
Viðskipti
Actavis birtir uppgjör í dag
Actavis birtir sex mánaða uppgjör eftir lokun markaða í dag. Félaginu er spáð um 2,8 milljarða hagnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við meðaltalsspár markaðsaðila. Gangi spáin eftir eykst hagnaður um 150 prósent milli ára.

Auka þarf gagnsæi í orkumálum segir OECD
Í nýrri skýrslu OECD um efnahagsmál hér á landi er gagnrýnt að ekki liggi fyrir upplýsingar um hagkvæmni stóriðjuframkvæmda vegna leyndar yfir raforkusölusamningum. Enn er sögð þörf á vaxtahækkunum og frekari aðhaldsaðgerðum hins opinbera til að slá á verðbólgu.
Cisco rýkur upp í verði
Hlutabréf í bandaríska hátæknifyrirtækinu Cisco Systems hækkuðu um meira en þrettán prósent, það mesta í fjögur ár, eftir að stjórnendur félagsins greindu frá því að tekjur félagsins á árinu myndu vaxa um fimmtán til tuttugu prósent á árinu. Það er öllu meira en hópur sérfræðinga hafði spáð fyrir.

DeCode tapar 2,7 milljörðum króna
DeCode Genetics tapaði 2,7 milljörðum króna á fyrri helmingi árs samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Tap deCode jókst um tæplega tuttugu og tvö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra.

Horfur easyJet fara batnandi
Stjórnendur easyJet búast við mun meiri hagnaðaraukningu á yfirstandandi rekstrarári en áður var talið. Gera þeir ráð fyrir að hagnaður aukist um 40-50 prósent á milli ára en fyrri áætlanir í maí bentu til 10-15 prósenta aukningu.

Stýrivextir óbreyttir vestra
Stýrivextir í Bandaríkjunum standa óbreyttir í Bandaríkjunum næsta mánuðinn eftir sautján mánaða tímabil samfelldra hækkana. Stýrivextir standa nú 5,25 prósentum en höfðu áður verið hækkaðir um fjórðung úr prósenti sautján mánuði í röð.

Útilokar leka við kaup á Scanvægt
Hörður Arnarson, forstjóri Marels, útilokar með öllu að upplýsingar hafi lekið út á markaðinn frá félaginu vegna kaupa þess á danska samkeppnisaðilanum Scanvægt fyrir tíu milljarða króna. Fyrir helgi áttu sér stað töluverð viðskipti með hlutabréf Marels og hækkaði gengi félagsins um 3,5 prósent í yfir 53 milljóna króna viðskiptum á fimmtudaginn og föstudaginn.


Herða þarf á framfylgd fjárlaga
Nauðsynlegt er að koma skjótt á jafnvægi í efnahagslífinu og styrkja innviði hagstjórnarinnar. Þetta segir í nýrri skýrslu Efnahags- og samvinnustofnunarinnar í París, OECD, um íslensk efnahagsmál. Þá þarf að gera átak í menntamálum þjóðarinnar.

Salan jókst um 38% milli ársfjórðunga
Marel skilaði mesta rekstrarhagnaði sínum á einum ársfjórðungi til þessa á öðrum fjórðungi þessa árs. Gengisþróun gjaldmiðla hefur verið félaginu hagstæð.

Kodak í miklum vanda
Gamli myndavélarisinn Kodak riðar til falls. Stafræna byltingin fór framhjá fyrirtækinu sem tapaði 21 milljarði á þriðja ársfjórðungi.

Svartsýnisspár ótímabærar
International Herald Tribune segir á vefsíðu sinni að hrakspár um íslensku bankana hafi verið ótímabærar og vitnar í álit matsfyrirtækisins Moody"s sem birt var fyrir verslunarmannahelgi. Þá segir að öllu tali um bankakreppu megi vísa á bug.

Honda í loftið
Japanski bílaframleiðandinn Honda, sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir að framleiða bíla, hyggst byrja að taka við pöntunum á einkaþotunni HondaJet í haust.
Hagnast um 280 milljarða frá lokum einkavæðingar
Frá árinu 2003, er einkavæðingu ríkisbankanna lauk og hlutabréfaverð tók að rísa hratt hér á landi, hafa viðskiptabankarnir þrír og Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hagnast alls um 280 milljarða króna.

