
Átök í Ísrael og Palestínu

Hvað er svona hættulegt við það að segja vopnahlé?
Það verður alltaf augljósara og augljósara að ríkisstjórn Íslands ætlar ekki að hvetja til vopnahlés. Í staðinn fær Ísrael fullan stuðning íslensku ríkisstjórnarinnar til að framkvæma þjóðernishreinsanir og þjóðarmorð á Gaza. Á meðan Ísrael fær sinn stuðning til að fremja þjóðarmorð þá hefur íslenska ríkisstjórnin ákveðið að strá salti í sárin með því einu að auka við fjárhagsaðstoð sína til Palestínu um 90 milljónir.

Ísraelsmenn kalla eftir afsögn Guterres í kjölfar ákalls um vopnahlé
Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) segir aðgerðir sínar á Gasa verða lamaðar frá miðvikudagskvöldi vegna eldsneytisskorts.

Bjóða öryggi fyrir upplýsingar um gísla
Ísraelski herinn varpaði í dag blöðum úr lofti yfir Gasaströndinni. Á þeim eru íbúar beðnir um upplýsingar um gísla Hamas-samtakanna. Í skiptum fengi fólk öryggi og peninga.

Blaðamönnum sýnd myndskeið af voðaverkum Hamas-liða
Stjórnvöld í Ísrael buðu tugum erlendra blaðamanna á sérstaka kynningu í herstöð í Tel Aviv í gær þar sem sýnt var 45 mínútna langt safn myndskeiða frá deginum þegar Hamas-liðar réðust á almenna borgara í Ísrael.

Fjögur hundruð árásir á sólarhring og meira en helmingur íbúa á vergangi
Ísraelsher segist hafa gert 400 árásir á skotmörk á Gasa-ströndinni síðasta sólarhringinn en í gær voru árásirnar 320. Herinn fullyrðir að aðgerðirnar hafi beinst gegn starfstöðvum hryðjuverkamanna á svæðinu.

Börn að bera hæstan kostnað af stríðinu
Framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi segir börn bera hæstan kostnað vegna stríðsins fyrir botni Miðjarðarhafs. Hún segir andrúmsloftið í Miðausturlöndum einkennast af spennu og sorg

Sprengjan sögð hafa „gufað upp“
Háttsettur meðlimur Hamas-samtakanna segir að sprengjan sem samtökin segja Ísraela hafa varpað á sjúkrahús á Gassaströndinni í síðustu viku, hafa gufað upp. Þess vegna hafi engin sprengjubrot fundist.

Báðu Ísraela um að bíða með innrás
Ráðamenn í Bandaríkjunum báðu Ísraela um að bíða með innrás á Gasaströndina. Það er svo meiri tími fáist til að frelsa gísla Hamas-samtakanna, koma birgðum til íbúa og finna leiðir til að draga úr mannfalli meðal óbreyttra borgara.

Fleiri hafa ekki verið drepnir á Gasaströndinni í fimmtán ár
Mörg þúsund almennra borgar, þar á meðal börn, hafa verið drepin í loftárásum Ísrael á Gasaströndina undanfarnar tvær vikur. Árásir Ísrael eru þær blóðugustu síðan þjóðin yfirgaf Gasaströndina alveg árið 2005.

Harðar árásir halda áfram á Gasa
Ísraelski herinn segist hafa ráðist á 320 skotmörk á Gasa-svæðinu síðastliðinn sólarhring og að áhersla hafi verið lögð á bækistöðvar Hamas-liða, þar á meðal göng og höfuðstöðvar samtakanna.

Ný sending af neyðarbirgðum til Gasa
Martin Griffiths aðstoðarframkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna hefur staðfest að fjórtán flutningabílar hlaðnir neyðarbirgðum hafi komið inn á Gasa í kvöld. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna sögðu fyrr í dag fréttaflutning egypskra miðla um að sautján slíkum bifreiðum hafi verið hleypt inn á Gasa ekki réttan.

Íslensk stjórnvöld stútfull af hræsni
Fjölmenn samstöðuganga var gengin til stuðnings Palestínu í dag. Gangan endaði á kröftugum samstöðufundi á Austurvelli. Einn mótmælenda segir íslensk stjórnvöld hræsnara.

Gengu fylktu liði frá utanríkisráðuneytinu
Nokkur fjöldi gekk fylktu liði frá utanríkisráðuneytinu á Rauðarárstíg niður á Austurvöll til stuðnings Palestínu í dag. Klukkan 15.15. hófst samstöðufundur.

Ísraelsmenn boða „næsta fasa stríðsins“
Ísraelsmenn herða árásir á Gasa og ótti við útbreiðslu átakanna stigmagnast. Um áttatíu eru látnir eftir loftárásir á Gasasvæðið í nótt og þá segjast Ísraelsmenn hafa þurrkað út hryðjuverkamiðstöð Hamas á Vesturbakkanum.

„Það sem er í gangi núna er bara þjóðarmorð“
Félagið Ísland-Palestína hefur boðað til samstöðugöngu í dag til stuðnings Palestínu. Þingmaður sem flytur ræðu á samstöðufundi að göngu lokinni segir kröfuna vera að stjórnvöld beiti sér fyrir því að binda enda á átökin fyrir botni Miðjarðarhafs.

