Sprengisandur

Telur mögulegt að skuldbindingar í loftslagsmálum séu óraunhæfar
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist efins um hvort Íslendingar séu á réttri leið með þátttöku í loftslagsskuldbindingum Evrópusambandsríkja. Ísland eigi fátt sameiginlegt með þessum þjóðum í loftslagsmálum og hafi verulega sérstöðu hvað þau varðar.

Kári ræðir stöðu faraldursins og bóluefni á Sprengisandi
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, verður gestur Kristjáns Kristjánssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Farið verður yfir stöðu kórónuveirufaraldursins, bóluefni og skort á þeim sem og mismunandi afbrigði veirunnar.

Alþjóðamál, mygla, vinnumarkaður og eldgos á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjá Kristjáns Kristjánssonar verður á sínum stað á Bylgjunni að loknum fréttalestri klukkan tíu. Þátturinn í dag verður fjölbreyttur að vanda og fær Kristján til sín góða gesti.

Sprengisandur á Bylgjunni
Dómsmálaráðherra og þingkona Samfylkingarinnar ræða um jafnréttismál og dómskerfið í umræðuþættinum Sprengisandi beint eftir tíu fréttir á Bylgjunni í dag.

Of mikill þungi hafi lent á Seðlabankanum
Of mikill þungi í efnahagsaðgerðum hins opinbera hefur lent á Seðlabankanum og fjármagn sem ríkið hefur dælt út í kerfið hefur ekki ratað á rétta staði. Þetta segir Kristrún Frostadóttir, hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingar. Haraldur Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður fjárlaganefndar, gagnrýnir sveitarfélög fyrir að ráðast ekki í meiri fjárfestingar.

Leiðin úr kreppunni, staðan á Reykjanesi og skimun fyrir leghálskrabbameini á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf líkt og aðra sunnudaga. Þá er hægt að hlusta á þáttinn í beinni hér á Vísi.

Segir símtal Áslaugar lykta illa
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar segir að skerpa þurfi á verklagsreglum þegar kemur að samskiptum á milli framkvæmdavaldsins og undirstofnanna. Hún segir símtal dómsmálaráðherra til lögreglustjóra á aðfangadag ekki til þess fallið að auka traust á stjórnmálin.

Viðskiptalífið, stjórnmálin og heilbrigðiskerfið á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur í umsjón Kristjáns Kristjánssonar er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf líkt og aðra sunnudaga. Þá er hægt að hlusta á þáttinn í beinni hér á Vísi.

„Glannaleg umræða“ um eigið fé bankanna
Umræða um eigið fé bankanna er á köflum mjög glannaleg að mati Gylfa Magnússonar hagfræðiprófessors. Þá telur hann vert að spyrja að því hvort rétt sé að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka þegar tortryggni ríkir gagnvart því í samfélaginu.

Bólusetningar, bankar, veiðigjöld og atvinnuleysi í Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf á sunnudögum.

Sjálfbærni, samkeppni og stjórnarskrárfrumvarp Katrínar á Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf á sunnudögum.

Miðflokkurinn hafi lagt fram þingsályktunartillögu án þess að kynna sér aðstæður
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar segir Ólaf Ísleifsson ekki hafa kynnt sér aðstæður hælisleitenda í Grikklandi við gerð þingsályktunartillögu Miðflokksins.

Borgarlína, útlendingalög og efnahagsaðgerðir í Sprengisandi
Það verður mikið um að vera í þjóðmálaþættinum Sprengisandi í dag. Fyrstur á mælendaskrá er Jón Ólafsson sem mun ræða stöðuna í Rússlandi, fangelsisdóm stjórnarandstæðingsins Alexei Navalní og hvort atburðarásin sé farin að valda Pútín áhyggjum.

„Það er alltaf einhver sem er að meina þetta“
Hótanir á alltaf að taka alvarlega, segir utanríkisráðherra sem hefur sjálfur fengið að kynnast þeim. Þrátt fyrir að þeim sé sjaldnast fylgt eftir séu alltaf undantekningar á því.

Skotárás á bíl borgarstjóra og umræðan á netinu í Sprengisandi
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur á Bylgjunni er á dagskrá frá klukkan tíu til tólf, líkt og aðra sunnudaga.

