Bárðarbunga

Sigkatlarnir ekki stærri
Vísindamenn um borð í TF-SIF, flugvéla Landhelgisgæslunnar sem nú er á flugi yfir Vatnajökli, telja að sigkatlarnir sem sáust í gær hafi ekki stækkað í nótt.

Tuttuguföld gliðnun lands við Vatnajökul
Færsla á yfirborði við Vatnajökul mælist 40 sentímetrar, en gliðnunin er ennþá meiri við bergganginn. Færslur á yfirborði mælast í 60 kílómetra fjarlægð frá ganginum. 4,5 stiga jarðskjálfti mældist við Öskju, sá harðasti í tvo áratugi.

Sérfræðingarnir farnir í loftið
Magnús Tumi Guðmundsson jarðeðlisfræðingur hélt í morgun ásamt sérfræðingum Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands í eftirlitsflug í flugi TF-SIF á Vatnajökul.

Skjálfti af stærð fimm við Bárðarbungu
Jarðskjálfti af stærðinni 5 stig reið yfir 6,9 kílómetra austnorðaustur af Bárðarbungu korter yfir átta í morgun. Skjálftinn varð á þriggja kílómetra dýpi.

Færri skjálftar og enginn gosórói
Sterkar líkur eru á að flóð eða jökulhlaup sé yfirvofandi í Jökulsá á Fjöllum eða í Grímsvötnum og þá niður á Skeiðarársand, eftir að vísindamenn sáu óvænt þrjár stórar sigdældir suðaustanvert í Bárðarbungu á flugi yfir svæðið undir kvöld í gær.

„Bendir ekkert til þess að stórt gos sé í gangi“
Jarðeðlisfræðingurinn Magnús Tumi Guðmundsson segir skort á skjálftaóróa benda til þess að ekki sé stórt gos í gangi á þeim stað þar sem vísindamenn urðu varir við sigkatla suðsuðaustur af Dyngjujökli í dag.

Ekki hægt að útiloka að gos sé hafið
"Vísindamenn, í flugi í kvöld, sáu að þeir telja nýjar sprungur eða sigkatlar sem hafa myndast í jöklinum,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarnardeildar, í samtali við Vísi í kvöld.

„Erfitt að útskýra með öðru en að þarna sé töluverður hiti undir“
Víðir Reynisson, deildarstjóri á almannavarnadeild lögreglu, segir sigdældirnar 4-6 kílómetra á lengd og verði farið í flug strax í birtingu í fyrramálið til að meta aðstæður að nýju.

Nýir sigkatlar gætu bent til goss
Fjögurra til sex kílómetra langar sprungur hafa myndast sunnan við af Bárðarbungu. Þetta staðfestir starfsmaður Veðurstofu Íslands.

Rúmlega 700 skjálftar frá miðnætti
Virknin er nú að mestu utan jökuls og hefur þokast um einn kílómetra til norðurs frá því í gær

Varnargarðar við Jökulsá á Fjöllum
Búið er að setja upp varnargarða við brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum við Grímsstaði og í Öxarfirði.

Tveir skjálftar yfir fimm stigum og einn stór nærri Öskju
Meiri skjálftavirkni var á Bárðarbungusvæðinu í nótt en í fyrrinótt og mældust um 500 skjálftar frá miðnætti til klukkan sex í morgun. Þar af mældust tveir yfir fimm stig og fjölmargir skjálftar upp á tvö til þrjú stig mældust einnig.

Lengist um fjóra kílómetra á dag
Síðustu tíu daga hefur berggangurinn undir Vatnajökli lengst um fjóra kílómetra á dag, að meðaltali. Sérfræðingur segir atburðinn einn þann markverðasta sem Íslendingar hafa orðið vitni að, en stærð berggangsins sé vanmetin og stefna hans beint á Öskju allrar athygli verð.

Stór skjálfti mælist við Dyngjujökul
Skjálftinn mældist 4,6 stig að stærð og fannst alla leið á Akureyri.

