Landhelgisgæslan „
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 29 ›
„Það er til nóg af flugvélum í landinu“ Atburðarásin sem fór af stað þegar greint var frá áformum dómsmálaráðherra um að selja flugvél Landhelgisgæslunnar hefur verið áhugaverð, vægast sagt. Enda gerist það ekki oft, fáeinum vikum eftir samþykkt fjárlaga, að ráðherra tilkynnir einhliða um aðgerð í sparnaðarskyni sem dregur úr öryggi allra landsmanna. Skoðun 3.2.2023 13:30
Atvinnuflugmenn segja ákvörðun Jóns óforsvaranlega Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, sé óforsvaranleg og ólögleg. Félagið mun mögulega leita atbeina Félagsdóms gerist þess þörf. Innlent 3.2.2023 11:00
Formaður fjárlaganefndar boðar til aukafundar vegna TF-SIF Þingmenn fordæma vinnubrögð dómsmálaráðherra við ákvörðun um sölu á flugvél Landhelgisgæslunnar og segja hana mikilvæga vegna þjóðaröryggis. Boðað hefur verið til fundar í fjárlaganefnd um málið á morgun. Ýmsir sem tengjast viðbrögðum við náttúruvá og annarri hættu undrast einnig að selja eigi þessa fullkomnustu leitar og björgunarflugvél landsins Innlent 2.2.2023 19:20
„Það verður fróðlegt að lesa þá skýrslu sem hlýtur að liggja fyrir“ Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, er undrandi á áformum dómsmálaráðherra um að selja flugvélina TF-SIF, sem hefur verið hluti af flota Landhelgisgæslunnar frá árinu 2009. Hann segist vona að ítarleg greining búi að baki ákvörðuninni. Almannavarnir hafi ekki komið að slíkri greiningu. Innlent 2.2.2023 18:19
Hristir hausinn yfir ákvörðun Jóns því vélina megi alls ekki selja Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra á þeim tíma sem flugvélin TF-SIF varð hluti af flota Landhelgisgæslunnar, er hissa á tíðindum af fyrirhugaðri sölu vélarinnar. Hans skoðun er einföld. Vélina megi alls ekki selja. Þá setur hann spurningamerki við að Ísland vilji ekki stolt leggja sitt af mörkum við gæslustörf fyrir Miðjaðarhafi. Innlent 2.2.2023 16:37
Flugvélin kostnaðarsöm og notkunin „mjög lítil“ Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra segir að flugvél Landhelgisgæslunnar sé kostnaðarsöm og lítið notuð. Fyrirhuguð sala á vélinni var til umfjöllunar í funheitri umræðu á Alþingi í dag. Innlent 2.2.2023 15:30
Dómsmálaráðherra hefur ekki heimild til að selja TF-SIF Engin heimild er í fjárlögum þessa árs til sölu á TF-SIF flugvél Landhelgisgæslunnar. Áform dómsmálaráðherra um sölu flugvélarinnar komu formanni fjárlaganefndar á óvart og telur hann nauðsynlegt að nefndin komi saman til að ræða þessi mál strax á morgun. Fjölmargir þingmenn lýstu hneykslan sinni á ákvörðun dómsmálaráðherra á Alþingi í morgun. Innlent 2.2.2023 12:25
Í algjöru áfalli og skilja ekkert í fyrirhugaðri sölu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands, segir vísindamenn og viðbragðsaðila í áfalli vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um að selja TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar. Innlent 2.2.2023 11:33
Rekstri flugvélar Landhelgisgæslunnar hætt í hagræðingarskyni Rekstri TF-SIF, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, verður hætt á árinu vegna hagræðingar. Dómsmálaráðuneytið tilkynnti gæslunni þetta fyrr í vikunni og hefst söluferli á næstunni. Innlent 1.2.2023 15:35
Losuðu hvalshræ úr tógi frá kræklingarækt Áhöfn sjómælingaskipsins Baldurs losaði í dag dauðan hval í Stakksfirði. Sá hafði flækst í botnföstum köðlum sem líklega er, eða var, hluti af kræklingarækt. Innlent 26.1.2023 14:30
Viðgerð um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni lokið Viðgerð um borð í togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni tókst síðdegis og siglir skipið nú fyrir eigin vélarafli. Togarinn heldur til Hafnarfjarðar þar sem gert er ráð fyrir að ný veiðarfæri verði sótt. Innlent 22.1.2023 17:51
Guðni var með er Hrafn Sveinbjarnarson var dreginn til hafnar Varðskipið Freyja er lögð af stað með togarann Hrafn Sveinbjarnarson áleiðis til hafnar. Togarinn varð vélarvana um klukkan fjögur í nótt um fimmtíu sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi. Forseti Íslands er um borð í skipinu. Innlent 22.1.2023 16:12
Forsetinn í varðskipi á leið til móts við vélarvana togara Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er um borð í varðskipinu Freyju, sem verið er að sigla til hjálpar vélarvana togara. Tilkynning barst frá togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni um klukkan fjögur í nótt um að togarinn væri aflvana. Innlent 22.1.2023 09:45
