Erlendar

Yakubu fer ekki í Afríkukeppnina
Nígeríski sóknarmaðurinn Yakubu hjá Middlesbrough hefur gefið út að hann muni ekki fara í Afríkukeppnina með landsliði sínu í næsta mánuði, en hann hefði misst úr sex til níu leiki í deildinni með Boro ef af því hefði orðiðið.

Er í fýlu út í Wenger út af jólakorti
Nú er komið í ljós að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, neitaði að taka í hönd Arsene Wenger eftir leik liðanna á dögunum af því hann var í fýlu yfir því að Wenger tók illa í einlægt jólakort sem Mourinho hafði sent honum fyrir leikinn, þar sem hann baðst afsökunar á ummælum sínum um Wenger í gegn um tíðina.

Tvíframlengt hjá Memphis og Detroit
Detroit Pistons vann enn einn leikinn í NBA deildinni í nótt þegar liðið vann mjög nauman sigur á Memphis Grizzlies í tvöfaldri framlengingu 106-104. Chauncey Billups skoraði 30 stig fyrir Detroit og gaf 9 stoðsendingar, en Pau Gazol skoraði 32 stig og hirti 13 fráköst fyrir Memphis.

Ronaldinho bestur annað árið í röð
Brasilíski snillingurinn Ronaldinho hjá Barcelona var kjörinn knattspyrnumaður ársins af FIFA annað árið í röð við sérstaka athöfn í kvöld og hlaut yfirburðakostningu. Frank Lampard hjá Chelsea varð í öðru sæti í kjörinu og félagi Ronaldinho hjá Barcelona, Samuel Eto´o varð í þriðja sæti.

Federer og Clijsters best á árinu
Roger Federer og Kim Clijsters hafa verið útnefnd tennisleikarar ársins 2005 af alþjóða tennissambandinu. Fererer var í algjörum sérflokki á árinu og vann 11 mót, þar á meðal Wimbeldon og opna bandaríska meistaramótið, en Clijsters vann sig upp úr 134. sæti á styrkleikalistanum í það fyrsta og vann sigur á níu mótum.
Áttundi stjórinn rekinn
Holger Fach þjálfara og Thomas Strunz knattspyrnustjóra Wolfsburg var sagt upp störfum hjá félaginu í dag eftir að liðið þótti valda miklum vonbrigðum það sem af er vetri. Þetta er því í áttunda skipti í vetur sem þjálfari í þýsku úrvalsdeildinni eru látinn taka pokann sinn.

Tólf sigrar í röð hjá Barca
Spænsku meistararnir í Barcelona unnu sinn tólfta sigur í röð í deildinni um helgina, sem er besti árangur félagsins í hálfa öld. Portúgalski landsliðsmaðurinn Deco segir hinsvegar að það hjálpi þeim ekkert í lokaleik sínum á árinu þegar liðið tekur á móti Celta Vigo annað kvöld.

Junhui sigraði Davis í úrslitum
Kínverski snókerspilarinn Ding Junhui vann góðan sigur á gömlu kempunni Steve David í úrslitaleik breska meistaramótsins í snóker í gær. Davis, sem var að keppa í sínum 100. úrslitaleik á ferlinum, þurfti að játa sig sigraðan 10-6 gegn Kínverjanum unga, sem er tuttugu árum yngri en Davis og er mikið efni.

Chelsea er dæmi um hvernig á ekki að reka félag
Sepp Blatter, forseti FIFA er ekki hrifinn af því hvernig Chelsea sankar að sér útlendingum og segir að rekstur félagsins sé dæmi um hvernig eigi ekki að reka knattspyrnufélag. Hann segir að réttast væri að setja á reglur í ensku úrvalsdeildinni sem takmarka fjölda útlendinga í liðinum, eins og tíðkast víða annarsstaðar.

West Ham kaupir sóknarmann
Úrvalsdeildarlið West Ham hefur gengið frá þriggja og hálfs árs samningi við ísraelska sóknarmanninn Yaniv Katan sem leikið hefur með Maccabi Haifa. Katan er aðeins 24 ára gamall, en spilaði m.a. með liðinu í Meistaradeildinni aðeins sautján ára gamall.

