar þrjár mínútur voru eftir var Ísland í góðri stöðu, þremur mörkum yfir, 31-28. Rússar hleyptu spennu í leikinn með því að skora tvö mörk í röð en Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 32. mark Íslendinga úr hægra horninu og tryggði sigurinn. Íslenska liðið byrjaði illa en vann sig vel inn í leikinn og leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13. Ísland var með undirtökin í seinni hálfleik en náði aldrei að hrista rússneska liðið af sér. Íslensku strákunum tókst þó að landa sigrinum á endanum, ekki síst vegna góðrar innkomu Einars Baldvins Baldvinssonar í markið. Ómar Ingi Magnússon skoraði átta mörk og var valinn besti maður íslenska liðsins af mótshöldurum. Óðinn Þór skoraði sjö mörk og Elvar Örn Jónsson átti einnig skínandi leik, bæði í horninu og fyrir utan, og skoraði sex mörk. Ísland er með tvö stig í B-riðli líkt og Spánn sem vann nauman sigur á Slóveníu, 21-20, fyrr í dag.Markaskorarar Íslands:Ómar Ingi Magnússon 8, Óðinn Þór Ríkharðsson 7, Elvar Örn Jónsson 6, Aron Dagur Pálsson 3, Sigtryggur Daði Rúnarsson 3, Arnar Freyr Arnarsson 2, Birkir Benediktsson 1, Hákon Daði Styrmisson 1, Ýmir Örn Gíslason 1.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira