
Kennaraverkfall

Enginn bæjarstjóri mætir
Enginn forystumanna stærstu sveitarfélaga landsins ætlar að mæta á fund sem Kennarasambandið hafði boðið þeim á í dag til að útskýra fyrir þeim sjónarmið kennara. Formaður Félags grunnskólakennara segir deiluna í hnút og ekki útlit fyrir að neitt uppbyggilegt verði á borðinu á fundi deilenda með ríkissáttasemjara á morgun.

Tónlistarkennarar lýsa stuðningi
Tónlistarskólakennarar hafa lýst yfir stuðningi við kjarabaráttu grunnskólakennara. Á svæðisþingi tónlistarskóla á Suðurlandi, Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, sem haldið var í Reykjavík 24. september sl., var eindregnum stuðningi við launakröfur grunnskólakennara lýst yfir.
Sveitastjórnarmenn í málið
Kennarar telja að sveitarstjórnarmenn geri sér ekki alveg grein fyrir kröfum grunnskólakennara og skýli sér um of á bak við samninganefnd sveitarfélaganna. Þeir telja að sveitarstjórnarmenn gætu liðkað fyrir lausn verkfallsins.

Heimili og Skóli krefjast úrlausna
Heimili og skóli – landssamtök foreldra, hafa sent frá sér ályktun, þar sem segir að staðan í kjaraviðræðum Kennarasambands Íslands og launanefndar sveitarfélaga sé með öllu óviðunandi. Þar segir jafnframt að Alþingi setji lög um grunnskóla og stjórnvöldum beri því að fylgjast með því að sveitarfélög uppfylli skyldur sínar um að halda úti skóla fyrir öll börn.

Engar undanþágur
Þremur nýjum umsóknum til undanþágunefndar kennara og sveitarfélaganna var hafnað í gær. Sjö öðrum beiðnum var frestað af mismunandi ástæðum, segir Sigurður Óli Kolbeinsson lögfræðingur sem situr í nefndinni fyrir sveitarfélögin.

Skorað á bæjarstjórn Kópavogs
Grunnskólakennarar í Kópavogi fjölmenntu á fund forseta bæjarstjórnar í dag til að skora á hann að beita sér fyrir lausn kjaradeilunnar við kennara. Að því loknu flykktust kennarar á bæjarstjórnarfund.