Viðskipti
34 35 36 37 38 39 40 41 42 … 223 ›
Olíuverð í hæstu hæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu sló met að nýju í dag þegar það skaust í tæpa 140 dali á tunnu. Veiking á gengi bandaríkjadals á stærstan hlut að máli. Viðskipti erlent 16.6.2008 13:40
Tryggingarisi skiptir um forstjóra Fjárfestingarrisinn AIG, stærsta tryggingafyrirtæki heims, skipaði í gær Robert Willumstad, í stöðu forstjóra fyrirtækisins. Hann er jafnframt stjórnarformaður AIG. Martin Sullivan, fráfarandi forstjóri, yfirgaf skútuna eftir að fyrirtækið tapaði þrettán milljarða tapi á fyrri hluta árs. Þetta er mettap í sögu tryggingafyrirtækisins. Gengi bréfa í því hrunið um fjörtíu prósent frá áramótum. Viðskipti erlent 16.6.2008 09:22
Af dónalegum spurningum Geir H. Haarde, forsætisráðherra, brást illa við spurningum Sindra Sindrasonar, fréttamanns Markaðarins, fyrir utan Stjórnarráðið í gærmorgun. Sakaði Geir Sindra um dónaskap þegar hann innti ráðherra eftir aðgerðum í efnahagsmálum. Svona voru samskiptin: Sindri: „Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?” Geir: „Á þetta að vera viðtal? Sindri: „Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta...” Geir: „Þú verður að hafa samband fyrirfram.” Sindri: Geir, þjóðin náttúrulega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?” Geir: „Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega.” Viðskipti innlent 13.6.2008 21:56
Viðsnúningur á síðustu metrunum Gengi hlutabréfa í Nýherja rauk upp um 22,22 prósent í Kauphöllinni í snörpum viðsnúningi á síðustu metrunum í enda viðskiptadagsins. Alla jafna eru lítil viðskipti með bréf Nýherja og þarf lítið til að hreyfa við þeim. Viðskipti innlent 13.6.2008 16:06
Ellefu þúsund króna viðskipti hækka gengi Teymis Gengi bréfa í Teymi er það eina sem hækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins í Kauphöll Íslands í dag. Ekki er þó um stórviðskipti að ræða en á bakvið hækkunina er velta upp á rúmar ellefu þúsund krónur. Eimskipafélagið hefur fallið um 2,7 prósent og Exista um 2,5 prósent. Önnur félög hafa lækkað minna. Viðskipti innlent 13.6.2008 10:10
Enn fellur Eimskipafélagið Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 2,7 prósent við upphaf viðskipta í Kauphöll Íslands í dag. Það hefur nú fallið um rúm þrjátíu prósent á þremur dögum í vikunni. Viðskipti innlent 13.6.2008 10:04
Microsoft slítur viðræðum við Yahoo Gengi hlutabréfa í netleitarfyrirtækinu Yahoo féll um rúm tíu prósent á bandarískum markaði í gær eftir að hugbúnaðarrisinn Microsoft sleit viðræðum við það. Stefnt var að því að Microsoft keypti fyrirtækið að öllu eða mestu leyti. Viðskipti erlent 13.6.2008 09:42
Teymi tók dýfu annan daginn í röð Gengi hlutabréfa í Teymi féll um 12,24 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta lækkunin á eftir Eimskipi. Á eftir fylgdi Icelandair, sem fór niður um 8,8 prósent. Gengi bréfa í Landsbankanum, SPRON, Straumi og Kaupþingi lækkaði um rúmt prósent á sama tíma. Viðskipti innlent 12.6.2008 15:39
Eimskip fellur um 28 prósent á tveimur dögum Gengi hlutabréfa í Eimskip féll um rúm 15,4 prósent í dag. Þetta er annar dagurinn í röð sem gengið fer niður en það hefur fallið um tæp 28 prósent á tveimur dögum. Fyrirtækið afskrifaði breska frystifyrirtækið Innovate Holding úr bókum sínum í gær og nemur færslan níu milljörðum króna. Viðskipti innlent 12.6.2008 15:32
