Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Smitrakningu að mestu lokið
Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær í tveimur aðskildum tilfellum. Fjörtíu manns eru í sóttkví vegna þessa en ekki hefur tekist að finna upprunalegan smitbera.

Kröfðu farþega til Íslands um niðurstöður skimunar fyrir brottför
British Airways krafði farþega til Íslands um framvísun neikvæðs kórónuveiruprófs fyrir brottför, þrátt fyrir að skimanir séu framkvæmdar á landamærunum. Félagið hefur beðist afsökunar.

Trudeau glímir við enn eitt hneykslismálið
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, og fjármálaráðherra hans sæta nú harðri gagnrýni eftir að í ljós kom að góðgerðasamtök sem þeir veittu milljarðasamning hafa greitt skyldmennum þeirra beggja háar fjárhæðir undanfarin ár. Stjórnarandstaðan krefst afsagnar fjármálaráðherrans.

Ekki vitað hver upprunalegur smitberi er
Tvö innanlandssmit greindust á landinu í gær í tveimur aðgreindum málum. Um er að ræða fyrsta innanlandssmitið sem greinist síðan 2. júlí og er möguleiki á hópsýkingu. Unnið er að smitrakningu.

Mel Gibson var lagður inn á sjúkrahús þegar hann greindist með kórónuveiruna
Stórleikarinn Mel Gibson var lagður inn á sjúkrahús í apríl þegar hann smitaðist af kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum.

Frjálsíþróttakeppandi með veiruna - Meistaramótið fer fram um helgina
Á þriðja tug einstaklinga eru komnir í sóttkví eftir að þátttakandi á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum, 15-22 ára, um síðustu helgi greindist með kórónuveiruna.

Arnór og Hörður voru einkennalausir
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmenn í fótbolta, eru nú í einangrun eftir að próf gaf til kynna að þeir gætu verið smitaðir af kórónuveirunni.

Tvö innanlandssmit greindust í gær
Tveir greindust hér á landi í gær í tveimur aðgreindum málum. Báðir einstaklingar eru með einkenni Covid-19 og eru nú komnir í einangrun.

Grímuskylda tekin upp á Englandi
Viðskiptavinir verslana, banka og stórmarkaða þurfa nú að vera með grímu til að draga úr líkum á kórónuveirusmitum samkvæmt nýjum reglum sem hafa tekið gildi á Englandi. Allt að 17.000 króna sekt liggur við því ef fólk neitar að bera grímu.

Sturgeon sakaði Boris um að reyna að nýta sér faraldurinn í pólitískum tilgangi
Forsætisráðherra heimastjórnar Skotlands sakaði í dag forsætisráðherra Bretlands um að beita kórónuveirufaraldrinum sem „einhverskonar pólitísku vopni.“

Meira en fjórar milljónir tilfella í Bandaríkjunum
Fimmtán dagar eru síðan fjöldi smita náði þremur milljónum.


Ekki einu sinni skúturnar sleppa í gegnum nálaraugað
Um 2600 sýni vegna kórónuveirunnar hafa verið tekin af fólki sem kemur sjóleiðina til landsins og segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn skimunarvinnuna hafa gengið vel.

Ísland taki þátt í bóluefnisverkefni
Íslensk stjórnvöld eru áhugasöm um að taka þátt í alþjóðlegu verkefni Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) um bóluefni við kórónuveirunni.

Breyta upplýsingagjöf eftir skimun
Aðeins þau sem eru smituð við komuna til landsins munu fá tilkynningu frá almannavörnum.

Svona var 88. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boðuðu til upplýsingafundar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag.

Einn smitaður við landamærin
Alls voru 2.186 sýni tekin síðasta sólarhringinn.

Tap Össurar nam 1,5 milljarði á fyrri hluta ársins
Minni sala og kostnaður vegna fyrirhugaðar sölu rekstrareiningunni Gibaud í Frakklandi eru sagðar ástæður þess að tap Össurar á fyrri hluta ársins nam 11 milljónum Bandaríkjadala, eða um 1,5 milljarði.

Yfirvöld í Bretlandi voru illa búin undir faraldurinn
Þingnefnd um endurskoðun ríkisreikninga í Bretlandi gagnrýnir ríkistjórn landsins harðlega fyrir illa útfærð og vanhugsuð viðbrögð við efnahagslegum afleiðingum kórónuveirufaraldursins.

Þrettán nunnur úr sama klaustri létust vegna Covid-19
Faraldur kórónuveirunnar hefur haft mikil áhrif á heimsbyggðina en óvíða jafn mikil og í klaustri einu í Livonia, skammt utan við bandarísku borgina Detroit. Þrettán nunnur úr klaustrinu létu lífið af völdum veirunnar.

Ætluðu að sigla frá landinu en greindust á flugvellinum
Tveir skipverjar súrálsskipsins Seaboss, sem lagðist að bryggju á Grundartanga síðastliðinn miðvikudag, greindust með Covid-19 við landamæraskimun á Keflavíkurflugvelli.

Unga fólkið of skynsamt til að taka einhverjar áhættur
Lögreglan og viðbragðsaðilar biðla til fólks að sýna skynsemi og hópast ekki saman á stórum óformlegum skemmtunum um verslunarmannahelgina.

Ráðleggingar nútímans svipaðar sóttvörnum fyrri tíma
Frá fimmtándu öld hafa sex skæðar farsóttir geisað hér á landi en í þeirri verstu er talið að helmingur þjóðarinnar hafi fallið.

Grunur um að Arnór og Hörður hafi smitast
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon verða ekki með CSKA Moskvu í lokaumferð rússnesku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag vegna gruns um að þeir hafi smitast af kórónuveirunni.

Annar þeirra sem biðu í gær reyndist með virkt smit
Ekkert jákvætt sýni greindist við kórónuveiruskimun við landamærin í gær.

Gunnhildur fegin að komast til Íslands: „Vorum tvær saman í þrjá mánuði“
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir getur vart beðið eftir því að komast til Íslands í frí eftir erfiða mánuði í Bandaríkjunum þar sem kórónuveirufaraldurinn hefur haldið landsliðskonunni í hálfgerðri gíslingu frá því í mars.

Tekjur Icelandair féllu um 85 prósent milli ára
Bráðabirgðarekstrarniðurstöður Icelandair fyrir annan ársfjórðung benda til þess að tekjur félagsins hafi lækkað um 85 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Sóttvarnastofnun Evrópu uppfærir íslensku tölurnar
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu munu ríki sem sett höfðu Ísland á áhættulista uppfæra sína lista nú í vikunni til samræmis.

Þrír af hverjum tíu gætu veikst alvarlega
Heilbrigðistofnun Ameríkuríkja varar nú við því að kórónuveirufaraldurinn á svæðinu sýni engin merki þess að vera að hægja á sér.

Trump biðlar til Bandaríkjamanna að bera grímur fyrir vitum
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að kórónuveirufaraldurinn muni fara stigversnandi áður en hann hægi á sér og bað hann Bandaríkjamenn jafnframt um að bera grímur fyrir vitum.