Eldgos og jarðhræringar
127 128 129 130 131 ›
Þýsk fjölskylduþáttaröð um ævintýraeyjuna Ísland „Willi segir ekki eitt orð um Ice-save eða fjármálakrísur," segir framleiðandinn Heimir Jónasson. Lífið 15.3.2010 20:45
Töluverð skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli í nótt Töluverð skjálftahrina varð undir Eyjafjallajökli í nótt og stóð í hálfa aðra klukkustund. Nokkrir skjálftanna mældust um og yfir tvo á Richter og sá sterkasti var 2,6. Á sömu slóðum varð um það bil klukkustundar skjálftahrina snemma í gærmorgun og mældist snarpasti kippurinn 2,4 á Richter. Innlent 10.3.2010 06:54
Fregnir af gjósku í Noregi Enn er beðið gagna sem sýna endanlegt umfang gjóskufalls frá gosinu í Grímsvötnum sem lauk nú um helgina. Innlent 13.10.2005 14:56
Eldgosið virðist búið Eldgosið í Grímsvötnum virðist vera búið eða að minnsta kosti í dauðateygjunum. Veðurstofan hafði upplýsingar frá fólki sem flaug yfir Vatnajökul í dag að ekki væri lengur neitt eldgos að sjá, aðeins örlítinn gufustrók upp úr gígnum. Innlent 13.10.2005 14:56
Nær engin virkni við Grímsvötn Nær engin skjálftavirkni hefur verið á Grímsvatnasvæðinu í nótt sem bendir til þess að sáralítil sem engin gosvirkni sé lengur á svæðinu. Ekkert hefur heldur sést til goss á veðurratsjá Veðurstofunnar og hefur Veðurstofan ekki sent neinar viðvaranir út í nótt vegna eldsumbrota þar. Innlent 13.10.2005 14:55
Krafturinn úr gosinu "Það gýs nú ennþá," sagði Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði á raunvísindastofnun Háskóla Íslands, þegar hann var spurður að því í gær hvort botninn væri dottinn úr Grímsvatnagosinu í Vatnajökli. Innlent 13.10.2005 14:55
Öskufallið raskaði flugi Öskufall vegna eldgossins í Grímsvötnum hefur raskað innanlandsflugi í dag. Öskufallsins hefur orðið vart víða um austan- og norðaustanvert landið og eru búfjáreigendur hvattir til að fylgjast grannt með fréttum af gosinu. Innlent 13.10.2005 14:54
Virknin í Grímsvötnum minni Virkni í Grímsvötnum er minni þessa stundina og er einnig orðin hviðukennd eins og gerist í Grímsvatnagosum, auk þess sem hlaup í Skeiðará virðist vera í rénun. Af þessum ástæðum hefur samhæfingarstöð almannavarna verið lokað í bili og bakvakt almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra hefur tekið við eftirlitshlutverki almannavarna. Innlent 13.10.2005 14:54
Verulegur kraftur í gosinu Verulegur kraftur hefur verið í eldgosinu í Grímsvötnum í dag þótt hann sé talinn heldur minni en í gær. Magnaðar myndir náðust af gígbarminum í leiðangri jeppamanna. Friðrik Þór Halldórsson, kvikmyndatökumaður Stöðvar 2, var í hópi leiðangursmanna. Innlent 13.10.2005 14:54
Truflar flug í Noregi og Svíþjóð Fíngerð aska úr Grímsvatnagosinu er farin að trufla flug í Norður-Noregi og Svíþjóð líkt og hér innanlands. Veðurstofur þar vara við ösku í 15-50 þúsund feta hæð þannig að flugvélar þurfa að fljúga undir öskunni eða krækja fyrir öskugeirann. Innlent 13.10.2005 14:54
Breytileg gosvirkni í Grímsvötnum Virknin í gosstöðvunum í Grímsvötnum hefur verið nokkuð breytileg í nótt og virðist nú heldur minni en í gær, að sögn Veðurstofu. Um miðnættið dró nokkuð úr krafti gossins, en jókst svo aftur um klukkan 2:30 í nótt og hefur verið nokkuð svipaður síðan. Innlent 13.10.2005 14:54