Brassarnir óhressir með stuðningsmennina
Brasilísku leikmennirnir Ronaldo, Julio Baptista og Roberto Carlos hjá Real Madrid eru allir á einu máli um að óþolinmóðir áhorfendur á Bernabeu, heimavelli liðsins, séu ein helsta ástæða þess að liðið hefur átt erfitt uppdráttar þar í vetur.

Iquodala jafnaði troðslumet
Háloftafuglinn Andre Iguodala hjá Philadelphia skoraði 26 stig í nótt þegar lið hans burstaði Toronto, en hann tróð boltanum alls sex sinnum í leiknum og það er það mesta í fimm ár hjá bakverði í NBA deildinni. Það er hinsvegar Dwayne Wade hjá Miami sem er með flestar troðslur allra bakvarða í NBA í vetur með 51 troðslu, en Iguodala kemur næstur þar á eftir með 39 troðslur.

Bruce heldur starfinu
Stjórnarformaður Birmingham hefur gefið það út að Steve Bruce muni halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins áfram, þrátt fyrir skelfilegt gengi það sem af er leiktíðinni. Bruce kallaði frammistöðu leikmanna sinna hörmulega í eftir 4-1 tap fyrir Manchester City um helgina.

Mourinho er hrokagikkur
Bob Wilson, fyrrum markvörður Arsenal, segir að þó Jose Mourinho sé vissulega hæfileikaríkur knattspyrnustjóri, sé hroki hans ólíðandi og bendir því á að margir verði því fegnir þegar fer að halla undan fæti hjá honum.

Gæti átt yfir höfði sér sekt
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gæti átt yfir höfði sér sekt frá enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla hans eftir leikinn við Chelsea í gær, þar sem hann lét ýmislegt flakka um lið Chelsea og dómara leiksins Rob Styles. Talið er líklegt að sambandið ræði við Wenger fljótlega og biðji hann að færa rök fyrir máli sínu.

Dæmdur í sex mánaða keppnisbann
Varnarmaðurinn Ijah Anderson hjá Swansea hefur verið dæmdur í sex mánaða keppnisbann fyrir að hafa fallið á lyfjaprófi á dögunum, en þar kom í ljós að hann hafði notað eiturlyf. Anderson hélt því fram að lyfjunum hefði verið laumað í drykk hans á skemmtistað, en það var ekki tekið til greina og nú verður honum líklega sparkað frá félaginu.

Fær Ronaldinho enn ein verðlaunin?
Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho þykir afar líklegur til að verða fyrir valinu í kvöld þegar FIFA útnefnir knattspyrnumann ársins við hátíðlega athöfn. Ronaldinho hefur farið á kostum með Brasilíu og Barcelona og hefur sópað til sín verðlaunum undanfarið, enda þykir hann einfaldlega besti knattspyrnumaður heims.

Alonso fer til McLaren árið 2007
Þær stórfréttir bárust úr Formúlu 1 í morgun að heimsmeistarinn ungi, Fernando Alonso hjá Renault, hefur samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007 þegar samningur hans við Renault rennur út.

New Orleans skellti meisturunum
New Orleans Hornets gerði sér lítið fyrir og lagði meistara San Antonio í NBA deildinni í nótt 89-76. Hornets héldu Tim Duncan í aðeins 11 stigum, sem er það lægsta sem hann hefur skorað í vetur. Tæplega 20.000 áhorfendur í Oklahoma City trylltust af fögnuði þegar þeir sáu nýliðann Chris Paul eiga frábæran leik og stýra liðinu til sigurs gegn sterku liði San Antonio.

Mark Van Persie var löglegt
Arsene Wenger var afar óhress með frammistöðu Rob Styles dómara í tapinu fyrir grönnunum í Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Wenger þótti lið sitt vera rænt löglegu marki og sagði að Michael Essien hefði átt að vera rekinn af velli fyrir tæklingu sína á Lauren.

