Innlent
Kona slasast í Hornvík
Kona slasaðist í Hornvík á Ströndum fyrir skömmu. Björgunarbáturinn Gunnar Friðriksson frá Ísafirði er á leið að sækja konuna ásamt lækni og sjúkraflutningamönnum. Talið er að konan hafi axlabrotnað og verður hún flutt á sjúkrahúsið á Ísafirði.

Brúðkaup við landamæri Líbanons og Ísraels
Mitt í öllum átökunum við landamæri Líbanon og Ísraels reynir fólk að halda áfram að lifa eðlilegu lífi og ísraelskt par gifti sig við landamærin í gær.
Flugumferðarstjórar furða sig á yfirlýsingum Flugmálastjórnar
Flugumferðarstjórar furða sig á yfirlýsingum Flugmálastjórnar um að þeir hafi hafnað tilboði um nýtt fyrirkomulag vakta í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Þeim hafi aldrei verið boðið upp á samninga um breytt vaktafyrirkomulag.

Ísmaðurinn á leiðinni heim
Ísmaðurinn, Sigurður Pétursson, hefur verið fastur á ís ásamt eiginkonu sinni um 100 sjómílur frá heimabæ sínum Kuumiiut á Austur strönd Grænlands. Hann losnaði í morgunn og segist hlakka til að koma heim.

2,6 prósenta hagvöxtur í Bretlandi
Hagvöxtur í Bretlandi mældist 2,6 prósent á öðrum ársfjórðungi en var 1,8 prósent á sama tíma í fyrra, samkvæmt útreikningum bresku hagstofunnar sem birtir voru í dag. Greiningardeild Glitnis banka segir aukinn hagvöxt í Bretlandi koma sér ágætlega fyrir íslenska hagkerfið vegna mikilla viðskipta á milli Bretlands og Íslands.

Bensínverð lækkar
Olíufélagið Esso lækkar verð á bensíni í dag og lækkar hver lítri af bensín um eina krónu og tíu aura. Fyrr í vikunni reið ESSO á vaðið og hækkaði verð á bensínlítranum um þrjár krónur og fjörtíu aura.

Aflaverðmæti dregst saman um 3,8%
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna fyrstu fjóra mánuði ársins samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Aflaverðmæti hefur dregist saman um einn milljarð eða 3,8 % frá því á sama tímabili í fyrra.
Báturinn fundinn
Báturinn sem strandaði í morgun á flosinni á milli Sandgerðis og Garðs er fundinn. Björgunarsveitir leituðu bátsins sem fannst rétt fyrir utan Garðskagans. Beðið er eftir flóði til að flytja bátinn til hafnar en einn maður var á bátnum með fimm tonn af fiski. Honum varð ekki meint af.
Launavísitala í júní hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði
Launavísitala í júní 2006 er 290,4 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 8,8%

Launavísitalan hækkaði um 0,4 prósent
Launavísitalan í júní hækkaði um 0,4 prósent frá maí og er 290,4 stig. Vísitalan hefur hækkað um 8,8 prósent síðastliðna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Aflaverðmæti fiskiskipa minnkar milli ára
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 25 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Þetta er einum milljarði minna en á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 3,8 prósentum, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Fíkniefnabrot aldrei verið fleiri
Skráð fíkniefnabrot í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði hafa aldrei verið fleiri en í ár, 2006. Það sem af er árinu hefur lögreglan í Hafnarfirði lagt hald á yfir sex kíló af ólöglegum fíkniefnum en til samanburðar gerði lögreglan aðeins upptækt tæpt kíló árið áður.
Bátur strandar
Lítill bátur strandaði í morgun á flosinni á milli Sandgerðis og Garðs. Björgunarsveitir eru á staðnum, en hafa enn ekki fundið bátinn.

Rannsókn á ráni lýkur
Lögreglan í Reykjavík hefur lokið rannsókn á ráni í verslun í Mosfellsbæ síðustu helgi. Fimm voru handteknir vegna málsins en þrír hafa setið í gæsluvarðhaldi.

Tapaði síma og fermingarúri
Nokkuð er um að þjófar láti greipar sópa í búningsklefum íþróttahúsa. Þótt íþróttamannvirki séu oft með mann á vakt er oft mikill umgangur um þau og erfitt fyrir vaktmenn að greina svörtu sauðina úr hópnum. Á meðan á knattspyrnuleik stóð milli Fjölnis og Vals í vikunni komst þjófur í búningsklefa Fjölnisheimilisins og hafði meðal annars þrjá GSM-síma af keppendum beggja liða.

