
Stangveiði

Brynjudalsá nálgast 100 laxa - stórlax í Víðidalsá
Alls voru 84 laxar komnir á land í Brynjudalsá í gær. Fyrstu laxarnir eru komnir á land í Miðdalsá og stórlax veiddist í Víðidalsá. Um 50 laxar veiðast nú dag hvern í Ytri-Rangá.

Fín veiði í Korpu og laxinn vel dreifður um ána
Alls eru 100 laxar komnir á land í Korpu. Veiðin hefur verið mjög góð það sem af er sumri og er fiskurinn vel dreifður um ána samkvæmt upplýsingum frá veiðivörðum.

Laxveiði hrynur í Þjórsá
Laxveiði í Þjórsá er einungis um 25 prósent af því sem hún var í fyrra. Sviðsstjóri hjá Veiðimálastofnun segir erfitt að benda á hvað valdi þessu. Hafa verði í huga að alls staðar virðist veiði vera í slöku meðallagi.

Skæður í urriða og jafnvel lax
Kötturinn hefur verið að gera það gott í Veiðivötnum undanfarið líkt og síðustu ár. Þessi fluga er góð í urriða og sjóbirting en hefur einnig gengið víða vel í lax.

Veiddu 9,5 tonn a sjóstöng - einn pínulítill marhnútur
Sjóstangaveiði nýtur töluverða vinsælda og reglulega eru haldin mót víða um land þar sem fólk keppist um að draga sem mestan og fjölbreyttastan afla að landi.

Metlax úr Selá í dag: Vopnafjarðarárnar fullar af laxi
Í morgun veiddi hinn landsþekkti veiðmaður Árni Baldursson 109 sentímetra hæng í Skipahyl sem er um 15 kílómetra frá sjó. Árni segir laxinn vera þann stærsta sem hann hefur séð hér á landi og sennilega er þetta stærsti lax sem veiðst hefur í Selá í sögu þessarar rómuðu perlu.

Helgarviðtal: Veiddi í átta ár án þess að sjá lax (seinni hluti)
Bjarni Brynjólfsson veiddi Spegilflúð í átta ár án þess að sjá þar lax þar til hann fékk loks leiðsögn eldri herramanns. Hann segir ævintýri við hvert fótmál á veiðslóð í náttúru Íslands.

Bræður börðust við maríulaxana á sama tíma!
Sá stutti fékk að renna fyrstur fyrir laxinn, með góðum stuðningi frá afa sínum og ekki liðu nema nokkrar sekúntur þangað til silfurbjartur nýgenginn lax var búinn að taka.

Til laxveiða á skipi upp Hvítá í Borgarfirði
Um miðja 19. öldina reyndi kaupmaðurinn Carl Siemsen að stunda laxveiðar á skipi í Hvíta í Borgarfirði. Þessi tilraun misheppnaðist hrapalega eins og lesa má í blaðinu Þjóðólfi árið 1855.

Helgarviðtal: Skjálfandi á beinunum á bökkum Svartár (fyrri hluti)
Veiðimaður dagsins hefur veitt sig í gegn um þaraþyrsklinga og marhnúta og fæst jöfnum höndum við flundru og laxfiska.

Stærsti laxinn í Langá - ólík veiði í Hítará og Langá
Veiði í Langá og Hítará gengur ágætlega miðað við þá þurrkatíð sem verið hefur. Í morgun veiddist 90 sentímetra hængur í Langá. Þetta kemur farm á vefsíðu Stangaveiðifélags Reykjavíkur - svfr.is.

Merktur í Lagarfljóti en veiddist í Breiðdalsá!
Bráðabirgðaniðurstöður benda til að þessi lax hafi verið merktur í laxastiganum í Lagarfljóti 21. september 2011. Þar með hefur hann farið aftur til sjávar og gengið svo í Breiðdalsá. Það má bæta því við að laxinn lítur út fyrir að vera úr gönguseiðasleppingu og hugsanlega úr sleppingu í Jöklu eða Breiðdalsá en verið að kíkja inn í Lagarfljótið er hann náðist og var merktur.

Mikið um stórlax í Hofsá
Veiði í Hofsá hefur verið með ágætum það sem af er. Í gærkvöldi höfðu 212 laxar komið á land og hefur hlutfall tveggja ára laxa verið hátt. Veiðivísir náði tali af staðarhaldanum.

