Stangveiði
83 84 85 86 87 88 89 90 91 … 94 ›
Annað tölublað af Veiðislóð komið út Annað tölublað af Veiðislóð er komið út og kennir þar margra grasa eins og í fyrsta blaðinu. Fyrir fróðleiksþyrsta veiðimenn er þetta kærkomin viðbót því veiðimenn fá sjaldan nóg af því að lesa um veiðitengd málefni. Veiði 22.7.2011 16:50
Mikið af fiski í Soginu eftir stóra göngu í gær Okkar maður við bakkann í Soginu, nánar tiltekið á Bíldsfellinu, Örn Geirsson ásamt félögum, voru búnir að landa 12 löxum en þeir byrjuðu veiðar í gær. Laxinn er allur grálúsugur og vel haldin. Laxarnir voru teknir í Neðra Horni, Efri garði, Neðri Garður, Tóft, Kofastreng og séð laxa í Sakkarhólma en ekki náð neinu þar. Veiði 22.7.2011 12:56
Ágætis gangur í Langadalsá Langadalsá lítur vel út þessa daganna. Heildartalan er komin rétt yfir 50 laxa og nýr fiskur að skila sér í ánna undanfarna daga samkvæmt Sigga veiðiverði. Veiði 22.7.2011 12:49
Laxateljarinn í Elliðaánum kominn á netið Jóhannes Sturlaugsson og félagar hjá Laxfiskum hafa nú boðið upp á þá nýjung að hægt er að fylgjast með laxateljaranum í Elliðaánum í gegnum netið. Veiði 22.7.2011 12:46
Laxinn mættur í Lýsuna Laxinn er mættur á vatnasvæði Lýsu, og að sögn heimamanna er útlitið mun betra heldur en undanfarin ár fyrir vestan. Veiði 22.7.2011 12:44
Síðasta vika sú besta í sumar Það er svo sannarlega líf í tuskunum víða eftir stóra strauminn um síðustu helgi. Góðar göngur hafa verið víða og ekkert lát á líkt og féelagi okkar einn varð vitni að við Borgarfjarðarbrúna síðustu nótt. Veiði 22.7.2011 10:03
50 laxar á land í Ytri Rangá á morgunvaktinni í gær Ytri Rangá er heldur betur að taka við sér. Við sögðum frá því í gær að þriðjudagurinn hafi verið besti dagurinn í sumar hingað til með 48 laxa. Miðvikudagurinn var svipaður með 45 laxa og 30 af þeim á morgunvaktinni. En morgunvaktin í dag, fimmtudag, kom með enn eina sprengjuna, 50 laxar á land og tæpur helmingur í Ægisíðufossi seinnihluta vaktarinnar. Veiði 21.7.2011 16:00
Veðurblíða í Víðidalnum, komnir 150 laxar á land Heildarveiðin í Víðidal er kominn í 150 laxa ef kvöldvaktin í gær og morguninn í dag er tekinn með. Er þetta talsvert minna en í fyrra en eins og oft hefur verið sagt í sumar er veiðin um tveimur vikum seinna í sumar en undanfarin ár. Við heyrðum í þeim niðri veiðihúsi eftir vaktina í morgun og var sól og blíða á svæðinu eins og er búið að vera núna í viku og ef eitthvað er fer hitinn hækkandi. Veiði 21.7.2011 15:58
Elliðaárnar fullar af laxi Konurnar í hópnum "Kastað til bata" voru við veiðar í Elliðaánum í morgun og luku veiðum núna klukkan 13:00. Það er óhætt að segja að veiðin hafi gengið vel því þær tóku kvótann og einhverja laxa í viðbót sem var sleppt aftur í ánna. Veiði 21.7.2011 13:48
Norðlingafljót opnar með 11 löxum Norðlingafljót opnaði í vikunni og komu 11 laxar á land. Þessi á hefur nokkra sérstöðu þar sem laxinn gengur ekki í hana heldur er ekið frá Hafnará þar sem hann er veiddur í gildrur og ekið upp í fljótið. Veiði 21.7.2011 11:08
Veiðiflugur með kastnámskeið Veiðiflugur héldu í vor kastnámskeið með Klaus Frimor sem hittu í mark hjá viðskiptavinum okkar og nú ætlum við að auka þjónustuna ennþá meira. Hilmar Hansson eigandi veiðiflugna verður með kastkennslu alla fimmtudaga í sumar á túninu fyrir neðan Langholtsskóla fyrir okkar viðskiptavini. Veiði 21.7.2011 10:32
Nýjar tölur úr laxveiðiánum, veiðin greinilega á uppleið Nú hafa nýjar tölur verið settar inná www.angling.is og það er athyglisvert að sjá hver veiðin hefur verið í þessari viku sem leið. Norðurá er ennþá efst og er fyrst ánna til að fara yfir 1000 laxa en það styttist í að Blanda og Þverá rjúfi þann múr líka. Veiðin greinilega farin af stað í Þverá og Blanda er líka á góðri siglingu. Veiði 21.7.2011 10:16
Plankað við bakkann Allt "plank" æðið hefur ekki farið framhjá neinum sem er tengdur við rafmagn síðustu vikurnar og veiðimenn hafa greinilega ekki farið varhluta af því. Við fengum þessa mynd lánaða frá Jón Þór Júlíussyni hjá Hreggnasa þar sem hann plankar við óþekktan veiðistað. Veiði 20.7.2011 15:23
Rétt um 30 löxum landað í Svalbarðsá í morgun Gott skot hefur komið í Svalbarðsá í morgun og það má því ætla að áin sé að vakna. Það virðist sem straumurinn síðast liðinn laugardag hafi gert sitt því fréttir eru að berast víða að um auknar laxagöngur og það verður gaman að sjá munin á veiðinni milli vikna. Það verða birtar nýjar tölur á morgun og þá sést best hvaða ár eru að skila sínu hingað til. Veiði 20.7.2011 15:10
Stórlaxarnir láta á sér kræla fyrir norðan Í fyrradag 24 punda lax á Nesveiðum í Aðaldal. Talsvert er af laxi en hann er ákaflega tregur til töku og virðist köld norðanáttin hamla því að meira veiðist. Veiði 20.7.2011 14:45
Mokveiði í Mývatnssveit Þrátt fyrir norðanátt er mokveiði í Laxá í Laxárdal og í Mývatnssveit. Meðalþungi silungsins er einnig með besta móti. Veiði 20.7.2011 14:43
Flottur lax úr Svartá "Það var með eftirvæntingu sem ég fór í Svartá þar sem ég tók Maríulaxin minn á flugu fyrir hartnær 10 árum. Þessi á sem er svo falleg og krefjandi en alltaf skemmtileg og gefandi tók á móti okkur í glaða sólskyni og fallegu veðri en fáum fiskum hafði hugnast að ganga ennþá. Veiði 20.7.2011 11:15
Norðurá komin yfir 1000 laxa og góður gangur í Langá Langá á Mýrum er hrokkin í gang og hefur veiðst mjög vel þar síðustu daga. Í gærmorgun kom 31 lax á land þar og var það besti morgunn í ánni í sumar. Nítján laxar náðust á miðsvæðinu, tíu á neðsta svæðinu og tveir á fjallinu. Þar með var Langáin komin í 410 laxa það sem af er sumri. Staðarhaldarinn Ólafur Finnbogason segir fiskinn í góðu ástandi, miklar göngur og vatnið í ánni mjög gott. Veiði 19.7.2011 15:37
Ytri Rangá að detta í gang Það var fínn dagur í Ytri Rangá í gær en 30 löxum var landað. Helgin var í meðallagi en hún gaf 31 lax þar sem flestir komu á sunnudeginum, eða 23. Lax var að veiðast á nær öllum svæðum í gær en sterkustu staðirnir síðustu daga hafa verið Staurinn, Borg, Klöppin og Rángarflúðirnar. Veiði 19.7.2011 14:07
