Sjávarútvegur
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 68 ›
Sótti þrjú hundruð tonna línuveiðiskip Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar var kölluð út um hálf eitt í nótt til að aðstoða þrjú hundruð tonna línuveiðiskip sem var á veiðum út af Norðfjarðarhorni. Bilun hafði þá komið upp í skrúfubúnaði skipsins. Innlent 9.10.2023 10:06
Inga Lind tekur upp hanskann fyrir Áslaugu Fjölmiðlakonan Inga Lind Karlsdóttir segir að fréttaflutningur um ummæli Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hafi einkennst af útúrsnúningi. Innlent 7.10.2023 15:03
Skilur mótmælin en segir málið ekki svart og hvítt Framkvæmdastjóri fiskeldisfyrirtækis á Vestfjörðum fagnar nýrri stefnu matvælaráðherra sem kveður á um aukið eftirlit og harðari reglur í lagareldi. Hann segist vel skilja þá sem stefna á mótmæli gegn sjókvíaeldi en minnir fólk á að málið sé ekki svart og hvítt. Innlent 7.10.2023 10:48
Ísland á möguleika á að vera meðal stærstu þjóða í fiskeldi Ísland gæti orðið fjórða stærsta land í heimi í fiskeldi gangi spá Boston Consulting Group eftir, sagði framkvæmdastjóri hjá SalMar sem er næststærsta laxeldisfyrirtæki í heimi. Innherji 6.10.2023 09:54
Skoða hvernig vetni nýtist í orkuskiptum Vetni gæti gegnt lykilhlutverki í orkuskiptum flutningabíla og skipa hérlendis, að því er fram kom á norrænni vetnisráðstefnu í Reykjavík. Vetnisvæðing kallar hins vegar á miklar fjárfestingar í innviðum. Innlent 6.10.2023 09:04
Auðlindir hafsins Það ætti ekki að koma neinum á óvart hverjar áherslur matvælaráðherra eru þegar kemur að málefnum sjávar og dýra. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur alla tíða lagt mikla áherslu á ábyrga umgengni um auðlindir hafsins, enda þær takmarkaðar og nauðsynlegt að nýta þær á sjálfbæran hátt. Skoðun 6.10.2023 08:31
Svandís harðorð um varðstöðu Moggans með leyndarhyggju í sjávarútvegi Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skýtur föstum skotum að ritstjórn Morgunblaðsins í pistli sem birtist í blaðinu í morgun. Segir hún eigendur blaðsins, að stærstum hluta stórfyrirtæki í sjávarútvegi, nú þétta raðirnar vegna frumvarps hennar sem er ætlað að auka gagnsæi í greininni. Innlent 5.10.2023 17:01
Varpaði mynd af Svandísi á skjá og skaut föstum skotum Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, ávarpaði stjórnendur í sjávarútvegi í gær í Hörpu á Sjávarútvegsdaginn. Hún sagði freistandi að ræða málefni líðandi stundar og nefndi sérstaklega Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, en sagðist þess í stað ætla að ræða nýsköpun í sjávarútvegi. Innlent 5.10.2023 09:37
Áfram enginn loðnukvóti Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2023/2024. Viðskipti innlent 4.10.2023 21:41
Styrkja rannsóknir og efla eftirlit með lagareldi Fyrsta heildstæða stefnan um uppbyggingu og umgjörð lagareldis hefur nú verið birt. Efla á eftirlit og rannsóknir. Leyfishafar munu greiða gjald fyrir afnot af auðlindum. Ráðherra segir gott að fá heildstæða stefnu þrátt fyrir ólíka stöðu hverrar greinar. Innlent 4.10.2023 12:01
Eldisfyrirtæki þurfa að eiga viðskipti sín á milli um svæði fyrir árið 2028 Læra á af reynslu Norðmanna og Færeyinga af fiskeldi. Þess vegna mun einungis eitt eldisfyrirtæki fá að vera með starfsemi á hverju svæði fyrir sig. Fyrirtækin hafa til ársins 2028 til að eiga viðskipti sín á milli til að leysa úr stöðunni, upplýsti skrifstofustjóri hjá matvælaráðuneytinu. Innherji 4.10.2023 10:37
