Íþróttir

Guðjón ósáttur þrátt fyrir sigur
Guðjón Þórðarson er langt frá því að vera sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir 3-2 sigur Notts County á Bury í ensku D-deildinni í fótbolta í gær. Notts County komst í 3-0 með þrennu frá Glyyn Hurst og var þetta fyrsti sigur liðsins í rúma tvo mánuði.

Heil umferð í kvöld
Heil umferð er á dagskrá í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld og hefjast allir leikirnir klukkan 19.15. Þrjú lið eru taplaus fyrir leiki kvöldsins, topplið Grindavíkur sem heimsækir ÍR, Njarðvík í 2. sæti sem heimsækir Þór á Akureyri og Keflavík í 3. sæti sem tekur á móti KR.

Montgomerie og Garcia efstir
Skotinn Colin Montgomerie og Spánverjinn Sergio Garcia eru efstir og jafnir að loknum 54 holum á lokamóti Evrópsku mótaraðarinnar í golfi. Colin Montgomerie lék á 70 höggum í gær og er samtals á tíu höggum undir pari.

Móðgaði lestarstjóra
Hinn litríki fyrrverandi landsliðsþjálfari Ítala, Giovanni Trapattoni er ekki að afla sér vinsælda í Þýskalandi þar sem hann stýrir Bundesliguliði Stuttgart við slæman orðstír. Hann er ekki bara í ónáðinni hjá stuðningsmönnum liðsins sem hefur byrjað tímabilið skelfilega heldur hefur honum nú tekist að reita til reiði lestarstjóra í landinu.

Fyrsta tap Juventus
AC Milan skellti Juventus, 3-1, í risaslag ítalska fótboltans í gærkvöldi en leikið var á San Siro í Milano. Clarence Seedorf, Kaka og Andrea Pirlo skoruðu fyrir Milan í fyrri hálfleik en David Trezeguet minnkaði muninn fyrir Juve stundarfjórðungi fyrir leikslok. Þetta var fyrsta tap Juve á tímabilinu en þeir höfðu unnið alla níu leiki sína fyrir leikinn.

Real Madrid á toppinn
Vængbrotið lið Real Madrid vann mikilvægan útisigur á Real Betis 0-2 í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Robinho og Alvaro Mejia skoruðu mörkin í sitthvorum hálfleiknum. Það vantaði nokkra lykilmenn hjá Madrid í leiknum eins og Ronaldo, Zidane og David Beckham.

Grétar Rafn lék allan leikinn
Grétar Rafn Steinsson lék allann tímann með AZ Alkmaar þegar liðið vann Ado Den Haag á útivelli 0-2 í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Alkmaar er í öðru sæti með 24 stig, einu stigi á eftir PSV Eindhoven sem lagði Twente 0-1 í gær.

Stórsigur Boro á Man Utd
Middlesboro niðurlægði Manchester United með 4-1 sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattpsyrnu nú í kvöld þar sem Gaizka Mendieta skoraði tvívegis fyrir heimamenn.
Árni Gautur norskur meistari
Árni Gautur Arason varð í dag norskur meistari í fóbolta með liði sínu Vålerenga á dramatískan hátt. Liðið lauk keppni efst með 46 stig eftir 2-2 jafntefli á útivelli við Odd Grenland, einu stigi á undan Jóhannesi Harðarsyni og félögum í Start sem tapaði óvænt fyrir Fredrikstad, 3-1 á heimavelli.

Loksins sigur hjá Notts County
Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar vann loks sigur í ensku 3. deildinni í fótbolta í dag þegar liðið sigraði Bury, 2-3 á útivelli. Glynn Hurst skoraði þrennu fyrir County sem hafði ekki fagnað sigri síðan 29. ágúst eða slétta tvo mánuði. Með sigrinum lyftu strákarnir hans Guðjóns sér upp í 12. sæti deildarinnar þar sem liðið er með 22 stig, aðeins 9 stigum á eftir toppliði Leyton Orient sem vann Oxford 1-0 í dag.

Brynjar skoraði fyrir Reading
Brynjar Björn Gunnarsson skoraði eina mark Reading sem gerði 1-1 jafntefli við Leeds í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Brynjar kom sínum mönnum yfir á 63. mínútu en var skipt út af á 83. mínútu. Ívar Ingimarsson lék allan leikinn með Reading að venju en hjá Leeds var Gylfi Einarsson ekki í hópnum vegna leikbanns.

Fyrsti sigur Everton í 2 mánuði
Everton vann sinn annan sigur á tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar liðið vann 0-1 útisigur á Birmingham. Simon Davies skoraði eina mark leiksins á 43. mínútu fyrir Everton sem hafði ekki unnið leik í deildinni síðan 21. ágúst. Chelsea vann Blackburn 4-2 og lék Eiður Smári síðustu 12 mínúturnar.

Start eða Vålerenga?
Lokaumferðin í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefst nú kl. 16 í dag og er óhætt að segja að háspenna ríki í tveimur leikjanna. Start er í efsta sæti með jafnmörg stig og Vålerenga, bæði með 45 stig.Árni Gautur Arason er í byrjunarliði Vålerenga og það er Jóhannes Harðarson einnig í liði Start.

Djurgården vann tvöfalt
Kári Árnason lék síðustu 20 mínúturnar með Djurgården sem tryggði sér nú síðdegis sænska bikarmeistaratitilinn í fótbolta með 2-0 sigri á Åtvidabergs í úrslitaleiknum. Sölvi Ottesen var ekki í leikmannahópi Djurgården sem með sigrinum vann tvöfalt í Svíþjóð en liðið varð á dögunum sænskur meistari.

Eiður á bekknum hjá Chelsea
Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Chelsea sem er 2-1 yfir gegn Blackburn eftir aðeins 16 mínútna leik í ensku úrvalsedildinni í fótbolta í dag. Hermann Hreiðarsson er að sjálfsögðu í burjunarliði Charlton sem tekur á móti Bolton.

Jafntefli hjá Arsenal og Tottenham
Tottenham og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Wigan er í 2. sæti deildarinnar með 22 stig eftir að liðið vann sinn 5. sigur í röð í deildinni fyrr í dag með naumum 1-0 sigri á Fulham.

3 marka sigur á Norðmönnum
Íslenska handboltalandsliðið sigraði Norðmenn, 26-23 í morgun á 4 liða æfingamótinu í Póllandi og tryggðu sér þar með sigur á mótinu. Guðjón Valur var markahæsti leikmaður mótsins með 25 mörk en hann og Ólafur Stefánsson voru valdir í úrvalslið mótsins.

Coppell styður Ívar
Steve Coppell, knattspyrnustjóri enska 1. deildarliðsins Reading segist fullkomlega sáttur við þá ákvörðun Ívars Ingimarssonar að gefa kost á sér í íslenska landsliðið á ný. Coppell sýnir ákvörðun Ívars mikinn skilning en hann dró sig út úr landsliðshópnum í ágúst 2004 þar sem landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson höfðu ekki valið hann reglulega í byrjunarliðið.
Helgi Jónas og Damon Bailey hættir
Úrvalsdeildarlið Grindavíkur í körfubolta hefur orðið fyrir mikilli blóðtöku. Helgi Jónas Guðfinnsson hefur mjög óvænt gefið það út að hann ætli að taka sér frí frá spilamennsku um óákveðinn tíma og í ljósi þess, auk meiðsla Jóhanns Ólafssonar, hefur félagið ákveðið að segja upp samningi við Bandaríkjamanninn Damon Bailey.

Keflavík tapaði í Lettlandi
Keflvíkingar töpuðu öðrum leik sínum í röð í Evrópukeppninni nú áðan, gegn lettneska liðinu BK Riga 99-81. Næsti leikur Keflvíkinga verður við finnska liðið Lapperanta í Keflavík á fimmtudaginn.

Kominn tími til að vinna Arsenal
"Arsenal er eitt besta lið síðustu tíu ára í deildinni og við höfum ekki unnið þá í sex ár, þannig að nú er kominn tími til að snúa þeirri þróun við. Við erum fyrir ofan þá í töflunni núna og vonandi getum við haldið þeirri stöðu," sagði Martin Jol.

Jafntefli gegn Dönum
Íslenska landsliðið í handknattleik gerði jafntefli við Dani 32-32 á æfingamótinu í Póllandi nú áðan. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, en íslenska liðið hafði yfir 17-16 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 8 mörk fyrir Ísland, en Alexander Petersons kom næstur með 6 mörk. Ólafur Stefánsson, Einar Hólmgeirsson og Róbert Gunnarsson skoruðu allir 4 mörk.

Benitez ætlar að kaupa leikmenn
Rafa Benitez ætlar að kaupa miðvörð og hægri kantmann þegar félagaskiptaglugginn í enska boltanum opnast í janúar og segir að það hafi verið mistök að tryggja sér ekki leikmenn í stöðurnar í sumar.
Ísland yfir gegn Dönum í hálfleik
Íslenska landsliðið í handknattleik hefur yfir 17-16 gegn Dönum á æfingamóti sem haldið er í Póllandi þessa dagana. Guðjón Valur Sigurðsson er markahæstur í íslenska liðinu með 4 mörk í hálfleiknum.

Bruce ætlar að versla í janúar
Steve Bruce hefur sagt að hann muni fara fram á fé til leikmannakaupa til að styrkja lið Birmingham í janúar vegna mikilla meiðsla í herbúðum liðsins. Birmingham er í fallbaráttu sem stendur og það skrifa þeir fyrst og fremst á meiðsli lykilmanna.

Útlitið hefur skánað lítillega
Heilsa fyrrum knattspyrnumannsins George Best hefur batnað örlítið til hins betra í dag að sögn lækna, en hann hefur legið þungt haldinn á sjúkrahúsi í London.

Getafe missti af toppsætinu
Spútniklið Getafe missti af tækifæri sínu til að komast á topp spænsku fyrstu deildarinnar í knattspyrnu í gærkvöld, þegar liðið steinlá á útivelli gegn Real Sociedad 3-0. Mörkin komu öll í fyrri hálfleiknum, en þó leikur lærisveina Bernd Schuster hafi skánað í þeim síðari, náðu þeir ekki að rétta sinn hlut.
Suðurnesjaliðin taplaus
Grindavík og Njarðvík eru enn taplaus eftir leiki kvöldsins í Iceland Express-deild karla. Grindavík valtaði yfir Hamar/Selfoss 114-84 og Njarðvík vann nauman sigur á Haukum í Njarðvík 78-74.

Haukar töpuðu stórt í Frakklandi
Kvennalið Hauka tapaði stórt fyrir franska liðinu Pays D´Aix í Evrópukeppni kvenna í körfuknattleik í kvöld 99-59. Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 25 stig og 11 fráköst, en Helena Sverrisdóttir kom næst með 17 stig.

Naumur sigur á Pólverjum
Íslenska landsliðið lagði Pólverja 38-37 í vináttuleik ytra nú áðan, en leikurinn er liður í fjögurra liða æfingamóti sem fram fer þar í landi. Staðan í hálfleik var 18-17 fyrir Ísland og Ólafur Stefánsson var markahæstur íslenska liðsins með 10 mörk, en Guðjón Valur Sigurðsson kom næstur með 7 mörk.