Ástin á götunni

Hef séð það svartara
Vanderlei Luxemburgo, knattspyrnustjóri Real Madrid á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir enda gengur hvorki né rekur hjá liðinu. Farið er að hitna allverulega undir stólnum hans og margir sem spá því að hann verði látinn fjúka áður en langt um líður. Hann efast þó ekki um að liðið nái að rífa sig upp úr sleninu og biður menn að sýna stillingu.

Fjórtan sigrar hjá Bayern í röð
Bayern München setti met í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið vann fjórtánda leik sinn í röð. Þeir unnu níu síðustu leik sína á síðustu leiktíð og hafa unnið alla fimm til þessa. Bæjarar lögðu Hannover að velli 1-0 með marki Martins Demichelis. Werder Bremen er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Bayern, með 13 stig eftir 3-2 sigur á Borussia Dortmund.

Roy Keane fótbrotinn
Áföllin koma í halarófu hjá Manchester United í upphafi leiktíðar í ensku úralsdeildinni í knattspyrnu en fyrirliði liðsins, Roy Keane fótbrotnaði í leik liðsins gegn Liverpool í dag. Framristarbein brotnaði og er búist við að Keane verði frá í 2 mánuði.

Öruggur sigur Inter á Lecce
Inter Milan vann auðveldan sigur á Lecce með þremur mörkum gegn engu í ítölsku fyrstu deildinni í fótbolta í gær og Parma marði 1-0 sigur á Empoli. Inter er efst í deildinni með sjö stig en það gæti breyst í dag þegar þriðju umferðinni lýkur.

Borgvardt kom inn fyrir Østenstad
Allan Borgvardt lék síðustu 5 mínúturnar með Viking sem tapaði 1-0 fyrir Odd Grenland í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú síðdegis. Allan kom inn á sem varamaður fyrir Egil Østenstad. Stefán Gíslason lék allan tímann í liði Lyn sem tapaði fyrir Ham Kam 1-0. Við hlið Stefáns á miðjunni lék John Obi Mikel.

Óvænt tap hjá AC Milan
AC Milan tapaði óvænt fyrir Sampdoria í ítalska fótboltanum í dag, 2-1 þar sem nýliðinn Alberto Gilardino skoraði sitt fyrsta mark fyrir Milan. Leikurinn markaði tvöföld tímamót fyrir fyrirliðann Paolo Maldini sem var að leika sinn 800. leik fyrir félagið auk þess sem hann jafnaði leikjamet Dino Zoff sem lék 570 leiki í efstu deild á Ítalíu.
Hearts óvænt efst í Skotlandi
Í Skotlandi hefur Hearts óvænta forystu en liðið vann Inverness 0-1 á útivelli í gær. Hearts hefur unnið alla sjö leiki sína til þessa í deildinni og er með átta stiga forskot á Celtic og Rangers. Rangers bar sigurorð á Kilmarnock 3-0 í gær en Celtic leikur í dag gegn Hibernian.
Sigurmark Bolton á 94. mínútu
Bolton tryggði sér ótrúlegan sigur á Man City, 0-1 í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu nú síðdegis þar sem sigurmarkið kom úr vítaspyrnu þegar 4 mínútur voru komnar framyfir venjulegan leiktíma. Þá gerðu nýliðar Wigan 1-1 jafntefli við Middlesbrough.

Ásthildur skoraði fyrir Malmö
Ásthildur Helgadóttir skoraði eitt marka Malmö sem burstaði Gautaborg 5-1 í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Malmö er í 2. sæti deildarinnar með 52 stig, þremur stigum á eftir Umeå sem valtaði yfir AIK, 6-0 í gær. Djurgården/Älvsjö sem stal 2-1 sigri gegn Val í Evrópukeppni félagsliða í síðustu viku er í 3. sæti deildarinnar með 36 stig.

Valskonur mæta Evrópumeisturunum
Kvennalið Vals mætir sjálfum Evrópumeisturunum í þýska liðinu Turbine Potsdam í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Valur mætir þýska liðinu í Reykjavík 8. október og ytra 19. október. Sigurvegarinn úr þeirri rimmu mætir annaðhvort Spörtu Prag frá Tékklandi eða Djurgården/Älvsjö frá Svíþjóð í undanúrslitum.

Ívar skoraði sigurmark Reading
Ívar Ingimarsson var hetja Reading í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag en hann skoraði sigurmark liðsins í 1-0 sigri á Crewe á 81. mínútu. Ívar lék að venju allan leikinn í liði Reading eins og Brynjar Björn Gunnarsson.

Íslendingarnir í enska í dag
Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Charlton sem mætir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag en leikirnir á Englandi hófust nú kl. 14. Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Chelsea vegna meiðsla. Þá er Heiðar Helguson á varamannabekk Fulham sem tekur á móti West Ham.

Valsstúlkur í 8 liða úrslit
Valur tryggði sér í dag farseðilinn í 8 liða úrslit Evrópukeppni kvenna í knattspyrnu þegar þær burstuðu Alma frá Kazakstan 8-0 í B-riðli 2. umferðar keppninnar. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði 4 mörk fyrir Val, Málfríður Erna Sigurðardóttir tvö en Dóra Stefánsdóttir og Rakel Logadóttir eitt mark hvor.

Aukaæfingar fyrir Ronaldinho
Frank Rijkaard knattspyrnustjóri Barcelona er síður en svo sáttur við leikformið á besta knattspyrnumanni í heimi, Brasilíumanninum Ronaldinho leikmanni félagsins. Stjórinn hefur sett á aukaæfingar fyrir Ronaldinho til þess að koma honum í betra form og lét úthaldsþjálfari Barcelona, Ronaldinho vera eftir á æfingu á fimmtudag.