Ekki sá stærsti í fjóra áratugi
110 sentímetra laxinn sem veiddist í Laxá í Aðaldal 11. júlí var ekki sá stærsti sem veiðst hefur síðustu fjóra áratugi. Nokkur dæmi eru um stærri laxa á undanförnum árum.

Um 43 prósenta minni laxveiði
Laxveiðin í síðustu viku var 43 prósentum lakari en á sama tímabili í fyrra. Núna var veiðin 1.952 laxar samanborið við 3.415 í fyrra. Þetta kemur fram í pistli Þorsteins Þorsteinssonar, frá Skálpastöðum í Lundareykjardal, á vef Landssambands veiðifélaga.

Nýjar laxveiðitölur - Ytri-Rangá yfir 600 laxa
Alls hafði 601 lax komið á land í Ytri Rangá og á vesturbakka Hólsár í gær. Fjórar ár í viðbót hafa rofið 500 laxa múrinn. Nánast hægt að líkja þurrkatíðinni við náttúruhamfarir.

Veiðivötn búin að rjúfa 10.000 fiska múrinn
"Ég og frændi minn vorum að lenda eftir frábæra veiðivatnaferð, við veiddum í 2 daga og lönduðum 30 fiskum en hirtum 24, stærsti var 9,7 pund og heildarþingd 47 kíló þannig að meðalviktin var um 2 kíló :) Fengum mest í Litlasjó og Grænavatni og allt á svartar straumflugur.“

Elliðaárnar: 3,5 laxar á stöng á dag
Alls höfðu 504 laxar veiðst í Elliðaánum í gærkvöldi og endurspegla þær aflatölur frábæra veiði í ánum allt frá opnun ánna þann 20. júní.

Borgarstarfsmenn mokveiddu í Elliðaánum
Sannkallað mok mun hafa verið í Elliðaánum á föstudaginn þegar starfsmenn Reykjavíkurborgar mættu þar á bakkana. Alls veiddust 27 laxar á stangirnar sex sem er aldeilis skínandi árangur.

Uppgert veiðihús við Miðdalsá tilbúið
Miðdalsá er tveggja stanga á með góðri sjóbleikjuveiði auk þess að laxveiðivon er í ánni en fimm þúsund laxaseiðum var sleppt vorið 2011 sem ættu að skila sér aftur núna í sumar.


Fjórir stórlaxar á land í Bíldsfelli
Veiðimaður fékk fjóra stórlaxa í Bíldsfellinu. Annar missti fótana og fór á flot en náði að koma sér í land enda í flotvesti.

Náði 101 sentímetra hæng á fimmuna
Þetta er annar laxinn úr Víðidalsá í sumar sem rífur 20 punda múrinn en það er óhætt að fullyrða að hængurinn hans Jóhanns vigtar ekki minna en 21 pund.


Fyrirtækjafluga sem lifði góðærið af
Fyrir fáeinum árum létu mörg helstu stórfyrirtæki landsins hnýta fyrir sig laxaflugur í litum fyrirtækisins. Flestar þeirra reyndust dægurflugur og lifðu ekki af "góðærið". Fáeinar sönnuðu sig þó, lifa enn og gefa góða veiði.

Frábær meðalveiði í Ellliðaánum í sumar
Óhætt er að segja að veiðin í Elliðaánum standi undir ítrustu væntingum í sumar. Á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur sagði frá því á miðvikudag að árnar bæru höfuð og herðar yfir aðrar laxveiðiár hvað snertir veiði á hvern stangardag.

Hiti og vatnsleysi háir Borgarfjarðaránum
Miklir þurrkar, hiti og sól er farin að setja mark sitt á laxveiðina í Borgarfirði ef marka má frétt á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Staðan er betri í Dölunum.

Helgarviðtal: Neyddur í skemmtilega laxveiðiá
Inga Rafni Sigurðssyni tókst að brjóta flugustöngina sína í viðureign við 15 gramma urriða. Hann bindur vonir við að verða kosinn veiðimaður ársins í Svarthöfðafélaginu.

Ágætis gangur í Straumunum
Straumarnir, ármót Norðurár og Hvítár í Borgarfirði, hafa gefið yfir 140 laxa í sumar að því er segir á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem kveður mikinn lax á svæðinu.

Stóra Laxá komin í gang
Alls höfðu veiðst 43 laxar á svæðum I og II í Stóru-Laxá að því er segir á söluvefnum agn.is. Það teljist mjög gott á fyrstu níu dögum veiðitímans.