Kauphöllin
23 24 25 26 27 28 29 30 31 … 78 ›
Stjórnin endurspegli ekki hluthafahóp Sýnar Í dag fóru þrjú félög, sem saman fara með 10,8 prósent hlut í Sýn, fram á að haldinn yrði annar hluthafafundur og ný stjórn yrði kjörin. Fasti ehf., sem er í eigu hjónanna Hilmars Þórs Kristinssonar og Rannveigar Eirar Einarsdóttur, er stærsta félagið í hópnum. Hilmar Þór segir að stjórn Sýnar endurspegli einfaldlega ekki hluthafahóp félagsins. Viðskipti innlent 19.9.2022 18:14
Krefjast nýs stjórnarkjörs hjá Sýn Þrír hluthafar sem fara saman með 10,18% eignarhlut í Sýn hf. hafa krafist þess að boðað verði til hlutahafafundar um nýtt stjórnarkjör. Innan við mánuður er frá því að kosið var til stjórnar Sýnar í kjölfar þess að nýr fjárfestahópur keypti stærsta einstaka hlutinn í félaginu. Viðskipti innlent 19.9.2022 16:36
Gjaldeyrisinnflæðið sem kom ekki þegar íslenskir fjárfestar voru teknir í bólinu Umfangsmikil sala erlendra fjárfestingarsjóða, sem hafa að undanförnu byggt upp stöður í skráðum félögum hér á landi, til erlendra vísitölusjóða í aðdraganda þess að íslenski hlutabréfamarkaðurinn var færður upp í flokk nýmarkaðsríkja olli því að hlutabréfaverð flestra fyrirtækja í Kauphöllinni lækkaði verulega þegar markaðir lokuðu fyrir helgi. Innherji 19.9.2022 16:17
Biðstaða á meðan fjárfestar bíða eftir planinu hjá stjórn Símans Efnahagsreikningur Símans tekur stakkaskiptum núna þegar loksins er orðið ljóst að salan á Mílu fyrir tæplega 70 milljarða króna gengur í gegn. Stóra spurningin, sem ætti að opinberast á allra næsta vikum, er hvað félagið hyggst gera við það mikla reiðufé sem það situr á eftir söluna. Flestir eiga von á því að þeir fjármunir verði meira eða minna allir greiddir út til hluthafa. Klinkið 18.9.2022 13:20
Gildi heldur áfram að stækka hlut sinn í Sýn Gildi lífeyrissjóður, sem hefur um langt skeið verið einn allra stærsti hluthafi Sýnar, er á síðustu vikum búinn að vera að stækka stöðu sína í fjölmiðla- og fjarskiptafélaginu, bæði í aðdraganda og eftir hluthafafund félagsins í lok síðasta mánaðar þar sem átök voru á milli einkafjárfesta og lífeyrissjóða um kjör stjórnarmanna. Innherji 16.9.2022 16:02
Telur kaupin á Vísi auka verðmæti Síldarvinnslunnar um nærri sjö milljarða Sjávarútvegsfyrirtækið Vísir í Grindavík gæti staðið undir verðmiða upp á um 37,5 milljarða króna en heildarkaupverðið á félaginu til Síldarvinnslunnar, sem var tilkynnt um í sumar, nemur 31 milljarði króna. Væntur ávinningur Síldarvinnslunnar af kaupunum er því um 6,5 milljarðar, eða um 17 prósent af kaupverðinu. Innherji 15.9.2022 07:01
Lífeyrissjóðurinn Festa selur allan hlut sinn í Sýn Festa lífeyrissjóður, sem hefur verið á meðal stærstu hluthafa Sýnar, hefur losað um allan eignarhlut sinn í fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu. Lífeyrissjóðurinn seldi þannig rúmlega 1,6 prósenta hlut í félaginu skömmu eftir lokun markaða í dag fyrir samtals um 276 milljónir króna, samkvæmt heimildum Innherja. Innherji 13.9.2022 17:36
Leiguverð aflaheimilda þorsks hækkar um 50 prósent milli ára Leiguverð á aflaheimildum helstu bolfisktegunda hefur hækkað töluvert frá síðasta ári, að því er kemur fram í gögnum Fiskistofu. Meðalleiguverð aflamarks þorsks á síðasta ári var ríflega 405 krónur fyrir hvert kíló. Það er um það bil 50% hærra verð en meðalverð síðasta árs. Leiguverð aflaheimilda ýsu og ufsa hefur einnig hækkað töluvert. Innherji 13.9.2022 16:30
Mismunandi leiðir inn á markaðinn I Skráð félög eru meira áberandi í allri umræðu og komast á kortið hjá stærri hópi fjárfesta. En eins og með seljanleika er hægt að gera ýmislegt til að nýta aukinn sýnileika til fulls. Það er ekki nóg að hafa gjallarhorn, það þarf líka að hafa góða sögu að segja. Umræðan 13.9.2022 09:05