Hefði valdið verulegu tjóni á innviðum þjóðfélagsins
Jarðskjálftafræðingur segir að skjálfti upp á 5,7 stig, eins og sá sem mældist í Bárðarbungu í nótt, hefði getað valdið töluverðum usla hefði hann átt upptök undir höfuðborgarsvæðinu.

Virknin þokast áfram til norðurs
Skjálftavirkni er enn mjög mikil við Bárðarbungu og hafa rúmlega 500 skjálftar mælst frá miðnætti.

Er Bárðarbungu ekki um að kenna?
Vísindamenn hallast frekar að því að jarðhræringarnar undir Vatnajökli leiði til eldgoss. Komnar eru fram kenningar um að upptöku óróans sé frekar að leita í eldstöðvakerfi Öskju en Bárðabungu. Kröflueldar virðast vera nærtækasta dæmið um framhaldið.

The largest earthquake yet in Bardarbunga
An earthquake of magnitude 5.7 hit Iceland's Bardarbunga volcano overnight.

Stærsti skjálftinn til þessa reið yfir í nótt
Snarpasti jarðskjálftinn, sem mælst hefur í skjálftahrynunni sem hófst í Bárðarbungu fyrir rúmri viku, varð í nótt um klukkan hálf tvö og mældist 5,7 stig.

Stór skjálfti við Bárðarbungu
Skjálftinn varð á tveggja kílómetra dýpi um 4,1 kílómetra suðaustan af Bárðarbungu.

Dettifossvegur austan gljúfurs opnaður á ný
Aðgerðastjórnun Almannavarna á Húsavík hefur ákveðið að opna Dettifossveg (864) austan Jökulsárgljúfurs.

700 skjálftar frá miðnætti
Skjálftavirknin við Bárðarbungu hefur þokast áfram til norðurs og er að mestu á 10 kílómetra löngu bili, með miðju undir jökuljaðrinum.

Vélar sneru af leið vegna hættusvæðis
Nokkrar flugvélar gerðu breytingar á flugleið sinni eftir að svæði suðaustur af Íslandi var skilgreint hættusvæði á laugardag.

Mikið magn kviku hefur safnast saman á stuttum tíma
Skjálftavirkni er mikil undir Dyngjujökli og hefur færst í aukana yfir helgina. Norðurendi berggangsins sem hefur myndast undir jöklinum nær nú norður fyrir jökulinn. Versta hugsanlega sviðsmyndin að allur berggangurinn opnist sem sprunga, segir eldfjalla

Segir Kröflumynstrið komið í Bárðarbungu
Haraldur Sigurðsson, eldfjallafræðingur í Stykkishólmi, segir Kröflumynstrið komið í Bárðarbungu.

Um 450 skjálftar í nótt
Skjálftavirknin í nótt og í morgun hefur verið mest á um 5 km kafla norður af jökuljaðri Dyngjujökuls og nyrst í Dyngjujökli. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni hefur virknin þar færst örlítið til norðurs. Það dró úr virkninni um miðnætti en hún jókst svo aftur um klukkan tvö og fram undir klukkan fimm.

Ferðamenn eru forvitnir
Flestir ferðamenn sem fara um Sprengisand eru rólegir yfir fréttum af eldgosahættu og fylgja ráðleggingum landvarðar. Aðrir vilja komast sem næst gossvæðinu.

Jökulsárgljúfur áfram lokuð
Að minnsta kosti 400 ferðamenn þurftu að yfirgefa Jökulsárgljúfur þegar fréttir bárust af því á laugardaginn að gos væri hafið. Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður segir að fólk hafi yfirleitt brugðist mjög vel við.

Rétt ákvörðun að vara við eldgosi
Vísindamenn Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnunar vita ekki hvað olli óróanum sem var túlkaður sem lítið hraungos undir Dyngjujökli. Ákvörðun um að tilkynna eldgos er sögð sú eina rétta. Nú flæðir 270 milljónir rúmmetra af kviku um berggöngin undir Dyngjujökli.

1300 skjálftar á nítján tímum
Meginhluti þeirra varð nyrst í bergganginum í Dyngjujökli.