

Bruninn sem varð í nýbyggingu fiskeldisfyrirtækisins Arctic Fish í botni Tálknafjarðar varð líklegast vegna glóðar sem barst frá opnum eldi sem unnið var með í plastteninga sem ekki voru langt frá. Málið telst upplýst en enginn var með stöðu sakbornings við rannsókn málsins.
Viðbragðsaðilar náðu að bjarga verðmætum Arctic Fish í Tálknafirði þegar húsnæði þess brann í gær og getur regluleg starfsemi fyrirtækisins því haldið áfram, að sögn sveitarstjóra, sem var með þeim fyrstu á vettvang brunans í gær.
Vettvangur stórbruna á Tálknafirði í gær hefur verið afhentur lögreglu til rannsóknar. Engar vísbendingar eru um hver eldsupptök voru en nóg var af eldsmat inni í húsinu.
Framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish segir að bruninn í húsnæði fyrirtækisins á Tálknafirði sé mikið áfall. Tjónið kunni að hlaupa á milljörðum króna.
Nokkrir iðnaðarmenn voru að stöfum í húsnæði Arctic Fish sem brann á Tálknafirði í morgun. Tveir þeirra hlutu brunasár og voru fluttir á sjúkrahús á Patreksfirði.
Gert var ráð fyrir því í kostnaðaráætlun Arctic Fish að byggingin sem brann á Tálknafirði í morgun ætti að kosta um fjóra milljarða króna. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar fiskeldisfyrirtækisins segir að nákvæmar tölur um tjón liggi ekki fyrir.
Eldur kviknaði í húsnæði í eigu Arctic Fish í botni Tálknafjarðar í morgun. Svæðið hefur verið rýmt af lögreglu, slökkviliði og björgunarsveitum. Tveir voru fluttir á slysadeild með minniháttar meiðsli.