Hækkun veiðigjalds eykur hagræðingu og samþjöppun, segir greinandi Hækkun veiðigjalds mun „líklega bitna á þeim sem síst skildi og þeim sem gjaldið er mögulega ætlað að verja,“ að sögn íslensks greinanda. Sjávarútvegsfyrirtæki hér á landi séu verðþegar á risastórum alþjóðlegum markaði og í harðri samkeppni við fiskeldi sem er síður háð duttlungum náttúrunnar. Framboð fiskeldisfyrirtækja er stöðugt og þau eru því með forskot á íslenskan sjávarútveg. Innherji 13.9.2022 07:00
Lífeyrissjóðir settu nær öll atkvæði sín á Pál og Jóhann í stjórnarkjöri Sýnar Þrír af stærstu lífeyrissjóðunum í hluthafahópi Sýnar, sem ráða samanlagt yfir 26,5 prósenta eignarhlut, settu nær öll atkvæði sín á þá Pál Gíslason og Jóhann Hjartarson í stjórnarkjöri fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins í lok síðasta mánaðar og tryggðu þannig að allir þeir stjórnarmenn sem sóttust eftir endurkjöri héldu sætum sínum. Á meðal þeirra sem fékk ekki eitt einasta atkvæði frá sjóðunum var stærsti einkafjárfestirinn í Sýn. Innherji 11.9.2022 12:08
Akta og Stapi keyptu fyrir um tvo milljarða í útboði Kaldalóns Fjórir fjárfestar, lífeyrissjóðir og sjóðastýringarfyrirtæki, keyptu mikinn meirihluta allra þeirra hluta sem voru seldir í lokuðu útboði Kaldalóns undir lok síðasta mánaðar þegar fasteignafélagið sótti sér nýtt hlutafé að fjárhæð samtals fjögurra milljarða króna. Innherji 8.9.2022 09:25
Ásta ráðin forstjóri Festi Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Festi og tekur við starfinu frá og með deginum í dag. Hún hefur verið framkvæmdastjóri Krónunnar frá árinu 2020 og mun sinna því starfi samhliða forstjórastöðunni fyrst um sinn. Viðskipti innlent 7.9.2022 17:35
Júlía tekur við stöðunni af Margréti hjá Ölgerðinni Júlía Eyfjörð Jónsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar. Viðskipti innlent 7.9.2022 09:24
Margrét hættir hjá Ölgerðinni Margrét Arnardóttir hefur óskað að láta af störfum sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og tæknisviðs Ölgerðarinnar og samið um starfslok sín. Viðskipti innlent 7.9.2022 07:48
Krónan gefur eftir samhliða auknum gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða Eftir nánast samfellt styrkingarskeið um langt skeið hefur gengi krónunnar gefið talsvert eftir yfir sumarmánuðina og lækkað um rúmlega fimm prósent. Auknar erlendar fjárfestingar lífeyrissjóðanna eru meðal annars taldar skýra veikinguna og þá hefur gjaldeyrismiðlun Landsbankans staðið að talsverðum gjaldeyriskaupum fyrir viðskiptavini á síðustu vikum, að sögn sérfræðinga á markaði. Innherji 6.9.2022 18:54
Hildur segir sig úr stjórn til að fyrirbyggja hagsmunaárekstra Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, hefur fært sig úr stjórn Orkuveitu Reykjavíkur yfir í stjórn Faxaflóahafna. Ástæðan er kjör eiginmanns hennar í stjórn Sýnar og mögulegir hagsmunaárekstrar sem því fylgja. Innlent 6.9.2022 18:41
Sjóðir Akta stækka stöðu sína í SKEL á meðan Jakob Valgeir selur Sjóðir í stýringu Akta meira en tvöfölduðu eignarhlut sinn í SKEL í liðnum mánuði og fara núna með að lágmarki um 2,3 prósenta eignarhlut í fjárfestingafélaginu. Samanlagður hlutur Akta, sem kom fyrst inn í hluthafahóp SKEL í júní síðastliðnum, gerir sjóðastýringarfyrirtækið að sjöunda stærsta hluthafa félagsins. Innherji 5.9.2022 16:30
Eignir í stýringu Akta lækka um þriðjung, miklar innlausnir í stærstu sjóðunum Mikill samdráttur einkenndi rekstur og afkomu sjóðastýringarfyrirtækisins Akta, sem hefur vaxið mjög hratt á skömmum tíma, á fyrri helmingi þessa árs samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Akta hagnaðist aðeins um 2,5 milljónir, borið saman við 1,3 milljarða hagnað á sama tíma fyrir ári, og margra milljarða króna útflæði var úr helstu fjárfestingarsjóðum í stýringu félagsins. Innherji 2.9.2022 12:16
Telja ólíklegt að „svört“ verðbólguspá Seðlabankans muni ganga eftir Nýjustu hagtölur sem sýna að verðbólgan er tekin að hjaðna og hagvöxtur reyndist minni á árinu en Seðlabankinn var áður búinn að spá gefur væntingar um að peningastefnunefnd muni ekki fara í aðra skarpa vaxtahækkun. Ólíklegt er að „svört“ spá Seðlabankans um nærri 11 prósenta verðbólgu í í lok árs muni ganga eftir, að mati sérfræðinga á fjármálamarkaði. Innherji 2.9.2022 09:51
Halla ráðin yfirmaður eignastýringar LSR Halla Kristjánsdóttir hefur verið ráðin sem nýr forstöðumaður eignastýringar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR), stærsta lífeyrissjóði landsins, samkvæmt heimildum Innherja. Klinkið 1.9.2022 20:32
Framkvæmdastjóri Krónunnar kaupir hlut í Festi fyrir tæplega 20 milljónir Framkvæmdastjóri Krónunnar, Ásta Sigríður Fjeldsted hefur keypt tæplega 20 milljóna króna hlut í smásölufyrirtækinu Festi en hún greiddi 208 krónur á hlut. Festi rekur verslanir Krónunnar. Viðskipti innlent 31.8.2022 23:28
Reynir með yfir 80 prósenta hlut í Gavia Invest Reynir Finndal Grétarsson, stofnandi Creditinfo, er langsamlega umsvifamestur þeirra fjárfesta sem standa að baki félaginu Gavia Invest sem keypti meðal annars allan hlut fráfarandi forstjóra Sýnar og er í dag stærsti einstaki hluthafi fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins. Innherji 31.8.2022 17:06
Rúnar hættir í eigin viðskiptum hjá Arion banka Rúnar Friðriksson, sem hefur starfað í eigin viðskiptum Arion banka síðustu ár, er hættur hjá bankanum, samkvæmt heimildum Innherja. Hann sagði starfi sínu lausu í dag en það mun skýrast fljótlega hver verður fenginn til að taka við af honum innan bankans. Klinkið 31.8.2022 15:02
Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör. Viðskipti innlent 31.8.2022 11:51
Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 31.8.2022 08:50
Íslensk félög fá meira vægi í vísitölum FTSE Íslensk fyrirtæki verða fleiri og fá meira vægi í vísitölum FTSE Russell en áður var búist við. Forstjóri Kauphallar Íslands segir að aukið vægi í vísitölunum geti þýtt meira innflæði af erlendu fjármagni inn á hlutabréfamarkaðinn. Innherji 30.8.2022 08:04
Hagnaður Stefnis minnkar um 16 prósent í „mjög krefjandi“ fjárfestingarumhverfi Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, hagnaðist um 529 milljónir króna á fyrri hluta ársins og dróst hann saman tæplega 16 prósent frá sama tímabili í fyrra þegar félagið skilaði 629 milljónum í hagnað. Eignir í virkri stýringu félagsins lækkuðu um 14 milljarða frá áramótum og eru nú um 274 milljarðar. Innherji 29.8.2022 18:00
Sjóðastýringarrisinn Capital minnkar við hlut sinn í ISB fyrir um 800 milljónir Sjóðir í stýringu bandaríska félagsins Captal Group, sem hefur verið einn stærsti eigandi Íslandsbanka allt frá því að hann var skráður á markað í júní í fyrra, hefur á síðustu dögum og vikum verið að minnka við hlut sinn í bankanum. Eignarhlutur sjóðastýringarrisans er nú kominn undir fimm prósent. Innherji 29.8.2022 09:40
Össur kaupir hið bandaríska Naked Prosthetics Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hf. hefur gengið frá kaupum á Naked Prosthetics sem sérhæfir sig í stoðtækjum fyrir einstaklinga sem misst hafa framan af fingri eða hlut af hendi. Viðskipti innlent 29.8.2022 08:03
Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Erlent