

Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið og bandarísku flugvélaleiguna ALC af milljarðakröfum Isavia. Þar með staðfestir Hæstiréttur dóm Landsréttar, en Héraðsdómur Reykjavíkur hafði komist að annarri niðurstöðu og taldi að dómari við Héraðsdóm Reykjaness hefði komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni.
Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni.
Isavia hyggst á næstu dögum stefna íslenska ríkinu og flugvélaleigufélaginu Air Lease Corporation (ALC) fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar sem hafnaði kröfu Isavia um að fá úrskurð Héraðsdóms Reykjaness felldan úr gildi þess efnis Isavia yrði að afhenda bandaríska leigufélaginu ALC Airbus-þotu sem Isavia hafði kyrrsett gegn öllum skuldum flugfélagsins WOW air.
Landsréttur hafnaði kröfu Isavia um að úrskurður Héraðsdóms Reykjaness yrði felldur úr gildi.
Skiptastjórar WOW air telja möguleika á að ekki hafi verið dregin upp rétt mynd af fjárhag flugfélagsins fyrir skuldabréfaútboðið haustið 2018. Félagið hafi verið ógjaldfært.
Kröfur í þrotabú flugfélagsins WOW Air nema rúmlega 138 milljörðum króna en 5964 kröfur bárust fyrir lok kröfulýsingarfrests þann 3. ágúst síðastliðinn. Ekki hefur verið tekin afstaða til krafanna en farið verður yfir kröfuskrá á skiptafundi WOW Air 16. ágúst næstkomandi.
Þetta kemur fram í kröfuskrá þrotabúsins sem afhent var þeim kröfuhöfum sem óskuðu eftir í dag.
Ný íslensk flugfélög gætu horft fram á verri kjör hjá erlendum leigusölum vegna kyrrsetningar Isavia á Airbus-vél bandaríska félagsins ALC. Kyrrsetningin hafði neikvæð áhrif á Ísland sem flugrekstrarland að mati leigusalanna sem meta áhættu í starfsumhverfi flugfélaga þegar þeir ákvarða leigukjör.
Ákveðin kaflaskil hafa orðið með því að vél ALC er farin úr landi að sögn forstjóra Isavia. Staðan til að innheimta skuld WOW hafi versnað. Hægt sé að draga lærdóm af málinu en ekki sé hægt að kalla einstaklinga til sérstakrar ábyrgðar.
Forstjóri Isavia segir að það hald sem félagið hafði vegna tveggja milljarða króna skuldar WOW air hafi flogið í burtu í morgun þegar flugvél ALC leigusalans yfirgaf Ísland. Mikilvægt sé að Landsréttur taki til meðferðar kæru Isavia vegna úrskurðar héraðsdóms í vikunni um að eigandinn fengi vélina sína afhenta á ný.
Trygging sem Isavia hafði fyrir skuldum WOW air er farin af landi brott eftir að farþegaþota bandarísku flugvélaleigunnar ALC sem Isavia kyrrsetti fór frá Keflavíkurflugvelli í morgun. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að málinu sé ekki lokið, það verði áfram rekið fyrir dómstólum.
Flugvél ALC sem fór af landi brott í morgun er stefnt til Ljubljana í Slóveníu þar sem leigufélagið er með aðstöðu til að vera með þotur í viðhaldi.
Þotan sem Isavia kyrrsetti í mars og hefur verið miðpunktur dómsmála síðustu mánuði yfirgaf Keflavíkurflugvöll í morgun.
Isavia hefur samþykkt að láta Airbus farþegaþotu bandarísku flugvélaleigunnar ALC af hendi í samræmi við úrskurð héraðsdóms í gær. Lögmaður ALC segir stefnt að því að fljúga vélinni af landi brott strax á morgun.
Isavia hefur kært úrskurð héraðsdóms frá því í morgun sem heimilar flugvélaleigufyrirtækinu ALC að flytja farþegaþotu frá landinu sem hefur verið kyrrsett frá gjaldþroti WOW air. Lögmaður ALC segir unnið að því að koma vélinni frá Íslandi. Líklega verði Isavia krafið um bætur sem nemi tæplega 200 milljónum króna.
Isavia hefur kært niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í máli ALC gegn fyrirtækinu til Landsréttar.
Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði í dag í máli bandaríska leigufélagsins ALC gegn Isavia. Niðurstaða Héraðsdóms var sú að Isavia hafi einungis verið heimilt að kyrrsetja þotuna TF-GPA, sem ALC hafði leigt til WOW air, vegna skulda sem hvíldu á þotunni, en ekki vegna heildarskulda WOW air við Isavia.
Landsréttur úrskurðaði í málinu í dag.
Hæstiréttur hefur ómerkt úrskurð Landsréttar í máli ALC gegn Isavia.
Hæstiréttur Íslands hefur gefið flugvélaleigufyrirtækinu ALC leyfi til að áfrýja úrskurði Landsréttar í máli fyrirtækisins gegn Isavia.
Ekkert útlit virðist vera fyrir að Airbus-þota bandaríska flugvélaleigufyrirtækisins ALC, sem Isavia kyrrsetti á Keflavíkurflugvelli í lok mars fyrir ríflega tveggja milljarða króna skuld WOW air, losni þaðan í bráð.
Stefán Einar Stefánsson, fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu og höfundur bókar um fall WOW air, segir svör Skúla Mogensen um fullyrðingar sem birtust í bókinni einungis sýna fram á mikilvægi bókarinnar.
Kröfu bandaríska flugvélaleigasalans ALC um að kyrrsetningu Isavia á Airbus-flugvél leigusalans verði aflétt hefur verið vísað frá af Héraðsdómi Reykjaness.
Airbus A321 farþegaþotunni, sem Isavia kyrrsetti á Keflavíkurflugvelli vegna tveggja milljarða króna skuldar hins gjaldþrota WOW air, hefur verið stefnt til Englands.
Framkvæmdastjóri Isavia segir að fyrirtækið vilji koma flugvél WOW air, sem er í eigu flugvélaleigufyrirtækisins ALC, og hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli síðan í mars, í loftið sem allra fyrst. Hann fagnar úrskurði Landsréttar, sem féll Isavia í vil í dag.
Landsréttur komst að þessari niðurstöðu í dag og staðfesti þar með úrskurð Héraðsdóms Reykjaness frá því í byrjun mánaðar.
Isavia og ALC deila enn um farþegaþotu sem Isavia kyrrsetti eftir fall Wow air í mars.
Bandaríska flugvélaleigufyrirtækið ALC segist hafa tapað sem nemur 67 milljónum króna vegna kyrrsetningar Isavia á farþegaþotu sem WOW air var með á leigu. Eftir tíu daga nemi tapið sömu upphæð og WOW air skuldaði vegna vélarinnar.
Isavia fékk í dag vikufrest til að skila greinargerð vegna aðfararbeiðni flugvélaleigufyrirtækisins ALC þegar málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. Isavia mun krefjast þess að málinu verði vísað frá, að sögn Guðjóns Helgasonar upplýsingafulltrúa Isavia.