Tímamót

Margrét Rán og Bryndís Hrönn eiga von á sínu fyrsta barni
Tónlistarkonan Margrét Rán á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni Bryndísi Hrönn. Parið tilkynnti þessar gleðilegu fréttir með sameiginlegri færslu á Instagram.

Sú besta leggur skautana á hilluna aðeins nítján ára gömul
Aldís Kara Bergsdóttir, besti listskautari Íslands undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja skautana á hilluna þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára gömul.

Stjörnutorgsskiltið fer á nýtt Stjörnutorg
Fyrirtækið Tæknivörur hefur fest kaup á skilti sem var staðsett á Stjörnutorgi í Kringlunni. Fyrirtækið borgar 200 þúsund krónur fyrir skiltið en öll fjárhæðin rennur til góðgerðarmála. Tæknivörur munu síðan afhenda íþróttafélaginu Stjörnunni skiltið.

Ari Eldjárn einhleypur
Uppistandarinn Ari Eldjárn er orðinn einhleypur. Ari og kona hans Linda Guðrún Karlsdóttir hafa ákveðið að halda í sitthvora áttina eftir tuttugu ára samband.

Sigríður segir Boeing 757 vera uppáhaldsflugvélina
Sigríður Einarsdóttir varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna störfum atvinnuflugmanns. Þegar hún er spurð, að loknum 38 ára starfsferli sem flugmaður og flugstjóri, hver sé uppáhaldsflugvélin er svarið: Boeing 757.

Búnar að sýna og sanna það að þetta er ekki karlastarf lengur
Hún ruddi brautina fyrir íslenskar konur í flugmannastétt sem sú fyrsta sem var ráðin sem atvinnuflugmaður. Í dag var komið að síðustu lendingu Sigríðar Einarsdóttur í flugstjórasætinu hjá Icelandair og hlaut hún heiðursmóttöku á Keflavíkurflugvelli.

Skynsamlegt og gaman að gefa þjóðinni gjöf
Kvikmyndagerðarmaðurinn Þráinn Bertelsson afhenti í dag íslensku þjóðinni allar kvikmyndir sínar að gjöf við hátíðlega athöfn í Bíó Paradís.

Greta Salóme orðin móðir
Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir eignaðist í dag sitt fyrsta barn ásamt unnusta sínum, Elvari Þór Karlssyni.

Simmi Vill er aftur á lausu
Sigmar Vilhjálmsson, athafna- og veitingamaður er aftur á lausu eftir að hann og danska kærastan hans, Julie Christensen, hættu saman. Þau opinberuðu samband sitt um miðjan september á þessu ári.

Lokun Stjörnutorgs sögð aðför að æsku menntskælinga
Landsmenn kvöddu Stjörnutorg í dag eftir 23 ára starfsemi og lýstu sumir fastagestir torgsins brotthvarfinu sem aðför að æskunni. Merki Stjörnutorgs verður selt á uppboði.

Edda Björgvins fagnaði sjötugsafmælinu í gulli frá toppi til táar
Edda Björgvinsdóttir fagnaði sjötugsafmæli sínu í gær umkringd nánustu vinum og fjölskyldu. Er þetta ein af mörgum afmælisveislum leikkonunnar sem kann svo sannarlega að fagna tímamótum.

Bein útsending: Landsmenn kveðja Stjörnutorg
Stjörnutorgi verður lokað í dag eftir 23 ára starfsemi. Kveðjuhóf fer fram á svæðinu klukkan 11:30 og verður Vísir í beinni útsendingu frá tímamótunum.

Trúlofaður konunni sem hann elskar meira en allt í heiminum
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og lögfræðingurinn Kristín Eva Geirsdóttir eru trúlofuð. Þau hafa verið saman í fjögur ár og eiga saman tvær dætur, þær Ástu Berthu og Sunnu Stellu.

Kveðja Stjörnutorg fyrir fullt og allt með tónlistaratriðum og gefins bíómiðum
Kveðjuhóf verður haldið á Stjörnutorgi í Kringlunni klukkan 11:30 á morgun. Gestalistinn er öllum opinn en rapparinn Daniil tekur lagið, Gústi B þeytir skífum og gefnir verða bíómiðar. Nýtt veitinga- og afþreyingarsvæði, Kúmen, opnar á allra næstu dögum og lokar Stjörnutorg því eftir 23 ára starfsemi.

Fæddi í fangi eiginmannsins á baðgólfinu heima
Hönnuðurinn Katla Hreiðarsdóttir ákvað að eiga seinni son sinn heima. Hún fékk með sér tvær heimafæðingarljósmæður, önnur þeirra var nágrannakonan í næsta húsi.

