Stígur Helgason Allsherjarsamsærið Þetta er harður heimur, maður. Útigangsmenn hrökkva upp af á Klambratúni, fólk missir ofan af sér húsnæðið í fang lánardrottna, Landspítalinn kaupir varahluti í segulómtækin sín af bröskurum á Ebay og í gær bárust fréttir af einhverju óbermi á Selfossi sem veiðir heimilisketti í minkagildru. Bakþankar 24.10.2013 20:35 Kettir og krúttheit Það vantar ekki krúttlegu kisufréttirnar þessa dagana. Fyrst stingur stríðinn, danskur ævintýra- og hefðarköttur af úr einkaþotu og er leitað af heilli flugbjörgunarsveit næstu daga, kemst heilu og höldnu aftur til móðursjúks eiganda síns og allir lifa hamingjusamir til æviloka. Bakþankar 10.10.2013 19:02 Í hysteríulandi Ég er ekki sérfræðingur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ég veit hins vegar að það er alveg einstakt afrek að takast að koma málum þannig fyrir að hálf þjóðin hefur horn í síðu samtaka sem berjast gegn því. Bakþankar 4.10.2013 18:28 Orðaskak Hvað gerir orð falleg? Er það hvernig þau hljóma? Hvað þau merkja? Hvernig þau líta út á prenti? Blanda af þessu öllu? Og þegar velja skal fallegasta orðið í íslensku, þarf það þá að vera rosalega íslenskt? Hversu íslenskt? Hversu langa sögu þarf það að eiga sér í íslensku máli? Mundu málræktarsinnar gleðjast yfir því að íslenska orðið fokk næði ofarlega á blað í slíkri keppni? Hvort er betra að orðið sé samsett eða ekki? Hversu mörg atkvæði ætti það að vera? Eitt? Tíu? Bakþankar 27.9.2013 13:53 Karlar í veldi sínu Á Íslandi eru fáir staðir jafndásamlega þýskir og núdistapallurinn á Sundhöll Reykjavíkur. Hvergi annars staðar getur maður legið á bekk, notið sjaldgæfrar veðurblíðunnar og fylgst um leið með allsberum gömlum manni skokka löturhægt í hringi með sundskýluna sína í hendinni. Bakþankar 12.9.2013 21:10 Þriðja árstíðin Stundum er sagt í hálfkæringi að á Íslandi séu bara tvær árstíðir; vor og haust. Það er ekki rétt. Þær eru þrjár: Sumar, haust og jól. Bakþankar 15.8.2013 22:16 Flugnafælan Ótti er órökrétt tilfinning. Fólk óttast ólíka hluti, sumir óttast margt, aðrir fátt. Ég óttast til dæmis eftirtalið: hæð (en þó ekki of mikla – mér líður illa á svölum fimm hæða fjölbýlishúss en ágætlega á þverhníptri, 200 metra hárri klettabrún), hafið (það er einhvern veginn endalaust á alla kanta, dimmt og djúpt og hýsir allskyns hættu – en samt hef ég snorklað innan um risaskötur þar sem ekki sér til botns og líkað vel), sársauka (sem er síðan aldrei svo slæmur þegar á reynir) og síðast en ekki síst, það órökréttasta af öllu: skordýr. Bakþankar 1.8.2013 22:59 Ég, fréttabarnið Í nóvember var ég fenginn sem gestur í Kastljós ásamt kollega mínum til að tjá mig um dómsmál sem var þá áberandi í fréttum. Þessi heimsókn varð gamalli blaðakonu tilefni til vangaveltna á Facebook um það hvort "aldursmörk“ íslenskra fjölmiðlamanna væru almennt lægri en gerist erlendis. Við vorum þá 28 og 33 ára. Bakþankar 18.7.2013 17:33 Stígkrampi Þegar ég var smástrákur hlupu stundum í mig óknyttir, eins og gekk, og ég hringdi símaöt. Sjaldnast voru þau frumleg – það var til dæmis vinsælt að hafa samband við verslanir og spyrja starfsmenn einkennilegra spurninga um vöruúrval og láta þá hlaupa til og frá í allskyns erindisleysu. Ha ha. Yfirleitt voru fleiri áheyrendur að símtalinu – viðhlæjendur væru þeir kallaðir ef þeir hefðu ekki alltaf beitt sig hörðu til að halda rokunum niðri. Bakþankar 4.7.2013 21:43 Klæðum okkur úr Bakþankar 20.6.2013 22:58
Allsherjarsamsærið Þetta er harður heimur, maður. Útigangsmenn hrökkva upp af á Klambratúni, fólk missir ofan af sér húsnæðið í fang lánardrottna, Landspítalinn kaupir varahluti í segulómtækin sín af bröskurum á Ebay og í gær bárust fréttir af einhverju óbermi á Selfossi sem veiðir heimilisketti í minkagildru. Bakþankar 24.10.2013 20:35
