KA

Gagnrýndu upplegg Þórs/KA í Kópavoginum
Pepsi Max Mörkin gagnrýndu upplegg Þórs/KA er liðið heimsótti topplið Breiðabliks í Pepsi Max deild kvenna í nýliðinni viku. Breiðablik vann leikinn 7-0.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Þór/KA 7-0 | Enn einn stórsigur toppliðsins
Ótrúlegt gengi Breiðabliks heldur áfram í Pepsi Max deild kvenna.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór/KA | María tryggði Þór/KA stig
Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í fyrstu umferð Pepsi Max deildar kvenna eftir að deildin fór aftur af stað eftir kórónuveiruhlé.

„Vantar „guts“ þegar það er verið að dæma leiki hjá konum“
Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var ómyrkur í máli þegar hann ræddi um rauða spjaldið sem líklega hefði átt að fara á loft þegar Stjarnan og Þór/KA gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi Max-deild kvenna í dag.

Arnar Grétarsson: Menn gera mistök í fótbolta
Það kom að því að KA fékk á sig mark undir stjórn Arnars Grétarssonar. Reyndist það sigurmark Vals í dag en kom það eftir klaufaleg mistök Rodrigo Gomes í liði KA-manna.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 1-0 | Valsmenn komnir með fimm stiga forystu
Valur varð fyrsta liðið til að leggja KA af velli síðan Arnar Grétarsson tók við liðinu.

„Búið að vera mikið af hauskúpuleikjum hjá KA“
Tómas Ingi Tómasson er ekki hrifinn af því hvernig KA byggir upp sitt spil.

ÍBV eina liðið sem virðist geta skorað á Greifavelli
Farið var yfir leik KA og ÍBV í Mjólkurbikarmörkunum en mörk ÍBV voru í glæsilegri kantinum.

Fullkomin þrenna Ólafar, tveggja marka innkoma Gyðu og endurkoma ÍBV
Mikið gekk á í leikjunum þremur í Pepsi Max-deild kvenna í gær. Alls voru átján mörk skoruð en tíu þeirra komu í einum og sama leiknum.

Sjáðu þegar eyrnalokkar komu í veg fyrir víti Margrétar - Hefði skotið í rangt horn
Margrét Árnadóttir fékk ekki að taka vítaspyrnu sem hún fékk fyrir Þór/KA gegn KR vegna þess að hún var með eyrnalokka. Hún var þó fegin eftir á.

Telur í besta falli barnalegt að segja að Ásgeir hafi truflað Beiti
Sitt sýnist hverjum um markið sem dæmt var af í leik KA og KR í Pepsi Max-deild karla í fótbolta á Akureyri í gær. Leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Sjáðu markið sem KA-menn eru brjálaðir yfir að var dæmt af
Það var dramatík undir lok leiks í leik KA og KR á Akureyri.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KA - KR 0-0 | Dramatík í markalausu jafntefli á Akureyri
KA og KR gerðu 0-0 jafntefli á Akureyri eftir æsilegar lokamínútur í 9.umferð Pepsi-Max deildar karla í dag.

Beitir: Ég veit ekki á hvað var dæmt
Beitir Ólafsson, markvörður KR-inga var allt í öllu á lokamínútunum þegar KA og KR skildu jöfn í markalausum leik á Akureyri í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Fylkir 2-2 | Jafntefli fyrir norðan
Þór/KA gerði 2-2 jafntefli við Fylki í Pepsi Max deild kvenna í kvöld. Árbæingar hafa ekki enn tapað leik en eru þó komin töluvert á eftir toppliði Breiðabliks.

Umfjöllun og viðtöl: FH 0-0 KA | Steindautt jafntefli í Hafnafirði
FH og KA gerðu markalaust jafntefli í Pepsi Max deild karla í Kaplakrika í kvöld.

