

Spænskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Espanyol sé að leggja lokahönd á að ganga frá kaupum á framherjanum Walter Pandiani frá Birmingham. Talið er að Birmingham sé búið að samþykkja tilboð í Pandiani upp á eina milljón punda og að leikmaðurinn muni skrifa undir tveggja og hálfs árs samning við spænska félagið fljótlega.
Cleveland Cavaliers vann sinn sjötta leik í röð í NBA deildinni í nótt þegar liðið hafði betur gegn Chicago Bulls á heimavelli sínum 102-91. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland, en Tyson Chandler, Andres Nocioni og Chris Duhon skoruðu allir 15 stig fyrir Chicago, sem er í miklum vandræðum þessa dagana.
Sænski markaskorarinn Henrik Larsson hefur gefið það út að hann muni fara frá Barcelona í sumar eftir að hafa snúist hugur í samningaviðræðum við félagið. Larsson segir að hugur hans stefni heim á leið.
Steven Gerrard var ekki ánægður með móttökurnar sem Michael Owen fékk frá nokkrum stuðningsmönnum Liverpool í leik liðsins gegn Newcastle í gær, þar sem Owen lék sinn fyrsta leik á Anfield síðan hann fór frá félaginu á sínum tíma.
Alan Curbishley, stjóri Charlton, hafði um lítið annað en dómara leiksins að tala eftir tapið gegn Arsenal í dag. "Steve Bennet er héðan úr hverfinu og það er kannski eitthvað sem við þurfum að skoða. Kannski er hann fyrir vikið of grimmur við okkur til að dæma leiki með okkur, hann var svo sannarlega ekki á okkar bandi í dag, svo mikið er víst," sagði Curbishley fúll.
Aston Villa tók lánlaust lið Everton í bakaríið á heimavelli sínum Villa Park í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í dag 4-0. Milan Baros kom Villa yfir í fyrri hálfleik, en í þeim síðari opnaði fyrir allar flóðgáttir hjá Everton og Villa bætti við þremur mörkum frá Mark Delaney, Juan Pablo Angel og Baros skoraði loks sitt annað mark.
Heil umferð var leikin í ensku 1. deildinni í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði jöfnunarmark Leicester sem gerði jafntefli við Milwall í dag og þeir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson voru báðir í liði Reading sem vann góðan útisigur á Wolves og hélt sínu striki í toppbaráttunni. Stoke City þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir Burnley á útivelli.
Nokkrir leikir fóru fram í þýska handboltanum í dag. Einar Hólmgeirsson skoraði 9 mörk fyrir Grosswallstadt og Alexander Petersson 7 þegar liðið lagði Lemgo 33-29. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 2 mörk fyrir Lemgo. Magdeburg sigraði Minden 31-27, þar sem Sigfús Sigurðsson skoraði 3 mörk og Arnór Atlason 1, en Snorri Steinn Guðjónsson gat ekki leikið með Minden vegna meiðsla.
Spænski tenniskappinn Rafael Nadal verður ekki með í fyrstu keppnum ársins eftir að fótameiðsli hans tóku sig upp að nýju og hafa læknar sem meðhöndla hinn 19 ára gamla tennisleikara nú ráðlagt honum að spila ekki fyrr en í fyrsta lagi á opna ástralska mótinu þann 15. janúar næstkomandi.
Aston Villa leiðir 1-0 í hálfleik gegn Everton á Villa Park í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Það var Milan Baros sem skoraði mark Aston Villa á 35. mínútu, en bæði þessi lið þurfa mjög nauðsynlega á stigum að halda í dag.
Eiður Smári Guðjohnsen segir að hann hafi sett stefnu á að skora 100 mörk fyrir Chelse á ferlinum, en tekur þó fram að hann sé í raun meira fyrir það að skapa færi fyrir aðra en að skora þau sjálfur og segist kunna ágætlega við að spila á miðjunni.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, hældi Joe Cole á hvert reipi í dag eftir að landsliðsmaðurinn enski lagði upp sigurmark Chelsea gegn Fulham í 3-2 sigri liðsins.
Michael Owen sótti ekki gull í greipar fyrrum félaga sinna í Liverpool á Anfield í dag, þegar Liverpool skellti Newcastle 2-0. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool, en síðara markið var skráð sem sjálfsmark Shay Given markvarðar Newcastle. Manchester United vann auðveldan sigur á West Brom 3-0 og Wigan sigraði Manchester City í miklum markaleik.
Það verður enginn smá leikur í beinni útsendingu á Sýn á morgun þegar Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunnarsson og félagar í Gummersbach taka á móti stórliði Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Gummersbach gekk um helgina frá samningi við tvo nýja leikmenn til að styrkja sig í toppbaráttunni en þetta eru skyttan Denis Zacharov og markvörðurinn Nandor Fazekas.
Miðjumaðurinn Roy Keane fékk höfðinglegar móttökur þegar hann var kynntur formlega sem nýr leikmaður Glasgow Celtic á Parkhead í dag. Það var kannski þessvegna sem þurfti að fresta leik liðsins gegn Livingston um nokkrar mínútur vegna rafmagnsleysis.
Þýska blaðið Bild greinir frá því um helgina að lið Toyota vinni nú hörðum höndum að því að lokka finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til liðs við sig þegar samningi hans við McLaren lýkur eftir næsta tímabil. Toyota er sagt hafa boðið honum 25 milljón evrur í árslaun gegn því að hann geri samning við liðið, en metnaður Toyota að komast á toppinn í Formúlu 1 er mikill.
Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool hefur yfir 2-0 gegn Newcastle á Anfield. Steven Gerrard og Peter Crouch skoruðu mörk Liverpool. Manchester United hefur sömuleiðis 2-0 forystu gegn West Brom, með mörkum frá Paul Scholes og Rio Ferdinand.
Argentínski framherjinn Hernan Crespo tryggði Chelsea 3-2 sigur á Fulham með marki á 74. mínútu í dag, en áður hafði Heiðar Helguson jafnað leikinn úr vítaspyrnu. Tottenham sigraði Birmingham 2-0 með mörkum frá Robbie Keane úr víti og Jermain Defoe bætti við síðara markinu á lokamínútunni. Þá vann Arsenal 1-0 útisigur á Charlton með marki frá Jose Antonio Reyes í fyrri hálfleik.
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur nú tekið af allan vafa um framtíð sína í þjálfarastólnum og segist ætla að halda áfram að stýra liðinu þangað til liðið nær að rétta úr kútnum.
Heiðar Helguson er búinn að jafna metin fyrir Fulham gegn Chelsea og er staðan í leiknum því orðin 2-2. Heiðar jafnaði metin úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Eiður Smári er einnig kominn inná sem varamaður í liði Chelsea. Arsenal hefur yfir 1-0 gegn Charlton með marki frá Reyes og Tottenham leiðir 1-0 gegn Birmingham, en markið skoraði Robbie Keane úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
Nú er kominn hálfleikur í fyrstu þremur leikjum dagsins í ensku úrvaldsdeildinni. Chelsea hefur yfir 2-1 gegn Fulham, en þar er Heiðar Helguson í byrjunarliði Fulham, en Eiður Smári er á varamannabekk Chelsea. William Gallas kom Chelsea yfir og Frank Lampard bætti við öðru marki, en Brian McBride minnkaði muninn fyrir Fulham.
Spænska stórveldið Real Madrid hefur gengið frá kaupum á brasilíska landsliðsmanninum Cicinho frá nýkrýndum heimsmeisturum félagsliða, Sao Paulo. Kaupverðið er sagt vera í kring um fjórar milljónir evra og þó Cicinho sé brasilíumaður, er hann með ítalskt vegabréf og telst því ekki vera útlendingur í spænsku deildinni.
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, ætlar ekki að láta knattspyrnustjóra sinn Graeme Souness og stuðningsmenn félagsins hafa áhrif á ákvörðun sína um að hætta að spila í vor og segist ákveðinn í að leggja skóna á hilluna eftir þetta tímabil.
Hinn skotglaði Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í landslið Bandaríkjanna í körfubolta fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Þetta kemur fram í LA Times um helgina, en Bryant á að hafa fundað með Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra landsliðsins, og tekið þessa ákvörðun í framhaldinu.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool rifjaði það upp í viðtali við BBC um helgina að hann hafi átt sinn þátt í að sannfæra fyrirliða liðsins, Steven Gerrard, um að fara ekki frá félaginu og ganga í raðir Chelsea í sumar. Eins og flestir muna eftir, munaði aðeins hársbreidd að Gerrard færi frá Liverpool.
Tíu leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag, annan dag jóla. Þar ber ef til vill hæst endurkoma Michael Owen á gamla heimavöll sinn Anfield, þar sem hann lék lengst af ferlinum áður en hann ákvað að reyna fyrir sér á Spáni og nú síðast í Newcastle. Fastlega er búist við að Owen fá blíðar móttökur á Anfield, þar sem hann var nánast í guðatölu í mörg ár.
Knattspyrnugoðsögnin Alfredo di Stefano, heiðursforseti Real Madrid, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Valencia eftir að hafa fengið hjartaáfall yfir hátíðarnar. Di Stefano var á sínum tíma tvisvar kjörinn knattspyrnumaður Evrópu og var mikill markaskorari. Hann skipar stóran sess í sögu Real Madrid og voru flestir stjórnarmenn félagsins mættir til að veita honum stuðning á sjúkrahúsinu í gær.
Hinir frábæru hnefaleikamenn Roy Jones Jr og Bernard Hopkins hafa samþykkt að mætast í hringnum í vor, en þeir félagar börðust síðast árið 1993. Þar hafði Roy Jones betur, en eftir það skildu leiðir og þeir urðu báðir óumdeildir meistarar í sinni þyngd í meira en áratug.
Harðjaxlinn Dennis Wise hjá Southampton er sagður hafa yfirgefið herbúðir Southampton í fússi um helgina eftir að ljóst varð að hann yrði ekki ráðinn knattspyrnustjóri félagsins til frambúðar.
Spartak frá Moskvu samþykkti í gær tilboð Manchester United í serbneska varnarmanninn Nemanja Vidic, sem væntanlega gengur í raðir enska liðsins eftir áramótin ef hann lýkur læknisskoðun og samþykkir tilboð Manchester United. Vidic er sterkur miðvörður og hefur verið orðaður við nokkur önnur lið eftir að hann lýsti því yfir fyrir skömmu að hann vildi fara frá Spartak.