Kettir og krúttheit Það vantar ekki krúttlegu kisufréttirnar þessa dagana. Fyrst stingur stríðinn, danskur ævintýra- og hefðarköttur af úr einkaþotu og er leitað af heilli flugbjörgunarsveit næstu daga, kemst heilu og höldnu aftur til móðursjúks eiganda síns og allir lifa hamingjusamir til æviloka. Bakþankar 10.10.2013 19:02
Í hysteríulandi Ég er ekki sérfræðingur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Ég veit hins vegar að það er alveg einstakt afrek að takast að koma málum þannig fyrir að hálf þjóðin hefur horn í síðu samtaka sem berjast gegn því. Bakþankar 4.10.2013 18:28
Orðaskak Hvað gerir orð falleg? Er það hvernig þau hljóma? Hvað þau merkja? Hvernig þau líta út á prenti? Blanda af þessu öllu? Og þegar velja skal fallegasta orðið í íslensku, þarf það þá að vera rosalega íslenskt? Hversu íslenskt? Hversu langa sögu þarf það að eiga sér í íslensku máli? Mundu málræktarsinnar gleðjast yfir því að íslenska orðið fokk næði ofarlega á blað í slíkri keppni? Hvort er betra að orðið sé samsett eða ekki? Hversu mörg atkvæði ætti það að vera? Eitt? Tíu? Bakþankar 27.9.2013 13:53
Karlar í veldi sínu Á Íslandi eru fáir staðir jafndásamlega þýskir og núdistapallurinn á Sundhöll Reykjavíkur. Hvergi annars staðar getur maður legið á bekk, notið sjaldgæfrar veðurblíðunnar og fylgst um leið með allsberum gömlum manni skokka löturhægt í hringi með sundskýluna sína í hendinni. Bakþankar 12.9.2013 21:10
Þriðja árstíðin Stundum er sagt í hálfkæringi að á Íslandi séu bara tvær árstíðir; vor og haust. Það er ekki rétt. Þær eru þrjár: Sumar, haust og jól. Bakþankar 15.8.2013 22:16
Flugnafælan Ótti er órökrétt tilfinning. Fólk óttast ólíka hluti, sumir óttast margt, aðrir fátt. Ég óttast til dæmis eftirtalið: hæð (en þó ekki of mikla – mér líður illa á svölum fimm hæða fjölbýlishúss en ágætlega á þverhníptri, 200 metra hárri klettabrún), hafið (það er einhvern veginn endalaust á alla kanta, dimmt og djúpt og hýsir allskyns hættu – en samt hef ég snorklað innan um risaskötur þar sem ekki sér til botns og líkað vel), sársauka (sem er síðan aldrei svo slæmur þegar á reynir) og síðast en ekki síst, það órökréttasta af öllu: skordýr. Bakþankar 1.8.2013 22:59
Ég, fréttabarnið Í nóvember var ég fenginn sem gestur í Kastljós ásamt kollega mínum til að tjá mig um dómsmál sem var þá áberandi í fréttum. Þessi heimsókn varð gamalli blaðakonu tilefni til vangaveltna á Facebook um það hvort "aldursmörk“ íslenskra fjölmiðlamanna væru almennt lægri en gerist erlendis. Við vorum þá 28 og 33 ára. Bakþankar 18.7.2013 17:33
Stígkrampi Þegar ég var smástrákur hlupu stundum í mig óknyttir, eins og gekk, og ég hringdi símaöt. Sjaldnast voru þau frumleg – það var til dæmis vinsælt að hafa samband við verslanir og spyrja starfsmenn einkennilegra spurninga um vöruúrval og láta þá hlaupa til og frá í allskyns erindisleysu. Ha ha. Yfirleitt voru fleiri áheyrendur að símtalinu – viðhlæjendur væru þeir kallaðir ef þeir hefðu ekki alltaf beitt sig hörðu til að halda rokunum niðri. Bakþankar 4.7.2013 21:43
Tittlingadýrkun Strákar dýrka á sér tittlinginn. Það er alkunna. Og ekki bara strákar, heldur karlar á öllum aldri. Þeir vilja veg hans sem mestan og eru reiðubúnir í alls kyns heimskulegar typpakeppnir til að vinna honum brautargengi. Bakþankar 6.6.2013 20:59
Flugvélaði maðurinn Það er bara tvennt sem ég get sagt við fólk sem gerir það undantekningalítið alveg agndofa. Annað er að mér finnist gaman í flugvélum. Það virðist ekki vera algeng skoðun, sem er óskiljanlegt. Bakþankar 23.5.2013 17:15
