Bakgarðshlaup

Fréttamynd

Hleypur um LA og ætlar að vinna Bak­garðinn

„Ég er hvergi eins lifandi og þegar ég er kominn tuttugu kílómetra inn, þá líður mér best. Hlaupin hafa líka hjálpað mér mikið með andlega heilsu,“ segir hinn 22 ára gamli Ríkarður Eyberg Árnason sem er búsettur í Los Angeles og starfar þar hjá spelkufyrirtæki. Samhliða því er hann mikill hlaupari og tók meðal annars þátt í LA maraþoninu í vetur.

Lífið
Fréttamynd

Hljóp í tólf klukku­tíma rifbeinsbrotinn

Ofurhlauparinn Harvey Lewis var í harðri baráttu um heimsmeistaratitilinn í bakgarðshlaupum í síðustu viku og var einn af þeim þremur sem héldu lengst út. Nú hefur komið í ljós að hann var ekki bara að keppa við þreytuna og þungar fætur eftir rúma fjóra sólarhringahlaup.

Sport
Fréttamynd

Leysti frá skjóðunni um hvað gerðist í þriðja hring

Guðjón Ingi Sigurðsson segir það hafa gengið vel að jafna sig og ná svefni eftir tæplega tveggja sólarhringa keppni í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa sem hann vann í Heiðmörk. Hann útskýrði loks hvers vegna minnstu munaði að hann myndi hætta snemma keppni.

Sport
Fréttamynd

„Ætla ekki að segja hvað gerðist í þriðja hring“

„Ég var gjörsamlega að grillast í þessum hring,“ sagði Guðjón Ingi Sigurðsson eftir eina hringinn sem hann þurfti að hlaupa einn til að fagna sigri í bakgarðshlaupi Náttúruhlaupa í nótt. Guðjón íhugaði að hætta strax í þriðja hring en endaði á að hlaupa 43 hringi og setja magnað brautarmet, á afmælisdegi bróður síns heitins.

Sport
Fréttamynd

Slógu saman heims­metið í bakgarðshlaupum

Ofurhlaupararnir Sam Harvey frá Nýja Sjálandi og Phil Gore frá Ástralíu, slógu saman í kvöld heimsmetið í bakgarðshlaupum á Dead Cow Gully bakgarðshlaupinu sem fór fram í Queensland í Ástralíu.

Sport
Fréttamynd

Erfitt að sofa eftir tvo sólar­hringa á hlaupum

Kristinn Gunnar Kristinsson kvartar lítið yfir eymslum í líkamanum eftir afrek síðustu helgar þegar hann fagnaði sigri í Bakgarðshlaupinu í Öskjuhlíð. Valur Páll hitti Kristinn örfáum dögum eftir að hann hafði verið tæplega tvo sólarhringa á hlaupum.

Sport