Skjót viðbrögð Seðlabankans Seðlabanki Íslands brást skjótt við umfjöllun Markaðarins í gær um kennsluefni Seðlabanka. Í gærmorgun barst fréttatilkynning frá bankanum þar sem bent er á efni sem bankinn gefur út, tengla á efni frá öðrum seðlabönkum og nánari upplýsingar um opnunartíma myntsafns Seðlabankans. Fjallað er um tölvuleik sem er staðsettur í myntsafni Seðlabanka Íslands þar sem hægt er að setjast í stól bankastjóra og spreyta sig á því að beita stýritækjum hans til að ná verðbólgumarkmiði bankans. Viðskipti innlent 11.6.2008 20:19
Rauður dagur í Kauphöllinni Gengi hlutabréfa í Eimskipi og Teymi féll um rúmlega tólf prósent í Kauphöll Íslands í dag á afar rauðum degi. Einungis gengi bréfa í Kaupþingi hækkaði lítillega en greint var frá því í dag að bræðurnir Moises og Mendi Gernter hefðu keypt tveggja prósenta hlut í bankanum fyrir 13,9 milljarða króna. Viðskipti innlent 11.6.2008 15:39
Enn lækkar DeCode Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur lækkað um 4,7 prósent frá því hlutabréfamarkaðir opnuðu í Bandaríkjunum í dag. Gengið féll um 11,5 prósent í gær. Gengið stendur nú í 0,86 sent á hlut. Það fór senti neðar fyrr í dag og hefur aldrei verið lægra. Viðskipti innlent 11.6.2008 14:38
Eimskip leiðir lækkun dagsins Gengi bréfa í Kaupþingi er það eina sem hefur hækkað í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað frekar og hefur hún ekki verið jafn lág síðan snemma í október árið 2005. Viðskipti innlent 11.6.2008 10:14
Eimskip féll um 11,5 prósent Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um tæp 11,5 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands. Félagið greindi frá því í morgun að það hefði afskrifað nærri níu milljarða úr bókum sínum vegna eignarhlutar í dótturfélagi sínu, Innovate Holding, í Bretlandi. Unnið er að sölu á Innovate, að sögn Eimskipafélagsins. Viðskipti innlent 11.6.2008 10:03
Hráolíuverð hækkar lítillega Verð á framvirkum samningum á hráolíu hækkaði um 1,4 prósent á bandarískum fjármálamarkaði í nótt og fór í 133,13 dali á tunnu. Vísbendingar eru um að dregið hafi úr olíubirgðum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 11.6.2008 09:44
Atvinnuleysi eykst í Bretlandi Atvinnuleysi mældist 5,3 prósent í Bretlandi í apríl, samkvæmt útreikningum hagstofu Breta. Þetta er 0,1 prósentustiga aukning á milli mánaða og jafngildir því að 819 þúsund manns hafi verið á atvinnuleysisskrá í landinu. Viðskipti erlent 11.6.2008 09:11
Spá minni eftirspurn eftir olíu Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði um rétt rúma þrjá bandaríkjadali á tunnu á bandarískum fjármálamörkuðum í dag og endaði í 131,31 dal á tunnu. Þetta er um 8,7 dala lækkun frá því undir lok síðustu viku þegar verðið fór í 139 dali sem er hæsta verð sem sést hefur verið. Viðskipti erlent 10.6.2008 20:10
Úrvalsvísitalan fellur niður um netbóluísinn Úrvalsvísitalan hefur ekki verið lægri síðan í október árið 2005. Fall hennar nú á ellefu mánuðum er meiri en þegar netbólan sprakk um síðustu aldamót. Viðskipti innlent 10.6.2008 13:33
Besti tíminn fyrir hertar reglur „Nú um stundir gefst fyrsta tækifærið í hálfa öld til að setja hertar reglur um starfsemi banka og fjármálafyrirtækja,“ segir Robert Wade, prófessor við London School of Economics. Wade hélt erindi um fjármálakreppuna í alþjóðlegu samhengi í dag. Viðskipti innlent 9.6.2008 13:50