Kveðja af botninum Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum; líkamlegum kröfum, vinnuumhverfi, álagi, launum og starfsöryggi. Bakþankar 9.5.2013 20:53
Samið við hræfugl Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín einu kynni af hrafninum, þar sem hann birtist mér sem skynugasta og sanngjarnasta skepna sem ég hef fyrir hitt. Bakþankar 25.4.2013 21:23
Menn ofar málefnum Kosningar eru í aðsigi og það er sem við manninn mælt að hver klisjusvolinn á fætur öðrum er byrjaður að kappjórtra gömlu tugguna um að við eigum "að fara í boltann en ekki í manninn“ – annað sé svo ómálefnalegt. Hvílíkt bull. Bakþankar 9.4.2013 22:44
Bíó Það var ekki beint þannig að hún hefði snert við mínum innstu hjartastrengjum, myndin sem ég sá í bíó um liðna helgi. Mér fannst hún meira að segja frekar óeftirminnileg og klisjukennd vella – einslags dulbúið AA-sjálfshjálparmyndband – þótt Denzel Washington stæði sig að vanda með prýði í hlutverki Denzels Washington. Bakþankar 14.3.2013 22:29
Góði guð Trúlega fundu flest mannsbörn fyrir óvenjulegri tómleikatilfinningu við morgunverðarborðið áðan, að þeim hefur sett hroll í bílnum á leiðinni í vinnu og skóla og jafnvel hafa sumir upplifað sig hálfráðalausa frammi fyrir verkefnum dagsins. Ég segi ekki að örvænting hafi gripið um sig í öllum hjörtum – en ábyggilega sumum. Bakþankar 28.2.2013 22:16
Fúlsað við töframönnum Við leit mína að morðingja Láru hef ég notast við reglur stofnunarinnar, ályktunarhæfni, tíbeska aðferðafræði, eðlisávísun mína, og heppni. En núna þarf ég eitthvað nýtt, sem við skulum – þar til betra orð finnst – kalla…töfra.“ Bakþankar 14.2.2013 22:05
Eddinn Erfiðleikarnir við að halda veglega verðlaunahátíð fyrir íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirann á hverju ári afhjúpuðust á vandræðalegasta mögulega máta í vikunni. Bakþankar 31.1.2013 21:58
Skrímsli og menn Skrímsli. Þetta er stórt orð. Það er raunar svo stórt að það getur inniborið nokkurn veginn allt sem ímyndunaraflið leyfir. Við þekkjum ýmis skrímsli, íslensk og erlend; Lagarfljótsorminn, varúlfa, skoffín, Godzilla, dreka, sköpunarverk Frankensteins og Þorgeirsbola – en getum líka búið til okkar eigin að vild og fellt undir mengið. Bakþankar 17.1.2013 23:20
Áramótaávarpið "Komdu með mér í gamlárspartí, gamlárspartí, gamlárspartí.“ Þannig orti Bragi Valdimar Skúlason fyrir frekar stuttu. Magnþrunginn texta, sem sunginn er í útvarpi landsmanna um hver áramót og er kannski aldrei eins viðeigandi og einmitt á þeim árstíma. Bakþankar 3.1.2013 21:11
Faðmaðu hvolp Ef þú ert að lesa þessi orð þýðir það að heimurinn fórst ekki í nótt. Það er ágætt – margir eru langt komnir með jólaundirbúninginn og það er ekki heldur búið að afgreiða rammaáætlun á Alþingi. Það væri synd ef ragnarök spilltu því góða máli. Kannski trúðu ekki margir þessum heimsendaspám en við hljótum samt að geta notað tækifærið til að gleðjast yfir því að framhald verði á jarðvist okkar um sinn og jafnvel endurmetið okkur aðeins í leiðinni. Bakþankar 20.12.2012 17:28
Árvakur átakasinni Sú var tíðin að ég skeytti lítið um samfélagslegar skyldur mínar. Ég hafði einfaldlega um brýnni hluti að hugsa en afríska alnæmissjúklinga og stríðsfanga, til dæmis bólurnar á nefinu á mér og nýjustu myndirnar með Nicolas Cage. Með árunum hef ég vitkast og meðvitund mín aukist að því marki að nú er ekki til það árveknisátak sem ég læt fram hjá mér fara. Bakþankar 6.12.2012 21:53