Bein útsending: Kynnir stefnumótun um lagareldi Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun í dag kynna drög að nýrri stefnumótun lagareldis sem unnin hefur verið á vegum matvælaráðuneytisins. Kynningin verður haldin í Club Vox sal á 1. hæð Hilton Reykjavík Nordica miðvikudag klukkan hálf ellefu í dag. Innlent 4.10.2023 10:01
Bjóða almenningi á þvernorrænt hakkaþon um framtíð hafsvæða Íslenski sjávarklasinn skipuleggur „hakkaþon“ næstu daga þar sem einstaklingar hvaðanæva af Norðurlöndum koma saman til að þróa sjálfbæra leið til að deila hafsvæðum. Að sögn framkvæmdastjóra Sjávarklasans kann að vera stutt í að stjórnvöld þurfi að meta hvernig svæðum á hafinu verði ráðstafað. Almenningi er boðið á föstudag kl. 17:00 að berja afrakstur hakkaþonsins augum. Viðskipti innlent 4.10.2023 06:46
Skráning Arnarlax „skref í að ná meiri samfélagslegri sátt“ um laxeldi Það er ekki á hverjum degi sem fyrirtæki á Bíldudal er skráð á hlutabréfamarkað, sagði forstjóri Arnarlax við skráningu laxeldsins á markað. „Þetta er skref í að ná meiri samfélagslegri sátt um það sem við erum að gera.“ Innherji 3.10.2023 16:00
Síðasta veiðiferð Múlabergsins og tólf skipverjum sagt upp Togarinn Múlabergið á Siglufirði hefur farið í sína síðustu veiðiferð. Upp kom leki í ferðinni sem talið er of kostnaðarsamt að gera við. Tólf skipverjar hafa fengið uppsagnarbréf frá Ísfélaginu sem gerir út togarann. Viðskipti innlent 3.10.2023 13:46
Hvalveiðiþversögnin Er ég skrifa þetta hafa tvö hvalveiðiskip nýlega lagt skutlum sínum og lokið vertíðinni en við sitjum eftir með spurninguna, hvað nú? Verður hvalur númer 25 síðasta langreyðin sem drepin verður við strendur Íslands? Eða er þetta bara enn einn blóðugur kafli í endalausri sögu þar sem eiginhagsmunir eins sportveiðimanns eru settir framar hagsmunum samfélags og náttúru? Skoðun 3.10.2023 13:01
Hvalveiðivertíð lokið og 24 hvalir veiddir Hvalveiðivertíð er nú lokið en 24 hvalir voru veiddir þá 24 daga sem hún stóð yfir. Hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 eru nú komin í land með þrjár langreyðar. Innlent 30.9.2023 19:01
Sigldi sjö tonna skipi skakkur Karlmaður hefur verið dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að stjórna skipi til hafnar ófær um að stjórna því örugglega vegna áhrifa vana-og fíkniefna, en í blóði hans mældist kannabis. Þá stýrði hann skipinu án þess að hafa til þess gild réttindi. Innlent 27.9.2023 14:25
Ísfélagið setur stefnuna á risaskráningu á markað undir lok ársins Sjávarútvegsrisinn Ísfélagið, nýlega sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, hefur gengið frá ráðningum á helstu fjármálaráðgjöfum vegna undirbúnings að skráningu og frumútboði félagsins í Kauphöllina. Gangi núverandi áætlanir Ísfélagsins eftir verður fyrirtækið eitt hið stærsta að markaðsvirði á íslenskum hlutabréfamarkaði áður en árið er liðið. Innherji 26.9.2023 17:04
Kaupir helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf. Samherji og Síldarvinnslan hafa gengið frá kaupum þess síðarnefnda á helmingshlut í sölufyrirtækinu Ice Fresh Seafood en með því lýkur viðræðum sem fyrst var tilkynnt um í lok mars á þessu ári. Viðskipti innlent 26.9.2023 10:11