Chelsea vann toppslaginn
Chelsea lagði Charlton 2-0 í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag og eru Englandsmeistararnir því eina liðið með fullt hús stiga að loknum 6 leikjum. Hernan Crespo og Arjen Robben skoruðu mörkin. Hermann Hreiðarsson lék að venju allan leikinn í liði Charlton en Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea vegna meiðsla.

Versta augnablik ferils míns
David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, sagði að tapið gegn Dinamo Búkarest í gær verstu upplifun sína á ferlinum sem knattspyrnustjóra, en bætti við að breytinga væri að vanta á liði sínu á næstunni því hann væri langt í frá ánægður með marga leikmenn sína.

Wenger vill semja við Henry
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, vill ólmur nota tímann sem Thierry Henry verður frá á næstunni vegna meiðsla til að ræða nýjan samning við félagið og bendir á að málið ætti að leysast fljótlega þar sem Henry sé ekki peningagráðugur maður.

Valsstúlkur vekja athygli ytra
Valsstúlkur spila í dag þriðja og síðasta leik sinn í riðlakeppni 16 liða úrslita Evrópukeppni félagsliða. Þær hafa þegar náð sögulegum árangri með því að vera fyrsta liðið til að komast áfram upp úr 1. umferð en núna er liðið aðeins einum leik frá því að komast í átta liða úrslitin.

Víkingar upp, Völsungur niður
Lokaumferðin í fyrstu deild karla í knattspyrnu fór fram í kvöld. Víkingur tryggði sér sæti í Landsbankadeildinni að ári með 2-0 sigri á Völsungi, en tap þeirra þýddi að liðið fellur um deild ásamt KS. Þá gerðu HK og Breiðablik 2-2 jafntefli í grannaslag Kópavogsliðanna.

Van Persie fær eins leiks bann
Hollenski sóknarmaðurinn Robin van Persie hjá Arsenal fær eins leiks bann fyrir rauða spjaldið sem hann fékk að líta í Meistaradeildinni í vikunni, þegar hann sparkaði óviljandi í andlitið á einum leikmanna FC Thun.

Gunnar skoraði gegn Lissabon
Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad úr vítaspyrnu þegar liðið tapaði 1-2 á heimavelli fyrir portúgalska liðinu Sporting Lissabon í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð aðalkeppni Evrópukeppni félagsliða í gærkvöld. Grétar Rafn Steinsson lék fyrsta leik sinn fyrir hollenska liðið AZ Alkmaar þegar liðið tapaði fyrir Krylya Sovetov frá Rússlandi 5-3 á útivelli.

Friedel ánægður með samninginn
Brad Friedel, markvörður Blackburn Rovers, hefur undirritað nýjan þriggja ára samning við félagið og lofar að gefa liðinu "þrjú góð ár í viðbót", en hann hefur verið hjá Blackburn í fimm ár, en var áður hjá Liverpool.
Kostic velur U-17 hópinn
Lúkas Kostic, þjálfari U-17 ára landsliðs Íslands í knattspyrnu hefur valið átján manna hóp sem tekur þátt í undankeppni EM. Riðill Íslands verður spilaður í Andorra dagana 23-27. og auk heimamanna verða Svíar og Tékkar í riðlinum. Liðið heldur utan 21. september og kemur aftur heim þann 28.

Bayern getur slegið met á morgun
Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen geta slegið met sitt yfir flesta sigra í röð í þýsku úrvalsdeildinni á morgun þegar liðið mætir Hanover 96 á morgun, en með sigri vinnur liðið sitt 14. leik í röð, sem telur frá síðasta tímabili.

Stelpurnar hækka um eitt sæti
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur hækkað um eitt sæti á styrkleikalista FIFA, alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gefinn var út í gær. Ísland er nú í 17. sæti listans og hafði sætaskipti við Holland.

Gríðarlegt áfall fyrir Man Utd
Manchester United varð fyrir gríðarlegu áfalli nú rétt áðan þegar tilkynnt var að argentíski varnarmaðurinn Gabriel Heinze orðið frá út leiktíðinu vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir í Meistaradeildarleiknum gegn Villareal í fyrrakvöld.

Allardyce sáttur við sigurinn
Sam Allardyce, stjóri Bolton, var mjög sáttur við að hans menn skildu ná að sigra Lokomotiv Plovdiv frá Búlgaríu í Evrópukeppninni í gær, en þó voru margir hlutir í leik liðsins sem hann gerði athugasemdir við.

McClaren ánægður með sína menn
Steve McClaren, stjóri Midllesbrough, var ánægður með sína menn eftir sigurinn í Evrópukeppni félagsliða í gær og sagði þá hafa klárað verkefnið sem hann lagði upp með þegar þeir lögðu gríska liðið FC Xanthi 2-0.

Augenthaler rekinn
Klaus Augenthaler, knattspyrnustjóra Bayer Leverkusen, var í morgun sagt upp störfum hjá félaginu og mun yfirmaður knattspyrnumála hjá Leverkusen, Rudi Völler, taka við starfi hans tímabundið þar til annar maður fæst í starfið.

Heitt í kolunum hjá WBA
Bryan Robson, stjóri West Brom hefur viðurkennt að leikmenn liðsins hafi tekist á í búningsklefanum eftir tapið sára gegn Wigan í úrvalsdeildinni um síðustu helgi, en segir atburðinn jákvæðan í sínum augum, því það sýni að leikmönnum standi ekki á sama um lélegan árangur liðsins.