Biðja íbúa að leita í görðum og geymslum að Modestas Lögreglan á Vesturlandi biður íbúa í Borgarnesi og nágrenni að skoða sitt nærumhverfi vegna leitarinnar að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem saknað hefur verið síðan á laugardag. Innlent 12.1.2023 16:02
Leiguskip Eimskips vélarvana vestur af Reykjanesi Uppfært: Vélar flutningaskipsins eru komnar í gang og siglir það nú fyrir eigin vélarafli. Landhelgisgæslan hefur létt á viðbúnaði sínum en dráttarbáturinn Magni mun fylgja skipinu áleiðis til hafnar í Reykjavík. Innlent 9.1.2023 08:43
Varðskipið Þór viðbragðsaðilum til halds og trausts vegna veðurs Lögreglan á Vestfjörðum hefur ákveðið að loka veginum sem liggur um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð klukkan 20:00 í kvöld vegna veðurs. Þá er varðskipið Þór komið vestur og verður viðbragðsaðilum til halds og trausts. Innlent 8.1.2023 15:56
Sóttu slasaðan einstakling við Skógafoss Beiðni um útkall þyrlu Landhelgisgæslunnar barst á fimmta tímanum í dag vegna slasaðs einstaklings við Skógafoss. Innlent 4.1.2023 18:53
Þrjú loftför, tvö slys og tíu slasaðir Landhelgisgæslan vill hafa flugvél sína, sem gegndi mikilvægu hlutverki þegar alvarlegt umferðarlys varð á Suðurlandi í gær, oftar til taks hér á Íslandi. Tíu manns úr tveimur slysum voru fluttir til Reykjavíkur með þremur loftförum gæslunnar í gær; bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar. Innlent 4.1.2023 13:01
Erlendir ferðamenn í öðrum bílnum en Íslendingar í hinum Fólkið sem lenti í hörðum árekstri suður af Öræfajökli síðdegis í gær er bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan þeirra sem slösuðust en allir níu sem lentu í slysinu voru fluttir með flugi til Reykjavíkur. Innlent 4.1.2023 10:17
Níu fluttir með flugi til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys Harður árekstur varð á Suðurlandi í dag. Fólksbíll og jeppi skullu saman á Suðurlandsvegi við Öldulón og Fagurhólsmýri, suður af Öræfajökli, um klukkan tvö en níu manns voru í bílunum tveimur. Innlent 3.1.2023 16:39
Aldrei fleiri þyrluútköll en í fyrra Metfjöldi þyrluútkalla var hjá Landhelgisgæslunni í fyrra en þá sinnti flugdeild hennar 299 útköllum. Meirihluti þeirra var vegna sjúkraflutninga og þriðjungur var á sjó. Innlent 2.1.2023 14:36
Landhelgisgæslan sækir slasaðan ferðamann Á þriðja tímanum í dag var óskað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar eftir að ferðamaður slasaðist á fæti við Svartafoss í Skaftafelli. Innlent 25.12.2022 14:47
Þyrlan lenti á hringtorgi í Hveragerði Þyrla Landhelgisgæslunnar þurfti að lendi á hringtorgi rétt fyrir utan Hveragerði fyrr í dag. Hjálparsveit skáta aðstoðaði við að flytja einstaklinginn í átt að hringtorginu. Innlent 19.12.2022 19:14
Einn alvarlega slasaður eftir bílveltu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti tvo slasaða norður í land eftir að útkall barst vegna bílveltu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að annar þeirra sé alvarlega slasaður. Innlent 18.12.2022 12:13
Þyrla Landhelgisgæslunnar bilaði í leit að manni á Suðurlandi Þyrla Landhelgisgæslunnar var á sveimi við ósa Þjórsár í gær að leita að manni. Þyrlan bilaði og þurftu flugmenn hennar að skilja hana eftir. Verið er að vinna að því að gera við hana. Innlent 16.12.2022 09:58
Fimm þúsund heimaprjónaðar lopaflíkur sendar til Úkraínu í dag Heimaprjónaðar lopapeysur og ullarteppi voru meðal þess sem kanadíski herinn flaug með til Úkraínu frá Keflavíkurflugvelli síðdegis. Þúsundir Íslendinga hafa tekið upp prjónana undanfarna mánuði og lagt sitt af mörkum til að halda hita á úkraínsku þjóðinni í vetur. Innlent 12.12.2022 21:02
Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag. Innlent 7.12.2022 10:32
Leitað fram á kvöld að skipverjanum Leit að skipverjanum á Sighvati GK-57 sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðsskaga heldur áfram fram á kvöld. Innlent 6.12.2022 17:48
Öryggismyndavélar um borð en engin upptaka af slysinu Leitin að skipverjanum sem féll frá borði við Garðskagavita á laugardag hefur enn engan árangur borið. Lögreglan á Suðurnesjum segir að öryggismyndavélar hafi verið um borð en myndbandsupptaka sé ekki til af slysinu. Innlent 6.12.2022 15:14
Notast við neðansjávarfar við leitina að skipverjanum Áhöfnin á varðskipinu Þór heldur leit áfram í dag að skipverjanum sem féll útbyrðis á laugardag úti fyrir Garðskaga. Leitað verður með neðansjávarfari frá Teledyne Gavia á svæðinu þar sem talið er að maðurinn hafi fallið fyrir borð. Innlent 6.12.2022 10:54