
Ástin á götunni

Dion Acoff semur við Grindavík
Vængmaðurinn Dion Acoff hefur samið við Grindavík um að leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Félagið gaf frá sér tilkynningu þess efnis nú í kvöld.

Riftir samningi sínum við Grindavík
Guðmundur Magnússon hefur rift samningi sínum við Grindavík og mun því ekki leika með liðinu í Lengjudeildinni í knattspyrnu í sumar.

Staðfestir að Ingvar sé viðbeinsbrotinn og verði frá í fjórar til sex vikur
Ingvar Jónsson, markvörður Víkinga, mun missa af fyrstu leikjum Pepsi Max-deildar karla í knattspyrnu vegna meiðsla. Ingvar viðbeinsbrotnaði í leik Víkings og Keflavíkur í Lengjubikarnum síðasta föstudag.

Rekinn frá Kormáki/Hvöt eftir viku í starfi - Mætti til leiks undir áhrifum áfengis
Fyrrum landsliðsmaðurinn Tryggvi Guðmundsson entist stutt í starfi hjá 4.deildarliði Kormáks/Hvatar.

Blikar komnir í undanúrslit Lengjubikarsins eftir sigur á KA
Breiðablik verður með í undanúrslitum Lengjubikarsins eftir að hafa lagt KA-menn að velli í 8-liða úrslitum keppninnar.

Stjarnan snéri taflinu við og er komin í undanúrslit
Stjörnumenn eru komnir í undanúrslit Lengjubikarsins eftir 4-2 sigur gegn Fylki á Samsungvellinum í dag. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins, en fjögur mörk Stjörnumanna tryggðu þeim farseðilinn í undanúrslitin.

Kári fór í markið í vítaspyrnukeppni og Stjarnan hafði betur gegn FH
Þrír leikir fóru fram í A-deild Lengjubikars karla og kvenna í kvöld en leikið var í Víkinni, í Laugardalnum og í Garðabæ.

Nýliðarnir fá liðsstyrk frá Venesúela
Leiknir Reykjavík hefur samið Octavio Páez um að leika með liðinu í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í sumar. Páez kemur frá Venesúela og er samkvæmt Leikni fyrsti leikmaðurinn frá téðu landi til að leika í deildinni.

Hólmfríður Magnúsdóttir leggur skóna á hilluna
Hólmfríður Magnúsdóttir hefur ákveðið að leggja takkaskóna á hilluna eftir 20 ára feril. Þetta tilkynnti hún á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.

Spenntur fyrir EM, stefnir á atvinnumennsku og segir Blika ætla sér þann stóra
Róbert Orri Þorkelsson, varnarmaður Breiðabliks er einn fjögurra leikmanna sem spilar hér á landi sem er á leið á EM U21 ef marka má listann sem birtist á vef UEFA í dag. Hann ætlar sér stóra hluti á EM sem og í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Óvæntur markaskorari Víkings aðeins á skýrslu vegna mikilla forfalla
Einar Guðnason, aðstoðarþjálfari Pepsi Max-deildarliðs Víkings, var óvænt á skýrslu er liðið mætti Þór Akureyri í Lengjubikarnum í gærkvöld. Einar kom óvænt inn á undir lok leiks, gerði hann sér lítið fyrir og skoraði stórglæsilegt mark.

KA í átta liða úrslit eftir jafntefli gegn Grindavík
KA og Grindavík gerðu 1-1 jafntefli í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Það dugði KA-mönnum sem tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitum með stigi kvöldsins.

Selfoss með óvæntan sigur á Stjörnunni, létt hjá Val ásamt öðrum úrslitum
Þremur leikjum til viðbótar í Lengjubikar karla er nú lokið. Selfoss vann Stjörnuna 2-1, Valur vann HK 3-0, ÍBV vann Fjölni í Grafarvoginum. Í kvennaflokki gerðu Þróttur Reykjavík og ÍBV 2-2 jafntefli.

Fyrirliði Fylkis sá rautt fyrir að klípa í pung Olivers
Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, fékk rautt spjald í 2-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki i Lengjubikar karla fyrr í dag. Spjaldið fékk hann fyrir að klípa í pung Olivers Sigurjónssonar, leikmanns Breiðabliks.

Víkingur áfram í 8-liða úrslit, Leiknir vann Þrótt í markasúpu og Fram gerði jafntefli við Kórdrengi
Þrír leikir fóru fram í Lengjubikar karla í knattspyrnu í kvöld. Víkingur tryggði sér toppsætið í sínum riðli með 5-0 sigri á Þór Akureyri. Leiknir Reykjavík vann 5-2 sigur á Þrótt Reykjavík, þá gerðu Fram og Kórdrengir 1-1 jafntefli.