Loka Lauga-Ási eftir 43 ára starfsemi
Veitingastaðnum Lauga-Ási á Laugarásvegi 1 í Reykjavík verður lokað í næsta mánuði. Staðurinn hefur verið starfræktur síðan 1979, en veisluþjónusta verður þó áfram starfrækt undir merkjum staðarins.

Ellefta barnið komið í heiminn og það tólfta á leiðinni
Barnamaskínan Nick Cannon er orðinn ellefu barna faðir. Hann eignaðist dótturina Zeppelin Cannon á þeim flotta degi 11.11. með plötusnúðinum Abby De La Rosa. Zeppelin er þá fjórða barnið sem Cannon eignast á þessu ári en það fimmta er væntanlegt í desember.

Stjörnutorg verður að Kúmen
Nýtt veitinga- og afþreyingasvæði Kringlunnar hefur fengið nafnið Kúmen. Sautján veitingastaðir verða á svæðinu en nokkrir þekktir staðir Stjörnutorgs munu hverfa á brott.

Pabbi Jennifer Aniston er fallinn frá
Leikkonan Jennifer Aniston hefur greint frá því að faðir hennar, leikarinn John Aniston er fallinn frá. Þetta tilkynnti hún á samfélagsmiðlinum Instagram.

Edrú í þúsund daga og einhleyp á ný
Það er óhætt að segja að leikkonan og handritshöfundurinn Dóra Jóhannsdóttir standi á miklum tímamótum í sínu lífi. Samkvæmt heimildum Vísis hafa Dóra og eiginmaður hennar, Egill Egilsson, haldið í sitthvora áttina.

Flóni er orðinn faðir
Tónlistarmaðurinn vinsæli Flóni er orðinn faðir. Hann greindi frá þessum gleðitíðindum á Instagram síðu sinni nú í morgun.

Ritstjóri Húsa og híbýla og Gestgjafans lætur af störfum: „Margt spennandi framundan“
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir er hætt sem ritstjóri tímaritanna Hús og Híbýla og Gestgjafans. Útgáfufélagið Birtíngur gefur út tímaritin en Hanna hefur verið ritstjóri Gestgjafans síðan árið 2016. Hún tók einnig við ritstjórn Hús og híbýla árið 2019.

Svava Björk nýr framkvæmdastjóri Framvís
Framvís, samtök vísifjárfesta hefur ráðið Svövu Björk Ólafsdóttur sem framkvæmdastjóra félagsins frá og með nóvember 2022.

Færeyingar á sama Svalalausa báti og Íslendingar
Það eru ekki bara Íslendingar sem munu ekki geta lengur svalað þorsta sínum með ísköldum Svala. Færeyingar eru í sömu stöðu. Í frétt Dimmalættings um endalok Svalans er drykkurinn kallaður „hinn víðfrægi íslenski svaladrykkur Svali“.

Landsmenn gráta Svala og sumir óttast það versta
Ávaxtasafinn Svali er allur, ef svo má segja. Það virðast vera ein stærstu tíðindi dagsins ef marka má viðbrögð landsmanna á samfélagsmiðlum við tíðindunum. Sumir minnast blás Ópals og Frissa fríska við þessi tímamót. Aðrir velta upp hvaða vörur gætu horfið af markaði.

Hætta framleiðslu á Svala
Framleiðsla og sala á Svala mun hætta um áramótin. Svali hefur verið einn vinsælasti drykkur landsins í yfir fjörutíu ár.

Síðasti dagur verslunarinnar Brynju að kvöldi kominn
Einu helsta kennileiti Laugavegarins, iðnaðarvöruversluninni Brynju hefur verið lokað eftir 103 ára starf. Eigandi Brynju segist ekki vita hvers konar starfsemi taki við í húsinu.

Mikið fjör á 110 ára afmæli skátastarfs á Íslandi
Í tilefni 110 ára afmæli skátastarfs á Íslandi var haldin kvöldvaka í Ráðhúsi Reykjavíkur. Skáti til 66 ára segir sinn skátaflokk hittast enn þann dag í dag í hverri viku.

„Lítill naglbítur á leiðinni“
Listamennirnir Saga Sigurðardóttir og Vilhelm Anton Jónsson eiga von á barni.

Kynntust á ströndinni og giftu sig í ráðhúsinu
Bachelor in Paradise parið Serena Pitt og Joe Amabile, einnig þekktur sem Grocery Store Joe, giftu sig í ráðhúsinu í New York í gær. Parið trúlofaði sig á ströndinni árið 2021 í lokaþætti BIP.