Sprengisandur á Bylgjunni: Ríkisstjórnin, veiran, Íslandsbanki og krabbamein
Það verður margt rætt í þjóðmælaþættinum Sprengisandi í dag en þátturinn er sem fyrr á Bylgjunni klukkan tíu. Kristján Kristjánsson mun byrja á því að ræða við Sigurð Inga Jóhannsson, formann Framsóknarflokksins, um málefnagreining í ríkisstjórn og hvort hægt sé að flýta framkvæmdum í innviðum með þátttöku lífeyrissjóða.

„Almenningur hefur engin önnur tæki en að láta eins og skríll“
Alþingismaður segir að ef lögreglan hefði ekki verið eins öflug og hún var í búsáhaldabyltingunni hefði lýðurinn brotist inn í alþingishúsið. Hann segir líkindi með mótmælunum og árásinni á þinghús Bandaríkjanna.

Sprengisandur: Er enginn óhultur ef tæknifyrirtækin grípa til sinna ráða?
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er á dagskrá Bylgjunnar frá klukkan tíu til tólf í dag. Einnig má hlýða á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Óttast „glatað sumar“ vegna tvöfaldrar skimunar
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það skipta sköpum fyrir ferðaþjónustuna að fólk sé ekki skyldað til þess að vera í sóttkví milli skimana og er hún ekki hrifin af þeirri hugmynd að einhverjir gætu verið skyldaðir í farsóttahúsið ef þeir greinist með tiltekið afbrigði veirunnar. Hún efist um að það sé lagaheimild fyrir slíkum aðgerðum.

Telur það gott skref ef hluti Íslandsbanka yrði gefinn þjóðinni
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur að það yrði gott skref ef hluti eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka yrði afhentur almenningi landsins.

Sprengisandur: Íslandsbanki til almennings og ástandið í Bandaríkjunum
Það verður gestagangur á Sprengisandi í dag þar sem farið verður yfir víðan völl. Þátturinn er á dagskrá frá klukkan 10 til 12.

Sprengisandur: Forsætisráðherra og ferðaþjónustan
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra verður fyrsti gesturinn á Sprengisandi árið 2021, eitt og annað til umræðu eins og alltaf við forsætisráðherrann, ekki síst bólusetningar við kórónaveirunni sem enginn virðist vita hvort verði bráðlega eða bara miklu síðar

Góðir gestir fara yfir árið 2020 á Sprengisandi
Síðasti þáttur Sprengisands í ár fer í loftið klukkan tíu í dag á Bylgjunni.

„Skynsamlegt að lífeyrissjóðir taki þátt í uppbyggingu innviða“
Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs segir skynsamlegt að lífeyrissjóðir taki þátt í því að byggja upp innviði hérlendis.

Síðasti þáttur Sprengisands fyrir jól
Síðasti þáttur Sprengisands fyrir jól hefst á Bylgjunni í dag klukkan 10. Þar verður farið yfir víðan völl og ýmislegt gert upp fyrir jólin.

„Alvarlegt hvernig farið er með Landspítalann“
Þingmaður Samfylkingarinnar segir alvarlegt að gerð sé aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnanir nú á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Formaður fjárlaganefndar segir að krónutölur þurfi að skoða í stærra samhengi hvað varðar aðhaldskröfur á Landspítalann. Hann vill að því verði hætt að setja almennar aðhaldskröfur og vill að tekin verði upp ný aðferðafræði í staðinn.

Sprengisandur: Málefni barna, miðhálendisþjóðgarður og fjárlög
Sprengisandur er á dagskrá í dag líkt og alla sunnudaga klukkan 10.

Óvissa um ferðaþjónustuna eftir bólusetningu
Hagfræðingur segir að jákvæðar fréttir af bóluefni geti haft óbein áhrif á efnahagskerfið. Óvissa sé þó um hvað gerist í ferðaþjónustunni þegar búið er að bólusetja flestar þjóðir.

Viðbrögð við bóluefni og Landsréttarmálið á Sprengisandi
Viðbrögð hagkerfisins við tíðindum af bóluefni, nýsköpun og viðreisn efnahagslífsins, dómur yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu og staða eldri borgara er á meðal þess sem fjallað verður um á Sprengisandi á Bylgjunni á dag.

„Hugsunin góð“ hjá Páli en hefði viljað ganga lengra
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, mættust í umræðu um sjávarútveg í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.