Mögnuð upplifun á jöklinum "Þegar gosið fór að aukast um klukkan fimm og við að huga að heimferð urðum við varir við titring í jöklinum og vorum að tala um að þá hefði verið gaman að sjá jarðskjálftamælana hjá þeim á Veðurstofunni," sagði Jón Ólafur Magnússon fjallamaður, sem fór á þriðjudaginn í jeppaferð upp á Vatnajökul til að sjá Grímsvatnagosið í návígi. Innlent 13.10.2005 14:54
Heltekinn af hamfaraflóðum Áhugi manna á Grímsvatnagosinu nær langt út fyrir landsteinanna og má búast við að fræðimenn víða um heim beini hingað sjónum. Einn þeirra er Andrew J. Russell, jarðfræðingur við Newcastleháskóla, en aðaláhugasvið hans eru áhrif jökulhlaupa á landslag og árfarvegi og því hefur hann aldeilis komist í feitt hérlendis. Innlent 13.10.2005 14:54
Búfé á gjöf vegna goss Öllu fé var smalað og það sett inn á gjöf á Möðrudal á Möðrudalsöræfum í gær, að sögn Önnu Birnu Snæþórsdóttur húsfreyju. Innlent 13.10.2005 14:54
Gosmökkurinn nær hátt til himins Fyrstu merki um gosmökk frá eldgosinu í Grímsvötnum sáust á veðurradar Veðurstofunnar klukkan 23:10 í gærkvöld og náði mökkurinn þá upp í um 8 kílómetra hæð. Klukkan rúmlega 1 í nótt náði mökkurinn upp í um 13 kílómetra hæð, en hefur verið nokkuð breytilegur síðan þá. Gosmökkurinn sýnist á radarmyndinni vera frekar sunnarlega miðað við Grímsvötn, en að öllum líkindum er það vegna ónákvæmni í mælingunum, en radarinn er í um 260 km fjarlægð frá gosinu. Innlent 13.10.2005 14:54
Flugsvæði lokað Eldgosið í Grímsvötnum hefur valdið því að um 311.000 ferkílómetrasvæði norð-austur af gosstöðvunum er lokað fyrir flugumferð. Innlent 13.10.2005 14:54
Meira en fyrir sex árum Vísindamenn sem voru að koma úr flugi yfir gosstöðvarnar segja að eldgosið nú sé meira en síðasta Grímsvatnagos fyrir sex árum. Nú undir kvöld gaf Flugmálastjórn það út að flug væri hvorki heimilað á Akureyri né Egilsstaði. Innlent 13.10.2005 14:54
Stærsta hlaup síðan 1996 Hlaupið nú er það stærsta sem komið hefur í Skeiðará eftir hamfarahlaupið 1996. Helgi Björnsson jöklafræðingur telur að hlaupinu verði lokið seinnipartinn á morgun. Innlent 13.10.2005 14:54
Ný goshrina hafin Næstu 60 til 80 árin má búast við tíðum eldgosum í Vatnajökli að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar jarðfræðings. Ekki er búist við miklu hlaupi í kjölfar gossins í Grímsvötnum. Mannvirki ekki talin í hættu. Innlent 13.10.2005 14:54
Hlaupið kom gosinu af stað Skeiðarárhlaupið virðist hafa komið gosinu af stað sem er þá í fyrsta sinn í 70 ár sem það gerist. Öskufalls vegna gossins í Grímsvötnum hefur orðið vart á Austurlandi, meðal annars á Möðrudal á Fjöllum. Yfirdýralæknir hefur ráðlagt bændum, og þá sérstaklega á austanverðu landinu, að taka fé sitt á hús svo það skaðist ekki af ösku en það getur fengið flúoreitrun af öskunni. Innlent 13.10.2005 14:54
Meiri bráðnun en venjulega Eldgosið sem hófst í Grímsvötnum í gærkvöldi er sunnar og vestar en hefðbundnar gosstöðvar og er íshellan þar mun þykkari. Því verður meiri bráðnun en í venjulegu Grímsvatnagosi og er þegar farið að magnast hlaupið ofan til í Skeiðará. Sama er að segja um Gígjukvísl. Öskufalls hefur orðið vart í Möðrudal á Fjöllum. Innlent 13.10.2005 14:54
Hin rámu regindjúp rymja á ný Fyrsta Grímsvatnagos aldarinnar hefur litið dagsins ljós en talið er að þar hafi gosið í það minnsta fimmtíu sinnum frá landnámi. Gosin koma gjarnan í lotum en þess á milli liggur eldstöðin í dvala. Ný hrina er nú í uppsiglingu. Innlent 13.10.2005 14:54
Öflugra en gosið fyrir 6 árum Óvenju öflugt eldgos hófst í Grímsvötnum í gærkvöldi. Fréttastofan náði tali af Magnúsi Tuma Guðmundssyni prófessor þegar hann var að leggja upp í flugferð yfir eldstöðvarnar í morgun. Hann segir gosið í nótt mun öflugra en gosið í Grímsvötnum árið 1998 sem sést á því að gosmökkurinn núna nær 13 kílómetra upp í loftið en hann náði aðeins 10 kílómetra hæð fyrir sex árum. Innlent 13.10.2005 14:54
Gosið virðist færast í aukana Gosið í Grímsvötnum virðist vera að færast í aukana. Friðrik Þór Halldórsson kvikmyndatökumaður er við barm gígsins fyrir neðan Háubungu þar sem hann horfir austur yfir Grímsvötn og segir hann mikið ganga á. Gífurlegir bólstrar koma úr gígnum og segir Friðrik að miðað við þá rúmu klukkustund sem hann hafi fylgst með gosinu virðist það vera að aukast. Innlent 13.10.2005 14:54
Varað við umferð um jökulinn Fyrir liggur að örar breytingar eru á gosinu við Grímsvötn samkvæmt tilkynningu frá Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra varar við umferð um jökulinn í ljósi þess að jökullinn er sprunginn og stórhættulegur yfirferðar. Innlent 13.10.2005 14:54
Ekkert í líkingu við flóðið 1996 Flóð í Skeiðará nær að öllum líkindum hámarki í dag. Hlaupið er ekki talið verða ekki jafn mikið og árið 1996 þegar miklar skemmdir urðu á mannvirkjum á Skeiðarársandi. Innlent 13.10.2005 14:54
Hætta á öskufalli í byggð Flugumferð hefur verið beint suður fyrir Ísland í nótt vegna gosmakkar frá eldgosinu. Mest hætta á öskufalli í byggð er sem stendur norðaustur af eldstöðinni, eins og í Vopnafirði. Víðir Reynisson, verkefnafulltrúi Almannavarna, segir hættu ekki stafa af gosinu að svo stöddu. Aukafréttatími verður á Stöð 2 klukkan 12.25. Innlent 13.10.2005 14:54
Miklar sprengingar í gígnum Miklar sprengingar hafa verið í gígnum í Grímsvötnum í dag og stíga háir öskubólstrar upp frá gosstöðvunum. Það er talið að Grímsvötn hafi gosið um sjötíu sinnum frá því að land byggðist, oftar en nokkur önnur eldstöð. Innlent 13.10.2005 14:54
Veginum við Skeiðarársand lokað Lögreglustjórarnir í Vík í Mýrdal og á Höfn í Hornafirði hafa samkvæmt ráðleggingum jarðvísindamanna og almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra ákveðið að loka veginum um Skeiðarársand á miðnætti. Veginum verður lokað af öryggisástæðum. Lokanirnar verða við Núpsstað að vestan og við afleggjarann að Skaftafelli að austan. Innlent 13.10.2005 14:54
Ljóst að um gos er að ræða "Smám saman hefur orðið ljósara að um gos er að ræða í eða við Grímsvötn og það upp úr ísnum," segir í tilkynningu sem Ragnar Stefánsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni sendi frá sér rétt í þessu. Innlent 13.10.2005 14:54