Vill rannsaka mávavandann
Dýraverndarsamband Íslands segir veiðar meindýravarna á mávum í miðborginni vera óleyfilegar og valda ónæði. Öðrum aðferðum sé hægt að beita. Borgaryfirvöld segjast fylgja öllum settum reglum.
Vitna að grjóthruni óskað
Möl og grjót féll af palli stórrar grænblárrar vörubifreiðar á Reykjanesbraut um klukkan 14.30 hinn 3. júlí síðastliðinn, sem olli tjóni á fjórum bílum hið minnsta.

Minni eftirspurn á fasteignamarkaði
Vaxtahækkanir undanfarið hafa orðið til þess að byggingaverktakar halda að sér höndum og fækka framkvæmdum. Enginn vill sitja uppi með lager af óseldum íbúðum, segir framkvæmdastjóri hjá Íslenskum aðalverktökum.
Sveitarfélögin íhuga aðild sína að Strætó
Strætó bs. tapaði rúmlega milljón á dag fyrir sparnaðaraðgerðir. Fulltrúi borgarinnar í stjórn fyrirtækisins vanrækti að tilkynna um stöðu mála. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir sveitarfélög íhuga að endurskoða aðild sína að Strætó bs.

Lenging nauðsynleg
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar sendi frá sér ályktun í gær um lengingu flugbrautar á Akureyrarflugvelli, sem rædd hefur verið hjá bæjaryfirvöldum. „Lenging flugbrautar er grundvallaratriði varðandi framtíðaruppbyggingu millilandaflugs um völlinn og skapar mikil sóknarfæri,“ segir í ályktuninni.

Fjórðungslækkun síðar á þessu ári
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að lækka gjaldskrá leikskóla borgarinnar.

Sex á sjúkrahús eftir árekstur
Flytja þurfti sex manns á sjúkrahús eftir mjög harðan árekstur þriggja bíla á Reykjanesbraut klukkan tíu í gærmorgun. Beita þurfti klippum til að ná einum hinna slösuðu úr bílflaki.
Stálu 10 til 15 milljónum
„Þetta reyndust ekki nógu nákvæmar upplýsingar sem lögregla veitti Fréttablaðinu. Hið rétta er að þær upphæðir sem stolið hefur verið úr heimabönkum fólks nema tíu til fimmtán milljónum króna,“ sagði Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík.
Hindrar heimabankaþjófnað
Hafnar eru tilraunir með notkun svokallaðra einskiptis lykilorða til að auka öryggi þeirra viðskiptavina bankanna sem nota heimabanka. Búnaður til þessara nota er kominn til landsins og er nú nokkur fjöldi viðskiptavina bankanna að prufukeyra hann. Þetta segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja.

Reglugerð um endurgreiðslur
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur gefið út umburðarbréf til lögreglustjóra vegna löggæslukostnaðar við útihátíðahald. Samkvæmt nýjum reglum skulu mótshaldarar endurgreiða lögreglustjóra allan kostnað sem hlýst af aukinni löggæslu umfram það sem eðlilegt getur talist.

Erfitt að staðsetja notendur netsíma
Í stjórnsýslukæru Ríkislögreglustjóra og Neyðarlínunnar segir að það geti verið vandkvæðum bundið að staðsetja notendur netsíma. Hætta getur skapast í neyðartilfellum í störfum lögreglu og björgunarsveita, að sögn kærenda.
Kannar einkaframkvæmdir
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað nefnd sem á að kanna í hvaða tilfellum einkaframkvæmdir í samgöngumálum geti talist vænlegur kostur.
Ræningi skildi eftir blóðslóð
Fjögur innbrot hafa komið til kasta lögreglunnar í Reykjavík undanfarna daga. Á miðvikudag var tilkynnt um tvö innbrot, annað á heimili í Breiðholti þar sem flatskjá var stolið og hitt í bifreið við Laugaveg. Í gær var tilkynnt um tvö innbrot til viðbótar. Hurð á veitingastað í austurbænum var sparkað upp og tuttugu þúsund krónum stolið. Þá var brotist inn á heimili við Hverfisgötu og fartölva og myndavél tekin. Ræninginn virðist hafa skorið sig og skilið eftir blóðslóð. Allir þjófarnir eru ófundnir. Lögreglan segir innbrot ganga í bylgjum.

Fjórum bjargað úr eldsvoða
Slökkviliðsmenn Brunavarna Suðurnesja björguðu í fyrrinótt fjögurra manna fjölskyldu, hjónum og tveimur ungum börnum, út um glugga á brennandi húsi í Keflavík. Feðgar sem einnig bjuggu í húsinu komust út af sjálfsdáðum. Engan sakaði.

Bæjarstjóri í Fjallabyggð
Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti á fundi sínum í vikunni að ráða Þóri Kristin Þórisson í starf bæjarstjóra. Fjallabyggð varð til við sameiningu Siglufjarðar og Ólafsfjarðar nú í vor og er Þórir fyrsti bæjarstjóri hins nýja sveitafélags.