Lög og regla
Kastaði grjóti í leigubíl
Ungur maður kastaði grjóti í leigubíl sem var á ferð á Garðvegi á Reykjanesi rétt upp úr klukkan sex í morgun. Maðurinn var á göngu í vegkantinum og virðist hafa kastað grjótinu í bílinn í þann mund sem hann ók fram hjá honum. Steinninn skemmdi lakk bílsins töluvert og rannsakar lögreglan í Keflavík málið.

Umferð mikil en gekk að mestu vel
Umferðin var nokkuð mikil á þjóðvegum landsins nú um páskana en hún gekk að mestu vel. Margir notuðu páskafríið til ferðalaga og var umferð á þjóðvegum landsins mikil enda færð og veður með besta móti.

Reyndu að stela skjávörpum
Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um að eitthvað vafasamt gæti verið á seyði í byggingu Fjölbrautaskóla Suðurlands í bænum laust eftir miðnætti síðastliðna nótt. Þegar lögregla kom á staðinn voru þar tveir piltar, 16 og 17 ára gamlir, að bjástra við að taka niður skjávarpa í eigu skólans en slíkir gripir eru metnir á hundruð þúsunda.

Glasi hent í andlit manns
Maður slasaðist á skemmtistað í Keflavík í nótt þegar glasi var hent í andlit hans með þeim afleiðingum að það brotnaði og hlaut hann sár í framan. Mikið blæddi úr sárinu og var maðurinn fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem gert var að sárinu.

Kona í einangrun á Litla-Hrauni
Kvenfangi á fimmtugsaldri, sem afplánar dóm fyrir manndráp, var settur fyrirvaralaust og án þess að hafa brotið af sér í einangrun á Litla-Hrauni á miðvikudag. Fanginn hefur ekki fengið aðrar skýringar á flutningnum en þær að hugmyndir séu uppi um að vista konur, sem afplána langa dóma, í auknum mæli fyrir austan.

Nóttin róleg víðast hvar
Nóttin var róleg á flestum stöðum á landinu út frá sjónarhóli lögreglunnar. Í Reykjavík var að sögn varðstjóra nánast ekkert að gera þrátt fyrir töluverðan mannfjölda í miðbænum en skemmtistaðir voru opnir til klukkan þrjú.

Margmenni í miðbænum
Nóttin var róleg hjá lögreglunni í Reykjavík þótt margt fólk hafi verið í miðbænum fram eftir morgni. Margir skemmtistaðir og krár voru opnaðar á miðnætti og að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var sem betur fer lítið fyrir lögreglumenn að gera þótt töluverður mannfjöldi hafi verið þar samankominn.

Fundust heil á húfi
Laust eftir klukkan 17.00 í dag voru björgunarsveitir á Hellissandi og Ólafsvík kallaðar út vegna neyðarkalls sem borist hafði úr farsíma við sunnanverðan Snæfellsjökul. Ferðamenn höfðu villst sunnanmegin í Snæfellsjökli en fólkið fannst eftir rúmlega klukkutíma leit. Það var heilt á húfi en nokkuð kalt.
Niðurstöður í haust
"Erfitt er að segja til um hvenær rannsókn lýkur en við erum aðeins byrjaðir að sjá fyrir endann og niðurstöður gætu legið fyrir með haustinu," segir Helgi Magnús Gunnarsson, lögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra, um rannsóknina á olíumálinu svokallaða.
Harður árekstur við Kringluna
Harður árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um hálftvöleytið í dag. Ökumaður fólksbifreiðar var á leið norður Kringlumýrarbraut og hugðist beygja vestur Miklubrautina. Hann ók þá í veg fyrir mótorhjól sem var á leið suður eftir Kringlumýrarbrautinni og kastaðist ökumaður þess yfir bílinn og lenti á bakinu á götunni.

Fluttur á sjúkrahús eftir slagsmál
Tveimur piltum á tvítugsaldri lenti saman í einni íbúðargötu Ísafjarðarbæjar um klukkan eitt í nótt. Flytja þurfti annan piltinn á sjúkrahús en hann var ekki talinn alvarlega slasaður. Lögregla skakkaði leikinn en vitni létu vita af líkamsárásinni.

Ekið á bifhjólamann
Ungur vélhjólamaður slasaðist í árekstri bifhjóls og fólksbíls á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar um hálftvöleytið í dag. Bifhjólinu var ekið úr norðri eftir Kringlumýrarbraut þegar bílnum, sem kom úr suðri, var sveigt í veg fyrir bifhjólið. Ökumaður þess var fluttur í sjúkrabíl á slysadeild.
Eldur í blokk í Hafnarfirði
Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi að Svöluási 1 í Hafnarfirði laust eftir klukkan eitt í dag og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og var slökkvstarfi lokið rétt um klukkan tvö. Einn maður var í íbúðinni og var hann fluttur á slysadeild með snert af reykeitrun.
Flutt á sjúkrahús eftir bruna
Kona á sextugsaldri var flutt á slysadeild til skoðunar eftir að eldur kom upp í íbúð hennar á þriðju hæð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði.
Tveir gripnir með fíkniefni
Lögreglan í Hafnarfirði hafði afskipti af tveimur bílum í nótt vegna gruns um fíkniefnamisferli. Smáræði af kannabis fannst á einum manni í hvorum bíl. Báðir játuðu þeir að eiga fíkniefnin og teljast málin upplýst. Þá voru tveir teknir grunaðir um ölvun við akstur í bænum.
Smárúta valt á Sólheimasandi
Sjö svissneskir ferðamenn slösuðust, en allir lítils háttar, þegar smárúta valt á hliðina og hafnaði í skurði á Sólheimasandi í dag. Að sögn lögreglunnar í Vík í Mýrdal voru alls tólf manns í rútunni en bílstjórinn ásamt fjórum ferðamönnum sluppu án meiðsla. Rútan, sem er af gerðinni Ford Econline, var á þjóðvegi númer eitt, hringveginum, þegar skyndilega hvellsprakk á öðru framhjólinu.
Rúta lenti úti í skurði
Hópbifreið með tólf manns innanborðs fór út af þjóðveginum í gær, um 15 kílómetra vestur af Vík í Mýrdal, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Vík í Mýrdal.
Lést í umferðarslysi við Dalvík
Piltur á nítjánda ári lést þegar bifreið sem hann ók fór fram af hömrum skammt sunnan við Rauðuvík, milli Dalvíkur og Akureyrar. Lögreglu var gert viðvart seinni partinn í dag en ekki er vitað hvenær slysið varð. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Dalvík steyptist bíllinn ofan í fjöru. Vegrið eru á vegarkaflanum en þó ekki í allri beygjunni.