Fyrstu viðskipti með Straumsbréf felld niður Kauphöllin felldi í morgun niður viðskipti með hlutabréf í Straumi. Tilboð í bréfin hljóðuðu upp á 11,36 til 11,6 krónur á hlut. Þetta voru fyrstu viðskiptin með bréf félagsins í morgun og keyrði það upp um rúm sex prósent. Viðskipti innlent 9.6.2008 11:21
Straumur tók stökkið í byrjun dags Gengi bréfa í Straumi Burðarási tók stökkið við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöll Íslands í dag og hækkaði um 6,37 prósent. Á eftir fylgdi gengi bréfa í færeyska olíuleitarfélaginu Atlantic Petroleum, sem hækkaði um 4,26 prósent eftir nokkra lækkun í næstu viu. Þá hækkaði gengi SPRON sömuleiðis, eða um 0,46 prósent. Viðskipti innlent 9.6.2008 10:08
Olíuverð úr himinhæðum Heimsmarkaðsverð á hráolíu lækkaði lítillega í dag eftir methækkun á föstudag. Sérfræðingar segja vara hins vegar við því að olíuverðið geti tekið stökkið upp á við á nýjan leik fljótlega. Viðskipti erlent 9.6.2008 09:59
Olíuverðið í nýjum himinhæðum Gengi hlutabréfa í Bandaríkjunum tók mikla dýfu í dag eftir mikla verðhækkun á hráolíu og lélegar tölur um atvinnuþátttöku vestanhafs. Verð á hráolíu fór yfir 139 dali á tunnu og hefur aldrei verið hærra. Viðskipti erlent 6.6.2008 20:27
Atvinnuleysi 5,5 prósent í Bandaríkjunum Atvinnuleysi mældist 5,5 prósent í Bandaríkjunum í nýliðnum mánuði. Þetta er hálfu prósentustigi meira en mánuðinn á undan og þykir auka líkurnar frekar en áður á því að samdráttarskeið renni upp vestanhafs á næstunni. Viðskipti erlent 6.6.2008 14:26
Talsverð hækkun á Wall Street Helstu hlutabréfavísitölur ruku upp á fjármálamörkuðum á Wall Street í Bandaríkjunum í dag eftir jákvæðar fréttir af vinnumarkaði og úr smásölugeiranum. Viðskipti erlent 5.6.2008 20:16
Evran styrkist eftir vaxtaákvörðun Gengi evrunnar styrktist nokkuð gagnvart bandaríkjadal í kjölfar þess að evrópski seðlabankinn ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum í dag. Þá hækkaði hráolíuverð lítillega, eða um einn dal. Viðskipti erlent 5.6.2008 16:47
Seðlabankinn grefur undan sjálfum sér Verðbólguspár Seðlabanka Íslands grafa peningastefnu hans sjálfs. Þetta segir í nýjasta fréttabréfi Samtaka atvinnulífsins. Viðskipti innlent 5.6.2008 15:46
Bakkavarabréf ruku upp í enda dags Gengi hlutabréfa í Bakkavör rauk upp um tæp 6,5 prósent í Kauphöll Íslands í dag. Þetta er mesta hækkunin sem sást á hlutabréfamarkaði hér á landi í dag. Gengið hefur legið í láginni upp á síðkastið. Gengi bréfa í Kaupþingi hækkaði um 1,18 prósent á sama tíma. Bréf Færeyjabanka, Glitnis, Alfesca, Landsbankans, Icelandair og Straums hækkaði sömuleiðis um tæpt prósent. Viðskipti innlent 5.6.2008 15:40
Vöxtum haldið óbreyttum á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í fjórum prósentum. Reiknað var með þessari niðurstöðu en bankinn hefur haldið vöxtunum óbreyttum síðan í júlí í fyrra. Viðskipti erlent 5.6.2008 11:59
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Englandsbanki hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í fimm prósentum. Þetta er í samræmi við spár enda óttast að verðbólga geti aukist verði vextirnir lækkaðir, líkt og Bloomberg-fréttaveitan greindi frá í gær. Viðskipti erlent 5.6.2008 11:12
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent