
Skoðanakannanir

Skákar Trump í skoðanakönnun
Kamala Harris mælist með tveggja prósenta forskot á Donald Trump í skoðanakönnun sem framkvæmd var eftir að Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann myndi draga framboð sitt til forseta til baka.

Mikill meirihluti landsmanna ánægður með Guðna
Ný könnun Maskínu sýnir að 81 prósent landsmanna segjast vera ánægðir með Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands síðasta ár hans í embætti. Miðað við niðurstöður Maskínu er Guðni talsvert vinsælli en Ólafur Ragnar Grímsson á síðasta ári hans í embætti en þá sögðust 59 prósent landsmanna vera ánægð með hans störf.

Flestir treysta ríkisstjórninni miklu verr eftir að Bjarni tók við
Sjötíu og tvö prósent landsmanna treysta ríkisstjórninni verr eftir að Bjarni Benediktsson tók við embætti forsætisráðherra. Hins vegar treysta ellefu prósent ríkisstjórninni betur eftir að Bjarni tók við stjórnartaumunum en átján prósent jafn mikið. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Maskínu.

Meirihluti sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu ekki svo mikill
Rúmlega 55 prósent landsmanna vill að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu á næsta kjörtímabili um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Rúmlega fjörutíu prósent er fylgjandi fullri aðild Íslands að sambandinu samkvæmt nýrri könnun.

Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur
Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir.

Segir Sigmund og Bergþór bera sína ábyrgð á Mannréttindastofnun Íslands
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, skynjar falskan tón í óbilgjarnri gagnrýni þeirra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Miðflokksins og Bergþórs Ólasonar þingmanns en þeir hafa fundið Mannréttindastofnun Íslands, sem samþykkt var við þinglok, flest til foráttu.

Ríkisstjórn ekki verið óvinsælli frá tíð Geirs Haarde
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar er sú óvinsælasta frá því að ríkisstjórn Geirs H. Haarde var við völd. Stuðningurinn við ríkisstjórnina hefur dalað jafnt og þétt undanfarna mánuði og mælist nú tæplega 28 prósent, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallúp.

VG mælist enn úti af þingi og Samfylkingin dalar
Vinstri græn mælast með 4 prósenta fylgi og fylgi Samfylkingarinnar dalar mest í nýjum þjóðarpúlsi Gallúp. Miðflokkurinn bætir mestu við fylgi sitt og mælist með 14,5 prósent fylgi.

Væru með helmingi færri þingmenn
Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega.

„Örvænting í Valhöll“ færi Miðflokkurinn fram úr Sjálfstæðisflokknum
Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu, en fylgi hans hefur aldrei mælst minna. Þá hefur samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna aldrei verið minna, og stendur í þrjátíu prósentum. Stjórnmálafræðiprófessor segir núliðið þing síðasta vinnuþingið að sinni, í haust verði þingmenn komnir í kosningaham.

Sjálfstæðisflokkur aldrei mælst með minna fylgi
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mælst með minna fylgi en nú í nýrri könnun Maskínu. Þingflokksformaður Miðflokksins þakkar staðfestu flokksins í útlendingamálum, orkumálum og ríkisfjármálum að hann hefur fest sig í sessi sem þriðji stærsti flokkurinn á Íslandi. Sjálfstæðisflokkurinn líði fyrir að hafa verið í vinstristjórn í sjö ár.

Miðflokkurinn nartar í hæla Sjálfstæðisflokksins
Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu en Sósíalistaflokkurinn bætir við sig tveimur. Marktækur munur er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sextánda mánuðinn í röð. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er nú 30 prósent og hefur aldrei verið lægra.

Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“
Íslenska fyrirtækið Datasmoothie hefur verið selt til franska markaðsrannsóknarrisans Ipsos. Fyrirtækið þróar hugbúnað sem gerir rannsakendum kleift að greina niðurstöður rannsókna með miklum hraða.

Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu
Almenn sátt virðist ríkja meðal landsmann aum kjör Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands samkvæmt niðurstöðum nýs þjóðarpúls Gallup. Ríflega helmingur svarenda sagðist mjög eða að öllu leyti sáttur við kjör hennar í embættið.

Einn af hverjum fjórum tók ákvörðun á kjördegi
Einn af hverjum fjórum tóku ákvörðun um það á kjördegi hvern þau ætluðu að kjósa í forsetakosningunum 1. júní síðastliðinn. Þetta kom fram í könnun Prósents sem framkvæmd var dagana 6. til 12. júní.