Sakfelldur fyrir fjölda smábrota
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi rúmlega tvítugan mann í þriggja mánaða fangelsi í morgun fyrir brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um ávana-og fíkniefni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í mars í fyrra haft í vörslu í bakpoka sínum 0,18 grömm af amfetamíni, sem lögreglan fann við leit eftir að hafa stöðvað bifreð sem hann var farþegi í.

Fengu eins mánaðar fangelsi
Þrír Pólverjar, sem teknir voru í gær á Suðurlandi þar sem þeir voru í vinnu á tilskilinna atvinnuréttinda, voru í dag dæmdir í eins mánaðar fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára í Héraðsdómi Suðurlands.
Lögreglan ekki beðin um aðstoð
Enn hefur engin formleg beiðni um aðstoð borist hingað til lands frá þýskum lögregluyfirvöldum um aðstoð við rannsókn máls þeirra tveggja skipverja á Hauki ÍS sem handteknir voru í Bremerhaven með mikið magn fíkniefna í fórum sínum.

Gekk berserksgang á lögreglustöð
Sunnlenskur atvinnurekandi gekk berserksgang á lögreglustöðinni á Selfossi í gær þegar hann ætlaði að sækja þangað íslenskan ökumann sinn sem hafði verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur og með útrunnið ökuskírteini. Hafði ökumaðurinn verið að aka pólskum starfsmanni atvinnurekendans til vinnu í uppsveitum Árnesssýslu en Pólverjinn hafði ekki atvinnuréttindi.
Maður lést í bílslysi
Ungur ökumaður á nítjánda ári lést í umferðarslysi á Ólafsfjarðarvegi í gær. Slysið varð skammt sunnan við bæinn Rauðuvík í Rauðuvíkurbrekkum. Bíllinn fór fram af háum bakka og lent í stórgrýti í flæðarmálinu.

Greip rúðubrjóta í Kópavogi
Lögreglan í Kópavogi handtók fjóra unglingspilta en tveir komust undan eftir að þeir höfðu brotið þrjár rúður í Grunnskólanum við Digranesveg. Vitað er hverjir sluppu en hópurinn er grunaður um að hafa brotið tvær rúður í sama skóla í fyrrakvöld. Þetta eru hrein og klár skemmdarverk, að sögn lögreglu, því piltarnir brutu ekki rúðurnar til að komast inn í skólann.

Greiði bætur upp á 3 milljónir
Alþjóða líftryggingafélagið hf. var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða konu tæpar þrjár milljónir króna vegna sjúkratryggingar sem konan hafði keypt hjá félaginu. Konan höfðaði málið þegar henni var neitað um greiðslu út á sjúkratrygginguna.

Hæstiréttur staðfesti dóminn
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Austurlands um að Fjarðabyggð og verktakafyrirtækið Arnarfell skuli greiða húseigenda í Neskaupstað eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna sprungna sem urðu í steinsteypu í húsi hans þegar verið var sð sprengja í hlíðinni fyrir ofan það vegna byggingar snjóflóðavarna.

18 mánuðir fyrir kynferðisbrot
Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem áttu sér stað þegar önnur þeirra var átta til tíu ára og hin þrettán til fjórtán ára. Brot mannsins gegn annarri stúlkunni voru hins vegar talin fyrnd.

Pólverjar teknir án atvinnuleyfis
Þrír Pólverjar, sem reyndust vera án atvinnuleyfis í vinnu á hérlendis, voru yfirheyrðir af lögreglunni á Selfossi í gær.

Þrjú tundurdufl á Langanesi
Landhelgisgæslunni barst í gær tilkynning frá lögreglunni á Þórshöfn um að tundurdufl hefðu fundist á Langanesi. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar fóru norður í morgun og sprengdu tundurduflið til að eyða því. Er sprengjusérfræðingarnir höfðu verið á staðnum um tíma fundu þeir tvö tundurdufl til viðbótar og voru að undirbúa eyðingu þeirra undir kvöld.

Fæstir ofbeldismenn greiða bætur
Fórnarlömb ofbeldismanna verða af stórum hluta þeirra miskabóta sem þeim hafa verið dæmdar. Ástæðan er að brotamennirnir eru í flestum tilfellum eignalitlir eða eignalausir og fellur þá bótagreiðslan á ríkissjóð. Þar sem miskabætur úr ríkissjóði hafa ekki hækkað síðan þær voru teknar upp fyrir áratug munar oft miklu á dæmdum bótum og bótagreiðslum