Arnar Grétarsson: Fyrsta upplegg var að halda hreinu
,,Fyrsta upplegg var að halda hreinu en markmiðið var að setja mark, við ætluðum að koma hingað og taka öll þrjú stigin. En ég held við getum alveg verið sáttir með stig miðað við hvernig leikurinn spilaðist.‘‘

Fimm íslensk handboltalið í Evrópukeppni í vetur
Fimm íslensk handboltalið verða við keppni í Evrópukeppnum EHF í vetur en frestur til þess að skrá sig í keppnirnar rann út á þriðjudag.

Óli Stefán segir að dagurinn hafi verið viðburðaríkur og þakkar fyrir kveðjurnar
Óli Stefán Flóventsson ritaði nú undir kvöld pistil á Facebook-síðu sína þar sem hann fer yfir atburðarrás dagsins en hann hætti í dag sem þjálfari KA í Pepsi Max-deildinni.

Arnar Grétars: Tók mig ekki langan tíma að segja já
Arnar Grétarsson tók við starfi þjálfara hjá KA í Pepsi Max deild karla í dag. Hann segir nýja starfið leggjast vel í sig þegar blaðamaður Vísis sló á þráðinn.

Arnar Grétarsson tekinn við KA
Arnar Grétarsson hefur verið ráðinn þjálfari KA í Pepsi Max deild karla. Þetta hefur verið staðfest á vef KA.

Arnar líklegastur til að taka við þjálfarastarfinu hjá KA
Staða þjálfara hjá KA er laus eftir að Óli Stefán Flóventsson og KA komust að samkomulagi um starfslok. Vísir tekur saman fimm nöfn sem gætu mögulega tekið við stjórastarfinu á Akureyri.

Óli Stefán hættur með KA
Óli Stefán Flóventsson er hættur sem þjálfari KA í Pepsi Max deild karla, en þetta kemur fram í yfirlýsingu á vef KA núna rétt í þessu.

Óli Stefán: Verðum eins og smástrákar
„Ég er svekktur. Þetta var kaflaskipt en ég er fyrsta lagi ótrúlega svekktur yfir frammistöðunni í fyrri hálfleik,“ sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari KA, eftir 1-1 jafntefli gegn Fjölni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir 4-1 KA | Þriðji sigur Fylkis en KA í vandræðum
Fylkir er á fljúgandi siglingu og er með þrjá sigurleiki í röð í Pepsi Max-deildinni eftir 4-1 sigur á KA í kvöld. Það er hins vegar ekki sama uppi á teningnum hjá KA sem er með tvö stig í fyrstu fjórum leikjunum.

Framkvæmdastjóri KA vonast eftir nýjum heimavelli í síðasta lagi árið 2024
„Völlurinn var ekki upp á sitt besta í gær, það eru margar ástæður fyrir því en kannski sú helsta að hér var búið að spila 200 leiki á N1 mótinu daganna á undan,“ sagði Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA í viðtali við Stöð 2 en mikið hefur verið rætt um ástand Greifavöllsins, þar sem KA spilar heimaleiki sína, undanfarið og sagði Óskar Hrafn þjálfari Breiðabliks undirlag vallarins það versta í efstu deild í Evrópu.

Enn renna menn á Greifavelli: Slitin krossbönd, rauð spjöld, vítaspyrnur og töpuð stig
Er Greifavöllur, heimavöllur KA í Pepsi Max deildinni, þeirra erfiðasti mótherji?

Tvíburabræðurnir frá Dalvík báðir ristarbrotnir
KA verður án framherjans Nökkva Þeys Þórissonar næstu vikurnar, að minnsta kosti, eftir að í ljós kom að hann er ristarbrotinn.

Óskar sagði undirlagið á KA-vellinum eitt það daprasta í Evrópu
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ekki hrifinn af vellinum á Akureyri í leik Blika og KA í gær en Óskar kallaði undirlagið á vellinum eitt það daprasta í efstu deild í Evrópu.

Sjáðu ótrúlega dramatík í lok leiks KA og Breiðabliks
KA tók á móti Breiðablik í Pepsi Max deild karla í dag. Lokatölur 2-2 en lokamínútur leiksins voru dramatískar.