Kaup Brims á hlut í Iceland Seafood „skref í að vinna með öðrum í sölu“ Forstjóri Brims segir um kaup á ellefu prósenta hlut í Iceland Seafood International að lengi hafi staðið til að styrkja sölukerfi útgerðarinnar á fiskafurðum. „Þetta er eitt skref í að vinna með öðrum í sölu.“ Innherji 25.9.2023 16:38
Skaginn 3X hefur tapað 4,5 milljörðum eftir kaup Baader Hátæknifyrirtækið Skaginn 3X hefur tapað 4,5 milljörðum króna frá því að þýska félagið Baader fjárfesti fyrst í félaginu árið 2021. Tapið var 845 milljónum króna minna á árinu 2022 en árið áður eða 1,8 milljarðar króna. Innherji 25.9.2023 13:28
Burt með sjálftöku og spillingu Flokkur fólksins er með í mótun almennar framsæknar breytingar á úthlutunarreglum um sértæka byggðakvóta Byggðastofnunar. Tillögurnar munu setja fólkið í sjávarbyggðunum í fyrsta sæti og verða vítamínsprauta til að efla frumkvæði heimamanna. Við viljum aftengja þá undarlegu kröfu að forsenda samnings um úthlutun á veiðiheimildum sé aðkoma sykurpabba sem tilheyra kvótaaðlinum. Skoðun 25.9.2023 10:30
Brim kaupir hlut félags Bjarna Ármannssonar í Iceland Seafood Brim hf. hefur gert samkomulag um kaup á hlut Sjávarsýnar ehf., fjárfestingafélags Bjarna Ármannssonar, í Iceland Seafood International hf. Viðskipti innlent 24.9.2023 22:26
Kálfurinn dreginn úr móðurkviði nánast fullvaxta Kálfur sem dreginn var úr kelfdri langreyði sem áhöfnin á Hval 9 veiddi í gær var nálægt því að vera fullvaxta. Líffræðingur segir nánast enga leið að sjá hvort dýrin séu kelfd en segir myndir af hvalverkuninni sláandi. Matvælastofnun telur engar reglur hafa verið brotnar. Innlent 23.9.2023 14:18
„Það er bara ítrekað eitthvað að klikka hjá þeim“ Forstjóri Matvælastofnunar segir það ekki satt að bilað spil hafi verið það einu vandræðin sem Hvalur 8 lenti í þann 7. september síðastliðinn. Langt myndband sem stofnunin er með í höndunum sýni það. Hún segir umræðu forstjóra Hvals hf. ekki vera sérstaklega málefnalega. Innlent 22.9.2023 16:10
Uppfylltu skotpróf MAST og með hval í sigtinu Hvalveiðiskipið Hvalur 8 er aftur haldið til veiða eftir að Matvælastofnun aflétti tímabundnu banni við veiðunum. Skotæfing til að sýna fram á hæfni skyttna á skipinu gekk vel í gær. Innlent 22.9.2023 13:35
Heimta gögnin til baka og að vinnu verði eytt Sjávarútvegsfyrirtækið G. Run í Grundarfirði hefur farið fram á það við Samkeppniseftirlitið að stofnunin skili öllum þeim gögnum sem fyrirtækið afhenti í tengslum við úttekt á stjórnunar- og eignatengslum í sjávarútvegi. Innlent 22.9.2023 06:38
Jón segir upplýsingaóreiðu að finna í frumvarpi Andrésar Inga Mikill hiti var í þingsal nú fyrir stundu þegar Andrés Ingi Jónsson Pírötum flutti frumvarp þar sem mælt er fyrir um bann við hvalveiðum. Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki sagði frumvarpið tóma tjöru en það ætti ekki að þurfa að koma á óvart þegar litið er til þess hver var flutningsmaður. Innlent 21.9.2023 17:11
Telja að rafmagn hefði skipt sköpum í dauðastríði hvals Skipstjóri Hvals 8 telur að dauðastríð hvals, sem entist í um 25 mínútur og varð til þess að veiðar skipsins voru tímabundið stöðvaðar, hefði verið mun styttra ef nota mætti rafmagn við hvalveiðar. Innlent 21.9.2023 14:38