Kári hefur talað við Arnar Þór og Eið Smára um framtíð sína í landsliðinu
Kári Árnason, miðvörður Víkings Reykjavíkur og íslenska landsliðsins, hefur talað við þá Arnar Þór Viðarsson og Eið Smára Guðjohnsen, landsliðsþjálfara, um stöðu sína í íslenska landsliðinu.

KR áfram og FH úr leik eftir jafntefli í dag
Einn leikur fór fram í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. KR og FH gerðu 1-1 jafntefli á gervigrasinu í Vesturbæ Reykjavíkur. KR er þar með öruggt með sæti í 8-liða úrslitum Lengjubikarsins en FH komst ekki áfram.

Gary Martin með nýjan þriggja ára samning í Eyjum
Enski knattspyrnumaðurinn Gary Martin hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við ÍBV og spilar því áfram í Lengjudeild karla í sumar.

ÍA kom til baka gegn Gróttu
Einn leikur fór fram í Lengjubikar karla í kvöld. ÍA og Grótta gerðu 2-2 jafntefli eftir að Seltirningar komust 2-0 yfir.

Þróttur heldur áfram að sækja leikmenn til Bandaríkjanna
Lið Þróttar Reykjavíkur verður skipað allavega þremur bandarískum leikmönnum er Pepsi Max deild kvenna fer af stað en félagið tilkynnti í dag að miðjumaðurinn Shea Moyer myndi leika með liðinu í sumar.

Blikar sóttu sigur á Akureyri
Breiðablik gerði góða ferð norður er liðið mætti Þór/KA í Lengjubikar kvenna í dag. Fór það svo að Íslandsmeistararnir fóru með 2-0 sigur af hólmi.

Öruggt hjá FH og KA í Lengjubikarnum
FH vann sannfærandi 4-0 sigur þegar Þór frá Akureyri kom í heimsókn í Skessuna í Hafnarfirði í 2.riðli Lengjubikars karla. KA heimsótti Aftureldingu á Fagverksvöllin og fóru illa með heimamenn. lokatölur 1-7, gestunum í vil.

Öruggt hjá KR á meðan Sævar Atli reyndist hetja Leiknis
Tveimur leikjum til viðbótar er nú lokið í Lengjubikar karla í knattspyrnu. KR vann öruggan 3-1 sigur á Kórdrengjum og þá vann Leiknir Reykjavík nágranna sína í Fylki 1-0 í Árbænum.

„Stórlega ýkt og menn ekki á buxunum að slíta neinu samstarfi“
Orri Hlöðversson, formaður Íslensk toppfótbolta, segir að sögusagnir um ný hagsmunasamtök tíu liða í efstu deild karla séu stórlega ýktar og hann segir að menn muni halda áfram að vinna saman að betri íslenskum fótbolta.

Bubbi spenntur fyrir því að mæta í Frostaskjólið í sumar
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens stefnir á að mæta á KR-völlinn í sumar og sjá KR spila í Pepsi Max deildinni. Bubbi er að flytja á Seltjarnarnesið á nýjan leik og ætlar sér að endurnýja kynnin við KR.

Ný hagsmunasamtök bestu félaga landsins í bígerð
Fulltrúar tíu félaga í Pepsi Max-deild karla funduðu síðdegis í dag um að stofna ný samtök sem eiga að gæta hagsmuna félaganna í deildinni samkvæmt heimildum íþróttadeildar.

Segir vonbrigði sumra liða hafa verið það mikil að hann telji að menn hafi ekki kosið málefnalega
Páll Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar KR, telur að ekki hafi verið um málefnalegar kosningar að ræða á ársþingi knattspyrnusambands Íslands um helgina þar sem tillaga um fjölgun leikja í efstu deild karla náði ekki í gegn.

Segir óeðlilegt að neðri deildar félög stjórni því hvernig fyrirkomulagið í efstu deild er
E. Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir að sú niðurstaða að hafa mótafyrirkomulag í efstu deild karla óbreytt sé vonbrigði. Hann segir að það komi til greina að Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) verði aftur bara samtök félaga í efstu deild.

Ótrúleg endurkoma Fjölnis - Valsmenn með fullt hús stiga
Fjórir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta hér á landi í dag og var mikið skorað í leikjum dagsins.

26 mörk í leikjum dagsins í Lengjubikarnum
Sex leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í dag, þrír í karlaflokki og þrír í kvennaflokki.