

Biskup Íslands mun ekki stíga til hliðar þrátt fyrir að úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar hafi metið ákvarðanir hennar eftir síðasta sumar sem „marklausar“. Niðurstaðan verður kærð til héraðsdóms á næstunni.
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur ákveðið að boða til kosninga um nýjan biskup Íslands 7. til 12. mars næstkomandi. Agnes M. Sigurðardóttir lætur af störfum í kjölfarið.
Drífa Hjartardóttir, forseti kirkjuþings, hefur sent formanni kjörstjórnar kirkjuþings, bréf þar sem hún biðst afsökunar á því að hafa gert ráðningarsamning við Agnesi M. Sigurðardóttur, biskup Íslands.
Forseti kirkjuþings segist hafa gert mistök þegar hann gerði samkomulag við biskup um að starfstími hans yrði framlengdur um eitt ár. Biskup hefði átt að láta vita af því að á sama tíma væri verið að gera við hann ráðningarsamning til meira en tveggja ára hjá Biskupsstofu.
Lögmaður biskups Íslands segir alrangt að Agnes M. Sigurðardóttir hafi ekki umboð til að sinna embættisverkum sínum. Fyrrverandi hæstaréttardómari fullyrti í gær að ákvörðun um nýjan ráðningarsamning ætti sér ekki stoð í lögum
Fyrrverandi hæstaréttardómari segir ákvörðun um nýjan ráðningarsamning við biskup Íslands ekki eiga sér stoð í lögum. Sá biskup sem nú sitji hafi ekki umboð til að sinna embættisverkum.
Eins og stjórnsýslu þjóðkirkjunnar er háttað gat enginn annar en framkvæmdastjóri biskupsstofu gert ráðningarsamning við biskup Íslands. Biskup er starfsmaður þjóðkirkjunnar en heyrir hvorki undir kirkjuþing né rekstrarstofu þjóðkirkjunnar, sem heyrir undir kirkjuþing.
Pétur G. Markan biskupsritari segir ekkert óeðlilegt við ráðningarsamning Biskupsstofu við biskup til 1. október á næsta ári. Hún tilkynnti sjálf um áramótin að hún hygðist láta af störfum á næsta ári en ákveðið hefur verið að hefja undirbúning að biskupskjöri í byrjun næsta árs.
Framkvæmdastjóri Biskupsstofu réði yfirmann sinn, Agnesi M. Sigurðardóttur biskup, þann 1. júlí 2022 til að gegna embætti biskups tímabundið í 28 mánuði, eða til og með 31. október 2024.