Lítil hjálp í mjög takmörkuðu magni neyðarbirgða
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir neyðarbirgðir sem fluttar hafa verið til Gasastrandarinnar verða að vera meiri. Tuttugu flutningabílar með neyðarbirgðum bárust íbúum Gasa í dag en að sögn samskiptastjóra ActionAid komu fimm hundruð slíkir bílar Gasabúum til hjálpar daglega áður en stríðið hófst.

Getur ekki beðið eftir að hitta dóttur sína
Faðir stúlku, sem Hamas-liðar rændu hinn 7. október síðastliðinn, segist ekkert hafa sofið. Hann getur ekki beðið eftir því að hitta dóttur sína sem sleppt var úr varðhaldi í gær.

Neyðarbirgðir loks á leið til Gasa
Flutningabílum hlöðnum neyðarbirgðum hefur verið hleypt yfir landamæri Egyptalands og Gasastrandarinnar í fyrsta skipti síðan stríð Ísraelsmanna og Hamas hófst fyrir tveimur vikum.

Hamas segjast hafa sleppt bandarískum mæðgum
Vígamenn Hamas segjast hafa sleppt tveimur gíslum, frá Bandaríkjunum, sem höfðu verið í haldi á Gasa síðan 7. október síðastliðinn.

„Þú ert með völdin!“
Stuðningsfólk Palestínumanna sótti hart að ráðherrum fyrir ríkisstjórnarfund í morgun. Mótmælendur kröfðust tafarlausrar fordæmingar íslenskra stjórnvalda á árásum Ísraelsmanna á Gasasvæðinu síðustu vikur og afhentu forsætisráðherra lista með tvö þúsund undirskriftum til stuðnings Palestínu.

„Getum ekki horft á fjöldamorð í beinni útsendingu“
Mótmælendur hafa safnast saman við ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu þar sem ráðherrar halda reglulegan fund. Þess er krafist að ríkisstjórnin fordæmi aðgerðir ísraelska hersins í Palestínu. Forsætisráðherra verður afhendur undirskriftalisti við lok fundar.

Enginn staður á Gaza er öruggur
Stöðugar loftárásir dynja á íbúum Gaza strandarinnar. Eitt öflugasta herveldi heims heldur enn 2,2 milljón einstaklinga í fangelsi á meðan það lætur sprengjum rigna yfir Gaza ströndina. Enginn staður á Gaza er öruggur segja Læknar án landamæra og hafa árásir Ísraels drepið þúsundir einstaklinga.

Stuðningurinn við Ísrael og Úkraínu sé skynsamleg fjárfesting til framtíðar
Joe Biden Bandaríkjaforseti ávarpaði Bandaríkjamenn frá skrifstofu sinni í Hvíta húsinu í gær og biðlaði til þeirra um að hverfa ekki frá hlutverki sínu sem „leiðarljós“ heimsins.

Segja mannfall í spítalasprengingunni talsvert minna en haldið var fram
Bandarísk stjórnvöld áætla að á bilinu hundrað til þrjú hundruð manns hafi látið lífið í sprengingu sem varð á sjúkrahúsi á Gasaströndinni á þriðjudag. Þá hefur franski fjölmiðillinn Le Point eftir háttsettum evrópskum embættismanni að tala látinna sé á bilinu tíu til fimmtíu manns.

Banna samstöðumótmæli með Palestínumönnum
Um helgina lagði innanríkisráðherra Frakklands á landlægt bann við samstöðumótmælum með Palestínu. Þjóðverjar hafa gert slíkt hið sama. Fjölmargir hafa verið handteknir og enn fleiri sektaðir vegna mótmæla síðustu daga.

Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna
Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins.

„Aldrei verið jafn þungt yfir Ísrael“
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir Hamas, Hezbollah og bakhjarla þeirra í Íran vilja færa Mið-Austurlönd aftur til tíma stríða, þrælkunar og útrýmingar. Hann segir heiminn allan þurfa að standa með Ísrael í baráttunni við þennan „ás hins illa“.

Ákall Mo Salah: Leiðtogar heimsins verða að stöðva frekari slátrun saklauss fólks
Liverpool leikmaðurinn og Egyptinn Mohamed Salah hefur tjáð sig um ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem Ísraelsmenn hafa svarað hryðjuverkaárás Hamas-samtakanna með mikilli hörku og stöðugum árásum sem hafa kostað þúsundir Palestínumanna lífið.

Semja um neyðaraðstoð en segja hana háða framgöngu Hamas
Eftir margra klukkustunda langan fund Joe Biden Bandaríkjaforseta og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gær samþykktu Ísraelsmenn að hleypa neyðaraðstoð til handa íbúum Gasa yfir landamærin við Egyptaland.

Utanríkisráðherra segir fórnarlömbin ekki spyrja hver skaut
Enn er óvíst hver ber ábyrgð á sprengingu sem varð allt að fimm hundruð manns að bana á Gasasvæðinu í gær. Nýr utanríkisráðherra segir að í stóra samhenginu skipti ekki máli hver beri ábyrgð heldur þurfi að bjarga óbreyttum borgurum sem búa á Gasa og í Ísrael.