Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Elon Musk, eigandi SpaceX sem rekur Starlink, þvertekur fyrir að hafa sett takmarkanir á notkun úkraínskra hermanna á Starlink-móttökustöðunum. Hann vísar á bandarísk stjórnvöld. Erlent 14.10.2026 20:01
Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Úkraínskir hermenn stóðu óvænt fyrir því í gærkvöldi að takmarkanir virðast hafa verið settar á notkun þeirra á Starlink-móttökustöðum. Takmarkanirnar hafa bæði komið niður á árásum Úkraínumanna á birgðalínur rússneskra hermanna og á vörnum þeirra gegn sjálfsprengidrónum Rússa. Erlent 14.10.2026 10:12
Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Rússar gerðu umfangsmiklar dróna- og eldflaugaárásir á Kænugarð í nótt og eru um 600.000 manns án rafmagns í borginni. Þá gerðu Rússar einnig árásir á lestarinnviði í því sem yfirmaður lestarfyrirtækis úkraínska ríkisins kallaði „stórfellda bylgju árása“. Erlent 14.10.2026 07:45
Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Fimmtán hið minnsta létust, þar af þrjú börn, þegar Rússar vörpuðu fimm svifsprengjum á úkraínsku borgina Saporíssjía í morgun. Sextán til viðbótar særðust og fleirra er saknað. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa. Erlent 10. október 2026 14:12
Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Samkomulag Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning Rússa á hundruðum þúsunda tonna af díselolíu er áfall fyrir Evrópu og vatn á myllu stríðsreksturs Rússa í Úkraínu að mati alþjóðastjórnmálafræðings. Erlent 10. október 2026 12:21
Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Volódímír Selenskí Úkraínuforseti gagnrýnir harðlega samkomulag Donalds Trump Bandaríkjaforseta um kaup á rússneskri díselolíu. Hann segir samninginn gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði. Erlent 10. október 2026 08:24
Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Að minnsta kosti 33 eru látnir eftir að rússnesk svifsprengja lenti við hlið nokkurra rútna sem voru fullar af fólki í austanverðri Úkraínu í morgun. Að minnsta kosti 22 og þar af fimm börn dóu þegar eldflaug hæfði fjölbýlishús í annarri borg í Úkraínu í gær. Erlent 8. október 2026 23:52
Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Að minnsta kosti nítján manns féllu, þar á meðal fjögur börn, í stórfelldum flugskeyta- og drónaárásum Rússa á Kænugarð og fleiri úkraínskar borgir í nótt. Úkraínsk stjórnvöld höfðu njósnir af meiriháttar árásum á afmælisdegi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 7. október 2026 11:31
Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Rússar gerðu árás á mikilvæga brú í norðurhluta Kænugarðs í Úkraínu á sama tíma og kanslari Þýskalands mætti í heimsókn til borgarinnar. Erlent 4. október 2026 14:37
„Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Kona sem fæddist í Oleshky í Úkraínu en hefur búið á Íslandi í tuttugu ár segir fjölskyldu sína borða gras og snigla úr garðinum til þess að lifa af. Veturinn framundan muni vera hörmulegur fyrir íbúa Oleshky sem er undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu. Íbúar hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði og skortir mat og aðrar nauðsynjar. Innlent 4. október 2026 13:03
Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Rússar gerðu umfangsmikla drónaárás á brú í norðurhluta Kænugarðs í nótt. Borgarstjóri höfuðborgarinnar í Úkraínu segir árásina merki um aukningu árása á mikilvæga innviði Kænugarðs. Erlent 3. október 2026 09:50
Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Vladimír Pútín syrgði Sovétríkin sálugu á öryggisráðstefnu sinni í Moskvu í gær. Forsetinn sagði meðal annars að fall þeirra hefði verið harmleikur mikill og haft hræðilegar afleiðingar fyrir milljónir manna. Í sömu ræðu sagði Pútín mikil ósannindi um innrás Rússa í Úkraínu og hélt því fram að hann hefði engan áhuga á því að ráðast á annað ríki í Evrópu, í sama mund og hann hótaði beitingu kjarnorkuvopna gegn Evrópu. Erlent 2. október 2026 11:15
Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Rússland vinnur kerfisbundið að því að grafa undan getu Úkraínu til að fæða heiminn. Með því að ráðast á hafnir, siglingaleiðir og landbúnaðarinnviði er ekki aðeins verið að herja á Úkraínu. Þetta skapar líka aukið álag á hnattrænt fæðuöryggi, með alvarlegum afleiðingum fyrir milljónir manna langt fyrir utan Evrópu. Skoðun 1. október 2026 17:01
Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi Íbúar Oleshky, sem er bær undir stjórn Rússa í Kherson-héraði í Úkraínu, hafa setið fastir í bænum í rúma fjóra mánuði. Þá skortir mat og aðrar nauðsynjar og hafa borist fregnir af því að fólk sé að borða gras og jurtir til að reyna að halda lífi. Þar að auki eru ítrekað gerðar drónaárásir gegn þeim og hefur aðstæðum í bænum verið lýst sem „helvíti á jörðu“. Erlent 29. september 2026 10:58
Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Úkraínskir hermenn hafa rekið Rússa á brott frá meira landsvæði í norðanverðu Dónetsk-héraði, þar sem Úkraínumenn hafa staðið í gagnsókn gegn Rússum um nokkurt skeið. Sókninni er ætlað að gera Rússum erfiðara að leggja undir sig „virkjabeltið“ svokallaða í Dónetsk og þar með restina af Donbas-svæðinu. Erlent 28. september 2026 16:38
Vilja formlega afsökun frá Selenskí Ráðamenn í Suður-Kóreu hafa farið fram á að kollegar þeirra í Úkraínu biðji þá formlega afsökunar. Er það eftir að Vólódímír Selenskí sagði frá því að norðurkóreskir hermenn sem voru handsamaðir í Kúrsk í Rússlandi hefðu viljað fara til Suður-Kóreu og voru sendir þangað. Lee Jae Myung, forseti Suður-Kóreu, segir að með því að segja frá þessu hafi Selenskí brotið gegn samkomulagi milli ríkjanna. Erlent 28. september 2026 10:00
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Erlent 25. september 2026 10:29
Veturinn verði Rússum erfiður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf. Erlent 24. september 2026 07:57
Bað Trump um „vetrarpakka“ Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. Erlent 23. september 2026 07:47
Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað. Erlent 21. september 2026 14:00
Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fundaði með utanríkisráðherra Úkraínu í dag en sá síðarnefndi segist hafa lýst þakklæti á fundi sem hann átti með utanríkismálanefnd Alþingis. Þar hafi verið lögð áhersla á að styrkja samstarf ríkjanna. Einnig hafi verið rætt um þá alvarlegu stöðu sem skapast hefur á Svartahafi þar sem Rússar koma í veg fyrir kornútflutning Úkraínu með árásum á hafnir og flutningaskip. Erlent 19. september 2026 19:32
Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Donald Trump er sagður íhuga að bjóða Rússum viðskiptasamninga í þeirri von að Vladimír Pútín bindi enda á Úkraínustríðið. Forsetinn bandaríski hefur áður staðhæft að hann myndi ekki eiga í viðskiptum við Rússa fyrr en stríðinu ljúki. Erlent 18. september 2026 21:26
Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Donalds Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir gögn frá pólsku leyniþjónustunnar sýna að Rússar hafi áætlað fjölþáttaárásir gegn löndum sem styðja við Úkraínu, þar á meðal Póllandi. Rússland hyggist láta fyrirhugaða árás líta út fyrir að vera óhapp. Erlent 17. september 2026 16:40
Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöldi frumvarp sem snýst um umfangsmiklar refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu. Frumvarpið var lagt fram af hinum látna öldungadeildarþingmanni Lindsey Graham fyrir nærri því einu og hálfu ári síðan. Erlent 17. september 2026 07:52