Flestir ánægðir með kjör Höllu Tómasdóttur
Sextíu og þrjú prósent svarenda eru ánægð með kjör Höllu Tómasdóttur í embætti forseta Íslands samkvæmt nýrri könnun Prósents. Tuttugu og fjögur prósent segjast hvorki vera ánægð né óánægð og 13 prósent eru óánægð. Könnunin var framkvæmd dagana 6. til 12. júní.

Brynjar grætur ekki fylgistap Vg sem hann segir þeim sjálfum að kenna
Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins gefur minna en ekkert fyrir það tal að Vinstri grænir séu nú búnir að gefa meira en nóg eftir, með vísan til fylgishruns.

Samfylkingin með öll spil á hendi í stjórnarmyndun
Samfylkingin gæti myndað að minnsta kosti fjórar útgáfur af ríkisstjórn ef kosið yrði í dag samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups sem birtur var í dag.

VG mælist aðeins með þrjú prósent
Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup í dag myndi Vinstri hreyfingin grænt framboð þurrkast út af þingi, en flokkurinn mælist aðeins með þrjú prósent. Samfylkingin mælist stærst með þrjátíu prósent.

Telja kjósendur Höllu og Katrínar hafa kosið taktískt
Í skoðanakönnun Maskínu þann 31. maí voru landsmenn spurðir að því hvort þeir myndu kjósa taktískt ef tveir frambjóðendur væru efstir og jafnir, þ.e. velja annan hvorn þeirra. Í ljós kom að um 60 prósent svarenda hefðu valið annaðhvort Höllu Tómasdóttur eða Katrínu Jakobsdóttur.

Brýnt að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs
Mjög brýnt er að breyta fyrirkomulagi forsetakjörs að mati prófessors í stjórnmálafræði til að tryggja víðtækari stuðning við þann sem er kjörinn. Sigur Höllu Tómasdóttur sé augljóslega taktískur að vissu leyti.

Könnun Maskínu daginn fyrir kjördag staðfesti flugið á Höllu Tómasdóttur
Könnun sem Maskína gerði daginn fyrir kjördag staðfesti að allar líkur væru á að Halla Tómasdóttir myndi bera sigur úr bítum í kosningunum. Maskínu þótti hins vegar ekki rétt að birta könnun á kjördag.

Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag
Katrín Jakobsdóttir er með 25,6 prósenta fylgi og Halla Tómasdóttir með 23,9 prósenta fylgi samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Ekki er marktækur munur á þeim.

Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld
Allt sem forsetaframbjóðendur gera nú á siðasta degi kosningabaráttunnar getur skipt sköpum, að mati prófessors í stjórnmálafræði. Athyglisverð átök hafi komið fram milli frambjóðenda í kappræðum gærkvöldsins.

Síðustu kannanir gefa fyrirheit um æsispennandi kosningar
Þrjár fylgiskannanir voru birtar í gær. Sú fyrsta var könnun Maskínu fyrir fréttastofuna og greint var frá í hádeginu. Þar hefur Halla Tómasdóttir, sem verið hefur á mikilli siglingu, skotist upp að Katrínu Jakobsdóttur og mælast þær báðar með 24,1 prósent.

Svakalega jafnt á toppnum samkvæmt nýrri könnun Prósents
Ómarktækur munur er á Höllu Tómasdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Höllu Hrund Logadóttur í nýrri skoðanakönnun Prósents fyrir Morgunblaðið.

Katrín með mikið forskot í nýrri könnun
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands er Katrín Jakobsdóttir með 26,3 prósenta fylgi en næsti maður, Halla Tómasdóttir, með 18,5 prósenta fylgi. Halla Hrund Logadóttir mælist með litlu minna fylgi en nafna hennar, 18,4 prósent.

Magnaðar vendingar í kapphlaupinu á Bessastaði
Eiríkur Bergmann stjórnmálaprófessor segist nú ekki þora fyrir sitt litla líf að spá fyrir um hver endar sem forseti Íslands.

Enn bætir Miðflokkurinn við sig
Samfylkingin heldur enn forystu sinni í könnunum, er með 27,3 prósent og munar tíu prósentustigum á Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokki sem kemur næstur með 17,5 prósenta fylgi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu.

Katrín og Halla Tómasdóttir hnífjafnar í nýrri könnun Maskínu
Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir eru hnífjafnar samkvæmt nýrri könnun fyrir fréttastofuna. Marktækur munur er á fylgi þeirra og Höllu Hrundar Logadóttur sem nýtur næst mest fylgis á eftir þeim. Seinni kappræður fréttastofunnar vegna forsetakosninganna næst komandi laugardag verða í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi strax að loknum kvöldfréttum.