Grímulaust réttlæti Ég hef ekki tölu á þeim myndum sem ég hef séð af bandarískum frægðarmennum í annarlegu ástandi, teknum á lögreglustöð eftir að þau hafa skandalíserað svo yfir sig að yfirvöld þurfa að grípa í taumana. Elvis, James Brown, Paris Hilton, Hugh Grant, Lindsay Lohan, Nick Nolte, Johnny Cash, OJ Simpson, Vanilla Ice, Larry King, Al Pacino, Jane Fonda, Jay-Z, Janis Joplin, Frank Sinatra…það væri hægt að fylla þennan pistil af nöfnum. Fólkið er misljótt, misútgrátið, með misvírað hár og misblóðhlaupin augu. Enda kallast þessi fyrirbæri "mugshots“ upp á ensku – trýnismyndir. Það er gert ráð fyrir að þær séu ljótar. Bakþankar 22.11.2012 23:01
Kaupin á Eirinni Alveg er það makalaust hvað er hægt að þyrla upp miklu moldviðri í kringum eitt hjúkrunarheimili. Eir skuldar einhverjar krónur og samfélagið fer á hliðina. Það var svo sem ekki við öðru að búast en að fjölmiðlar, pólitíkusar og almenningur myndi nýta þetta leiðindamál til að fara í enn eina nornaveiðiferðina. Fátt lætur okkur Íslendingum betur en að kenna einhverjum um þegar hlutir fara aðeins úrskeiðis. Alltaf skal draga menn til ábyrgðar. Eins og það leysi eitthvað. Bakþankar 8.11.2012 22:29
Dýrðin í Hálsaskógi Marteinn skógarmús er erkisósíaldemókrat á skandinavíska vísu, þurr reglugerðarpési sem vill njörva umhverfi sitt niður í lagabálka. Eins konar forræðishyggjumús. Lilli klifurmús hins vegar, hann er listelski skýjaglópurinn og letiblóðið, tórir dag frá degi á litlu öðru en kænskunni, alls kyns dútli og íhlaupavinnu og þiggur fyrir ávexti annarra strits. Hann er afæta á samfélagi dýra. Bakþankar 19.8.2013 12:43
230 lítrar af ógn Ég get ekki beðið eftir að ganga í Evrópusambandið. Mér er alveg sama um myntsamstarf og álitaefni sem varða sjávarútveg og landbúnað – ég er bara svo spenntur að fylgjast með fólki rogast með sprengfull koffort af rauðvíni um flugvelli í útlöndum og heyra svo vodkaflöskurnar rúlla hverja á eftir annarri úr bakpokunum í handfarangursrýminu á leið yfir hafið. Bakþankar 27.9.2012 22:40
Ekkert "en“ Viðbrögðin við þátttöku Jóns Gnarr í baráttugöngu hinsegin fólks um helgina voru fyrirsjáanleg. Þótt margir – og kannski flestir – hafi fagnað henni þá voru líka hinir sem máttu ekki til þess vita að Jón eyddi dýrmætum tíma sínum í að berjast fyrir mannréttindum þegar hann ætti með réttu að vera að sinna mikilsverðum hagsmunamálum borgarbúa. Eins og hann hefði annars varið laugardagseftirmiðdeginum í að tryggja börnum ódýrar skólamáltíðir. Þetta sjónarmið flaut upp á yfirborðið í athugasemdakerfum vefmiðlanna, eins og í fyrra og hittiðfyrra og eins og þau munu líklega gera enn einu sinni að ári. Bakþankar 14.8.2012 22:22
Gleðitregðan Alla tíð – að minnsta kosti frá því að ég komst til vits og ára – hef ég lagt mig fram um að finnast verslunarmannahelgin leiðinleg. Svo umhugað hefur mér verið um að láta hefðir og venjur samfélagsins ekki skilyrða mig til skemmtunar að ég hef álitið þessa mestu ferðahelgi ársins þeim mun betur heppnaða því viðburðasnauðara sem líf mitt var á meðan. Spurningunni "Hvað gerðirðu um versló?“ hef ég til þessa viljað geta svarað hneykslaður og með þjósti: "Ekki neitt.“ Eins og spurningin hafi verið fáránleg og ég sé fyllilega tilfreðs með að hafa hvorki farið út úr húsi né yrt á nokkurn mann svo dögum skipti. Bakþankar 1.8.2012 10:17
Að endimörkum hipstersins Ég las í DV um daginn að íslenski hipsterinn væri í andarslitrunum. Einmitt það, hugsaði ég og glotti, vitandi betur eftir heimsókn mína til Berlínar, bækistöðvar alls þess sem er hipp og kúl. Þar fann ég nefnilega sjálf endimörk hipstersins – og þau hafa enn ekki náð til Íslands. Bakþankar 17.7.2012 21:37
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti