Viðskipti
75 76 77 78 79 80 81 82 83 … 223 ›
Hagnaður Glitnis 7 milljarðar króna Hagnaður Glitnis banka nam sjö milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 2,1 milljarði króna minna en á sama tíma fyrir ári. Þetta er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna sem gerðu ráð fyrir allt frá 6,8 til 7,7 milljarða króna hagnaði á tímabilinu. Viðskipti innlent 30.4.2007 10:51
Fall á tyrkneskum hlutabréfamarkaði Gengi hlutabréfa í kauphöll Tyrklands féll um 8 prósent við opnun markaða í dag eftir að orðrómur fór á kreik að herinn muni koma í veg fyrir val á nýjum forseta landsins. Líran, gjaldmiðill Tyrklands, hefur sömuleiðis lækkað um 4 prósent í dag. Viðskipti erlent 30.4.2007 09:33
Mjög dregur úr vöruskiptahallanum Vöruskipti við útlönd voru óhagstæð um 9,1 milljarð króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er umtalsverð breyting frá sama tíma í fyrra en þá nam hallinn á vöruskiptum 36,2 milljörðum króna. Af þessum þremur mánuðum nam halli á vöruskiptum í mars 4,5 milljörðum króna. Til samanburðar voru vöruskiptin óhagstæð um 18,2 milljarða krónur fyrir ári, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 30.4.2007 08:59
Novator að yfirgefa símamarkaðinn Erlendir fjölmiðlar herma að Novator, fjárfestingafélag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hafi selt 10,8 prósenta hlut sinn, um helmingseign sína, í gríska símafélaginu Forthnet til þarlendra stofnanafjárfesta og annarra aðila. Novator er sagt vera að hverfa af símamarkaði í A-Evrópu. Viðskipti innlent 28.4.2007 12:45
Meðalupphæð kaupsamninga hæst á Árborgarsvæðinu 291 kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, á Árborgarsvæðinu og á Akureyri í vikunni. Meðalupphæð samninganna var hæst á Árborgarsvæðinu, 32,4 milljónir króna, næsthæst á höfuðborgarsvæðinu, 30,2 milljónir króna, en lægst á Akureyri þar sem meðalupphæðin var 19,9 milljónir króna á Akureyri, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Viðskipti innlent 27.4.2007 17:30
Hagvöxtur í Bandaíkjunum langt undir spám Hagvöxtur jókst um 1,3 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjustu upplýsingum hagstofu Bandaríkjanna. Hagvöxtur hefur ekki verið jafn lítill í fjögur ár. Fréttirnar ollu því að gengi bandaríkjadals lækkaði á markaði og hefur aldrei verið jafn lágur gagnvart evru. Viðskipti erlent 27.4.2007 13:12
Svefnlyf frá Actavis á markað í Bandaríkjunum Actavis hefur fengið samþykki bandarísku Matvæla og lyfjastofnunarinnar (FDA) fyrir skráningu á svefnlyfinu Zolpidem Tartrate á markað í Bandaríkjunum. Lyfið verður markaðssett í samvinnu við Carlsbad Technology, Inc., og hefst dreifing lyfsins nú þegar. Viðskipti innlent 27.4.2007 12:29
Hagnaður FL Group jókst um 158 prósent Fjárfestingafélagið FL Group skilaði 15,1 milljarðs króna hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er 158 prósenta aukning á milli fjórðunga. Hannes Smárason, forstjóri félagsins, segist afar ánægður með niðurstöðuna og er þess fullviss að núverandi aðferðafræði félagsins gefi möguleika á að nýta þau tækifæri sem kunni að koma upp í framtíðinni. Viðskipti innlent 27.4.2007 10:12
2.200 prósenta verðbólga í Zimbabve Verðbólga í Afríkuríkinu Zimbabve jókst um 500 prósent á milli mánaða og mældist 2.200 prósent í síðasta mánuði. Verðbólga hefur aldrei nokkru sinni í sögu nokkurs lands mælst hærri. Ríkisstjórn landsins vann að því í lengstu lög að fresta birtingu verðbólgutalna mánaðarins á meðan landsmenn fögnuðu 27 ára sjálfstæðisafmæli. Viðskipti erlent 27.4.2007 10:01
FL Group kaupir í Commerzbank FL Group hefur eignast 2,99 prósenta hlut í Commerzbank, öðrum stærsta banka Þýskalands. Markaðsvirði hlutarins nemur 63,5 milljörðum króna. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir markaðsvirði bankans ekki endurspegla þann bata sem hafi orðið á starfseminni í Þýskalandi og í öðrum löndum þar sem bankinn hefur starfsemi. Viðskipti innlent 27.4.2007 09:45
Royal Bank of Scotland býður í ABN Amro Þrír stórir bankar undir forystu Royal Bank of Scotland hafa staðfest að þeir ætli að gera yfirtökutilboð í ABN Amro, stærsta banka Hollands. Bankarnir segja tilboð sitt mun betra en breski bankinn Barclays hefur lagt fram. Þrýsta þeir á stjórn ABN Amro að hún fjalli fljótlega um málið. Viðskipti erlent 27.4.2007 09:12
Vísitala framleiðsluverðs óbreytt milli mánaða Vísitala framleiðsluverðs í mars hélst óbreytt frá því í mánuðinum á undan en þá lækkaði hún um 3,1 prósent á milli mánaða, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir lækkar um 0,3 prósent og vísitala fyrir stóriðju hækkar á móti um 0,4, svo eitthvað sé nefnt. Viðskipti innlent 27.4.2007 09:13
Kjaraskertir forstjórar Í nýjasta tölublaði Vísbendingar er góðlátlegt grín gert að flýtisvillu mbl.is fyrir helgi þar sem svissneskir forstjórar voru sagðir hæst launaðir í Evrópu. Það er satt og rétt þótt í fréttinni væri haft eftir ráðgjafarfyrirtæki að þeir væru með rétt rúma milljón á mánuði, samkvæmt sömu frétt voru franskir forstjórar með 325 þúsund kall á mánuði. Viðskipti innlent 27.4.2007 08:58
Samkeppni um athygli Aflýst var óvænt í gær töluvert auglýstum fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga undir yfirskriftinni „Samkeppnishæft viðskiptaumhverfi eftir kosningar?“ Stórkanónur stjórnmálanna áttu að sitja fyrir svörum á hádegisverðarfundi undir fundarstjórn Ólafs Ísleifssonar, lektors við viðskiptadeild Háskólans i Reykjavík. Viðskipti innlent 27.4.2007 01:08
Lundúnir kalla Starfsmenn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis halda upp á árshátíð fyrirtækisins í Lundúnum um helgina og glæstan árangur á síðasta ári þegar hagnaðurinn nam níu milljörðum króna. Yfir 200 manns vinna hjá SPRON. Viðskipti innlent 27.4.2007 00:52
Minni hagnaður hjá Mosaic Fashions Tískuverslanakeðjan Mosaic Fashions skilaði hagnaði upp á 10,7 milljón pund, jafnvirði 1.377 milljóna íslenskra króna, á fjórða rekstrarfjórðungi sem lauk í enda mars. Þetta er nokkur samdráttur á milli ára en keðjan, sem rekur nokkrar tískuvöruverslanir undir fyrirtækjahatti sínum víða um heim, skilaði 12,6 milljóna punda hagnaði í fyrra eða 1.621 milljónum króna. Viðskipti innlent 26.4.2007 22:34
Windows Vista jók hagnað Microsoft Hagnaður bandaríska hugbúnaðarrisans Microsoft jókst um 65 prósent á milli ára á þriðja ársfjórðungi fyrirtækisins, sem lauk í enda marsmánaðar. Ástæðan liggur í tekjum af sölu á Windows Vista, nýjasta stýrikerfi fyrirtækisins, og hugbúnaðarvöndlinum Office 2007, sem kom út í janúar. Viðskipti erlent 26.4.2007 21:26
Dow Jones enn á uppleið Dow Jones hlutabréfavísitalan sló enn eitt metið í dag þegar hún endaði í 13.132,80 stigum nú undir kvöld. Vísitalan hefur verið á hraðri uppleið síðan í síðustu viku og hefur slegið hvert metið á fætur öðru. Greinendur sem breska ríkisútvarpið ræddu við í gær segja að menn bíði þess nú að vísitalan rjúfi 14.000 stiga múrinn. En aðrar vísitölur eru nálægt sínu hæsta gildi. Viðskipti erlent 26.4.2007 21:07
Stærsta sambankalán í sögu Icebank Icebank undirritaði í dag 217 milljóna evra sambankalán til þriggja ára hjá 34 evrópskum bönkum. Lánið samsvarar 19 milljörðum íslenskra króna. Fénu verður varið til endurfjármögnunar eldri lána og fjármögnunar áframhaldandi vaxtar bankans. Lánið var undirritað í Berchtesgaden í Þýskalandi. Viðskipti innlent 26.4.2007 19:04
