Innlent


Bjarni Harðarson stefnir á 2. sæti
Bjarni Harðarson, fyrrverandi ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins og væntalegur bóksali á Selfossi, hefur aðkveðið að gefa kost á sér í 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi vegna komandi kosninga til Alþingis. fréttavefurinn sudurland.is greinir frá.

ESB vill kæfa EES-samninginn
Evrópusambandið er meðvitað að reyna að kæfa EES-samninginn, segir forstöðumaður Evrópufræðasetursins á Bifröst. Við stækkun ESB um næstu áramót verður þess líklega krafist að framlag Íslands í þróunarsjóð hækki um tuttugu prósent - úr hálfum milljarði króna árlega í rúmar sex hundruð milljónir.

Staða Guðfinnu skýrist
Bjarni Ármannsson, bankastjóri og stjórnarmaður í Háskólanum í Reykjavík, og Guðfinna S. Bjarnadóttir rektor, tilkynna væntanlega í hádeginu hver verður staðgengill Guðfinnu og einnig hver framtíðarstaða hennar verður í skólanum.
Dótturfélag Nýsis kaupir í Bretlandi
Nysir UK Limited, dótturfélag Nýsis hf., hefur keypt 69 prósent hlutafjár í breska fasteignastjórnunarfélaginu Operon, sem er með samninga um fasteignastjórnun á byggingum víða um Bretland. Kaupverð er trúnaðarmál.

Sigurbjörg sleppir erninum sínum
Haförninn Sigurörn sem hefur dvalið í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum frá því í lok júní sl. fær nú brátt að njóta frelsisins á ný. Örninn hafði steypst ofan í lón en náði að koma sér að landi þar sem Sigurbjörg S. Pétursdóttir, ung stúlka úr Grundarfirði, handsamaði hann og kom honum, með góðri hjálp, undir hendur sérfræðinga.

Verndun götumyndar Lindargötu aflétt
Verndun götumyndar á nokkrum húseignum við Lindargötu hefur verið aflétt. Eigendur húsanna hafa fengið heimsóknir að undanförnu frá athafnamönnum sem vilja kaupa af þeim á markaðsverði. Þeir fá viku til að hugsa sig um.

Útvarpsskatturinn 14.580 á ári
Þeir sem eru skattskyldir – fólk og fyrirtæki – þurfa að greiða 14.580 krónur í skatt til Ríkisútvarpsins ohf. á ári hverju. Þetta kemur fram í frumvarpi menntamálaráðherra um breytingu Ríkisútvarpsins í hlutafélag í eigu ríkisins, sem lagt var fram á Alþingi í gær. Skatturinn verður lagður á eftir 1. janúar 2009 en fram að því verða afnotagjöldin áfram innheimt.

Þjóðvegur eitt verði á láglendi
Þingmenn Frjálslynda flokksins vilja að allar helstu leiðir á þjóðvegi 1, Vestfjörðum og norðausturhluta landsins verði á láglendi, undir 200 metra hæð yfir sjávarmáli.

Öryggi borgaranna aukið
Markmið nýs lögregluembættis á höfuðborgarsvæðinu er að auka öryggi og öryggistilfinningu þeirra sem búa og starfa á höfuðborgarsvæðinu. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í gær við kynningu áhersluatriða nýs lögregluembættis á höfuðborgarsvæðinu.

Saka fyrrum meirihluta um óráðsíu
Borgarstjóri segir niðurstöður úttektar á fjárhagsstöðu borgarinnar áfellisdóm yfir fjármálastjórn síðasta meirihluta. Fyrrverandi borgarstjóri segir stöðu borgarinnar sterka, umsagnir um að áætlanir hafi ekki staðist séu bull.

Tilteknar aðgerðir horfnar af spítölum
Sérstök verkefni innan heilbrigðiskerfisins hafa að undanförnu færst til einkafélaga. Varhugavert að halda ekki þekkingu innan spítalanna, segir Jóhannes M. Gunnarsson. Forðumst einkavæðingu, segir Steingrímur J. Sigfússon.

Ísland verði tekið af lista hinna fúsu
Formenn þingflokka stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi, Magnús Þór Hafsteinsson Frjálslynda flokknum, Ögmundur Jónasson vinstri grænum og Össur Skarphéðinsson Samfylkingunni hafa endurflutt tillögu til þingsályktunar um að Ísland verði, með formlegum hætti, tekið af lista þeirra þjóða sem studdu innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak. Tillagan gerir ráð fyrir að Alþingi feli ríkisstjórninni verkið. Jafnframt er þess krafist að lýst verði yfir að stuðningur við innrásina hafi verið misráðinn.

Kjötvörur stærstar í matarútgjöldunum
Stærsti hlutinn af útgjöldum heimilanna fer í húsnæði og næststærsti hlutinn í ferðakostnað. Matarkostnaðurinn er þriðji stærsti útgjaldaliður heimilanna. Af matnum taka kjötvörur mest, rúman fimmtung af matarútgjöldunum.