Góður dagur í Eystri Rangá Besti dagur sumarsins var í gær í Eystri Rangá enda í fyrsta sinn í sumar sem áin er veiðanlega allan daginn. Morgunvaktin gaf 18 laxa og kvöldvaktin 26, alls 44 laxar á land. Veiði 19.7.2011 14:05
Góð vika í veiðivötnum og veiðin að aukast Aðstæður í Veiðivötnum hafa lagast mikið síðustu vikuna, vötnin að hitna og flugan að minnka. Veiðin hefur tekið kipp upp á við samhliða því. Í 4. viku komu 2743 fiskar á land, sem er mjög gott miðað við sama tíma undanfarin ár. Veiði 19.7.2011 12:00
Kröfurnar miklar eftir góðærið Það eru stórlaxar að skjóta upp kollinum út um allt, nú síðast höfðum við spurnir af einum 101 cm í Hofsá, þar sem veiði hefur gengið alveg bærilega. Veiði 19.7.2011 10:14
Hvar er laxinn sem á að vera mættur í Leirvogsá Það er ótrúlegt þegar maður ber saman veiðina í nágrenni Reykjavíkur að sjá hvað vel gengur í Elliðaánum, sjá þó eitthvað af laxi í Korpu en að Leirvogsá sé ennþá ekki svipur hjá sjón miðað við "venjuleg" ár í ánni. Veiði 18.7.2011 13:50
Góð veiði á Arnarvatns- og Skagaheiði Við heyrðum í nokkrum félögum sem voru að koma úr helgarferð þar sem einn dagur var tekinn á Arnarvatnsheiði og annar á Skagaheiði. Þeir lögðu af stað eldsnemma frá Blönduós á laugardagsmorgninum og byrjuðu á Arnarvatnsheiðinni. Veiði 18.7.2011 10:27
Fréttir úr Krossá á Bitru Þau hjá Lax-á heyrðu í Jóhannesi Bárðarssyni og fjölskyldu sem var við veiðar í Krossá í Bitru fyrir helgi. Veðrið var gott og frekar lítið vatn í ánni en tveir laxar náðust á land, níu og tíu pund. Veiði 18.7.2011 10:25
Fnjóská að detta í þriggja stafa tölu Fnjóská hefur verið mjög vatnsmikil það sem af er veiðisumrinu. Talsverður lax hefur verið að ganga undanfarið og hefur að mestu safnast fyrir á svæði 1. Veiði 18.7.2011 09:19
Góð veiði í Breiðdalsá og Jökla að fara í gang Veiðin bara eykst í Breiðdalsá og í gær komu 25 laxar á land og mikið af laxi að ganga, megnið stórlax en þó eitthvað af vænum smálaxi með. Veiði 18.7.2011 09:15
11 punda, spikfeitur og silfurgljáandi urriði úr Mjósundi í Laxá í Mývatnssveit Það hefur verið kalt í veðri á urriðasvæðunum fyrir norðan nú að undanförnu. VoV talaði við Bjarna Höskuldsson umsjónarmann veiðanna þar og sagði hann hitann vera í eins stafs tölu. Veiði 18.7.2011 09:09
Hreindýraveiðar hófust í dag Veiðar á hreindýrum hófust í dag en eingöngu á tarfa. Veiðin á kúnum hefst 1. ágúst og í ár eins og í fyrra eru kálfarnir friðaðir. Frést hefur af einum felldum tarf á svæði 7 í Búlandsdal en erfitt hefur verið að finna dýrin sökum lélegra veiðiskilyrða. Veiði 15.7.2011 15:24
Góður kippur í veiðina í Ytri Rangá Ytri Rangá er í ágætis málum þessa daganna. 23 laxar komu á land í gær sem er með betri dögum sumarsins en 5 laxar komnir á land í morgun. Stefán sölustjóri hjá Laxá var við veiðar í gærkvöldi og sagði ánna líta vel út og sá nokkuð af laxi að ganga í gegnum í ánna. Veiði 15.7.2011 15:02