Hagnaður Bakkavarar 1,2 milljarðar króna Bakkavör Group skilaði 1,2 milljarða króna hagnaði á fyrsta fjórðungi þessa árs. Afkoman á fjórðungnum er í takt við spár greiningardeilda viðskiptabankanna. Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavarar, segir fjórðunginn lofa góðu enda sé búist við miklum vexti á markaði með ferskar matvörur í Evrópu og Kína á næstu fjórum árum. Viðskipti innlent 26.4.2007 16:09
Exista selur hlut sinn í IGI Group Exista hefur selt hlut sinn í breska tryggingafélaginu IGI Group Ltd, 54,4 prósent hlutafjár, til alþjóðlega tryggingafélagsins AmTrust Insurance. Salan mun hafa óveruleg áhrif á rekstur og efnahag samstæðunnar en samkvæmt samningi er söluverðið trúnaðarmál, að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. Viðskipti innlent 26.4.2007 15:51
Ford ekur inn í betra ár Bandaríski bílaframleiðandinn Ford skilaði taprekstri á ný á fyrsta fjórðungi ársins. Fyrirtækið hefur skorið grimmt niður til að draga úr kostnaði. Það virðist hafa tekið því tapreksturinn í ár er talsvert minni en á sama tíma í fyrra. Viðskipti erlent 26.4.2007 15:02
Dow Jones-vísitalan á ný í methæðum Dow Jones-vísitalan fór á ný í methæðir við opnun markaða í Bandaríkjunum í dag. Vísitalan hækkaði um 29 punkta og fór í 13.118,58 stig og hefur aldrei verið hærri. Hún hefur dalað lítillega eftir því sem liðið hefur á daginn. Viðskipti erlent 26.4.2007 14:46
Sparisjóðir Skagafjarðar og Siglufjarðar sameinast Stjórnir Sparisjóðs Skagafjarðar og Sparisjóðs Siglufjarðar hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna. Í tillögu sem lögð verður fyrir fund stofnfjáreigenda er gert ráð fyrir því að eigið fé hins sameinaða sjóðs verði um einn milljarður króna. Viðskipti innlent 26.4.2007 14:38
Uppsagnir hjá Peugeot Líkur eru á að allt að 4.800 manns verði sagt upp störfum á árinu hjá franska bílaframleiðandanum Peugeot í sparnaðarskyni en sala á bílum fyrirtækisins hefur minnkað á sama tíma og efniskostnaður hefur hækkað. Viðskipti erlent 26.4.2007 13:32
Systirin selur bræðrum sínum Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir hafa keypt ríflega fjórðungshlut Ingunnar, systur þeirra, í alþjóðlega fjárfestingarfélaginu Milestone og eiga þar með félagið að öllu leyti. „Við höfum verið í farsælu samstarfi í nokkur ár. Það lá fyrir tilboð frá henni til okkar bræðra sem við tókum. Tímapunkturinn var því ágætur fyrir alla,“ segir Karl. Viðskipti innlent 26.4.2007 11:46
Hráolíuverð hækkaði lítillega Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag og í gær eftir að orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því að olíubirgðir landsins hefðu dregist saman á milli vikna. Þetta er ellefta vikan í röð sem birgðirnar minnka vestanhafs. Viðskipti erlent 26.4.2007 10:59
Nintendo skilaði metafkomu Japanski leikjatölvurisinn Nintendo skilaði hagnaði upp á 174,3 milljarða jena, jafnvirði rúmra 94,6 milljarða íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Hagnaður fyrirtækisins hefur aldrei verið meiri enda er þetta rúmlega 77 prósentum meiri hagnaður hjá Nintendo en í fyrra. Afkoman skýrist að mestu af mikilli eftirspurn eftir Wii-leikjatölvunni sem kom á markað í nóvember í fyrra. Viðskipti erlent 26.4.2007 10:36
Afkoma Árborgar langt umfram áætlanir Sveitarfélagið Árborg skilaði 83,6 milljóna króna rekstrarafgangi á síðasta ári. Þetta er talsvert yfir áætlun sem gerð var í október í fyrra en þá var gert ráð fyrir tapi upp á 137 milljónir króna. Hagnaðurinn er því 199,7 milljónum yfir áætlunum. Viðskipti innlent 26.4.2007 09:36
Hagnaður Exista 57,2 milljarðar króna Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista skilaði 57,2 milljörðum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er nokkuð yfir væntingum greiningardeilda viðskiptabankanna sem spáðu því að hagnaður félagsins myndi nema á bilinu 52 til 54,5 milljörðum króna á tímabilinu. Þetta er langmesti hagnaður íslensks félags á einum fjórðungi. Viðskipti innlent 26.4.2007 09:57