Frítekjur verði 900 þúsund á ári
Allir þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi; Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins, standa að þingsályktunartillögu um endurskoðun lífeyrismála. Samkvæmt henni á að ganga lengra en kveðið er á um í samkomulagi ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara frá í sumar um kjarabætur aldraðra og öryrkja.

Sigurrós sækist eftir 4. sætinu
Sigurrós Þorgrímsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins og bæjarfulltrúi í Kópavogi, gefur kost á sér í 4. sæti flokksins í Suðvesturkjördæmi.

Ójöfnuðurinn hefur skaðað samfélagið
Formað ur Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina í linnulausum hernaði gegn jöfnuði. Forsætisráðherra segir alla hafa það betra nú en áður. Félagsmálaráðherra ætlar að leita leiða til að bæta hag barnafjölskyldna sem búa við lök kjör.

Þurfa ekki að láta vita af sér
Tvær rússneskar sprengjuflugvélar flugu inn í íslenska lofthelgi í síðustu viku án þess að flugmálastjórn væri gert viðvart um að flug af þessu tagi ætti sér stað á umsjónarsvæði stofnunarinnar. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, segir venjuna vera þá að látið sé vita af heræfingum þannig að þær komi ekki á óvart og því óvenjulegt að flugmálastjórn hafi ekki verið látin vita með fyrirvara.
ÖBÍ fer í mál við fjórtán lífeyrissjóði
Öryrkjabandalag Íslands hefur ákveðið að höfða mál á hendur fjórtán lífeyrissjóðum. Engar lagalegar stoðir fyrir skerðingu og niðurfellingu örorkulífeyrisgreiðslna, segir Sigursteinn Másson. Undirbúningur málsins er hafinn.

Gefur ekki kost á sér aftur
Sigríður Anna Þórðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hefur tilkynnt að hún muni ekki aftur gefa kost á sér til þings. Sigríður Anna segir að þetta sé góður tími til að hætta, staða Sjálfstæðisflokksins sé sterk og Suðvesturkjördæmi langsterkasta kjördæmi flokksins.

Engar áætlanir um Íslandsflug
Greint hefur verið frá því í fjölmiðlum að eitt stærsta flugfélag heims, Ryanair, hafi ákveðið að hefja áætlunarflug til Íslands næsta sumar og er þetta haft eftir fréttabréfi Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Verð símtala í útlöndum lækkar í kjölfar samnings
Og Vodafone heitir eftirleiðis Vodafone á Íslandi. Í gær var skrifað undir samning við Vodafone Group um notkun vörumerkisins. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar í heiminum og markar upphaf nánara samstarfs fyrirtækjanna.

Sækist eftir leiðtogasæti
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sækist eftir að leiða lista Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Jónína settist á þing fyrir Framsóknarflokkinn árið 2000 og varð umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda í júní á þessu ári. Jónína hefur rekið Lögfræðistofuna sf. síðan 1985 ásamt eiginmanni sínum. Hún hefur verið formaður Heimils og skóla, Félags kvenna í atvinnurekstri og nefndar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í fíkniefnamálum.
Rafmagnsverð nú hagstæðara
Raforkuverð á Íslandi er nú orðið hagstæðara, borið saman við önnur lönd Vestur Evrópu en var í janúar, þar sem krónan hefur veikst um 16 prósent frá áramótum gagnvart Evrunni.

Hefur greitt 42 milljónir króna
Seltjarnarnesbær hefur á síðustu tíu árum greitt samtals 42 milljónir króna til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Bærinn hefur greitt til sveitarinnar frá 1982 en tölur um upphæðir ná aftur til 1996. Seltjarnarnes hefur eitt sveitarfélaga, utan Reykjavíkurborgar, greitt til Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Tekjur og íbúðaverð lágt
Meðalmánaðartekjur á Norðurlandi eystra eru með því lægsta sem þekkist á landinu. Aðeins í einum öðrum landshluta eru meðaltekjurnar lægri, nágrannasveitarfélaginu Norðurlandi vestra.

Sækist eftir fimmta sæti
Kristrún Heimisdóttir, varaþingmaður Samfylkingar í Reykjavík, býður sig fram í 5. sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík. Kristrún var lögfræðingur Samtaka iðnaðarins 2002-2006 og er nú stjórnarformaður Afrekssjóðs ÍSÍ og stjórnarformaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Hún starfar einnig sem stundakennari í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst.

Mun leiða lista í Reykjavík
Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins mun bjóða sig fram í Reykjavík og vill leiða lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi formaður leiddi lista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir síðustu kosningar og var Árni Magnússon, fyrrverandi félagsmálaráðherra, sem einnig hefur sagt skilið við stjórnmál, í öðru sæti listans. Í þeirra stað sitja nú Guðjón Ólafur Jónsson og Sæunn Stefánsdóttir á þingi fyrir Framsóknarflokkinn.