Hefur ekki áhyggjur af Arsenal lengur
Jose Mourinho segir að með sigrinum á Arsenal í dag, þar sem Chelsea náði 20 stiga forskoti á granna sína, geti hann hætt að hafa áhyggjur af Arsenal í toppbaráttunni og muni þess í stað horfa til Manchester United og Liverpool framvegis.

Ætlar að skrifa undir nýjan samning
Ef marka má fréttir úr þýskum blöðum í dag, mun markvörðurinn Oliver Kahn líklega skrifa undir nýjan samning við Bayern sem gilda mun til ársins 2008. "Mér líður of vel hérna til að hugsa um að fara annað," sagði Kahn. Kahn hefur verið hjá Bayern síðan 1994 og eftir frábæra frammistöðu með liðinu á árinu, er talið víst að hann verji mark Þjóðverja á HM í sumar.

Chelsea sigraði Arsenal
Chelsea vann góðan 2-0 útisigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og er sem fyrr með þægilegt forskot á toppnum. Þetta var þriðja tap Arsenal í deildinni í röð, en það hefur ekki gerst áður síðan Arsene Wenger tók við liðinu á sínum tíma. Það voru miðjumennirnir Arjen Robben og Joe Cole sem skoruðu mörk Chelsea, sem undirstrikaði styrk sinn enn eina ferðina.

Defoe fær óumbeðið jólafrí
Enski landsliðsmaðurinn Jermaine Defoe meiddist á ökkla í leiknum gegn Middlesbrough í dag og telur Martin Jol, stjóri liðsins, að hann muni verða frá í að minnsta kosti tvær vikur fyrir vikið. Þetta eru mjög slæm tíðindi fyrir lið Tottenham, sem er við það að missa egypska framherjan Mido í Afríkukeppnina og hefur því úr litlu að moða með framherja í hinni stífu jólatörn sem framundan er.

Meiðslin ekki eins alvarleg og óttast var
Meiðsli James Morrison, leikmanns Middlesbrough, eru ekki eins alvarleg og óttast var í fyrstu, en hann rotaðist í leik Boro og Tottenham fyrr í dag eftir samstuð við Robbie Keane. Morrison lá hreyfingarlaus á vellinum eftir að hafa fengið spark í höfuðið, en þegar til búningsherbergja kom, rankaði hann við sér og er nú á batavegi.

Mílanóliðin í stuði
Mílanóliðin AC og Inter söxuðu á forskot Juventus á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu í dag, en liðin unnu bæði sannfærandi 4-0 sigra á andstæðingum sínum.
Grétar Rafn skoraði fyrir Alkmaar
Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson skoraði þriðja og síðasta mark AZ Alkmaar í dag þegar það sigraði RKC Waalwijk 3-0 í hollensku fyrstu deildinni í dag. Alkmaar skaust þar með aftur í toppsæti deildarinnar.

Chelsea leiðir í hálfleik
Chelsea hefur 1-0 forystu í hálfleik gegn Arsenal á Highbury. Það var Arjen Robben sem skoraði mark gestanna á 39. mínútu. Chelsea hefur verið heldur sterkari aðilinn í leiknum, en Thierry Henry átti þó stangarskot fyrir Arsenal, sem hefur einnig fengið mark dæmt af vegna vafasamrar rangstöðu.

Stendur við gagnrýni sína á United
Roy Keane hefur gefið það út að hann standi við hvert einasta orð sem hann sagði í gagnrýni sinni á fyrrum félaga sína í Manchester United á dögunum, þegar liðið steinlá fyrir Middlesbrough 4-1. Þrumuræða Keane varð að margra mati kveikjan að því að hann fór frá United.

Eiður Smári á varamannabekknum
Jose Mourinho hefur kallað Claude Makelele inn í byrjunarlið Chelsea á kostnað Eiðs Smára í dag, en auk þess hefur William Gallas tekið stöðu hins meidda Asier del Horno í bakverðinum og Didier Drogba byrjar frammi í stað Hernan Crespo. Arsene Wenger gerði aðeins eina breytingu á sínu liði. Mathieu Flamini kemur inn í stað Gilberto Silva sem er í banni. Dennis Bergkamp er á bekknum hjá Arsenal.