Stýrivaxtahækkun í Ástralíu
Seðlabanki Ástralíu hefur hækkað stýrivexti um fjórðung úr prósenti. Þetta er í annað skipti á þremur mánuðum sem stýrivextir hækka í landinu en þeir standa nú í sex prósentum og hafa ekki verið hærri í sex ár. Ástralska hagkerfið stendur styrkum fótum þrátt fyrir að verðbólga sé nú um fjögur prósent. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Ástralíu er þrjú prósent.

Rússar auka bjórdrykkju
Danska bjórrisanum Carslberg hefur vegnað vel á Rússlands- og Eystrasaltsmarkaði. Carslberg rekur brugg- verksmiðju ásamt breska framleiðandanum Scottisch & Newcastle og jókst hagnaður verksmiðjunnar um tæp þrjátíu og tvö prósent á öðrum ársfjórðungi. Neysla á bjór hefur aukist gríðarlega í Rússlandi og við Eystrasalt undanfarin misseri og er því spáð að salan aukist um fimm prósent á þessu ári.

Opnað fyrir viðskipti í Beirút
Bréf í Kauphöllinni í Beirút féllu um fjögur prósent á fyrsta degi viðskipta eftir að Ísraelar hófu árásir á Líbanon.

Gistinóttum fjölgar milli ára
Tíu prósent fleiri gistu á hótelum landsins fyrstu sex mánuði ársins en á sama tíma í fyrra.
OECD fjallar um horfur hér
Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, kynnir í dag nýja skýrslu um efnahagsmál á Íslandi.
Fjöldi farþega FlyMe þrefaldast
FlyMe flutti þrefalt fleiri farþega í júlí en í sama mánuði í fyrra. Alls ferðuðust um 64 þúsund farþegar með félaginu í síðasta mánuði samanborið við sautján þúsund manns í júlí 2005.

BMW hagnast
Allt stefnir í besta ár í sögu BMW. Tekjur félagsins námu 1200 milljörðum á öðrum ársfjórðungi.

Murdoch og Google saman
Google mun framvegis sjá notendum stefnumótasíðunnar MySpace fyrir leitarvél. Google greiðir MySpace 65 milljarða króna fyrir réttinn sem felur einnig í sér heimild til að ráðstafa auglýsingum á síður MySpace.

Nokia vill Loudeye
Nokia-samsteypan ætlar sér stóra hluti á markaðnum með stafræna tónlist fyrir GSM-síma. Fyrirhuguð kaup á bandaríska tónlistardreifingarfyrirtækinu Loudeye Corporation fyrir um 69 milljónir bandaríkjadala, um 4,25 milljarða íslenskra króna, eru liður í þessu.

Starbucks svitnar í hitabylgju
Uppgjör Starbucks olli vonbrigðum. Vandamálum við framleiðslu kaldra drykkja kennt um.

Bensínshákar á undanhaldi
Bandarískir bílaframleiðendur eru í vandræðum. Ökumenn vilja smærri og meðfærilegri bíla.

Mikið af ruslpósti
Allt að 95 prósent allra tölvuskeyta er ruslpóstur, villuboð og vírusar en aðeins tæp 4 prósent allra skeyta innihalda eitthvað gagnlegt. Þetta er niðurstaða könnunar breska netfyrirtækisins Return Path.
Bankar mæla með öðrum bönkum
Greiningardeild Landsbankans mælir með kaupum og yfirvogun á hlutabréfum í Glitni eftir að Glitnir birti "sannfærandi" hálfs árs uppgjör sem var langt yfir væntingum annan ársfjórðunginn í röð.

Skrefi nær yfirtöku
Tryggingamiðstöðin er skrefi nær yfirtöku á norska tryggingafélaginu NEMI forsikring ASA en Fjármálaeftirlit Noregs veitti TM fyrir helgi heimild til að eiga milli 74,5 og 100 prósent af útistandandi hlutum í félaginu. Þann 12. apríl síðastliðinn gerði Tryggingamiðstöðin öllum hluthöfum félagsins yfirtökutilboð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og áreiðanleikakönnunar.
Áfram samdráttur á fasteignamarkaði
Velta á fasteignamarkaði hefur dregist saman um 45 prósent frá því þegar mest lét. Sérfræðingar segja samdrátt í veltu undanfara verðlækkana.

Lokatilboð í Atlas
Avion Group hækkar ekki tilboð sitt í Atlas Cold Storage.